Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.08.2002, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 01.08.2002, Qupperneq 1
bls. 16 AFMÆLI Humar eða kjúklingur bls. 22 FIMMTUDAGUR bls. 22 139. tölublað – 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Fimmtudagurinn 1. ágúst 2002 Tónlist 16 Leikhús 16 Myndlist 16 Skemmtanir 16 Bíó 14 Íþróttir 12 Sjónvarp 20 Útvarp 21 ÍÞRÓTTIR Bowie keppir við hvolpana SÍÐA 14 KVÖLDIÐ Í KVÖLD EFNAHAGSMÁL Seðlabanki Íslands kynnir í dag ágústhefti Peninga- mála. Í því er meðal annars að finna nýja verðbólguspá bankans. Hún verður einnig birt á heimasíðu Seðlabankans klukkan fjögur í dag. TÓNLEIKAR Á hádegistónleikum í Hallgrímskirkju í dag leikur Dou- glas A. Brotchie nokkur verk á org- el. Hann er í hópi nemenda Harðar Áskelssonar sem leika í kirkjunni í sumar. Tónleikarnir hefjast klukk- an tólf. FÓTBOLTI Fjórir leikir fara fram í kvöld í tólftu umferð Símadeildar karla. Efsta lið deildarinnar, KR, tekur á móti FH í Frostaskjólinu. Í Grindavík taka heimamenn á móti Íslandsmeisturum Skagamanna. Fylkir fær Keflavík í heimsókn í Árbæinn og á Akureyri verður norðanslagur þegar Þór og KA mætast. MYNDLIST Í gallerí i8 sýnir Birta Guðjónsdóttir sýnir vídeó-innsetn- ingu sem ber heitið „Hér er gott“ þessa dagana. Galleríið er á Klapp- arstíg og sýning Birtu stendur til 10. ágúst. Ísland er Mekka köfunar FÓLK Kynntist Rúnna Júll um verslunar- mannahelgina SÍÐA 12 BALLETT Dönsuðu á skökku sviði TÓNLIST SKATTAR Jóhannes Tómasson í Kópavogi er skattakóngur Ís- lands þetta árið. Jóhannes er einn fyrrverandi eigenda Ölgerð- arinnar Egils Skallagrímssonar, sem seld var Gildingu í fyrra fyrir 2 milljarða króna. Jóhann- esi er gert að greiða samtals 112.605.617 krónur í gjöld til hins opinbera. Þórunn Árnadóttir í Garðabæ, einnig kennd við fyrrum eigend- ur Ölgerðarinnar, fylgir fast á hæla Jóhannesi, með rúmar 100 miljónir króna í álögð gjöld en þessi tvö hafa algera sérstöðu. María Júlía Sigurðardóttir, eigin- kona Jóns Hjartarsonar, fyrrum eiganda Húsgagnahallarinnar greiðir þriðju hæstu gjöldin á landsvísu og hæstu gjöldin í Reykjavík þetta árið, rúmar 78 milljónir króna. Eiríkur Sigurðs- son á Seltjarnarnesi, gjarnan kenndur við 10-11 verslanirnar er fjórði í röð skattakónga og drottninga, greiðir samtals 57 milljónir króna, Baltasar Kor- mákur leikstjóri er fimmti í röð hákarlanna, greiðir tæpar 37 milljónir, Haukur Clausen tann- læknir í Garðabæ greiðir rúmar 29 milljónir króna eins og Dagur Ingimundarson í Sandgerði. Guð- rúnu Guðmundsdóttur í Reykja- vík er gert að greiða rúmar 23 miljónir og Kristjáni Vilhelms- son hjá Samherja á Akureyri er gert að greiða tæpar 23 milljónir. Kristján er skattakóngur á Norðurlandi eystra þetta árið, Ragnar Ólafsson útgerðarmaður á Siglufirði skartar þeim titli á Norðurlandi vestra, greiðir tæp- ar 6 milljónir, Sveinn Rögnvalds- son á Patreksfirði er skattakóng- ur Vestfjarða með tæpar 13 milljónir í heildargjöld. Ingvar Matthíasson, Innri Akraneshreppi greiðir 10 millj- ónir í gjöld og hreppir titilinn skattakóngur Vesturlands, Sigur- bergur Hauksson, skipstjóri í Neskaupstað er skattakóngur Austurlands, en hann greiðir rúmar 4 milljónir. Arnór Páll Valdimarsson er skattakóngur Vestmannaeyja, greiðir 9,5 millj- ónir til ríkis og sveitar. Á þessu ári borga einstakling- ar 113,7 milljarða króna í tekju- skatta og útsvar og er það 16% hækkun frá fyrra ári. Heildar- fjöldi framteljenda við álagningu 2002 var 224.914 og fjölgaði um 1,5% milli ára. the@frettabladid.is nánar bls. 4 VERSLUNARMANNAHELGIN Besta veðr- ið um verslunarmannahelgina verður fyrir norðan og austan. Þannig hljóðaði spá Veðurstofu Ís- lands sem hún gaf út í gær. Ekkert er þó gefið í þessum