Tíminn - 26.03.1971, Qupperneq 4

Tíminn - 26.03.1971, Qupperneq 4
TÍMINN FÖSTUDAGUR 2G. marz 1971 THOMAS DUKE: NINETTE 46 sem líkami hennar þráði þó svo mjög. — Hardy, þú yndislegi villimað ur. Hún dró djúpt að sér andann, og í augum hennar var innileg ástúð þegar hún hvíslaði: — Eig- um við ekki heldur að hátta al- mennilega? XIX. Morguninn eftir fór hann seint á fætur. Verzlanimar í gamla bæj arhlutanum, le Souquet, voru þeg ar komnar með vörur sinar út á götuna til þess að raða þeim upp til sýnis. Nóttin hafði verið óviðjafnanleg munaðarvíma. Hann var léttur og hress, reyndar mjö'g hamingju- samur. Hún var svo saklaus og blíð. en gat þó orðið ofsalega ástríðufull og frek. Stundum hafði girnd hennar kastað henni út í hreina óstjórn. Á milli ástaratlot- anna höfðu þau talað hægt og ein íæglega saman. Nú vissi hann allt um hana og fjölskyldu hennar. í byrjun viðkynningar þeirra bærðist eitthvað hið innra með honum, sem var andstætt því að hann gæfi sig henni á vald, en hann hafði bráðnað fyrir yl ástúð- ar hennar. Auðvitað mundi hún notfæra sér hann eitthvað í skrif um sínum, en hún um það. Ástir hennar síðastliðna nótt gátu ekki verið uppgerð, til þess var hún of fögur í endurminningunni. Hann minntist þess að hún hefði farið höndum um hann allan, eins og hún vildi finna og þekkja hvem blett líkama hans. Hún fann fæð- ingarblett á vinstri mjöðminni. og sýndi honum fæðingarblett á hægri mjöðminni á sér. Þau höfðu verið eins og tvö börn utan tíma og rúms, og leikið hinn eilífa, en unga leik milli karls og konu. Það var blátt áfram með lisí- rænm kennd, sem hann gekk til vinnu sinnar þennan morgun, hreinn og tær hið innra og laus við allar áhyggjur. — Segðu að þú elskir mig, hafði hún sagt — og hann hafði margsinni.s sagt henni það, fagnandi röddu. Hann hafði falið hendur sínar í ilmandi hári hennar, og kysst bláu siagæð ina á gagnauganu. Þessi nótt hafði verið sú fegursta, sem hann hafði lifað. Líkami hennar hafði verið altarið, á hverju hann oft'raði öl!u sem hann átti til í eigu sinni. Hann hraðaði göngunni. Veðrið var grátt og rakt. Höfnin var í rakri móðu, sem annað. Þeir slógu átta glös á skemmtisnekkjunum allt í kring, þegar hann gekk upþ landganginn á Thermopylai. Grikkirnir voru komnir upp á dekk að laga til, og Larsen skip- stjóri kom út úr kortakelfanum. Hann heilsaði Hardy þurrlega, en gerði enga athugasemd viið hve seint hann kom. — Já, það er satt, sagði hann dimmraddaður að vanda. — Ég þarf að tala við þig. komdu inn í kortaklefann. Hann kjagaði á undan og settist másandi á einn stólinn. — Geturðu ekki setzt á rass- inn? gelti hann framan í Hardý. — Ég hef fengið fyrirskipun frá eig- andanum um að sigla þegar í kvöld til Alexandríu, þar sem hann kemur til móts við okkur. Larsen dró upp úr vasa sínum | rósóttan klút og snýtti sér með þeim krafti að allur líkaminn titr aði. Síðan hristi hann klútinn vandlega rétt fyrir framan nefið á Hardy, og hélt svo áfram: — Útför Maríusar á að fara fram, ekki á morgun, heldur hmn daginn. Ég hef talað við sendiráð ið, og það sér um allt. Að svo mæltu féll hann í þunga þanka. — Þessi bölvaði þrjótur, tautaði hann, — svo hrekkur hann upp af með „stright flush“ í spaða á hendinni. Af svip hans mátti ráða að honum var stórlega misboðið. — Ég er þegar búinn að borga þessa tvö þúsund franka, hvæsti hann framan í Hardy. — Allt í lagi, allt í lagi, Capi. Hardy kinkaði vingjarnlega kolli, til að sefa hann. — Þú tekur við störfum