Tíminn - 27.11.1970, Síða 3
EÖSTUDAGUll 27. nóvember 1970
1. DESEMBER-
HÁTIÐAHÖLD
STÚDENTA
SJ—Reykjavík, fimmtudag
Stúdentar minnast að vanda full
veldis íslands 1. desember. Aðal-
ræðumaður dagsins verður ungur
heimspekideildarstúdent, Helgi
Skúli Kjartansson, sem fjallar um
ólgu meða’ ungs fólks heima og
heiman. Þá verður Stúdentastjarn-
an veitt í þriðja sinn. Urðu allir
meðlimir Stúdentaakademíunnar
13 að tölu, sammála um hver hljóta
skyldi þercnan heiiður í þetta skipti.
En stjarnan er veitt fyrir afrek í
raun- og hugvísindum.
Kl. 1.30 1. des. verður guðsþjón-
usta í Háskólakapel.’unni í um-
sjón Félags guðfræðinema. Kl. 2.30
hefst athöfn á Hátíðasal Háskól-
ans. Formaður hátíðanefndar, Hall
dóra Rafnar stud. phil. flytur á-
varp, Baldur Guðmundsson, form.
Stúdentafélags Háskóla íslands
flytur stutta ræðu. M er söngur
og afhendimg Stúdentastjörnunn-
ar. Síðasti liiður á dagskrá er ræða
Helga Skúla Kjartanssomar „Bylt-
ing, ha?“. Þetta er í fyrsta sinn
í mörg ár, sem stúdentar velja
ræðumann dagsins úr sínum eigin
hópi á fuLVeldisdaginn. Þeir hafa
aðeins einu sinni gert það áður,
árið 1942, en þá flutti Magnús
Jónssom, laganemi og nú fjármála-
ráðherra ræðu um fullveldið og
sjálfstæðisbaráttuna.
Um kvöldið minnast háskóla
stúdentar fulVeldisins með sam-
komu á Hótel Sögu.
29. nóvember. sjá stúdentar um
dagskrá í útvarpi í tilefni fullveld-
iísafmælisins. Þar verður tekið
fyrir málefnið, ísland og Evrópu-
hyggjan, og emnfremur rætt um
réttmæti þeirrar skoðunar Mennta
málanefndar Stúdentaráðs, að aðr-
ir en stúdentar skufi eiga rétt til
imngöngu í Háskólanm.
Stúdentablaðið 1. desember 1970
flytur ýmislegt efni. Þar skrifa
Dr. Guðmundur Magnússom, pró-
fessor, Magnús Kjartanssen, rit-
stjóri, Björn Bjamason, stud. jur.
Framrhald á bls. 11.
TIMINN
Forvígismenn Kiwanis á fundinum í dag. F.v.: Bjar'ni Ásgeirsson, umdæmisstjóri Kiwanishreyfingarinnar á
Norðurlöndum, Jakob Jensen frá Noregi, Kenneth P. G reenaway, framkvæmdastjóri Kiwanis í Evrópu, Páll H.
Pálsson varaforseti Kiwanis í Evrópu, Ólafur D. Einarsson, ritari Kiwanis á Norðurlöndum. (Tímamynd Gunnar)
160. KIWANISKLÚBBUR EVRÚPU
VÍGÐUR í KEFLAVÍK I KVÖLD
SB—Reykjavík, fimmtudag.
Hundraðasti Kiwanisklúbburinn,
sem stofnaður er í Evrópu, verð-
ur vígður á morgun. Það er klúbb
urinn Keilir í Keflavík. í tilefni
þessa merku tímamóta, eru nú
staddir hér tveir af forvígismönn
um Kiwanishreyfingarinnpr í Evr
ópu, þeir Kenneth P. Greenaway,
framkvæmastjóri og Jakob Jen-
sen frá Noregi, sem er í yfir-
stjflrninni. Kiwanisklúbbar starfa
nú í 36 löndum heims, en klúbb-
arnir á íslandi eru orðnir 10.
Á fundi með fréttamönnum ,í
dag, ságc'i Kéhnéth 'P. Gréénáwáy
| að Kiwanisklúbbar hefðu nú«$Vlfc.'S Noregi. Konurnar kalla
að í 54 ár á meginlandi Ameríku,
en hreyfingin hefði borizt til Evr-
ópu 1963 og nú væri náð þeim
merka áfanga-, að þar væru komn-
ir 100 klúbbar. Sagði Greenaway,
að af þeim 12 löndum í Evrópu,
sem Kiwanis-klúbbar störfuðu,
væru hlutfallslega langflestir á ís-
landi og væri það ánægjuefni, að
100 klúbburinn skyldi vera íslenZk-
ur. Greenaway kvaðst nýlega hafa
verið á ferðalagi um kyrrahafslönd
og heimsótt Kiwanisklúbba þar,
sem eru um 40 talsins. Sagðist
hann hafa sagt þar mikið' frá starfi
klúbbanna á íslandi og að lokum
hafi maður nokkur í Perth í Ástr-
alíu spurt sig, hvort hann væri á
vegum íslenzkra stjórnvalda.
