Tíminn - 21.11.1970, Blaðsíða 10
Jáíitim
TfMINN
EAU€rMtÐA6WR 21. nóvember 1970
Sebastien Japrisot:
Kona, bíii, gleraugu og byssa
48
inu að vélinni og leit um öxl.
Myndin var ekki af Anitu Cara-
vaille. Hún var af sjálfri mér.
Ég beið þess, að ég hætti að
skjálfa. Ég var óratima að skipta
um gleraugu og notaði fingur,
sem ekki létu að stjórn. Ég gekk
úr skugga um, að þetta væri
hnakkinn á mér, axlirnar á mér,
fæturnir á mér. Þetta var ekkert
fals. Þetta var ljósmynd af sjálfri
mér.
Ég held ég hefi setið heilan
klukkutíma á rúminu gegnt þess-
ari mynd. Ég var ekki með sjálfri
mér, því að seinna, þegar rökkv-
aði, híýt ég að hafa kveikt ljósið.
Ég kveikti fleiri ijós, gruflaði
oní dragkistur og kannaði efri
hæðina. Þar uppi hafnaði ég inni
í eins konar Ijósmyndastofu. Eg
fann tvær stórar ljósmyndir af
sjálfri mér, undirlýstar og gallað-
ar. Að auki sá ég kynstur af
myndum, sem birtu stúlkur í ótal
stellingum, naktar eða fáklæddar.
Ég þekki enga þeirra. Ég var ekki
allsnakin á myndunum. Á annari
þeirra sat ég brjóstaber á bað-
karsbrún og var að smokka mér
úr skónum, en á hinni var ég í
blússu, sem ég fleygði fyrir tveim-
ur árum, og var að öðru leyti
klæðlaus. Ég tætti myndirnar
sundur. Ég gat ekki gert að því.
Ég varð að gera það. Ég held
jafnvel, að ég hefi haft gott af
því.
Ég kannaði síðai},, önnur heiv
bergi og rakst alis staðar á sjálfa
mig. Ég fann nærföt, sem ég átti,
gamla peysu, svartar buxur og
tvo kjóla, og hjá rúmi, sem enn
var óumbúið, fann ég eyrnalokk
úr safninu mínu. Úr sængurföt-
unum fann ég ilmvatnslykt af
sjálfri mér. Á náttborðinu voru
nokkur minnisblöð. Þetta var mín
skrift.
Ég fór aftur niður í herbergið,
þar sem ég er núna. Á þilinu
gegnt skuggamyndavélinni var
byssustæði og í því nokkur vopn.
Ég veitti því eftirtekt, að í ljós-
bláu teppinu var ferhyndur flekk-
ur, dekkri en liturinn í kring,
eins og þarna hefði verið motta,
sem einhver hafði fjarlægt. Karl-
mannsföt lágu á einum stólnum.
Þau voru einnig ljósblá, og snyrti-
lega frá þeim gengið, buxurnar á
setunni og jakkinn á bakinu. Ég
fann seðlaveski i jakkavasamim.
Veskið var merkt Maurice Kaub.
Myndin á ökuskírteininu tók af
allan efa um það, að hann var
líkið í skottinu. Ég mundi ekki
eftir að hafa hitt þennan mann.
Ég skoðaði veskið gaumgæfilega,
en þar var ekkert að finna, sem
gat hjálpað mér að ráma í
Maurice Kaub.
í forstofunni hafði ég komið
auga á síma. Ég rótaði í tuðr-
unni eftir bréfsneplinum með
símanúmeri gistihússins í Genf,
þar sem þau voru vön að dvelj-
ast, Caravaillehónin. Símastúlk-
an sagði ég gæti átt von á klukku-
tíma bið. Ég gekk út úr húsinu,
settist undir stýri og ók bilnum
í bakgarðinn. Eg nam staðar hjá
eins konar skemmu. Inni sá ég
dráttarvél, heykvíslar og stóra
vínpressu. Það var dimmt. Mér
var kalt.
Ég opnaði skottið og skeytti
ekkert um fnykinn, sem gaus
upp á móti mér. Ég tók ekki
eftir sársaukanum í vinstri hendi.