Marí- usar hér um borð, urraði Larsen skipstjóri, og leit ólundarlega á Hardy. — Við förum ekki að lög- skrá nýjan mann fyriir þennan snatttúr. — Já en. . . Hardy ætlaði að fara að malda í móinn. — Haltu kjafti, öskraði Larsen. — Réttu mér hönd þína upp á það að þú farir þessa ferð með mér til Alexandríu. Hann horfði grunsemdaraugum á Hardy, sem átti í harðri bar- áttu við sjálfan sig. Ninette hafði gefið honum bendingu um að losna mundi pláss um borð í Sapp hire. Hún þekkti skipstjórann. Hann hafði engan áhuga á þess- ari ferð til Alexandríu, þegar þá Maríus var ekki lengur um borð. — Verður svo ekki farið beina leið aftur til Cannes, spurði Hardy. — Jú, auðvitað gerum við það, hreytti Larsen út úr sér. — Svona, réttu mér löppina. Larsen skip- stjóri veifaði sinni hendi óþolin- móðlega mjög, og líktist höndin, sem hann rétti. einna helzt svíns læri. — Jæja þá, never mind. Hardy rétti honum höndina sér þvert um geð. Það var skrítið að vera hér að búa niður í sjópoka Maríusar alla þá smáhluti og dót, sem óhjá- kvæmilega safnast saman hjá gömlum sjómanni. Myndina af Sally tók hann frá. Hann ætlaði að afhenda hana á Welcome Bar í dag. Fjandinn hafi það, að þurfa endilega að leggja af stað í kvöld. Honum var alls ekki fullkomlega ljóst hvers vegna hann hefði sagt já við Larsen skipstjóra, ekki lík- aði honum svo vel við hann. „Sá mmmmmmm Gamli“ var kominn í slæma klípu vegna fráfalls Maríusar. Það var mjög erfjtt að ,fá mann í hans stað, s-vo honum:háfði riðið mik- ið á þvi að fá Hárdy með í þessa ferð. Auðvitað mundu þeir liggja eitthvað í' Alexándríu, svo þessi ferð gat sem bezt tekið fleiri mán uði. Þá var nú sjópokinn tilbúinn, enda ekki stór. Jarðneskir munir Maríusar voru hvorki miklir né margvíslegir. Það, sem mest fór fyrir, voru kuðungar, sem hann hafði safnað á mörgum árum. Lík anið af hinum konunglega sexmet ra „Dan“ var raunar það eina sem hann átti, og Sally eina manneskj an, sem hann átti að. Þó hafði Maríus verið ríkur maður. Jæja þá, sá eineygði gat farið með sjó pokann upp í sendiráðið hvenær sem vera vildi. Vertu sæll Maríus. Hardy horfði á úrið, tíminn var aumur. Larsen skipstjóri hafði gef ið honum landleyfi til klukkan 16, en klukkán 18 skyldi lagt af stað. Hann varð þó að kveðja Nin ette. Hún var auðvitað á kafi í síðasta kapítulanum „Rómantísk sigling“. Það gladdi hann að geta gefið Ninette ofurlítinn blaðamat um prinsinn af Wales, í hennar höndum mundi það verða saga til næsta bæjar. Já. hann varð að muna eftir því að skila bókinni. — Nú get ég skrifað, hafði hún hvíslað að honum, þegar hann fór frá henni í morgun, með glamp- andi andagiftina í augum sér. Það var ekki aðeins að hún hefði hann andlega á valdi sínu, heldur hafði hinn orkumikli, fagri líkami hennar gjörsamlega lagt hann að fótum sér. Hún var engum kven- manni lík. og hann fann að hann mundi aldrei vilja koma nálægt annarri konu. Hardy hljóp niður landganginn, tíminn var orðinn naumur. Grikk er föstudagur 26. marz Tungl í hásuðri kl. 13.15 Árdegisháflæði í Rvík kl. 05.58 HEILSUGÆZLA Slvsavarðstotan I Borgarswtalan u-rn er opin allan sólarhringinn. Aðeins móttaka slasaðra Simi 81212 Slökkviliðið og sjúkrabifreiðir fyr ir Revkjavík og Kópavog simi 11100 Sjúkrahifreið l Bafnarfirði simi 51336 Almenna? tipnlýsingar am lækna þjónustu i horginni eru gefnar i símsvara l-æknafélags Reykjavik ur. simi 18888 Fæðingarheimilið i Kópavogi. Hlíðarvcgi 40 simi 42644 Tannlæbnavakt er i Heílsu'’erndar