Morgunblaðið - 20.12.2005, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 20.12.2005, Qupperneq 2
ÍÞRÓTTIR 2 C ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA England 1. deild QPR – Coventry........................................0:1 Gary McSheffrey (vsp.) 87. Staðan: Reading 24 18 5 1 48:12 59 Sheff. Utd 24 16 5 3 46:21 53 Watford 24 10 9 5 39:31 39 Leeds 23 11 6 6 28:21 39 Stoke City 24 12 1 11 32:34 37 Wolves 24 8 11 5 29:20 35 Cardiff 24 9 8 7 33:26 35 Burnley 24 10 5 9 35:30 35 Preston 24 7 13 4 27:21 34 Luton 24 10 4 10 35:35 34 Cr. Palace 23 9 6 8 33:26 33 Southampton 24 6 14 4 26:22 32 Norwich 24 8 5 11 26:31 29 QPR 24 7 8 9 27:34 29 Ipswich 24 7 8 9 27:36 29 Coventry 24 6 10 8 29:34 28 Derby 24 5 12 7 30:33 27 Hull 24 6 8 10 22:27 26 Leicester 23 5 10 8 26:29 25 Plymouth 23 5 9 9 20:29 24 Brighton 24 3 13 8 24:36 22 Sheff. Wed. 24 4 8 12 17:30 20 Crewe 24 4 8 12 25:46 20 Millwall 24 3 8 13 17:37 17 ÍSHOKKÍ Íslandsmót karla Narfi – SR ..................................................3:6 SA – Björninn ..........................................11:4 KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin Atlanta – Denver ...............................110:107  Eftir framlengingu. LA Lakers – Houston ...........................74:76 Portland – Washington.........................97:92 Toronto – 76ers....................................80:107 New Jersey – Golden State ................118:90 New Orleans – San Antonio .................89:76 Dallas – Minnesota..............................102:95 HANDKNATTLEIKUR Tvir stórleikir verða í þýsku 1. deildar- keppninni í kvöld. Kiel fær Afreð Gíslason og lærisveina hans hjá Magdeburg í heims- kón og Flensburg mætir Gummersbach. Sí brett minn æfin urinn ingin brau mjög íþrót inga arinn inum Þega að h „VE bygg frjál Gun mill þjálf und og la Eftir iben@ H öllin er vafalaust ein mesta bylting sem átt hefur sér stað í að- stöðu til æfinga og keppni í frjálsíþróttum hér á landi. Aðstaðan er hins vegar eitt og aukinn áhugi og bættur ár- angur er annað. Þráinn segir menn vera sér vel meðvitandi um að nú þurfi félögin að nýta sér þann með- byr sem þau hafi með bættri að- stöðu til þess að vinna sitt starf og ná til barna og ungmenna. Það verði að vinna fyrir þátttakend- unum. „Það er Reykjavíkurfélaganna að spila vel úr þeim möguleikum sem húsið gefur. Í því sambandi er fyrirhugað verulegt kynningarátak í byrjun næsta árs í allri borginni. Þá verður sendur kynningarbæk- lingur inn á öll heimili í Reykjavík, boð til barna og unglinga í opið hús í Laugardalshöll til að prófa að mæta á æfingar. Þá munu félögin einnig heimsækja grunnskóla og standa fyrir kynningum í grunn- skólum borgarinnar og fleiru í þeim dúr,“ segir Þráinn. Góð samvinna frá upphafi Þráinn segir að á meðan á hönn- un hússins stóð hafi mjög gott og mikið samráð verið haft við sér- fræðinga innan frjálsíþróttahreyf- ingarinnar til þess að gera húsið eins vel úr garði og kostur er. Slíkt samráð hafi verið afar mikilvægt og það skili sér í betra mannvirki og fyrir það beri að þakka. „Við fengum mörgum atriðum breytt okkur í hag frá fyrstu hug- myndum. Þetta mikla og góða samráð náði til útfærslu á keppnis- og æfingasalnum sjálfum, til áhalda og tækja til keppni og