Fréttablaðið - 01.08.2002, Síða 2

Fréttablaðið - 01.08.2002, Síða 2
2 1. ágúst 2002 ÞRIÐJUDAGURLÖGREGLUFRÉTTIR ÚRSKURÐUR Félagsmálaráðuneytið úrskurðaði í gær að bæjarstjórn- arkosningarnar í Borgarbyggð skyldu endurteknar vegna alvar- legra hnökra á framkvæmd kosn- inganna. Deilt hafði verið um hvaða atkvæði skyldu gild. „Þetta er náttúrulega bara kjaftshögg fyrir það fólk sem er búið að leggja svo mikla vinnu í þetta,“ segir Helga Halldórsdótt- ir, forseti bæjarstjórnar. Mikil vinna hafi verið lögð í að skipu- leggja starf bæjarfélagsins. „Það er grundvallaratriði að framkvæmd kosninga sé óaðfinn- anleg og niðurstöðurnar í sam- ræmi við vilja kjósenda,“ segir Þorvaldur Tómas Jónsson, odd- viti Framsóknarmanna, sem telja sig hafa misst fulltrúa að ófyrir- synju.  BORGARNES Íbúar þar og annars staðar í Borgarbyggð ganga innan tíðar að kjörborðinu og kjósa bæjarstjórn í annað sinn á þessu ári. Kjósa skal aftur í Borgarbyggð: Þetta er náttúrulega kjaftshögg Sala ríkisbankanna: Landsbank- inn seldur fyrst EINKAVÆÐING Einkavæðingarnefnd ákvað í gær að ganga til viðræðna við þrjá hópa fjárfesta um sölu á hlut ríkisins í Landsbankanum. Þeir eru Björgúlfsfeðgar og Magnús Þorsteinsson, Kaldbakur og S-hóp- urinn sem að standa meðal annarra Ker, Samvinnutryggingar og Sam- vinnulífeyrissjóðurinn. Nefndin stefnir að því að fyrir liggi í byrjun september hvert við- ræðurnar leiða. Ákvörðun um sölu Búnaðarbanka bíður síðari tíma en miðað er við að seldur verði umtals- verður hluti í báðum bönkunum.  SPRON „Það er alveg ljóst að sú staða sem uppi er er á allan hátt óheppileg,“ segir Halldór Ás- grímsson, starfandi viðskiptaráð- herra, um deiluna um SPRON. „Sú lagaóvissa sem hefur skapast er mjög slæm. Við verðum sem stjórnvöld að vinna á grundvelli gildandi laga og úrskurðar Fjár- málaeftirlitsins.“ Halldór segir alveg ljóst að hvorki tilboð stofnfjáreigendanna fimm né starfsmanna SPRON í stofnfjárhluti samrýmist úrskurði Fjármálaeftirlitsins. „Hver fram- vinndan verður liggur ekki fyrir en við fylgjumst mjög náið með því.“ Um þátt Búnaðarbankans, sem er að meirihluta í eigu ríkis- ins segir Halldór: „Það sem Bún- aðarbankanum er heimilt er öðr- um fjármálastofnunum líka heim- ilt. Jafnvel þó við gætum í skjóli meirihlutavalds í Búnaðarbankan- um komið í veg fyrir að einhverj- ir ákveðnir hlutir gerðust þar hef- ur það litla þýðingu ef aðrar fjár- málastofnanir taka við boltanum og gera nákvæmlega það sama.“ Halldór segir ljóst að þó ekki hafi verið talið að kaupa mætti stofnfjárhluti á yfirverði þegar málið var rætt á þingi verði að vinna að málinu á grundvelli þeirrar löggjafar sem þar var sett. „Ef þar hafa orðið einhver mistök þurfum við að taka afleið- ingum þess.“  HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Verðum að taka afleiðingum þess ef mistök voru gerð við lagasetninguna á Alþingi. Lagaóvissan í SPRON-deilunni mjög slæm: Þýðir lítið að hirta Búnaðarbankann LÖGREGLA Karlmaður, sem réðist inn á heimili í Álfheimum í fyrra- kvöld vopnaður haglabyssu, var í gærkvöld úrskurðaður í gæslu- varðhald til 12. ágúst. Maðurinn, sem er fæddur árið 1982, hefur áður komið við sögu lögreglu fyrir ofbeldisbrot. Að sögn lögreglu er ekki ljóst hvers vegna maðurinn réðist inn í íbúðina, en þar bjó kunningi hans. Málið verður lík- lega rannsakað sem tilraun til manndráps. Klukkan hálfníu heyrðu íbúar við Álfheima skothvell og var þá hringt í lögreglu. Sjónarvottur, sem Fréttablaðið náði tali af, sagði að þegar hann hefði heyrt hvellinn hefði hann litið út um gluggann og séð mann brjóta sér leið inn um eldhúsglugga í kjallaraíbúð á horni Álfheima og Sólheima. Að sögn lögreglu náði húsráð- andinn að læsa sig inni í herbergi og flýja þaðan út um gluggann áður en byssumaðurinn komst inn í það. Sjónarvotturinn sagði að árás- armaðurinn hefði verið nokkra stund inni í íbúðinni en síðan lagt á flótta í bíl, sem hefði beðið hans á bílastæðinu við verslunarkjarnann efst í Álfheimum. Annar sjónar- vottur veitti manninum eftirför í bíl sínum