Tíminn - 26.03.1971, Síða 3

Tíminn - 26.03.1971, Síða 3
FÖSTUDAGUR 26. marz 1971 TÍMINN 15 koma fram máli Snæfells á henchir ASÍ. En hvar er réttar- farsþjóSfélagiS? Er þeim sterka leyft aS beita þann veikari of- beldi og eySileggja eignir hans? Eignir Snæfells hafa verið seldar á þessum uppboðum, sem ættu aS heyra til grárri forneskju, en ekki nútímaþjóS- félagi. ASÍ hefur ekki, að mér skilst, fariS varhluta af góSum kaupum á eignurn Snæfells, sem á landi sambandsins stóSu. TaliS var, að um 7% væru eft ir af verki SnæfelLs, þegar ASÍ tók þaS af því, aðallega frá- gangur úti, sem ekki var hægt að ljúka vegna áSurnefndra skurSa, sem opnir stóSu. Þegar samningur ASÍ og Snæ- fells var gerSur, settu ASÍ- menn í hann eina grein, sem ég hef ekki áSur séS í verksamn- ingi, en þar sem ASÍ þóttist hafa sérstöðu í þessu máli gagn vart launafólki, þótti ekki nema rétt aS leyfa þeim aS hafa þessa grein, en hún er númer ellefu og er þannig: „Verksali skuldbindur sig til aS inna af hendi greiðslur vinnu launa jafnóSum og þær falla í gjalddaga, samkvæmt gildandi samningum stéttarfélaga. Verk- kaupi áskilur sér rétt til aS halda eftir af greiSslum til verk sala, sbr. 10. gr., sem svarar sannanlegum vanefndum í þessu efni.“ Þarna bindur ASl sig nokk- uS, aS minnsta kosti siSferði- Lega. Af hverju var þessi grein sett inn, ef ASÍ ætlaði sér ekki neitt meS hana? Var hún bara til aS sýnast? SnæfeLI setti tryggingu fyrir verki sínu, samanber tryggingar- bréf Samvinnutrygginga 20. 6. 1963, aS upphæð 888.200,00 kr. Þar sem ekki hefur veriS kvart- aS um ófaglega vinnu viS þetta vérk, en tryggingarféS úttekiS, finnst manni a@ eSlilegt hefSi mátt kallast, aS ASl notaSi fé þetta fyrst og fremst til aS gera upp ógoldin verklaun við Ölfus- borgir. En því var ekki þannig fariS, meS þessa forustumenn íslenzkrar alþýSu, aS þeir væru að greiða vinnandi fólki laun sín, sem mun þó hafa veriS tal- in aðalástæSan fyrir þvf, aS verkiS var tekiS af Snæfelli. Þeir beittu 11. gr. verksamn- ingsins gegn Snæfelli, en hún kvaS á um tryggingu verk- láuna, en neituSu svo a@ borga iðhaSarmönnunum launin! Og það, sem kemur firam í grein Árna Jónssonar, að hann eigi launin eftir áramót 1965 ógreidd, kemur ASÍ einu við, því þá hafði Snæfell ekki leng- uý njeð þetta verk að gera. Ölfusborgrr tóku til starfa, frágangi var lokið. Allir, sem séð hafa, lofa verk smiða og annarra, sem þar hafa að unnið, en ekki gæti maður haldið, að það væri vilji launamanna á ís- landi, að heildarsamtökum þeirra héldist uppi sá ribbalda- háttur, sem fram hefur komi@ í þessu máli. En þessa menn kjósa þeir sér til forsjár. Og um annað af tvennu hlýtur að vera að ræða, að þeir viti ekki um þessi mál (og það er bara að gfla sér upplýsinga), eða hitt, að þeim líkar þetta vel, en þvr trúi ég ekki um alþýðu- menn. Þess má geta, að húsin kost- uðu miklu meira en áætlun ASÍ gerði ráð fyrir, en hún var nokkuð undir tilboði Snæ- fells. Þá var áætlað, að hvert hús á steyptan grunn kostaði um 120 þúsund, en nú skilst mér, aS ASÍ borgi um 800 þús- und fyrir hvert hús, sem nú er í byggingu, og þau séu orð- in meira en ári á eftir áætlun. Eg tel ASÍ bera fulla ábyrgð á gjaldþrcti Snæíells hf., og að launarnenn sem unnu við Ölfus- borgir fengu ekki sín laun. Hefði ASÍ staðið við sína samn- inga og greitt tafir, sem þaS olli, vegna breyttra viðhorfa, sem sköpuðust af ófullkomnum updirbúningi, hefðu launamenn fengið sín verklaun og Snæfell væri til sem fyrirtæki enn í dag. Réttur laganna getur ver- ið tey.gjanlegur, og færiir lög- fræðingar geta gert satt ?.