Tíminn - 27.11.1970, Síða 6

Tíminn - 27.11.1970, Síða 6
8 TIMINN FÖSTUDAGUR 27. nóvember 1970 MWGFBÉnm Frumvarp Ágústs Þorvaldssonar og Þórarins Þórarinssonar: mmm verði á fót ÁFENGISVARNARSJÓÐI — 3% af hagnaði ÁTVR renni í sjóðinn. Þórarinn Þórarinsson og Ágúst ?‘orvaldsson lögðu í gær fyrir Al- liingi lagafrumvarp um stofnun áfeugisvarnasjóðs er hafi það hlut ,’crk að styrkja áfengisvarnir, 'ræðslu um skaðsemi áfengis og bindindisstarf, einkum meðal ungs ólks. — Þá er lagf til að sjóðurinn negi styrkja önnur æskulýðssam- tök en bindindisfélög, annist þau starfsemi, sem vinnur gegn áfeng- isnautn, og hindri áfengisneyzlu á samkomum sínum. Frumvarpið gerir ráð fyrir að ÁTVR greiði sjóðnum árfcga fram- lag er nemur 3% af hagnaði henn- ar af áfengissölu næsta ár á und- an. — Ckal áfengisvarnaráð rík- isins stjórna sjóðnum og ákveða, hvernig verja eigi tekjum hans. Kostnaðurinn við störf áfengis- varnaráðunautar, áfengisvarna- 'áðs og áfengisvarnanefndar skal n-eiddur úr áfengisvarnasjóði. — Að lokum er lagt til, að reikningar ijóðsins verði birtir opinberlega. í greinargerð með tillögunni seg r svo: ,,Það er kunnara en segja þurfi, að áfemgisneyzla fer nú mjög vax- andi í .’andinu, einkum meðal ungs ólks. Óþarfi á að vera að ræða það, hve mikil hætta er á ferðum. Margar ástæður valda því að sjálfsögðu, að áfengisneyzlan eykst. Tvímælalaust er þó, að ríkisvald- ið á ekki minnstu sökina. Dregið hefur verið úr hömium gego á- fengissölu, t.d. með fjö.’gun vín- söluhúsa. Um það má vitanlega deila, hve heppilegar séu strangar áfengis- íömlur eða hvort unnt sé að fram- kvæma þær, nreðan aðrar reglur gilda í nágrannalöndum okkar. Hitt er hins vegar augljóst, að það er hættulegt, eins og líka er komið á daginn, að slaka á höml- unucn án þess að gera jafnhliða ráðstafanir til að vega á móti, t.d. með aukinni fræðslu og bindindisstarfi. Ahrifamesta vopnið gegn áfehgis neyzlumni er tvímælalaust eindreg ið og vakandi almenningsálit, er byggir afstöðu sína á hleypidóma- /ausum forsendum og glöggum rök- um. Það er skylda ríkisvaldsins að efla og styrkja slíkt almennings- álit með aukinni bindindisfræðslu og auknu bindindisstarfi. Alveg sérstaklega er áríðandi, að slíkt álit skapist meðal hinnar uppvax- andi kynslóðar. Fé hefur skort Þetta var Þ'óst beirri nefnd sem | -nn að uindirbúningi áfengislag- | anna frá 1954, en hana skipuðu: Gústaf A. Jónasson ráðuneytisstjóri Brynleifur Tobíasson áfengisvama ráðunautur, Jóhann G. MÖller for- stjóri, Ó.’afur Jóhannesson prófess- or og Pétur Daníelsson hótelstjóri. Nefmdin lagði til, að nokkuð yrði dregið úr ýmsum áfengishömlum, m.a. í sambandi við veitingahús, en það kæmi svo á móti, að bind- indisfræðsla yrði stórlega aukin og nægilegt fjármagn tryggt til þeirr- ar starfsemi. í frv. nefndarimnar var lagt tu', að stofnaður skyldi sér- stakur áfengisvarnasjóður, er styrkti áfengisvarnir, bindindis- fræðslu og bindindisútbreiðslu, og skyldu árlega renma í hamn 3% af hagnaði áfengisverzlunar ríkisins. Illu heilli fel.’di Alþingi þetta á- kvæði úr frv. nefndarinnar. Niður- staðan við afgreiðslu áfengislag-, anna frá 1954 varð því sú, að dregið var úr áfengishömlum, en bindindisfræðsla skyldi aukin, en ekki tryggt neitt fjármagn til að tryggja hana. ÁJkvæði áfengislag- anna frá 1954, um bindindis- fræðslu í skólum og aðra