Tíminn - 06.12.1970, Qupperneq 16
Sunnudagur 6. desember 1970.
RÆTT VIÐ VEIÐIMÁLASTJÓRA - BLS. 29
ATHUGASEMD FRA SJÚKRA-
HÚSLÆKNINUM Í KEFLAVÍK
Blaðinu hefur borizt eftirfar-
andi athugasemd frá sjúkrahús-
lækninum í Keflavík:
FRAMSOKNARVIST
AÐ HÓTEL SÖGU
Næstkomandi fimmtudag 10.
des. verður haldin framsóknar-
vist að Hótel Sögu ,og hefst kl.
20,30. Spilað verður um flugfar
Reykjavík — Kaupmannahöfn —
Reykjavík, sem einnig var spilað
um á síðustu vist, og gildir saman
lagður slagafjöldi beggja kvöld-
anna. Auk þess verður fjöldi af
öðrum glæsilegum vinningum, sem
gilda aðeins fyrir þetta/,kvöld. Að-
göngumiða má panta á skrifstofu
Framsóknarflokksins, Hringbraut
30, sími 24480, og á afgreiðslu
Tímans, Bankastræti 7, sfcni 12323.
Reykjanes-
kjördæniK
Stjórnarfundur í kjördæmissam
bandi Framsóknarmanna verður að
Neðstutröð 4 Kópavogi, mánudag-
inn 7. des. kl. 21. Formenn allra
flokksfélaganna eru hvattir til
að mæta. — Stjórnin.
Framsóknar-
félag Rvíkur
Aðalfundur Framsóknarfélags
Reykjavíkur verður þriðjudaginn
15. desember, kl. 20,30 í Glaum
bæ, uppi. Fundarefni Venjuleg
aðalfundarstörf, þar á meðal kosn
ing fulltrúa í Fuiiltrúaráðio. Nán
ar auglýst síðar. Stjórnin.
AKRANES
Framsóknarfélag Akraness held
ur skemmtisamkomu með fram
sóknarvist í félagsheimili sínu að
Sunnubraut 21, sunnudaginn 6.
des. kl. 20,30. Öllum heimill að-
gangur meðan húsrúm leyfir.
Freyjukonur
Kópavogi
(Tólafundur félagsins verður að
Neðstutröö 4 fimmtudaginn 10.
des. kl. 20,30. Sýnikennsla í for-
réttum, eftirréttum og ffeira. Guð-
r»- Hrönn Hilmarsdóttir hús-
mædrakennari. Tilkynnið þátttöku
1 s*ma 41802 og 40511. Stjórnin.
Félagsmálaskólinn
Félagsmálaskóli Framsóknarflokks
ins verður með
1|| fur.d á mánudag-
1 inn kl. 20,30, að
| Hringbraut 30. —
|| Már Pétursson,
J formaður SUF,
mætir á fundin-
■ um og ræðir um
stöðu og starf sam
taka ungra fram
Már Pétursson sóknarmanna.
Fundir Félagsmálaskó.'ans eru
öllum opnir, án tillits til aldurs
eða stjórnmálaskoðana.
„Vegna athugasemdar Kristjáns
Valtýssonar í blaðinu í gær, varó'-
andi flutning hans, gegn læknis-
ráðum, á mikið slasaðri systur
sinni af sjúkarhúsinu í Keflavík
á Borgarspítalann i Reykjavík, sér
undirritaður sig tilneyddan að
láta eftirfarandi koma fram varð-
andi þetta leiðindamál.
Slys eru alltaf hörmuleg og
valda oft og einatt því, að dóm-
greind þeirra, sem í þeim lenda
og vandamanna þeirra raskast.
Blaðamenn Tímans, Fríða Björns
dóttir og Elías Snæland Jónsson,
hringdu í mig kl. 9 að kvöldi
þriðjudagsins 1. des. og óskuðu
þau upplýsinga frá mér um ofan-
nefndan flutning, sem síðar var
lýst í MorgunblaUinu og Tíman-
um s.l. föstudag. Ég skýrði þeim
frá málavöxtum, en bað þau með
tilliti til hinnar stórslösuðu konu
og fjölskyldu hennar, að gera þetta
ekki að blaðamáli og urðu þau
við þeirri ósk. Þar af leiðandi
birtist ekkert um þetta mál fyrr
en Alþýðublaðið slær því upp í
rosafrétt á forsíðu þann 3. des.
í gróusögustíl, og þegai svo var
komið var óhjákvæmilegt aiV koma
leiðréttingum á framfæri í blöð,
sem iðka vandaðri fréttaflutning.
í fyrsta sinn er Kristján hafði
samband við mig, sama laugardag
og slysið skeði, varð ég ekki var
bess að hann né aðrir aðstand-
endur konunnar hreyfðu neinum
mótmælum við bá læknishjálp og
hjúkrun, sem konan hlaut þegar
eftir ■ komu á sjúkarhúsio, enda
hef ég framkvæmt skurðaðgerðir
á Kristjáni, konu hans og ungum
syni og virðist að þá hafi traust-
ið ekki skort til mín. Ekki réði
ég því, hvert hinir slösuðu voru
fluttir af slysstað og taldi mig
aðeins igera sjálfsagffa s’kyildu
mína að veita konunni læknis-
hjálp eftir beztu getu og í bví
sambandi er mér skylt að taka
fram, að hjúkrunarkonur og allt
starfsfdl’k spítalans gekk mjög vel
fram í því að hlúa sem bezt að
Ihenni. Aldrei lét sjúklingurinn
neitt vantraust i Ijós við þeirri
meðferð er hún fékk á sjúkrahús-
inu í Keflavík.