ð röngu og rangt að sönnu, en þeir geta ekki baggað réttlætis- kennd hins ólöglærða manns, en hún segir honnm, a@ ASÍ beri að greiða verklaun við Ölf- usborgir og gera að fullu upp tafir, og vandræði, sem það olli verktakanum meðan vinnan stóð, og svo eftir það, því fyrir hvern var verið að vinna þetta verk, nema ASÍ? Þennan blett. venður alþýða þessa lands að þvo af sér. Það getur hún ekki með öðru en að gera upp og greiða Ölfusborgir samkvæmt samningi eða eins og þær kost- uðu. Þetta friðsæla, fallega hvíldarþorp erfiðismanna má ekki liggja undir þessari smán forustumanna ASÍ. Þannig er sannleikurinn og hann er bezt a@ hafa, og treysti ég þeim mönnum, sem í mið- stjórn ASÍ eru og þekkja ekki þessi mál, að kynna sér þau og koma á réttlátu uppgjöri við þá, sem byggðu þessa „paradís á jörðu“, Ölfusborgir. Eskifirði, 17. marz 1971. ' Bóas Emilsson Starfsstúlkur óskast Starfsstúlkur vantar í Vífilsstaðahælið. Upplýsing- ar gefur forstöðukonan, sími 42600. Skrifstofa ríkisspítalanna. NÝTT ÚTIBÚ - Aöalfundur Verzlunarbanka íslands h.f. verður haldinn í veit- ingahúsinu Sigtúni, laugardaginn 3. apríl 1971, og hefst kl. 14,30. DAGSKRÁ: 1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans síðastliðið starfsár. 2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar bank- ans fyrir síðastliðið reikningsár. 3. Lögð fram tillaga um kvittun til bankastjóra og bankaráðs fyrir reikningsskil. 4. Kosning bankaráðs. 5. Kosning endurskoðenda. 6. Tekin ákvörðun um þóknun til bankaráðs og endurskoðenda fyrir næsta kjörtímabil. 7. Tekin ákvörðun um greiðslu arðs. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins verða afhentir í afgreiðslu bankans, Bankastræti 5, miðvikudaginn 31. marz, fimmtudaginn 1. apríl og föstudaginn 2. apríl kl. 9,30—12,30 og kl. 13,30—16,00. í bankaráði Verzlunarbanka íslands h.f. Þ. Guðmundsson, Vilhjálmur Vilhjálmsson, Magnús J. Brynjólfsson. Opnum í dag nýtt útibú að Dalbraut 1. Sími 85250. Opnunartími kl. 9.30—12, 1—4 og 5—6.30. IÐNAÐARBANKI ÍSLANDS H.F. LAU G ARNESÚTIBÚ PIPULAONIR STILL] HITAKERFl Lagfæri gömul hitakerfi. Set upp hreinlætistæki. Skipti hita. Set á kerfið Danfos ofnaventla. SÍMI 17041. j NORRÆNA 1 HUSíf> NORRÆNA HÚSIÐ er orðið of lítib . . . I í LISTASAFNI ASÍ, Laugavegi 18, 3. hæð, höldum við sýningu á verkum SEX DANSKRA SVARTLISTARAAANNA. Eftirfarandi listamenn sýna samtals 58 MYNDIR Povl Christensen Petrea Dan Sterup Hansen Henry Heerup Sven Wiig Hansen Palle Nielsen Mogens Zieler Sýningin verður opnuð laugardaginn 27. marz kl. 14 og verður opin alla daga frá kl. 14—18. Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis. Beztu kveðjur. NORR€NA HUSIÐ POHJOLAN TALO NORDENS HUS Auglýsing UM SKIPULAG í BESSASTAÐAHREPPI Samkvæmt lögum nr. 19/1964 er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu að aðalskipulagi Bessastaðahrepps. Sá hluti Bessastaðahrepps sem að þessu sinni kem- ur fyrst og fremst til álita að skipuleggja, er suð- vestur hluti Álftaness, nánar tiltekið svæðið vestan vegarins sem liggur norðan Eyvindarstaða og Landakots. Nemur svæði þetta rúmlega 170 hekt- örum að flatarmáli. Jafnframt liggja frammi greinargerð skipulags- stjóra ríkisins og athugasemd, sem hreppsnefnd Bessastaðahrepps hefur þegar sent skipulagsstjóra. Tillagan, ásamt fylgiskjölum, verður til sýnis mið- vikudaga og laugardaga kl. 16.00—18.00 í skrif- stofu oddvita Bessastaðahrepps frá 7. apríl n.k. til 19. maí n.k. Hlutaðeigendum ber að skila athugasemdum sín- um til oddvita Bessastaðahrepps eigi síðar en 2. júní n.k., að öðrum kosti teljast þeir hafa sam- þykkt tillöguna. Bessastaðahreppi, 26. marz 1971. Skipulagsstjóri ríkisins, Oddviti Bessastaðahrepps. Bíll til sölu Tilboð óskast í sendiferðabíl. Renault R 4 ’63. Bíllinn er til sýnis á verkstæði Strætisvagna Kópa- vogs við Nesvör. Tilboð sendist undirrituðum fyrir kl. 11 árd. þriðjudaginn 30. þ.m. Kópavogi, 25. marz 1971. Bæjarverkfræðingur.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.