bind- indisstarfsemi, hafa því að mestu orðið dauður bókstafur. Féð til starfseminnar hefur skort. Það er af þessum ástæðum, sem hér er tekin upp tillaga nefndar- innar, sem undirbjó áfengislögin 1954, um stofnun sérstaks áfengis- varnasjóðs. Ef farið hefði verið eftir þessari tillögu nefndarinnar hefði áfengisvarnasjóður haft um 15 miilj. kr. til ráðstöfunar á s.l. ári, eða um 10 mi.lj. kr. meira en þá var veitt úr ríkissjóði til bind indisstarfsemi. Þessi fjárráð áfeng- isvarnasjóðs mundu sízt vera of mikil, þar sem honum er ekki að- eims ætlað að styrkja hina beinu bindindisfræðslu og bindindisstarf- semi, heldur einnig ýmsa æsku- lýðsstarfsemi, sem vinnur gegn á- fengisrt'autn. Það má öllum vera ljóst, að ekki má horfa aðgerðalaust á hima vax- andi áfengisneyzlu í .’andinu og hið mikla böl, sem af henni hlýzt. Það verður að hefja raunhæfa sókn gegn þessum háska. Slíkt verður gert með aukinni bimdindisfræðslu og auknu bindindisstarfi. Þess vegna ætti aö mega vænta þess, að tillttgunni ucn áfengisvarnasjóð verði nú vel tekið.“ Þingsályktunartillaga framsóknarmanna: Rannsókn á mismun fiskverðs hérlendis og í Noregi Þingsályktunartillaga þess efnis, að ríkisstjórnin láti rannsaka í samráði við fulltrúa fiskseljenda og fiskkaupenda, í hverju mismun urinn á fiskverði hér og í Noregi liggur, var í gær lögð fram á Alþingi. Flutningsmenn tillögunn- ar cru fjórir þingmenn Framsókn arflokksins, þeir Jón Skaftason, Helgi Bergs, Björn Pálsson og Ingvar Gíslason. f tillögunni er iagt til, að rannsókuin beinist að: a) samanhurði á aðstöðu ís- lenzks fiskiðnaðar við hlnn norska, að því er tekur til opin- berra álaga, ríkisstyrkja, tækni- þróunar, lánakjara og lánsmögu- ieika .markaðsaðstöðu o.fl. b) mati á gæðum vinnsluhráefnis íslenzks og norsks fiskiðnaðar. í greinargerðinai með tillög- unni er gerður samanburður á fiskverði í þessum tveirn löndum. Kemur fram að fiskverð í Noregi er yfirleitt meir en helmingi nærra á hinum ýmsu fisktegund im en það er hér á landi (Sjá samanburðinn á öðrum stað hér á síðunni). Enn fremur segir í greinargerð inni: „Fiskverð hefur lengi verið deiluefni á íslandi og verður vafa lítið svo framvegis. Fiskseljendur hafa talið sig fá of lítið fyrir aflann, en fiskkaupendur telja sig oft greiða umfracn getu. Þessi andstæðu sjónarmið hafa birzt greinilega við verðákvarð- anir í yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins, þar sem sjaldn- ast hefur náðst samkomulag milli fulltrúa fiskseljenda og fiskkaup enda og verðlagsákvörðunin byggzt á afstöða hins hlutlausa oddamanns, sem ýmist hefur greitt atkvæði með fulltrúum fiskseljenda eða fiskkaupenda. Ekkert vafamál er, að bæta þarf nú kjör sjómanna verulega, til samræmis við kjarabætur laun þega í landi. Telja sumir 20— 25% fiskverðshækkan nauðsyn- lega í því skyni. En þolir greiðslu geta útvegsmanna og fiskkaup- enda það? Oísaverðbólgan, sem hér hefur flætt yfir að undanförnu, hefur ekki sízt skilið eftir spor í af- komugrundvelli sjávarútvegsins. Þannig hefur olíukostnaður flot- ans hækkað á einu ári um 30— 40%, viðhaldskostnaður um 40%, kauptrygging um 22%, og stór- auknar eru iðgjaldagreiðslur í líf- eyrissjóði. Hæbkun fiskverðs til þess að mæta þessum rekstrar- kostnaðarhækkunum bátanna eru enn langt á eftir o? sitt sýnist hverjum um fjárhagsgetu fisk- kaupenda til þess að mæta þess- um