Bjarni Ásgeirsson, sem er um-
dæmisstjóri Kiwanishreyfingarinn-
ar á Norðurlöndum, sagði, að
fyrsti Kiwanisklúbburinn hér,
Hekla, hefði verið stofnaður í
Reykjavík í janúar 1964. Tveir
aðrir klúbbar eru nú í Reykja-
vík, Katla cg Esja, en hinir 7 eru
úti um landið. Þá sagði Bjarni,
|ð Island. væfii . eina landið, spm,
i efði séfstaka, kyennadeild,,. en
slíkt væri þó einnig að koma upp
sina
klúbba Sinawik, sem er Kiwanis,
stafáö aftur á bak. Þær hafa sama
markmið og karlmennirnir, starfa
að góðgerðarm. og ,'áta gott af
sér leiða. Til dæmis má geta þess,
að nýlega kom stór sending af
grenikönglum frá Sinawik-konum í
Noregi til klúbbsystra hér og
vinna þær um þessar mundir að
því að búa til jólaskreytingar úr
könglunum, sem verða seldar fyr-
ir jólin.
Þá kom fram, að Kiwanisklúbb-
urinn Helgafell í Vestmannaeyj-
um, hefur fest þar kaup. á hús-
eign og er það fyrsta félagsheim-
ili í Evrópu sem er í eigu Kiwanis-
klúbbs. Kiwanisklúbburinn Kald-
bakur á Akureyri átti mikinn þátt
í því, að þar var nýlega opnuct
endurhæfingarstöð. Hekla í Reykja
vík hefur gefið Borgarspítalaarum
myndsegulband og Katla Krabba-
rtiejnSféláginp magaljósmyndavél,
Askja á Vopnafirði vinnur nú að
þyí að komið verið þar upp sjúkra
skýli og þannig mætti lengi telja.
Kiwanisklúbburinn Hekla í
Reykjavík, er fjölmennasti klúbb
ur í Evrópu, telur 76 meðlimi.
Auk þeirra klúbba, íslenzkra,
sem þegar hafa verið nefndir, eru
Búrfell á Selfossi, Eldþorg í Hafn-
arfirði og Þyrill á Akranesi.
ENGIN STORVIRKJUN
SKJÁLFANDAFLJÚTI
Neðanjarðarvirkjun við Dettifoss óhagkvæm.
að mestu ofan-
I sameinuðu þingi s.I. þriðju-
dag, beindi Gísli Guðmuiidsson
þeirri fyrirspurn til iðnaðarráð-
herra hvað li'ði rannsóknum Orku-
stofnunarinnar á virkjunarmögu-
leikum við Dettifoss og Skjálf-
andafljót.
Jóhann Hafstein iðnaðarráðherra
sagði að rannsóknirnar á virkjunar
möguleikum við Dettifoss hafi bent
til þess, að jarðlög séu þamnig á
svæðinu, að neðanjarðarvirkjun
þar verði óhagkvæm. Þess vegna
væru hugmyndir komnar fram um
að breyta áfornvunum þanmig, að
r-———-----------—-— --------------
hafa virkjunina
jarðar.
í sambandi við virkjun í Skjájf-
andafljóti við ísólfsvatn sagði ráð-
herrann a@ niðurstöður rantnsókna
á virkjunarmöguleikum þar ,'ægju
nú; fyrir en ekki hefði verið gengið
frá skýrslu. Niðurstöðurnar sýndu
að orka frá ísólfsvirkjun yrðu 30—
40% dýrari en við Laxá. Væri þá
átt við virkjun i Laxá með 23
metra vatmsborðshækkun. Ekki
væri hægt að búast við stópvigkj-
un í Skjálfandafljóti er keppt gæti
við Þjórsárvirkjanir, Austurlands-
virkjun eða virkjun í Dettifoss.