Ég vil ítreka, að mér hefur
aldrei til hugar komið að stunda
neinn sjúkling gegn vil.ja hans
og þaðan af síður að togast á um
sjúklinga við aðra. Aftur á móti
er skoðun mín óbreytt á því, að
allur óþarfa flutningur á margbein
brotnu fólki sé óæskilegur, hversu
færir flutningsmenn sem pantað-
ir eru til þess.
Ég efast ekki um, aö konan sé
í góðum höndum hjá læknum
Borgarspítalans og óska henni og
vandamönnum hennar góðs bata.
Jón K. Jóhannsson.
sjúkrahúslæknir, Keflavík.
LEIGUBÍLSTJÓRAR. VILJA
FÆKKA LEIGUBÍLUNUM
KJ-Reykjavík, laugardag.
Á aðalfundi Bandalags ísl.
leigubílstjóra, sem ha.'dinn var
23. nóveimber s.l. voru gerðar
margar samþykktir og m.a. sem
þykkt um að vinna að fækkun
leigubifreiða á hverju reglu-
gerðarsvæði.
Þá voru gerðar samþykktir
um að vinna að lækkun að-
flutningsgjalda af leigubifreið-
um, og stofnun lífeyrissjóðs
fyrir félagsmenn aðildarfélag-
anna. Einnig var samþykfct að
félögin efni til fræðslufunda
um umferðar.mál og slysavarn-
ir, og fram fari athugun um
kaup á landi fyrir orlofsheim-
ili. Formaður gegnir störfucn
aðeins eitt kjörtímabil í einu
og núverandi formaður er
Björgvin Þórðarson, en hann
er jafnframt formaður Bifreiða
stjórafélagsins Neistá í Hafnar
firði. Aðrir í stjórn eru: Jón
Kristinsson, Hafnarfirði, vara-
formaður, Bergsteinn Guðjóns-
son, Þorvaldur Þorvaldsson,
Lárus Sigfússon, allir úr
Reykjavífc; Jóhann Jóhannsson,
Akranesd, Sveinn Jónsson, Sel-
fossi, Ingi Eggertsson, Kefla-
vífc og Eiríkur Þórðarson frá
Trausta, félagi sendiferðabil-
stjóra, Reykjavík.
Hjartavernd hefur rann-
sakað um 12.500 manns
FB-Reykjavífc, laugardag.
Nálega 12.500 manns hafa
verið rannsakaðir í Rannsókn-
arstöð Hjartaverndar frá því
hún tók til starfa haustið 1967.
Um þessar mundir standa yfir
í stöðinni rannsóknir á u.n
6000 körlum á ' Reykjavíkur-
svæðinu, og er gert ráð fyrir
að þessum rannsóknum ljúki
í júnílok næsta ár. Hver gestur
þarf að fcoma tvisvar á stöðina,
og koma nú um 30 manns á
degi hverjum í fyrri heimsókn
og um 30 í seinni heimsókn,
eða alls um 60 manns. Þetta
er nýr áfangi í hinni kerfis-
bundnu hóprannsókn, sem
fram hefur farið á Reykjavík-
ursvæðinu.
f framhaldi af rannsókn á
fólki í Gullbringu -og Kjósar-
sýslum, Keflavík, Mýra- og
BorgarfjarðarsýBlum og Akra-
nesi, hefur Hjartavernd ákveð
ið að halda áfram rannsókntmn
úti á landi. Hefur verið áfcveð
ið að næsta rannsóknarsvæði
verði Akureyri og Eyjafjarðar-
sýsla.
Undanfarið hafa farið fram
Framhald á bls. 30.
HUS RISA
f fyrradag hélt Einar Ágústsson,
byggingameistari, reisugildi méð
70 starfsmönnum sínum. Þann dag
komst síðari áfangi Menntaskólans
við Hamrahlíð imdir þak, og enn-
fremur stórhýsi aldraðra að Norð-
urhrún 1, sem Reykjavíkurborg
er að byggja. Var flaggað á báð-
um byggingunum í fyrradag. fbúð-
ir aldra'ðra að Norðurbrún 1 eru
60 talsins.
Sumarið 1969 samdi fyrirtæki
Einars Ágústssonar nm verk fyrir
114 milljónir króna og síðan hafa
unnið hjá Einari milli 50 og 100
menn, og þessir menn munu hafa
vinnu við þessi verkefni fyrir-
tækis Einars fram til nóvember
1971. Áætlað var að þessi áfangi
Menntaskólans við Hamrahlíð,
sem nú er komin undir þak, yrði
fullbúinn haustið 1972, en nú er
stefnt a® því að unnt verði að
taka hann að mestu til notkunar
næsta haust. Hinar 60 íbúðii
aldraðra að Norðurbrún 1 eiga
að verða fullfrágengnar í nóvem.
ber næstkomandi. (Tímam. — G.)