Ég greip báðum höndum utan
um líkið í teppinu og böðlaði því
úr skottinu og inn í skemmuna.
Ég skorðaði það upp við gafl-
vegginn, breiddi yfir það teppið
vandlega og dengdi síðan á vönd-
ulinn spýtnarusli, tágakörfum,
verkfærum og grjóti. Eg lokaði
hurðinni. Hjarirnar mörruðu. Ég
man eftir þessu ískrandi marri, og
ég man einnig, að ég hélt á
byssunni og lagði hana ekki frá
mér, meðan ég bisaði við þunga
flekana.
Ég færði Thundei'birdinn, og
ailt varð aftur dimmt og hljótt.
Síminn hringdi löngu seinna. Ég
hallaðist upp að veggnum við
hliðina á símaborðinu og hélt á
byssunni í vinstri hendi. augun
lokuð. Ég þrufti ekiki annað en að
rétta út höndina og taka upp
tólið.
— Hér er Genf, sagði kven-
maður í símanum. — Gjörið svo
vel.
Ég muidraði þakkir. Ég gat
talað ennþá. Önnur rödd sagði,
að hérna væri Hotel Beau Rivage.
Ég spurði eftir frú Caravaille.
Ég viknaði.
Anita skildi ekki orð af því,
sem ég sagði, og ég varð að endur
taka allt þi-isvar sinnum. Ég sagð-
ist hafa verið á Thunderbii-dinum
síðan á laugardag, þegar ég kvaddi
á flugvellinum. Hún átti engan
ThUnderbird. Hún vissi’ ekki einu
sinni. hvað það var. Hún skildi
ekki einu sinni orðið, sem ég
staglaðist á í simanum: Thunder-
bird, Thunderbird, Thunderbird.
Hún skildi einungis ekkasogin.
— Guð minn góður, Dany, hvar
es-tu? Hvað gengur á?
Hún hafði ekki séð mig siðan
fyrir jól. Hún hafði aldrei búið á
Villa Montmorency.
— Guð minn góður, Dany, á
þetta að vera eitthvað fyndið?
Segðu mér, að þetta eigi að vei'a
fyndið. Þú veizt ósköp vel, hvar
ég bý.
Hún bjó við Avenue Mosart,
M-O-Z-A-R-T, og hvaö sem því
leið, þá hefði hún örugglega hitt
mig, ef Caravaille hefði boðið
mér heim til þeirx'a.
— Elsku Dany, segðu mér, hvað
gengur eiginlega á.
Ég fór að hlæja. Hún varð
óróleg. Hún endui-tók í sifellu
— halló halló, og ég lieyrði
hana draga ótt andann í tólicw.
— Hvar ertu, Dany? Guð minn
góður í himnum, segðu mér að
minnsta kosti, hvar þú ert niður
komin.
— Ég er í Villeneuve-les-Avig-
non. I-Ilustaðu nú á mig. Anita,
ég skal útskýra þetta allt. Hafðu
ekki áhyggjur... Ég held þetta
líði hjá, ég.
— Ha, hvar ertu?
— í Villeneuve-les-Avignon. í
Vautóuse. í einbýlishúsi.
— Guð minn góður, ha.. í
hvernig húsi, Dany? Hjá hverjum
ertu? Hvernig vissirðu, að ég
væi’i i Genf?
— Ég hlýt að hafa heyrt það
á skrifstofunni. Ég man ekki... Já,
ég hlýt að hafa heyrt það ein-
hvers staðar.
— Eru ekki einhverjir þarna
hjá þér? Lofaðu mér að taia við
einhvern.
— Ég er alein hérna.
— En drottinn minn, Dany, þú
getur ekki verið ein svona á þig
komin. Ég skil bara hreint ekki
í neinu. Ég botna ekkert í þér.
Eg heyrði hana gráta. Ég reyndi
að hugga hana. Mér liði strax
betur að tala við hana. Hún sagði,
að Michel Cravaille kæmi fljót-
leg á gistihúsið og hann mundi
geta ráðið fi'am úr þessu. Þau
mundu hring-ja aftur til mín. Hún
tæki flugvél og hitti mig, þar sem
ég væri niður komin. Ég yrði að
lofa henni að finna ekki eitt-
er laugardagur 21. nóv.
