Tíminn - 27.11.1970, Qupperneq 2
2
TÍMINN
FÖSTUDAGUR 27. nóvember 1970
FLUGBJÖRGUNARSVEITIN 20 ÁRA:
HEFUR TEKIÐ ÞÁTT í LEITUM
í ÖLLUM LANDSFJÓRÐUNGUM
KJ-Reykjavík, fimmtudag.
Á morgun, föstudaginn 27. nóv.
á Flugbjörgunarsveitin í Reykja-
vik 20 ára afmæli, en sveitin var
stofnuS í nóvember 1950, en undan
fari stofnunar sveitarinnar var
leitar- og björgunarstarfið við
Geysisslysið á Vatnajökli.
f tilefni af þessum tímamótum
hjá Flugbjörgunarsveitjnni, boð-
aði hún blaðamenn á sinn fund,
þar sem skýrt var frá starfsemi
og uppbyggingu sveitarinnar. Eft
ir Geysisbjörgunina komu 25
menn saman 24. nóvember 1950
og ræddu um stofnun flugbjörgun
arsveitar ,og stofndagur varð síð-
an 27. nóvember. Markmið sveit-
arinnar hefur frá upphafi verið
að leita að týndum fiugvéluim,
koma til aðstoðar ef flugslys verða
og annars staðar, þar sem tæki
og útbúnaður sveitarinnar hentar.
Þjálfun félaga var fyrst sam-
eiginleg, en síðar var sveitinni
skipt í fjóra flokka, sem hver
sér um þjálfun sinna manna, auk
bess eni sameiginlegar æfingar
í hverjum flokki cru 10 — 20
menn, og eru þeir ætíð reiðu-
búnir að fara til leitar á nóttu
sem degi. Sveitin hefur sent 10
Myndin var tekin af flestum stjórnarmönnum Flugbjörg unarsveitarinnar fyrlr fraiman aðalstöövarnar viö Naut-
hólsvík á Reykjavikurflugvelli. Á myndinni eru f.v. Mag nús Þórarinsson gjaldkeri, Gunnar Jóhannesson, Sigurö-
ur M. Þorsteinsson formaður, Siguröur Waage varaformaður, Haukur Hallgrimsson, Árni Edwinsson spjald-
¥.26]
KSNVERSKAR
MðNDLUKÖKUR
200 g hveltl
1 tsk. lyftiduft
100 g sykur
160 g smjðr
1 egg
1—2 msk. vatn
Vz dl smátt saxaðar mendlur
V* tsk. möndluolía
Skraut: 1 eggjarauSa, 1 msk. vatn,
möndlur.
Blandið hvelti og lyftiduftl saman,
skerið smjörlð saman við, bætið
sykrl, eggi, vatni, möndlum og
möndluollu I og hnoðlð deigið. Kæl-
ið það vel.
Mótið deigið I fingurþykkar lengjur,
skerið þær l 2—3 cm bita og mótið
kúlur úr bitunum og raðið á vel
smurða plötu, hafið gott bll á milli.
Þrýstið kðkunum niður með handar-
Jaðrlnum, þannlg að þær verði y2—
% cm þykkar.
Penslið 'kökurnar með éggjarauðu
(blandaðri vatni) og þrýstið afhýddri
möndlu á hverja.
Bakið í efstu eða næst efstu rim (
180°C heitum ofni f 20—30 mín.
SMJÖRIÐ
GERIR
GÆÐAMUNINN
skrárrifari og Péfur Þorleifsson.
menn á björgunarnámskeið til
Noregs, þar sem sumir xeirra voru
þegar gerðir að flokksstjórum,
sökum góðrar þjálfunar 02 kurin-
áttu í björgunarstörfum.
