Tíminn - 19.03.1971, Síða 4

Tíminn - 19.03.1971, Síða 4
16 FÖSTUDAGUR 19. marz 1971 TIMINN THOMAS DUKE: NINETTE 40 al gestanna. Hún kom nefnilega stundum hingað til þess að ná sér í efni fyrir blað sitt. Nokkur andlit kannaðist hann við frá hinni frægu brúðkaupsveizl sinni. Og þarna sat „Hafnsögumað urinn“ ekki alllangt frá Maríusi, en þennan daginn var ekkert sam band þeirra á milli. Eftir hið prinslega hanastélspartý var „Hafn sögumaðurinn“ áreiðanlega kom- inn á þá skoðun að fyrst um sinn væri hyggilegast að ganga fremur hægt um gleðinnar dyr. — Hvað er að sjá þig? Maríus glápti forvitnislega framan í hann. — Hvar hefur þú orðið þér úti um skrámur. Hann hallaði sér aftur á bak í stólnum og beið í spenningi eftir nánari skýringum. — Þú hefur líklega snoppungað þau? — Ekki gerði ég það, svaraði Hardy önugur. Hann var ekki reiðubúinn til þess að standa í sjóprófi. — Jæja þá, sagði Maríus von- svikinn Hardy var í þann veginn að snúa sér frá þeim og ganga fram á salemið til að laga sig ofurlítið til, þegar Maríus tók að korra upp úr eins manns hljóði. Hann lá að háifu leyti ofan á borðinu og greip andann á lofti. — Þú, stundi hann upp. — Þetta er gamalt mein — hjartað. Andardrátturinn var nú orðinn reglulegur. Sally rak upp vein og fleygði Bibi frá sér á gólfið, sem stað- næmdist á hryggskildinum og komst því ekki á lappimar. Hún losaði í skyndi um hálsklútinn á Maríusi og hljóp svo í símann. Hinar hávæm samræður í veit- ingastofunni hljóðnuðu á sama andartaki og Sally fleygði skjald- bökunni. Þetta uppistand með Maríus voru hreinir smámunir í augum sjómannanna. Allt öðru máli gegndi um Bibi. Aldrei í manna minnum hafði skjaldbak- an Bibi fengið aðra eins útreið. Og það af hendi sjálfrar madöm- unnar. Gestirnir neyddust nú samt til þess að horfa með nokkurri við- urkenningu á Maríus fyrir það eitt að geta komið Sally í þetta ástand. Enginn fékk skilið það. Maríus lá með lokuð augun, dró andann þungt, og sviti spratt fram á enninu. Hardy kraup á hnjánum við hliðina á honum. — Gamli, góði strákur, gamli drengur, tautaði Hardy ósjálfrátt upp aftur og aftur. Sjúkravagninn hlaut að vera alveg á næstu grös- um. Það var þó nokkuð síðan Sally hringdi. Hardy gat ekki lit- ið af andlitinu á Maríusi, það var eins og hrikaleg gríma, hinir af- mynduðu fölu andlitsdrættir, hið eldrauða yfirskegg og bláar titr- andi varir. Hvítt blátt og rautt — þrílitur eins og franski fáninn. Ætlaði þessi sjúkravagn aldrei að koma. Sally stóð við símann og skammaðist. Hardy tók eftir því að_ gestirn- ir horfðu vandræðalega á Bibi á gólfinu. Hún lá algjörlega ósjálf- bjarga og prjónaði fótunum upp í loftið, þangað til „Hafnsögumað urinn“ stóð á fætur og hjálpaði skepnunni á réttan kjöl. Hún stóð fyrst kyrr, eins og hún væri að taka sólarhæðina, en fór svo að vappa milli borðanna eins og hún var vön. Mönnum létti fyrir brjósti. Bibi var táknmynd þess anda, sem sveif yfir vötnunum á Welcome Bar. Síðast þegar Bibi varð fyrir hnjaski. var þegar Sally handleggsbraut hinn hávaxna Breta. Nú hafði Sally sjálf óneit- anlega brotið af sér, en „Hafn- sögumaðurinn" bætti fyrir að nokkru. Eftir Maríusi tók enginn leng- ur, og fyrra umræðuefni tekið upp að nýju. Nú heyrðist í bíl- mótor utan við og eftir augnablik gengu tveir menn inn með sjúkra börur á milli sín. Þeir hröðuðu sér yfir gólfið til Maríusar, og lögðu hann á börurnar með hand tökum kunnáttumanna. Enginn leit við sjúkrabörunum á útleið- inni, menn voru allt of uPPtekn- ir af hugmyndum sínum um það hvernig fara mundi um úthlutun