— Maríumessa
Tungl í hásuðri kl. 7.45
Árdegisháflæði í Rvík kl. 0.02
HEILSUGÆZLA
Slysavarðstofan ) Borgarspítalao
um er opln allar sólarhringinn.
Aðeins móttaka slasaðra Sím)
81212.
Kó. vogs Apótek og Keflavíku,
Apótek eru opin virka daga fc’
9—19, lausardaga fcl 9- '••'*
helgidaga k; 13—15
Síökkviliðið og sjúkrabifreiðir tyr
ir Reykjavík og Rópavog. sim)
11100
Sjúkrabifreið 1 Hafnarfirðl slmt
51336
Almennar upplýslngar uro tæfcna
þjónustu 1 borginm eru gefnar
símsvara Læknafélgs Reyk.iavik
ur, slmi 18888
Fæðingarbelmilið t Kópavogi
fflJðarveívi 40 smu 42644
Tannlæknavakt er 1 Heiisuverndar
stöðinni. þaT sem Slysavarðs
an var, og ei opln iaugard- o;.
sunnudaga ki 5—6 e. h. Sim'
22411.
Apótek Hafnarfjarðar er opið alla
virka dag> fré kt 9—7 á laug
ardögum kí. 9—2 og á suonu-
dögum og öðnxm helgidögum er
opið frá kl 2—4.
Mænusóttarbólusetning fyrir full-
orðna fer fram í Heilsuve. ndar-
slc* Reykjavíkur, á mánudögum
kl. 17—18. Gengið inn frá T r-
ónsstíg, yfir brúna.
Kvöld- og helgidagavörzlu apóteka
í Reykjavík 21,—27. nóv. annast
Vesturbæjar Apótek og Háaleit-
is Apótek.
Næturvörzlu i Keflavík 21. og 22.
nóv. annast Kjartan Ólafsson.
KIRKJAN
Langholtsprestakall.
Barnasamkoma kl. 10,30.
Kópavogskirkja.
Barnasamkoma kl. 10,30. Guðsþjón
usta kl. 2. Sr. Gunnar Árnason.
Hallgi'ímskirkja.
Barnaguðsþjónusta kl. 10. Messa
kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar.Lárusson.
Messa kl. 2. Dr. Jakob Jónsson.
Dómkirkjan.
Messa kl. 11. Sr. Jón Auðuns dóm-
prófastur. Messa kl. 2. Sr. Óskar J.
Þorláksson. Bamasamkoma ki. 11
í Miöbæjarskólanum. Sóknarprest-
ar.
Rúslaðaprestakall.
Barnasamkoma í Réttarholtsskóla
ki’. 10.30. Guðsþjónusta kl. 2 Sr
Guðmundur Þorsteinsson frá
Hvanneyri predikar. Sr. Olafur
Skúlason.
Laugarncskirkja,
Messa ki. 2. Barnaguðsþjóm 'a kl
10,30 Sr. Garðar Svavarsson.
Háteigskirkja.
Lesmessa kl. 9.30. Barnasamkoma
kl. 10,30. Sr. Arngrímur Jónssou
Messa kl. 2. Sr. Jón Þorvarðsson.
Hafnarfjarðarkirkja.
Barnaguðsþjónusta kl. 11 Gestir
koma i heimsókn. Sr Garðar Þor-
stcin.ss-)u.
Árbæjarkirkja.
Messa kl. 11. Sr. Bjarni Sigurðsson.
Lágafellssókn.
Messa að Lágafelli kl. 2. Safnaðar-
fundur eftir messu. Sr. Bjarni Sig-
urðsson.
Ásprestakall.
Barnasamkoma kl. 11 í Laugarás-
bíói. Messa í Langholtskirkju kl. 2.
„Dagur eldra fólksins". Sr. Grímur
Grímsson.
Neskirkja.
Barnasamkoma kl. 10,30. Messa kl.
11. Sr. Jón Thorarensen.
Guðsþjónusta kl. 2. Sr. Frank M.
Halldórsson.