Flugbjörgunarsveitin á nú orð-
ið nokkuð góðan tækjakost og út-
búnað, og «ná þar nefna tvo snjó-
bíla, og þrjá fjallabíla, sem að
vísu eru komnir nokkuð til ára
sinna hvað árgerð snertir, eða frá
1958, en hafa reynzt vel, og nú
síðast í Biáfjallaleitinni. Innan
sveitarinnar starfar sérstök bíla-
<'deild, undir forystu Hauks Hall-
grímssonar ,og á hverjum mánu-
degi allt árið um kring, koma
bíladeildarmenn og vinna að við-
haldi og viðgerðum á bifreiðakosti
félagsins.
Þá er starfandi sérstök deild
— fjarskiptadeild — undir forystu
Gunnars Jóhannessonar, og sér
deildin um viðhald fjarskipta-
tækja og smíðar jafnframt ný
fjarskiptatæki.
Fallhlífadefldin er yngst deild-
anna innan sveitarinnar, en hún
var stofnuð 1966, og í henni eru
tíu menn og forustumaður er Ei-
ríkur Kristinsson.
Forráðamenn sveitarinnar sögðu
að stöðugt væru að koma fram
ný og ný tæki til björgunarstarfa
og búnaður fyrir björgunarmenn,
en í því sambandi hentaði ekki
alltaf hér það sem erlent væri,
og einkum væri það fatnaðurinn,
sem ekki hentaði alltaf, en marg
sannað væri, að fatnaður úr ís-
lenzkri ull væri það bezta, og sem
tæki öllu öðru fram. Konurnar
í kvennadeild Flugbjörgunarsveit
arinnar eru nú langt komnar með
að prjóna lamhúshettur úr Ála-
fosslopa á alla sveitina, og þar
sannar ís,\ ullina enn ágæti sitt.
Á Akureyri er starfandi sjálf-
stæð Flugbjörgunarsveit, en sveit
irnar á Hellu, Skógum og í Vík
starfa á tengslum við Reykja-
vfkursveitina.
Flugbjörgunarsveitin hefur tek
ið þátt í leitum og björgunarstarfi
í öllum landsfjórðungum, auk
þess sem sveitin tók þátt í björg-
unarleiðangri til Grænlands árið
1966.
Kvennadeild Flugbjörgunarsveit
arinnar var stofnuð 24. nóvember
1966, og í henni eru 46 konur,
en formaður er frú Ásta Jónsdótt-
ir.
Fé hefur sveitin einkum feng-
ið með gjtifum frá einstakling-
um og t.d. komu hjón á dögun-
(Tímamynd Gunnar)
um með tíu þúsund krónur, sem
þau sögðust gefa, vegna þess að
þau gátu ekki tekið þátt í leitinni
í Bláfjöllum. Þá fær sveitin styrk
frá Loftleiðum. Flugfélagið
flytur leitar- og björgunarmenn
hvert á land sem er, ef svo ber
undir, og einnig fær sveitin styrk
frá ríki og borg. Fjáröflunardagur
er svo síðasta laugardag í október
ár hvert.
Vorið 1968 fékk sveitin húsnæði
á Reykjavfkurflugvelli, þar sem
nú eru aðalstöðvar sveitarinnar.
Þar er félagsheimili, birgðageymsl
ur og bíla- og tækjageymsla. Er
félagsheimilið í notkun fimm daga
vikunnar, fyrir fundi og æfingar
sveitarinnar.
Stærstu sameiginlegu æfingar
Flugbjörgunarsveitarinnar eru
Hvítasunnuæfingin, en þá er ann
að árið æft á Þingvöllum og hitt
farió' á jökul, og á hverju sumri
er svo æfing í Gígjökli, sem er
skriðjökull er gengur norður úr
Eyjafjallajökli.
í stjórn sveitarinnar eru Sigurð-
ur Þorsteinsson, formaður, Sigurð
ur Waage varaformaður, Stefán
Bjarnason, ritari, Magnús Þórar-
insson gjaldkeri, Árni Edwinsson
spjaldskrárritari, Haukur Hall-
grímsson og Gunnar Jóhannesson.
