Tíminn - 22.12.1970, Page 12
íkviSK
ísftlU»'íOT-tHVvifV^iWl
tfeniJ 10 llllHf 01 IMiBIÍII,
V'eSsá^lv'lvlvtw v4wtH-w$?
Þrlðjudagur 22. desembe-r 1270.
Ósigur fyrir kommúnismann - Sjá bls. 7
Þeir, sem eru fastheldnir
á jólasiöi kaupa rjúpurnar
þrátt fyrir verðhækkun
FB-Reykjavík, mánudag.
Nú er fólk farið að hugsa al-
varlega um að kaupa í jólamat-
inn, enda fer hver að verða síð-
astur. Við hringdum í Magnús
Magnússon verzlunarstjóra í Kjöt
og grænmeti og spurðum um
innkaup fólks þessa dagana. Hann
sagði, að verzlunin væri svipuð
og í fyrra, fólk hefði haft áhyggj
ur af svínakjötsskortinum, en nú
væri heldur farið að greiðast úr
þeim málum, svo engin vandræði
*ttu að verða þess vegna.
Rjúpurnar eru það eina, sem
tekið hefur stökkbreytingum
hvað verðinu vió'kemur. Nú kost-
ar rjúpan hvorki meira né minna
en 260 krónur, en kostuðu að-
eins 100 krónur stykkið í fyrra.
— Þrátt fyrir þetta er töluvert
um fólk, sem lætur það eftir sér
að kaupa rjúpur í jólamatinn, og
vill ógjarnan breyta út af þeim
sið.
Við spurðum Magnús síðan,
hvað myndi kosta að kaupa í
jólamatinn fyrir fjögurra manna
fjölskyldu. Taldist okkur til, að
þaó* kostaði kr. 3887.40, eða ná-
lægt þúsund kr. á mann. Þó hækk-
ar þessi tala um 600 krónur, ef
fjöiskyldan ákveður að kaupa
rjúpur í stað svínakjöts.
Nú getið þið borið saman við
þennan lista, hve miklu þið eyð-
ið í jólamatinn sjálf:
Aðfangadagur.
Svínakótelettur kr. 402.00
Rjúpur 1040.00
Ávextir 300.00
Grænmeti 100.00
Súrmeti í poka 50.00
Hrísgrjón 19.00
Möndluverðlaun 150.00
Vindlar og sígarettur 250.00
Kaffi 55.00
Rasp 23.50
Sælgæti 200.00
Kerti, servíettur 140.00
Mjólk 75.00
Saft 46.70
Gos 75.00
Rjómi 30.00
Samt. kr. 1916.00
Jóladagur.
Hangikjöt kr. 400.00
Kartöflur 26.00
Smjör 65.00
Brauð 20.00
Flatkökur 13.50
Grænar baunir 53.20
Súpa 42.00
Ávextir 90.00
Rjómi 90.00
Rófur 27.50
Svið 200.00
Sykur 40.30
Kaffi 80.00
Gos 130.00
Emmes ísterta (6) 125.00
Samt. kr. 1402.50
Ánnar í jólum.
Hryggur kr. 275.00
Súpa 42.00
Grænar baunir 26.20
Þurrkaðir ávextir 55.40
Rjómi 30.00
Gos 140.00
Samt. kr. 568.60
Frá aðalfundi Framsóknarfélags Reykjavíkur:
Magnús verzlunarstjóri í Kjöt og grænmeti á Snorrabraut með kjöt í jólamatinn. (Tímamynd Gunnar)
MÝVETNINGAR VOTTFESTA
ASTANDIÐ VIÐ MIÐKVÍSL
KRISTINN FINNBOGASON
ENDURKJÖRINN FORMADUR
EJ—Reykjavík, mánudag.
Aðalfundur Framsóknarfélags
Reykjavíkur var haldinn þriðju-
daginn 15. desember síðastliðinn
í Framsóknarhúsinu við Fríkirkju
veg. Formaður félagsins, Kristinn
Finnbogason, var endurkjörinn,
og eins öll stjórn félagsins.
