Fréttablaðið - 01.08.2002, Side 3

Fréttablaðið - 01.08.2002, Side 3
Stofnfjáreigendur SPRON: Miðstöð stofnfjáreigenda Túngötu 6 Okkur er alvara Staðan í dag, 1. ágúst 2002, er eftirfarandi: Stofnfjáreigendur standa frammi fyrir tveimur tilboðum í stofnfé sitt í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis. Umræðan um tilboð þessara tveggja aðila hefur farið fram af miklu kappi í fjölmiðlum undanfarið. En um hvað stendur valið? Hagsmunir stofnfjáreigenda eru miklir og því mikilvægt að þeir íhugi ákvörðun sína vel. Taki stór hluti stofnfjáreigenda tilboði Starfsmannasjóðs eru mestar líkur á að þeir fái aðeins greitt uppfært nafnvirði fyrir stofnfé sitt. Þeir sem gera samning fyrir tilsettan frest, á hádegi á morgun, fá stofnfé sitt staðgreitt inn á lokaðan reikning í sínu nafni. Reikningurinn verður opnaður 14. ágúst, enda hafi öll skilyrði tilboðsins verið uppfyllt á þeim tíma. Skilyrði samnings okkar við Búnaðarbankann er að verði bankinn endanlegur meirihlutaeigandi stofnfjár í SPRON missi enginn starfsmaður SPRON vinnu sína í tengslum við breytingu á eignarhaldi. Allir almennir starfsmenn halda ennfremur óbreyttum launakjörum frá því sem þeir hafa í dag og viðskiptavinir SPRON geta áfram gengið að óbreyttri fjármálaþjónustu undir nafni SPRON. Þú getur gengið frá sölu á stofnfé þínu hjá Miðstöð stofnfjáreigenda að Túngötu 6, 101 Reykjavík. Síminn þar er 561 0335, tölvupóstur stofnfe@stofnfe.is. Opið er frá 10 til 22 alla daga. Við tökum vel á móti þér! Kaupgengi 5,5 Já, enda er mikilvægt fyrir stofnfjáreigendur að geta kosið SPRON nýja stjórn, þar sem sú er nú situr telur sig ekki geta samþykkt sölu á stofnfé á yfirverði. Mikið. Búnaðarbankinn tryggir greiðslu fyrir stofnféð. Einbeittur og óbreyttur frá upphafi. 5,5 Nei, stofnfjáreigandinn afsalar atkvæðisrétti sínum til Jóhannesar Helgasonar. Það verður til þess að sama stjórnin situr áfram með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Lítið bolmagn. Núverandi hlutafé félagsins er 500 þúsund og með heimild til hækkunar í 70 m.kr. Nýtilkominn, sem vekur upp spurningar um trúverðugleika tilboðsins. Vilji til að beita sér fyrir því að stofnfjáreigendur fái sannvirði fyrir bréf sín: Fjárhagslegt bolmagn tilboðsgjafa: Atkvæðisréttur á fundi 12. ágúst: Tilboð Starfsmannasjóðs SPRON ehf.Tilboð fimm stofnfjáreigenda Fimm stofnfjáreigendur SPRON

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.