stöðinni þaT sem Slysavarðsto. an var og er opin laugardaga o' sunnudaga kl 5—6 e h — Sinv 22411 Knpavogs Apótch er opið virkt daga kl 9—19 laugardaga k 0 —14. helgidaaa ki 13—15 Reflavikur Apótek er opið vlrka daga kl 9—19. laugardaga ki 9—14. helgidaga kl 13—16, Apótek ílafnarfjarðar eT opið all« virka dat. frá kl 9—7 a laugar dögum kl 9—2 og a sunnudög- um og öðrum helgidögum eT op- frá kl 2—4 Maenusóttarbolusetning fyrii full- orðna fer fram í Heilsuverndar- stöð Reykjavíkur á mánudögum kl 17—18. Gengið inn frá Bar ónsstíg. vfir brúna Kvöld- og helgarvörzlu apóteka 1 Reykjavík vikuna 20,—26 marz annast Reykjavíkurapótek og Borgar-apótek Næturvarzla er að Stórholti 1 Næturvörzlu í Keflavík 26. marz annast Jón K. Jóhannsson. SIGLINGAR SIGLINGAR Skipaútgerð ríkisins: Hekla fer frá Reykjavík í kvöld, austur um land í hringferð. Herj- ólfur fer frá Reykjavík kl. 21.00 í kvöld til Vestmannaeyja. Herðu- breið er á Vestjörðum á norður- leið. Baldur fer til Snæfellsness- og Breiðafjahðarhafna á mánudag- inn. FLUGAÆTLANIR Loftleiðir hf.: Snorri Þorfinnsson er væntanleg- ur frá New York kl. 08:00. Fer til Luxemborgar kl. 08:45. Er væntan- legur til baka frá Luxemborg kl. 17:00 Fer til New York kl. 17:45. Leifur Eiríksson er væntanlegur frá New York kl. 08:30. Fer til Oslóar, Gautaborgar og Kaup- mannahafnar kl. 09:30. FÉLAGSLÍF Frá Quðspekifélaginu. Fundur verður í kvöld kl. 9 i húsi félagsins, Ingólfsstræti 22, á veg- um Reykjavíkurstúkunnar. Guðjón B. Baldvinsson flytur erindi, er hann nefnia- „Um hvaö spuhði Gangleri?“ Náttúrulækningafélag Rvílrur: Aðalfundur Náttúrulækningafé- lags Reykjavíkur verður haldinn í matstofu félagsins Kirkjustræti 8. mánudaginn 29 marz kl. 21. Fundarefni venjuleg aðalfundar störf veitingar Stjórn NLFR. Framsóknarfélag Kópavogs heldur fund mánudaginn 29. marz að Neðstutröð 4, og hefst hann kl. 8,30 e. h. Dagskrá: 1. Kosning full- trúa á FLOKKSÞING FRAM- SÓKNARFLOKKSINS. 2. Fram- söguræða Jóns Skaftasonar um landhelgismálið o. fl. Ath. breytt- an fundardag. Stjórnin. Einsdagsferðir um páskana (geymið auglýsinguna). 8/4 Vífilsfell. 9/4 Valahnúkar — Helgafell. 10/4 Borgarhólar — Mosfellsheiði. 11/4 Reykjafell — Hafravatn. 12/4 Lækjarbotnar — Sandfell. í einsdagsferðir verður lagt af stað kl. 1,30 frá Umferðar- miðstöðinni. Ferðafélag íslands MINNING Sigurlaug Guðmundsdóttir, fyrr- um húsfreyja í Hvammi í Norður- árdal, lézt í Reykjavík 18. marz. Sigurlaug var fædd 24. júlí 1890, að Lundum í Stafholtstungum. Hún giftist Sverri Gíslasyni, bónda í Hvammi. Kvoðjuathöfn um Sigurlaugu fer fram frá Fossvogskirkju í dag, föstudag, kl. 3 síðdegis. Jarðar- förin verður frá Hvammskirkju í Norðurárdal á morgun, laugardag, kl. 2 síðdegis. Sigurlaugar verður minnzt síð- ar í íslendingaþáttum Tímans. — Hvað verður Díana lengi í Tulana? — Þrjá mánuði. — Það er ekki víst, að hún komi aftur. Bular prins er ókvæntur og hefur mikinn áhuga á henni. Manstu, að hvað sagði hún? — Hún sagði orðrétt: ég sagði Díönn, að það væri iafnauðvelt — Eins og ég geti gleymt því. — Lily, að elska ríkan mann og fátækan. — Og það er kominn morgunverðartími. SSSSSSSS*ÍSSSS$SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS$SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSÍSSSSSSSSSSSSSSSSS5SS«SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS$5$ÍSS$$SSS THEYR.E TRY/NG TO STANT A F/RE ANP FORCE LJS/NTO TNFOPEN/

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.