rekstrarkostnaðarhækkunum með hærra fiskverði. Ljóst er, að fái sjómenn ekki tilsvarandi kjara bætur og launþegar í landi hafa fengið, þá verður flotinn ekki mannaður. Fiskverðið ræður mestu um kjör sjómanna, því að kaup þeirra miðast við það. Hafa sjómenn og útvegsmenn iðulega gagnrýnt langtum lægra fiskverð hérlendis en t.d. í Noregi.” FISKVERÐIÐ í NQREGI OG Á ÍSLANDI Flutningsmenn þingsályktunartillögunnar um rannsókn á físk- verði á íslandi og í Noregi, sem gerð er grein fyrir á öðrum stað hér á síðunni öfíuðu sér upplýsinga um fiskverð hérlendis og í Noregi og eru þær upplýsingar birtar í greinargerð með tillöguuni. Eftir beim upplýsingum lítur dæmið þannig út: Noregur Lágmarksverð verðlagstímabilið 19/10 1970 til 24/1 1971. Inni- falið í verðinu eru 20 norskir aurar pr. kg í rflrisstyrk (stimuler- ingstillegg) og 10 norskir aurar pr. kg í ríkisstyrk (vanskelig- hetstillegg), þ.e. stuðningur við fiskimenn til úthalds á erfiðum útgerðartímabilum: pr. kg n. kr. Nýr þorskur yfír 58 cm í frystingu. Söltun o.þ.h. 1.65 a. Nýr þorskur 43—58 cm í frystingu 1.55 b. Nýr þorskur 43—58 cm í salt 1.45 Ný ýsa í frystingu v 1.75 Ef reiknað er með 12 ísl. kr. til hagræðis í 1 norskri kr., sést, að fiskverðið norska, með ríkisstyrk talið, er á þessum fisktegundum frá ísi. kr. 17.40 pr. kg í 21.00 kr. pr. kg. I. n. iii. ísland Gildandi lágmarksverð nú: pr.kgkr. I. a. Nýr þorskur yfir 57 cm slægður með haus (1. fl.) 7,70 b. Nýr þorskur yfir 57 cm óslægður með haus (1. fl.) 6.35 II. a. Nýr þorskur yfir 57 cm slægður með haus (2. fL) 6.40 b. Nýr þorskur yfir 57 cm óslægður með haus (2. fl.) 5.30 III. a, Ný ýsa yfir 50 cm slægð með haus (1. flokkur) 9.05 b. Ný ýsa yfir 50 cm óslægð með haus (1. flokkur) 7.50 IV. a. Ný ýsa yfir 50 cm slægð með haus (2. flokkur) 7.55 b. Ný ýsa yfir 50 cm óslægð með haus (2. flokknr) 6.25 Síðan segja flutningsmemi: „Af þessum samanburði sést, að fískverðsmunurinn hér og í • Noregi er mjög mikill. Sá mismunur er vafalaust af mörgum og mismunandi ástæðum, sem rannsóknin á að gefa upplýsingar um, svo að hægt sé að bera fiskverðið saman í þessum tveim Iöndum á sambæriiegum grundvelli. Að því miðar tillagan". Aðstoð íslands við 2. umræða um lagafrumvarpið I um aðstoð fslands við þróunar- löndin var í gær í efri deild, en' eins og áður hefur verið skýrt frá í Tímanum er ákvæði frum- varpsins það að komið verði á fót, hérlendis opinberri stofnun er annist framkvæmd aðstoðar við þróunarlöndin. Fjallaði Ólafur Björnsson um efni frumvarpsins en auk hans tók Einar Ágústsson til máls. Einar sagði m.a. að fyliilega kæmu til greina aðrar leiðir í samr bandi við aðstoð íslendinga viö þróunarlöndin, en sú að koma hér á fót fká- greindri stofnun. Um það væri rætt að verja 1% af árlegum þjóðartekjum okkar til aðstoðar, við þróunarlöndin. Væru það um Fraenhald á bls. 11. Umræöur um verðstöðvun Fram haldiið var í neðri deild í gær 1. umræðu um bingsáiyktun- artillögu Alþýðubandalagsmanna um rannsókn á aödraganda verð- stöðvunarinnar, og var það eina málið sem hæfft var að taka fyrir Fracnhald á bls. 11. TEKUR SÆTI Á ALÞINGI Halldór Kristjánsson á Kirkjubóli, 1. varaþingmað ur Framsóknarflokksins í Vestfjarðakjördæmi, tók í gær sæti á Alþingi, í stað Bjarna Guðbjörnssonar, sem verða mun frá þing- störfum um tíma.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.