æf- inga og sérhannaðrar lyftinga- og þrekaðstöðu fyrir frjálsar. Þetta samstarf hefur verið alveg til fyr- irmyndar og eins samstarfið við rekstraraðila Hallarinnar og starfsfólk það sem af er frá opn- un,“ segir Þráinn og bætir við að góð reynsla sé fengin eftir nokk- urra vikna æfingar í Höllinni. „Við erum ennfremur mjög ánægðir með að öll tæki voru keypt ný inn og nóg af þeim. Farið var eftir okkar óskum í þeim efnum. Ekki var nýtt eitthvað gamalt og úr sér gengið til þess að spara krónur sem síðar hefði hvort eð er þurft að skipta út.“ Bylting í mótahaldi Þráinn er þrautreyndur keppn- ismaður og m.a. fyrrverandi Ís- landsmethafi í tugþraut. Hann hef- ur víða farið sem keppnismaður og síðar sem þjálfari. Einnig var hann um nokkurra ára skeið einn skipu- leggjenda Stórmóts ÍR á árunum í kringum aldamót. Mótið laðaði að sér þekkta erlenda í íþróttamenn til keppni við fremstu frjálsíþrótta- menn Íslands á þeim tíma auk þess sem þúsundir manna mættu til að horfa á frjálsíþróttakeppni við frekar frumstæðar aðstæður í Laugardalshöll. Nú er móthald við þær aðstæður liðin tíð með tilkomu nýju íþróttahallarinnar auk þess sem umhverfi frjálsíþróttamóta hér á landi gjörbreytist þar sem nú verður hægt að keppa í fjölmörg- um greinum við fullkomnar að- stæður, greinum sem aldrei hefur jafnvel verið hægt að keppa í hér á landi, s.s. flestum tegundum hlaupa, hvort sem um er að ræða styttri eða lengri vegalengdir. „Höllin gefur frjálsíþróttahreyf- ingunni loks möguleika til að halda heimsklassamót í öllum innanhúss frjálsíþróttagreinum. Höllin setur okkur jafnfætis öðrum þjóðum hvað varðar möguleika til móta- halds innanhúss og gefur okkur tækifæri til að laða hingað frjáls- íþróttamenn í fremstu röð til keppni við toppaðstæður innan- húss sem ekki væri hægt að bjóða hingað að sumri til vegna veður- farsins,“ segir Þráinn og bætir við að af sjálfsögðu eigi þetta ekki ein- göngu við um alþjóðleg mót; fyrst og fremst sé um byltingu fyrir ís- lenska frjálsíþróttamenn á öllum aldri að ræða og þess hafi þegar orðið vart þar sem þegar hafa ver- ið haldin tvö mót í Höllinni. „Mótahaldið mun aukast veru- lega og er í því sambandi hugsað til fleiri móta í október og nóv- ember fyrir yngri flokkana en ver- ið hefur. Og ný og skemmtileg mót á hinu hefðbundna innanhúss keppnistímabili keppnisfólksins frá janúar til mars. Reykjavíkurleikar verða haldnir ÚRSLIT Þráinn Hafsteinsson, formaður Frjálsíþróttaráðs Reykjavíkur, um tilkomu frjálsíþróttahallarinnar í Laugardal Okkar að spila úr möguleikunum „HÖLLIN gefur frjálsíþrótta- félögunum í Reykjavík stórkost- lega möguleika til að fjölga iðk- endum og gefa ungum sem öldnum tækifæri til að njóta þess að stunda frjálsíþróttir. Vaxtarmöguleikarnir hafa allt í einu margfaldast,“ segir Þráinn Hafsteinsson, yfirþjálfari hjá Frjálsíþróttadeild ÍR, fyrrver- andi landsliðsmaður og lands- liðsþjálfari í frjálsíþróttum, spurður um hina nýju frjáls- íþróttahöll í Laugardal en Þrá- inn er ennfremur formaður Frjálsíþróttaráðs Reykjavíkur. Morgunblaðið/Þorkell Þráinn Hafsteinsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari og formaður Frjálsíþróttaráðs Reykjavíkur, ásamt Helgu, dóttur sinni, í nýju íþróttahöllinni, en Helga er mjög efnilegur hástökkvari hjá ÍR. Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is 14. til 15. janúar. Reykjavíkur- meistaramót í öllum aldursflokkum sem er líka opið öllum félögum ut- an Reykjavíkur. Þá er áformað að Framhaldsskólamótið í frjálsum fari fram 27. janúar. Stórmót ÍR verður haldið 28. til 29. janúar þar sem um verður að ræða opið mót í öllum aldursflokk- um. Vígslumót Laugardalshallar verður svo haldið laugardaginn 28. janúar. Er undirbúningur þess hafinn og stefnt að alþjóðlegu boðsmóti með þátttöku allra bestu frjálsíþróttamanna landsins auk erlendra gesta. Í febrúar verða öll Íslandsmeist- aramótin haldin í Laugardalshöll. Í apríl er fyrirhugað nýtt mót sem verður sett sem fyrirtækjakeppni, firmamót. Í byrjun maí verður svo fjölmennt grunnskólamót. Árlega er stefnt að einu til þremur alþjóðlegum mótum innan- húss svo sem Stórmóti ÍR og Reykjavíkurleikum. Einnig er fyr- irhugað að Norðurlandamót öld- unga fari fram í Laugardalshöll ár- ið 2008. Þannig að það er nóg framundan. Við frjálsíþróttamenn fögnum þessari löngu tímabæru og glæsilegu aðstöðu og ætlum okkur að nýta hana eins og kostur er íþróttinni til framdráttar,“ segir Þráinn Hafsteinsson, formaður Frjálsíþróttaráðs Reykjavíkur og yfirþjálfari hjá frjálsíþróttadeild ÍR. Br „ÍÞRÓTTAHÖLLIN er mikil breyting fyrir okkur,“ segir Helga Þrá- insdóttir, 16 ára hástökkvari í ÍR, sem var í óðaönn við æfingar þegar Morgunblaðið bar að garði í nýju íþróttahöllina í Laugardal á dög- unum. Helga hefur æft frjálsíþróttir frá sex ára aldri en nú í seinni tíð hallað sér að hástökki og sannast þar að eplið fellur sjaldan langt frá eikinni en móðir Helgu er Þórdís Gísladóttir, Íslandsmethafi í há- stökki, og fremsti keppnismaður í þeirri grein í kvennaflokki sem Ís- land hefur alið. Faðirinn, Þráinn Hafsteinsson, lagði einnig stund á frjálsíþróttir á yngri árum og átti um nokkurra ára skeið Íslands- metið í tugþraut. „Hingað til höfum við verið í mjög þröngri og erfiðri aðstöðu í Baldurshaga, ekki síst hefur verið þröngt um okkur sem leggjum stund á hástökk, aðeins ein braut, lítil lofthæð. Hér er hins vegar allt til alls,“ segir Helga og bætir því að það sé ólíku saman að jafna að- stöðunni nú til æfinga og áður var í Baldurshaga við Laugardalsvöll. „Það hefur ekki verið hægt að æfa hástökkið almennilega, aðeins með nokkurra skrefa atrennu. Síðan var ekkert hægt að keppa í Baldurs- haganum.“ Helga, sem æfir nú fimm sinnum í viku í íþróttahöllinni, hefur hæst stokkið yfir 161 sentímetra og gerir sér góðar vonir um að íþrótta- höllin muni stuðla að framförum hjá sér. „Þetta er algjör bylting og það skilar sér alveg örugglega hjá mér og mörgum öðrum. Æfing- arnar eru mun fjölbreyttari og skemmtilegri þar sem aðstaðan hér er öll eins best verður á kosið. “ Helga segist ekki vera í vafa um að tilkoma íþróttahallarinnar muni laða fleiri ungmenni að frjálsíþróttum. „Nú er aðstaðan til æfinga og keppni mun meira aðlaðandi en áður var. “ Á síðan að leggja til atlögu við Íslandsmet móður þinnar? „Já, vonandi tekst mér að ná því einn góðan veðurdag. Ég vonast fyrst og fremst eftir að taka framförum núna,“ segir Helga Þráins- dóttir og var þar með rokin í æfingar á nýjan leik. „Hér er allt til alls“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.