Fundurinn hófst kl. 20.30 og
setti formaður fundinn, og skip-
aði Egil Sigurgeirsson, hæstarétt-
Kri&tinn Flnnbogason
arlögmann, fundarstjóra, en Sig-
urð Björnsson fundarritara.
Síðan flutti formaður skýrslu
stjórnar en gjaldkeri, Markús Stef
ánsson, skýrslu gjaldkera. f skýrsl
unum kom fram, að starf félagsins
á liðnu starfsári var þróttmikið,
og m.a. fjölgaði félögum um rúm-
lega 500. Fjárhagsafkoma félags-
ins var mjög góð á árinu.
Við stjórnarkjör voru foirmaður
o«g stjórnarmenn einróma endur-
kjörnir, og er stjórnin nú þannig
skipuð: Formaóur Kristinn Finn-
bogson, meðstjórnendur: Jón Abra
ham Ólafsson, Kristján Friðriks-
son, Hannes Pálsson, Markús Stef-
ánsson, Alvar Óskarsson og Þor-
Framhald á bls. 22.
KJ-Reykjavík, mánudag.
A3 undanförnu hafa verið
tíðar rafmagnstruflanir á
orkusvæði Laxárvirkjunar, en
ekki hefur þó þurft að grípa
til stórkostlegrar orkuskerð-
ingar til neytenda.
Á laugardaginn v®r rafmagns-
laust fyrir hádegið, og var orsak-
anna að leita í rennslistruflunum
í Laxá. Þá segja virkjunarmenn,
að þessar truflanir megi að
nokkru leyti rekja til þess að
nú er engin stífla í Miðkvísl. Mý-
vetningar munu hafa farið að
Miðkvísl vegna þessara ummæla,
og vottfest hvernig ástandið var
við Miðkvísl.
Um helgina var jafnvel búizt við
að grípa þyrfti til rafmagns-
skömmtunar, þegar álagið á orku
veitusvæðinu fór að aukast eftir
helgarfríið, en ekki kom til þess
að skammta þyrfti rafmagn, og
KJ—Reykjavík, mánudag.
Á sunnudaginn var stofnað í
Reykjavík Náttúruverndarfélag
Reykjavíkur og nágrennis, en ætl-
unin mun vera að fé.'ag þetta nái
yfir mikinn hluta af Suð-vestur-
landi, og á það að vera hliðstætt
náttúruverndarfélögum eða sam-
tökum sem stofnuð hafa verið á
Norðurlandi og Austurlandi. Rúm-
lega 90 manns sat stofnfundinn,
en aðalfundur verður haldinn í
vor, og þá mun félagsstofnun kom
var nægjanleg orka fengin með
því að keyra allar diselstöðvar á
fullu.
ast í fastari skorður.
í fréttatilkynningu frá fundinum
segir svo:
.,Af hálfu undirbúningsnefndar
var lagt fram frumvarp til laga fé-
■'sins, og var það samþykkt nær
óbreytt.
Kosin var stjórn til næsta að-
alfundar, sem haldinn verður eigi
síðar en í maí, en kosningu í full-
Framhald á bls. 22.
dagar til jóla
Jólatrásskemmtun Framsóknarfálaganna
Framsóknarfélögin í Reykja-
vík efna til jólatrésskemmtun-
ar fyrir börn i Súlnasalnum að
Hótel Sögu miðvikudaginn 10.
desember nk. Skemmtunin hefst
kl 3 síðdegis. Jólasveinn n-
ur i heimsókn, og börnin fá
jólagjöf og ávexti Aðgöngu-
miða má panta á skrifstofu
Framsóknarflokksins, Hring-
braut 30, sími 24480 Verða mið
arnir seldir þar á skrifstofunni
og einnig á afgreiðs.ú Tímans.
Bankast — *- 7. sími 12323.
Setjið miðana í jólap.kka
barnanna.
Náttúruverndarfélag
Rvíkur og nágrennis