*
Bazar Kvenfélags Arbæjarsóknar
Kvenfélag Árbæjarsóknar heldur bazar á sunnudaginn, 29. nóv. kl. 3 í
anddyri Árbæjarskóla. Margt góðra muna veróur á boðstólum, ýmiss
konar jóladúkar, og alls konar jólavörur. Hafa konurnar í félaginu unniö
a3 þvl í vetur a5 útbúa fallega bazarmuni, eins og sjá má á meöfylgjandi
myn#f (Tímamynd Gunnar)
Bázar framsóknarkvesina
Félag framsóknarkvenna heldur bazar laugardaginn 28. nóvem-
ber, kl. i að Hallveigarstöðum. Þcir, sem þurfa að skila munum á
þazariun skulu hafa samband við Valgerði Bjarnadóttur Hjalla-
vegi 12, sími 34756. Hlíf Böðvarsdóttur, Skipholti 43, sími 30823,
Dóru Guðbjartsdóttur Aragötu 13, sími 16701, Rannveigu Gunn-
arsdóttur Grenimel 13, símj 15402, Sólveigu Eyjólfsdóttur, Ásvalla-
götu 67, sími 13277. Auk þess er liægf að skila munum að Hring-
braut 30 síðdegis á föstudag. Þær konur sem vilja gefa kökur,
sern seldar verða á bazarnum þurfa að koma með þær á Hall-
veigarstaði eftir kl. 10 á laugardagsmorguii.
Vitnisburður um
frammistöðu Gylfa
í bankamálum
S.l. þriðjudag gerir Alþýðu-
blaði'ð eins konar úttekt á
frammistöðu bankamálaráð-
herrans í hart nær 12 ár. |
ritstjórnargrein blaðsins um
þetta efni segir m.a.:
„Eftirlit bankanna með lán-
veitingum er oft ekki eins og
bezt væri á kosið og of oft
kemur það fyrir, að miklum
lánveitingum sé varið til fyrir-
tækja, sem í rauninni hafa eng
an raunhæfan rekstrargrund-
völl að baki. Er það of algeng
saga í íslenzku atvinnulífi, að
bankar og fjárfestingarlánasjóð
ir veiti þannig miklu lánsfé til
einstakra atvinnufyrirtækja og
skapi með því máli margfalt
meiri vanda en þeir leysa með
þvf að binda þannig óhemju-
magn lánsfjár í fyrirtækjnra,
sem í raun og veru aldrei hafa
átt möguleika á því að standa
undir sér rekstrarlega og þá
sízt þegar lánsfjárbyhðin er
þeim orðin gersamlega ofviða.
Hægt væri að nefna ýmis dæmi
um slíkt, sem þó er þarflaust
að rekja, enda fólki kunn og
þá ekki sízt þeijn, sem bút
í sumum sjávarþorpunum úti
á landi."
Öðru vísi mér
áður brá
Þetta er harður dómur um
bankamálaráðherrann og
stefnu núverandi ríkisstjórnar
í lána- og fjárfestingarmálum
á undanförnum árum. Það er
Gylfi Þ. Gíslason, sem gengt
hefur embætti bankamálaráð-
herra í hart nær 12 ár. Það
stóð engum naer en honum að
gera hér bragirbætur. Ekki
vantaði hann ábendingar og
tillögur, því a« mestri gagn-
rýni hefur skipulagsleysið og
handahófið í fjárfestingunni
sætt, þegar rætt hefur verið
um einstaka bætti stjórnar-
stefnunnar. Framsóknarmenn
gerðu það til dæmis að einni
helztu kröfunni í síðustu kosn
ingum að skipulag tæki við af
handahófinu í fjárfcstingunni.
Það væri fróðlegt fyrir menn
að fletta upp á því, hvernig
Alþý'ðublaðið og bankamálaráð
herrann svöruðu þeirri kröfu
þá.
En þótt ríkisstjómin héldi
mcirihluta sínum þá, og of
margir fengjust til að trúa
blebkingum stjórnanflokkana,
sem m.a. svöruðu þessari gagn
rýni á skipulagslevsið með upp
hrópunum um höft og róg, þá
hefur máiflutningurinn samt
borið árangur þótt um síðir
væri, og enginn vafi er á því,
að almenningsálitið heimtar nú
að tekið sé á þessum mikil-
vægu þáttum efnahagsmálanna
með meirj skynsemi og skipu-
Iagi í stað hins dýrkeypta
handahófs viðreisnarinnar. Þa*
fer ekki fram hjá ncinum, sem
ræðir við fólk á fömum vegi
um þessi málefni, að þeir ern
vart finnanlegir, sem mæla
handahófsstefnunni nokkra
bót. Það er vegna þeirrar stað-
reyndar, sem Alþýðnblaði*
Framhald á bls. 11.