Selljarnarncs.
Barnasamkoma í íþróttahúsi Sel-
tjarnarness kl. 10,30. Sr. Frank M.
Hal.'dórsson.
Aðventkirkjan, Reykjavík,
Laugardagur: Biblíurannsókn kl.
9,45 f. h. Guðsþjónusta kl. 11.
Sunnudagur: Samkoma kl. 5. Ræðu
maður Sigurður Bjarnason. Kvenna
kvartett syng-ur.
Kirkja Óliáða safuaðarins.
Messa kl. 2. Fermingarbörn ársins
1971 eru beðin að koma til kirkju.
Sr. Emil Björnsson.
ELUGÁÆTLANIR
Loftleiðir hf.:
Snorri Þorfinnsson er væeitanleg-
ur frá New York kl. 08:00. Fer til
Luxemborgar kl. 08:45. Er væntan-
legur ti! baka frá Luxemborg kl.
17:00. Fer til New York kl. 17:45.
Leifur Eiríksson er væntanlegur
frá Osló. Gautaborg og Kaupma. 'ia
höfn k:. 15:30. Fer til New York
kl 16:30.
SIGLINGAR
Skipaútgcrð ríkisins:
l-Iek.'a er væntanleg til Reyk.iavík-
nr upp úr hádegi í dag að vestan
úr hringfei'ð. Herjólfur fer frá
Reykjavík kl. 21,00 á mánudags-
kvöld til Vestmannaeyja. Herðu-
breið kom til Reykjavíkur kl. 7—
8 í morgun að austan úr hringferð.
Skipadeild S.Í.S.:
Arnarfell kemur til Rotterdam í
dag. Fer þaðari til Hul: og Reykja-
víkur. Jökulfell er í Reykjavík.
Dísarfell losar og lestar á Norður-
landshöfnum. Litlafell fór frá Faxa
flóa í gær ti<’ Vestfjarða og Akur-
eyrar. Helgafell er í Reykjavík.
Stapafell fer frá Hvalfirði í dag til
Brake (V-Þýzkalandi). Mælifell fór
frá Kaupmannahöfn 19. þ. m. til
Malaga og Barce.’ona. Sixtus 'ór
frá Svendborg 18. þ. m. til Horna-
fjarðar.
F^LAGSLtF
Kvenfélag Hafnarfjarðar
hefur fótaaðgerðir fyrir aldrað fólk
í sókninni hvein mánudag kl. 2—5
í Sjálfstæðishúsinu, uppi. Tíma-
pantanir í síma 50336.
Æskulýðsstarf Neskirkju.
Fundir fyrir stúlkur og pilta, 13
ára og eldri, mánudagskvöld kl.
8,30. Opið hús frá kl. 8. Sr. Frank
M. Halldórsson.
Kvenfélagið Seltjöni
á Seltjarnarnesi.
Munið basarinn kl. 2 í dag í Mýrar-
húsaskóla. Margt góðra muna. —
Stjórnin.
Basar
í Betaníu, Laufásvegi 13, laugar-
daginn 21. nóv. kl. 4. Allur ágóði
rennur ti<’ kristniboðsins í Ethi-
opiu.
VISA DAGSINS
Viðsjáll maður Valdimar,
vísnaglaður og tréskurðar.
Verkahraður, vífleik-snar,
vísdómsnaður prentlistar.
I. D.
I
Lárélt:
1) Fléttaðar. 6) Dropanna. 10)
Spil. 11) Fléttaði. 12) Rændur. 15)
Vendir.
Krossgáta
Nr. 670
Lóðrétt: 2) Pest. 3) Elska.
4) Skraut,. 5) Nurla. 7) Kær-
Ieikur. 8) Máttur. 9) Mið-
degi. 13) Hitunartæki. 14)
Hreyfist.
Ráðning á gátu m'. 669.
Lárétt: 1) Lómur. 6) ítalska
10) Tá. 11) Ár. 12) Ilmanip*
15) Akafi.
Lóðrétt: 2) Óra. 3) Uss. 4)
Lítil. 5) Barna. 7) Tál. 8)
Lóa. 9) Kái. 13) Mök. 14)
Nef.