og vísaði lögreglu leiðina. Lögreglan náði að stöðva byssu- manninn í Ártúnsbrekku, þar sem hann var handtekinn. Haglabyssan fannst hlaðin í bílnum auk hnífa. Málið er nú í rannsókn lögreglu en aðspurð sagðist hún ekki telja að það tengdist fíkniefnum. Málið í fyrrakvöld var fjórða al- varlega ofbeldismálið í Reykjavík á tæpri viku. Á laugardagskvöldið var átján ára piltur stunginn í bak- ið í Breiðholti. Sautján ára piltur, sem grunaður er um verknaðinn, er í haldi lögreglu. Á sunnudags- kvöldið var kona skorin á háls í Vesturbænum. Til átaka kom milli konunnar og fyrrverandi sambýlis- manns hennar inni á heimili á Boðagranda. Konan er ekki í lífs- hættu og maðurinn situr í gæslu- varðhaldi. Á þessu ári hafa fimm manndrápsmál komið til rannsókn- ar lögreglu, en aðeins eitt þeirra er komið til ákæruvaldsins. Í því máli er kona grunuð um að hafa stungið um fimmtugan mann til bana í mars sl. trausti@frettabladid.is Á VETTVANGI Lögreglumenn skoða verksummerki þar sem byssumaðurinn braut sér leið inn í íbúð við Álfheima í fyrrakvöld. Byssumaður úrskurð- aður í gæsluvarðhald Tvítugur maður réðist inn á heimili í Álfheimum vopnaður haglabyssu. Húsráðandi náði að flýja. Málið verður líklega rannsakað sem tilraun til manndráps. LÍKAMSÁRÁSIR SÍÐUSTU DAGA: 30. júlí. Maður ræðst inn í íbúð í Álfheimum vopnaður haglabyssu og hleypir af tveimur skotum. 28. júlí. Kona um fimmtugt skorin á háls við Boðagranda. 27. júlí. Maður stunginn með hnífi í bakið í Breiðholti. MANNDRÁP Á ÁRINU: 18. feb. Þór Sigurðsson játar að hafa banað Braga Óskarssyni á Víðimel. 6. mars. Karlmaður um fimmtugt stunginn á Grettisgötu. Lést af völdum stungusára 23. mars. 10. mars. Maður finnst látinn í Hamraborg í Kópa- vogi með innvortis áverka. 27. apríl. Móðir grunuð um að hafa orðið völd að dauða níu ára dóttur sinnar í Selja- hverfi. 25. maí. Tveir menn um tvítugt réðust á 22 ára karlmann í Hafnarstræti. Maðurinn lést 2. júní. Gjaldskrá Símans Dýrara að hringja í önn- ur GSM kerfi SÍMINN Gjaldskrá Símans breytist í dag, bæði til hækkunar og lækk- unar. ADSL þjónusta lækkar, far- símaþjónusta innan kerfis Sím- ans lækkar en hækkar vegna símtala í GSM kerfi Tals eða Ís- landssíma. Þá hækkar gjaldskrá vegna heimilissíma og seðilgjöld vegna reikninga hækka úr 95 krónum í 150 eða um 60%. Síminn segir þetta gert til að laga tekjur einstakra þjónustu- eininga að útlögðum kostnaði. Hluta breytinganna megi þó rekja til hækkana á tengigjöldum annarra fjarskiptafyrirtækja hérlendis.  Ræddi við ráðherra frá Möltu um viðræður við ESB: Virðist hafa gengið án vandkvæða STJÓRNMÁL „Það sem er athyglis- vert í þeirra lausn er að þeirra landhelgi er viðurkennd sem sér- stakt stjórnunarsvæði. Það virðist hafa gerst án teljandi vandkvæða í samningum. Þeir telja sig hafa náð fram þeim markmiðum sem þeir höfðu varðandi þau mál,“ sagði Halldór Ásgrímsson, utan- ríkisráðherra, eftir að hafa fund- að með Josef Bonnici, viðskipta- ráðherra Möltu. „Hann sagði að það hefði kom- ið á óvart hve mikinn skilning ESB hefði sýnt á sérstöðu lítilla eyríkja og var tiltölulega bjart- sýnn á að þeim tækist að ná öllum sínum meginsamningsmarkmið- um í höfn í samskiptunum við Evrópusambandið.“  Eldur kom upp í sumarbústað íHveragerði síðdegis í gær. Slökkvilið Hveragerðis fór á vett- vang og tók það tiltölulega skamm- an tíma að ráða niðurlögum elds- ins. Ekki er talið að bústaðurinn hafi skemmst mikið. Að sögn lög- reglu er ekki vitað hver voru upp- tök eldsins. Fjögurra bíla árekstur varð áNýbýlavegi, mitt á milli Tún- brekku og Hjallabrekku, í gær. Að sögn lögreglu slasaðist enginn al- varlega og bílarnir skemmdust ekki mikið. Átján mánaða stúlka féll ofan ígosbrunn við íbúðarhús á Breiðdalsvík í fyrrakvöld. 16 ára gamall bróðir hennar kom að henni og blés í hana lífi. Var hún flutt á Fjórðungssjúkrahúsið í Nesskaups- stað og fékk að fara heim í gær. SÍMINN HÆKKAR OG LÆKKAR Að hluta til vegna gjaldskrárbreytinga annarra fjarskiptafyrirtækja.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.