Tíminn - 24.12.1970, Blaðsíða 2

Tíminn - 24.12.1970, Blaðsíða 2
14 FIMMTUDAGUR 24. desember 1970 TIMINN f Frum-Fást, sem saminn er á árunum 1773—74, er að finna fyrsta eintal Fásts, sam- tal hans vi&' Wagner, samtal ■Wefistofelesar og náms- mannsins, atriði'ð í Auerbachs kjallaranum og þáttinn af Grétu, þótt honum fylgi hvorki 1 frumgerðinni frásögn af dauða Valentínusar né galdramessan á Valborgarnótt. Verkefnið átti hug skáldsins svo óskiptan, að meira en sex- tíu áruan síðar eða með öðrum orðum allt fram á andlátsstund að heita má, var það' enn að fága Fást sinn og fullgera. Það má réttilega álykta, að verkið njóti þess og gjaldi í jafnríkum mæli, hversu lengi það var í smíðum. Hugsanafer- ill skáldsins er vitanlega þeim mun fjölskrúðugri og blæfeg- urri sem reynsla þess er meiri og ríkari, en hins vegar er hætt við, að fyrstu innviðirnir hafi færzt svo úr skorðum, að heildarbyggingin hafi talsvert skekkzt við það. Hversu mikl- ar mætur, sem menn kunna að hafa á Fást, viðurkenna flest- ir, að hann sé fjarri því að vera rammbyggilega gerður eða skipulega hugsaður, eink- um þó ef hann er borinn sam an við slíka dvergasmíði sem Antigóna Sofóklesar er, enda ber Goethe ebki spennitreyju Gömul koparstunga af Mefistofeles og Fást. FAST FYLGT R HLAÐI leikformsins með sama létt- sMlU^urinp .$óð,i., er ann. þá vísar eðli hans á rétta leika og glæsibrag sem gríski að’sem hugverk hans hefur til leið. --------------- . .(ÞýV. Magnúsar Ásgeirs- I formalanum á nimm veðja sonar). drottinn og djöfullinn um sálu Fásts eins og flestir vita. Orða skipti þeirra eru svo ótvíræð, að enginn vafi leikur á því, hvor muni vinna veðmálið og dregur þetta óneitanlega úr óvissu okkar og ofvæni. Þetta hlýtur að teljast talsverður ljóður á sjónleiknum, þar sem okkur er aldrei gefið tilefni til að örvænta um hlutskipti Fásts, sem fær þrátt fyrir ófagra hrösun sína hlutdeild í dýrð drottins undir leikslok síðari hlutans. Um Fást hefur drottinn þau orð að segja, sem hér fara á eftir í þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar: Þótt óljóst kunni hann enn að þjóna mér, mun æðri birta á veg hans siðar skina. Á grænum sprota garðsins vörður sér þess gróðrar vott, sem tré hans á að krýna. Og það er reyndar ekki að- eins Fást, sem þjónar honum heldur kölski líka á sinn kyn- lega hátt. Enda þótt drottinn lýsi því yfir, aö maður fari vill ur vegar svo lengi sem hann keppist við eða eins og það hljóðar á frummálinu: „Es irrt der Mensch, so’ang’er strebt", þá getur Fást samt sem áður aldrei orðið svo villuhætt í við leitni sinni, að hann hljóti ei- lífa útskúfun og bölvun fyrir. Drottinn ítrekar svipaða hug- sjón, er hann yrðir nokkrum ljóðlínum neðar svofelldum orð um á Satan: Þín ósk skal veitt! Ef anda þessa manns frá uppsprettunni fær þú glapið og getur vélað vilja hans á vegi þína, — mitt er tapið. En skömmin þín, ef sannar samt hans skeið: Þótt góður drengur vaði í villu og svíma, Hér er beinlínis gefið í skyn, að Fást gangi á guósvegum og sé því eilíflega sáluhólpinn, hversu ódrengilega sem hann breytir gagnvart náunganum eða hversu stórsyndsamlega, sem hann lifir lífinu yfirleitt. Hér virðist Goethe vera sama sinnir og Marteinn Lúther, sem metur meira trú manna heldur en verk þeirra. Á einum stað í seinni hlut- anum standa eftirfarandi orð: Þann, sem alltaf reynir fyrir sér, er okkur fært að frelsa. („Wer immer strebend sich bemiiht. Den können wir erlös en“). Er ekki hér á ferðinni þversögn eða hreinasta mót- sögn, sem stangast illa á við ofangreind orð drottins í for- málanum á þá leið, að