verðlauna að lokinni kappsigling- unni, til þess. — Ég fer með honum, sagði Sally, um leið og hún lagfærði hárið. Hin svörtu augu hennar voru fjarræn og óskýr. — Veit- ingastofan getur passað sig sjálf á meðan. Drengirnir munu halda öllu í röð og reglu. Hardy mótmælti. — Láttu mig um þetta Sally, það verður betra að ég fari með Maríusi. — Þú getur látið skipstjórann vita, sagði hún og settist inn í vagninn. — Gerðu eins og ég segi, vinur. Yfir henni var einhver hlý legur virðuleiki. — Eins og þú vilt, sagði Hardy. Þegar öllu var á botninn hvolft hafði hún fullt svo mikinn rétt og hann til þess að annast um Maríus. Larsen skipstjóri sat að venju í kortakelfanum, þegar Hardy kom um borð. — Slæm tíðindi, Capi. Maríus er farinn á sjúkrahús, — það er hjartað, sem er í ólagi. Larsen skipstjóri horfði reiði- lega á hann, spratt svo é fætur og stappaði í gólfið. — Hvern fjandann telur hann sér trú um. Hann horfði ásakandi á Hardy, eins og hann ætti sinn þátt í sjúk dómi Maríusar. — Jahá, hvern fjandann telur hann sér trú um, endurtók Hardy. Larsen skipstjóri dró augað í pung, þegar hann horfði á Hardy: — Eru þetta leikaraduttlungar? Hjartað. . . Af hreyfingum Hardys rnátti ráða að hann var reiður: — Hon- um leið mjög illa þegar hann fór á sjúkrahúsið, sagði hann þung- lega. Larsen spýtti á gólfið. — Já, jæja, hann getur spókað sig þarna efra í nótt, en tíman- lega í fyrramálið verður hann að vera kominn til starfa. eða að fjandinn hirði mig. Þessu til stað festingar barði hann með hnefas um í borðið, svo teikniáhöld og sjókort dönsuðu. — Allt í lagi, Capi. Eiginlega var Hardy alveg orðlaus. Það var ekki hægt að ræða við Larsen. því annað hvort var hann sem kallað er „hard case“ eða þá sinn isveikur. Hann ræskti til og sagði: — Góða nótt, Capi. Haltu kjafti, urraði Larsen um lei'ð og hann féll þunglega niður í stólinn, tók spil upp úr vasa sín- um og fór að leggja kabal. Hardy var fokreiður þegar hann gekk niður í hásetaklefann. Eftir samtalið — ef samtal skyldi kalla — við Larsen skipstjóra, sjúkdómsáfall Maríusar og svo höf uðið á honum sjálfum, en upp úr því höfðu sprottið tvær egglaga kúlur — ávextimir af göngustafs höggum frú Wrights og síðast en ekki sízt klístrunarónotin eftir uppþvottaskólpið — var ekki nema um þrennt að gera: Fara strax í rúmið, eða fá að sofa hjá stúlku, sem skildí mann, og í þriðja lagi að drekka sig blind- fullan. Eiginlega vildi Hardy belzt gera þetta allt saman í einu. Hann sat á kojubríkinni og starði raunalega á Grikkina fjóra, sem sváfu svefni hinna réttlátu, og voru nú líklega staddir uppi á Olympíufjalli, þar sem enginn Larsen skipstjóri fyrirfannst til þess að trufla hinn olympska frið. Hardy teygði sig í kojunni. hann var allur af sér genginn — aðeins er föstudagurinn 19. marz Árdegisháflæði í Rvík kl. 10.12. Tungl í hásuðri kl. (06.50). HEILSUGÆZLA Slysavarðstofan I Börgarspítalan- um er opin ailan sólarhringinn. Aðeins móttaka slasaðra. Sími 81212. Slökkviliðið og sjúkrabifreiðir fyr- ir Bevkjavík og Kópavog simi Mænusóttarbólusetning fyrir full- orðna fer fram í Heilsuverndar- stöð Reykjavíkur á mánudögum kl. 17—18. Gengið inn frá Bar- ónsstíg, yfir brúna. Kvöld- og helgarvörzlu Apóteka í R-vík 13. til 19 marz annast Lyfjabúðin Iðunn og Garðs Apó- tek. Næturvarzla er að Stórholti 1. Næturvörzlu í Keflavík 19. marz annast Guðjón Klemenzson. SIGLINGAR Skipadeild S.