efnum. „Það hefur verið flökt á spánum síðustu vikur og það verður flökt á þeim næstu daga. Það hefur verið mikill hausverkur að segja til um veðrið,“ segir Björn Sævar Einarsson, veð- urfræðingur á Veðurstofu Íslands. Samkvæmt spánni á hæðar- hryggur að halda sig fyrir austan land sem þýðir að mestar líkur eru á sól þar. Skýjað verður á vestan- verðu landinu og úrkoma með köfl- um. Ef skil sem liggja fyrir vestan land færast inn á land þýðir það rigningu á öllu vestanverðu land- inu, þar með talið Vestmannaeyjum og Galtalæk. En ekki er hægt að segja fyrir um hvenær það gerist segir Björn. Því er spáð að hiti verði á bilinu tíu til fimmtán stig sunnan- og vestanlands. Á Norð- austur- og Austurlandi verður hit- inn á bilinu fimmtán til 22 stig. Á veðurvef CNN gætir ekki jafn mikillar bjartsýni og í íslenskum spám. Í fimm daga spá CNN er spáð rigningu föstudag, laugardag og sunnudag í Reykjavík, Vest- mannaeyjum og á Akureyri. Útlitið er ekki eins vott á Egilstöðum, þar á bara að rigna á laugardag. Björn segir fólk mikið hringja á Veðurstofuna fyrir verslunar- mannahelgi til að forvitnast um veðrið. Þeir sem vilja velja áfanga- stað eftir veðri ættu að bíða til morguns með að ákveða hann segir Björn sem sjálfur ætlar ekki að elta sólina uppi heldur halda sig vestanmegin á landinu.  REYKJAVÍK Suðlæg átt, 3-5 m/s Skýjað að mestu. Hiti 9 til 14 stig. VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 5-8 Skýjað 11 Akureyri 3-5 Skýjað 13 Egilsstaðir 2-5 Léttskýjað 18 Vestmannaeyjar 3-5 Skýjað 12 + + + + VEÐRIÐ Í DAG ➜ ➜➜ ➜ Fyrrverandi ölkóngur nú skattakóngurinn Félagsmálaráðuneytið úrskurð-aði í gær að bæjarstjórnar- kosningarnar í Borgarbyggð skyl- du endurteknar vegna alvarlegra hnökra á framkvæmd kosning- anna. bls. 2 Karlmaður, sem réðist inn áheimili í Álfheimum í fyrra- kvöld vopnaður haglabyssu, var í gærkvöldi úrskurðaður í gæslu- varðhald til 12. ágúst. bls. 2 Sveitarfélögin hafa aukið skatt-heimtu sína. Útsvar hækkar um 15,8% á hvern einstakling en tekjuskattur hækkar einungis um 9,3%. bls.4 Forstjóri Vinnumálastofnunarsegir að ágætt hefði verið að fá að vita það strax ef Ríkislögreglu- stjóri hefði ekki tíma eða áhuga á að kanna hvort vændi væri stund- að á nektardansstöðum. Hann seg- ir Vinnumálastofnun sjálfa bera ábyrgð á útgáfu atvinnuleyfa til erlendra nektardansmeyja. bls. 4 ÞETTA HELST ELDSVOÐI Í HAFNARFIRÐI Í GÆRKVÖLDI. Allt tiltækt slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins var kallað að húsnæði USH sandblásturs og máln- ingar við Íshellu á níunda tímanum í gærkvöldi. Töluverður eldur logaði þegar slökkvilið kom á staðinn. Greiðlega gekk að ná tökum á eldin- um. Hjá fyrirtækinu er framleiddur búnaður tengdur álvinnslu í Straumsvík og töluvert um eldfim efni í húsnæðinu. Eldsupptök eru ókunn. Tvö greiða yfir 100 milljónir króna í opinber gjöld. Álögð gjöld einstaklinga 113,7 milljarðar króna. Greiðslur vegna vaxta- og barnabóta nema 9,2 milljörðum í ár. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI Erfið spáskilyrði valda veðurfræðingum hausverk: Veður vænlegast á norð- austurlandi um helgina Hér er gott Ný verðbólguspá Orgeltónar í Hallgrímskirkju Fjórir leiki í Símadeild NOKKRAR STAÐREYNDIR UM MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 25 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,7% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í MARS 2002. Fr é tt a b la ð ið M o rg u n b la ð ið Meðallestur 25 til 39 ára á fimmtudögum samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá mars 2002 18,6% D V 70.000 eintök 70% fólks les blaðið Hvaða blöð lesa 25 til 39 ára íbúar á höfuðborgarsvæðinu á fimmtu- dögum? 48,0% 55,7%

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.