í varastjórn eru: Pétur Þorleifs-
son, Árni Kjartansson og Ingvar
Valdimarsson.
Flugbjörgunarsveitin mun halda
upp á afmælið í kvöld.
Eyjamóri var
vænni en sagt var
Nokkurt ranghewni var í frétt-
inni um mórrauða hrútinn úr
Breiðafjarðareyjum sem við birt-
um um daginn.
Fallþungi hans var 46,8 kg. og
gæra 12,9 kg. Hann gekk sem
lamb í Rúffeyjum, en síðan að
mestu í Akureyjum. Hann var
svo gæfur þótt útigenginn væri,
að, hægt var að ganga til hans
og klappa honum strax og hann
kom í hús eða aðhald.
SKIPTINEMAR SAFNA FÉ TIL
HJÁLPARSTARFS í PAKISTAN
í dag, föstudaginn 27. nóvem-
ber hefst almenn fjársöfnun á veg
um skiptinemasamtaka þjótflcirkj-
unnar, fyrir hjálparstarfsemi
vegna flóðanna í Austur-Pakistan.
Þessi söfnun er liður í samstarfi
hjálparsamtaka í Danmörku, Þýzka
landi og á íslandi.
Þegar milljónir heimila farast,
svo eícki sé minnzt á farsóttir, sem
eru fastir förunautar flóöa, þarf
vart að ítreka nauðsyn hjálpar-
starfsemi sem þessarar. Því er
hjálparbeiðni nú beint til þeirra,
sem látið geta af hendi p.eninga-
upphæð, hversu smáa sem hún
er og sýna þannig hjálparlund.
Leitað veröur til almennings
næstu daga oe er þess vænzt, að
sem flestir láti eitthvað af hendi
rakna.
-Fréttatilkynning frá Skipti-
nemasambandi Þjóðkirkjunnar).
FYRSTA STARFSÁRI MFA ER AÐ LJÚKA
FB—Reykjavik, fimmtudag
I gær var haldinn ársfundur
Menningar- og fræðslusambands
alþýðu, sem er fræðslustofnun
Alþýðusambands íslands. Fundinn
sóttu fulltrúar frá landssambönd-
um, svæðasamböndum og mið-
stjórn ASÍ. Rædd voru verkefnin,
sem unnið hefur verið að á þessu
fyrsta starfsári stofnunarinnar,
sem nú er að líða, og verkefni,
sem framundan eru.
Stefán Ögmundsson, formaður
stjórnar MFA flutti skýrslu stjórn
ar um störfin á sl. ári, síðan flutti
Sigurður E. Gu'ðmundsson ritari
MFA fróðlegt erindi um fræðslu-
starf verkalýðshreyfingarinnar á
Norðurlöndum. A eftir urðu mikl
ar umræður um fræðslumál verka-
lýðshreyfingarinnar hér á landi og
næstu verkefni. Fyrsta nám-
skeiðið á þessum vetri hefst 30.
I nóvember.
Myndin er af fundinum. Frá
vinstri sitja Kristján Guðmunds-
son, frá Alþýðusambandi r,uður-
lands, Gunnar Guttormsson, hag-
ræðingardeild ASt, Jökull Veigar
Kjartansson frá Iðnemas band-
inu, Hallgrímur Jakobsson frá
Tónskóla Sigurveins, Guðmundur
Sveinsson frá bréfaskóla SÍS og
ASÍ, Hjörleifur Sigurðsson starfs-
maður MFA, Baldur Óskursson
Miðstjórn ASl, Sigurður Guð-
muudsson ritari MFA, Stefán Ög
mundsson formaður MFA, Óðinr
Rögnvaldsson MFA, sem var fund
arstjóri, Þórir Daníelgson verka
mannasambandinu, Snorri Jón. t
Má.'m- og skipasmiðasambandinu
Grétar Þorsteinsson Samband:
Bygsmgamanna, og Böðvar Pétur:
son Landsambandi verzlunarmannc
(Tímamynd G.E.'.