Í.S.: Arnarfell er í Rotterdam. Fer það- an til Hull. Jökulfell fór 16. þ. m. frá Þingeyri til New Bedford. Dís- arfell fór í gær firá Hornafirði til Ventspils, Gdynia, Svendborgar og Kaupmannahafnar. Litlafell er í ol- íuflutningum á Faxaflóa. Helga- fell er í Setubal. Fer þaðan vænt- anlega 22. þ. m. til Islands. Stapa- fell er í olíuflutningum á Faxa- flóa. Mælifell er væntanlegt til Reykjavíkur 22. þ. m. Freyfaxi er væntanlegur til Akureyrar 19. þ. m. Sixtus fór 16. þ. m. frá Hamborg til íslands. Birthe Dania átti að koma til Liibeck í gær. Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á Norðurlandshöfnum á vesturleið. Herjólfur fer frá Horna firði í dag til Vestmannaeyja og Reykjavíkur. Herðubreið fer frá Reykjavík síðdegis í dag, vestur um land til ísafjarðar. Baldur fór til Snæfellsness- og Breiðafjarðar- hafna í gærkvöld. FLUGÁÆTLANIR Loftieiðir hf.: Snoriri Þorfinnsson er væntanlegur frá New York kl. 08:00. Fer til Luxemborgar kl. 08:45. Er væntan- legur til baka frá Luxemborg kl. 17:00. Fer til New York kl. 17:45. Leifur Eiríksson er væntanlegur frá New York kl. 08:30. Fer til Oslóar, Gautaborgar og Kaup- mannahafnar kl. 09:30. LEIÐRÉTTING í blaðinu í gær var sagt frá rauðmagaveiði í Hafnarfirði og rætt við Grím Ásvaldsson, að því er sagt var. Þetta er ekki rétt. Grímur er Ársælsson. Blaðið biður hann afsökunar á þessum mistök- um. FÉLAGSLÍF Ferðafélagskvöldvaka í Sigtúni sunnudaginn 21. marz kl. 21.00 (húsið opnað kl. 20,30). Efni: 1. Jóhann Pétursson, vitavörður, segir frá Hornströndum og sýnir myndir ásamt Einari Þ. Guðjohn- sen. 2. Myndagetraun, sem dr. Sig- urður Þórarinsson sér um. 3. Dans til kl. 1. Rúllugjald við inngang- inn. Ferðafélag íslands. Ferðafélagsferðir. Páskaferðir: 2 Þórsmerkurferðir, 5 daga og 3 daga. Hagavatnsferð (ef fært verður). Ferðafélag íslands Frá Guðspckifélaginn. „Hugleiðingar og andstæður" nefn- ist opinbert erindi, sem Sverrir Bjamason flytur í húsi félagsins, Ingólfsstræti 22, kl. 9 í kvöld. ORÐSENDING Skrifstofa Samtaka einstæðra foreldra Túngötn 14, Hallveigar- stöðum, er opin á mánudögum frá kl. 5 til 7 síðdegis, sími 18156. Frá Kvenfélagi Bústaðarsóknar Handavinnukvöldin eru á mánu dögum kl. 8,30 e.h. í Litlagerði 12. ís.enzka dýrasafnið er opið alla daga frá kl. 1 ÖJ 6 t Breiðfirðinsabúð. Minningarkort Styrktarfélags vangefinna fást í Bókabúð Æskunnar, Bóka- verzlun Snæþjarnar, verzJ. Hlín, Skólavörðustíg 18, Minningabúð- inni, Laugavegi 56, ve. blómið, Rofabæ 7 og skrifstofu fé- lagsins, Laugavegi 11, sími 15941. 11100. Sjúkrabifreið f Hafnarfirði sími 51336. Almennar upplýsingar um lækna- þjónustu í borginni eru gefnar i símsvara Læknafélags Reykjavik ur. sími 18888 Fæðingarheimilið I Kópavogi. Hlíðarvegi 40, sími 42644. Tannlæknavakt er i Heilsuverndar stöðinni. þar sem Slysavarðstoi an var. og er opin laugardaga oe sunnudaga kl. 5—6 e. h — Sími 22411 Kópavogs Apótek er opið virka daga kl. 9—19. laugardaga ki 9 —14. helgidaga kl 13—15 Keflavíkur Apótek eT opið vtrka daga kl. 9—19 laugardaga kl 9—14. helgidaga kl 13—15. Apótek Hafnarfjarðar er opið all? virka Cag. frá kl 9—7, á laugar- dögum kl 9—2 og á sunnudög- um og öðrum helgidögum er op. ið frá kl. 2—4. — Ég skil ekki, af iiverju Cliiids v'il hjálp í bænum, en luin er á leiðinni. Á mcðan... — Sjáið, Blake! Sýna þessir pappírar ekki, að ég sé Pinkerton-maður- inn? — Þú gætir hafa stolið þeim. — Hér er cigandinn! — Er þessi maður Pinkerton-löggan, sem fékk leigðan hest hjá þér? »^^^!^<^<^<^NNg>A;^^;^;/*^^<><^^^;^^<;g<s<N<N<Nr«|Ng»><N<S/s/S/S/N«s/N<S/N/N/>^>/N/N/N/NA^^/N/S/Nf>fN/N/v/»r<^N^/S>N/N^/N/N/v/sf>/S/Nr>fN/Sf»/N/N/N/Nl

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.