við- leitni manns og villu sé ógjör- legt að skilja að. Nú virðist viðleitnin hins vegar vera orð- in frumskilyrði fyrir sáluhjálp hans og heill. Menn vinna ekki léttara verk en að finna viðlíka mót- sagnir og þá, sem hér hefir ver- ið lítillega drepió' á, enda er ekki ofmælt, að hugur Fásts eins og reyndar hugir flestra manna, sé gapandi safnþró æp- andi mótsagna. Fást hefur sökkt sér svo heilshugar niður í fræði sín, að lífið hefur lengstum liðið hjá, án þess að hann hafi notið lystisemda þess. Honum er þó ekki kappsmál að höndla sams konar hamingju og þá, sem fellur geðspektarmönn- um í skaut eöa nánar tiltekið öllum þeim, sem láta sér lynda að lifa lífinu án grúsks og teljandi heilabrota eða nær- göngulla spurninga u.n næsta líf og freklegrar hnýsni um hinztu rök. Nú skal láta gamm- inn geysa um víðan vang og allt reyna, vegna þess að í upphafi var ekki orðið heldur athöfnin, eða eins og Goethe segir á sínu máli: „Im Anfang war die Tat“. Fást er óseðjandi. Hann krefst einlægt nýrrar og nýrr- ar reynslu og getur hvc.gi numið staðar. Hann hrekst mótsagna á milli og kemst í snertingu við sakleysi og sora. Stundir unaðar og þjáninga skiptast á. Hann berst stöóugt áfram með tímans straumi („das Rauschen der Zeit“) og rás Viðburða „das Rollen der Begebenheit"). Þessum leit- andi anda, sem vill eignast bæði jarðríki og guðsríki í senn, er meinað að ná marki, vegna þess að maðurinn er hálfráðin gáta og ófuUkomn- un, en guð aftur á móti full- komnun og óendanleiki. Og Fást er með þeim ósköpum gerður, að hann getur ekki óleitandi, óstarfaridi né óspyrj- andi verið frekar en Hamlet og Pétur Gautur svo nefndir séu tveir hálfbræður hans úr heimi bókmennta. Þar sem Mefisto- feles lýsir honum í formálanum á himni á ólíkt meistaralegri hátt heldur en mér er unnt, er ekki úr vegi að gefa hon- um orðið hér: (Mefistofeles svarar drottni). Víst mjög svo undarleigur skósveinn þinn! Ei jarðar fæðu og drykk sá dári skeytir, en dul og vil hann teygir í óraleitir, og þó til hálfs er honum æðið Ijóst. Hann kysi að' höndla himins stjömusveitir og hvert það yndi, er mennskum lýð því Ijóst, en ekkert nær né fjær þann fullnað veitir, er firði hans þreyjulausa brjóst. (Þýð: Magnúsar Ásgeirss.) í samningum, sem Mefisto- feles og Fást gera sín á milli, setur sá síðarnefndi það skil- yrði, að lífsreynslan veiti hon- um nautn og ánægju. Úr því málum er þannig háttað, skyldi maður ætla, að Mefisto- feles legði sig í framkróka til aó' fullnægja þessu mikilvæga skilyrði og vinna þar með veðmálið, en því er, hversu undarlegt sem það má heita, á annan veg farið. Hann gerir bókstaflega ekki neitt til að ná tangarhaldi á sálu Fásts eða veita honum slíka fullnæg- ingu, að hann geti sagt við líðandi stund: „Ver þú kyrr, þú ert svo fögur". („Verweile doch, du bist so schön“). Það virðist sem Mefistofeles geri sér enga rellu út af þessu og sé því í rauninni andskotans sama hvort hann verði einni sálu ríkari eða fátækari. Ein- sætt er að slíkur tvíveðrungur hlýtur að diraga talsvert úr seiðmagni sjónleiksins og mætti, en um leið er rétt að hafa það fast í huga, að Fást er ekki leikrit í venjulegum skilningi heldur leikrænn ljóða bálkur úr sundurleitustu erindum, saniinn af skáldi, sem var mjög einkennt frá öðrum mönnum að' andlegum yfirburðum A breiðtjald mannlegrar reynslu er brugðið upp óskyl - ustu og fjölbreytilegustu myndum. í hugskoti höfundar búa hreinustu gersemar: há- leitar hugsanir og djúpstæðar tilfinningar. Goethe spannar yfir svo ótrúlega vítt hugsaaa-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.