Fréttablaðið - 01.08.2002, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 01.08.2002, Blaðsíða 4
4 1. ágúst 2002 FIMMTUDAGURSVONA ERUM VIÐ Mest byggt af 3 og 4 herbergja íbúðum Á árunum 1996 til 2000 voru byggðar 2.725 íbúðir í Reykjavík. Rétt rúmlega helmingur þeirra, 1.403, eru þriggja eða fjögurra herbergja íbúðir. Minnst var um eins herbergis íbúðir, 40 slíkar voru byggðar. Heimild: Borgarfræðasetur Herbergjafjöldi Hutfall af nýbyggingum 1 1,5% 2 9,2% 3 22,0% 4 29,5% 5 19,2% 6 10,8% 7+ 7,9% VARNARLIÐIÐ „Við teljum að þessi breyting geti verið á marg- an hátt jákvæð fyrir Ísland,“ sagði Halldór Ásgrímsson, utan- ríkisráðherra, á blaðamanna- fundi með Joseph Ralston, yfir- hershöfðingja Atlantshafsbanda- lagsins í Evrópu, þar sem þeir kynntu breytingar á stöðu Ís- lands vegna flutnings herstjórn- arinnar yfir varnarstöðinni á Keflavíkurflugvelli til Evrópu. Hann kvaðst ekki eiga von á því að flutningurinn leiddi til mikilla breytinga á starfsemi varnarliðs- ins á Keflavíkurflugvelli. Ralston sagði að sömu yfir- menn yrðu áfram hér á landi eft- ir flutninginn. Sjálfur hefði hann engin áform um að breyta varn- arviðbúnaði á Keflavíkurflug- velli nema til að tryggja þá stefnu sem hefði verið mörkuð um viðveru þar. Ef kæmi til þess að fækka í varnarliðinu kæmi það í hlut bandarískra og ís- lenskra stjórnvalda að ákveða hvaða breytingar skyldu gerðar. Sjálfur teldi hann að þörf væri á talsverðum viðbúnaði Banda- ríkjahers í Evrópu og hér á landi. Yfirstjórn Keflavíkurflugvallar flyst til Evrópu: Engin áform um breytt- an varnarviðbúnað ÍSLENSKUNÁM Sumarskóli Náms- flokka Reykjavíkur stendur nú á tvenns konar tímamótum. Annars vegar vegna nýrra laga þar sem meðal annars er kveðið á um skyldunám í íslensku fyrir útlend- inga og hins vegar er skólinn tíu ára um þessar mundir. Enn er allt óljóst um framkvæmd hinna nýju laga sem ganga í gildi um næstu áramót. Í þeim eru ákvæði um að til að öðlast búseturétt á Íslandi þurfi útlendingar að hafa setið námskeið í íslensku eða að öðrum kosti hafa staðist próf í íslensku. Því má búast við að töluverðar breytingar verði á skipulagi ís- lenskunámskeiða í kjölfarið. Íslenskunámskeið fyrir útlend- inga hafa verið vel sótt að sögn Guðrúnar Halldórsdóttur, for- stöðukonu Námsflokkanna. „Í júlí voru þátttakendur á fjórða hund- rað eða tífalt fleiri en fyrsta sum- arið. Börn og fullorðnir eru í námi alla virka morgna klukkan 9-12 og stór hópur fólks sækir kvöldnám- skeiðin sem standa frá 18-21.“ Að sögn Guðrúnar eru þó konur í miklum meirihluta. „Ég hef engar haldbærar skýringar á því,“ segir hún. „Við bjóðum reyndar foreldr- um upp á barnagæslu og eldri börnunum kennslu meðan mæður þeirra eru í skólanum, kannski er það hluti af skýringunni.“ Guðrún segir árangur af náminu almennt mjög góðan en að þeir sem komi einungis vegna þess að það er skylda nái skiljanlega minni ár- angri. „Áhugi útlendinga á ís- lensku er þó mjög mikill. Margir nota sumarfríið sitt til að bæta kunnáttuna en aðrir vinna fulla vinnu með náminu. Þá bjóða Námsflokkarnir upp á námskeið á veturna sem einnig eru vel sótt. Síðasta vetur sóttu þau hátt í 1.300 manns.“ Guðrún segir enn allt óljóst um hvernig framkvæmd íslensku- kennslu í ljósi hinna nýju laga verði háttað. „Gera má ráð fyrir að þegar sett eru lög um náms- skyldu hljóti að fylgja þeim nán- ari ákvæði um skipulag, náms- kostnað og hvernig tekið verður á málum þeirra sem búa á lands- byggðinni,“ segir Guðrún. edda@frettabladid.is SKATTUR Álagningarseðlar frá skattstjórum hafa nú borist inn um bréfalúgur landsmanna. Þar koma fram upplýsingar um álögð gjöld vegna síðasta árs, þær bæt- ur sem framteljendur eiga rétt á, vangreidd gjöld og endurgreiðsl- ur vegna ofgreiddrar stað- greiðslu á árinu 2001. Álagning á lögaðila verður í lok október. Samanlögð álagning tekju- skatta og útsvars nemur 113,7 milljörðum króna, hækkar um 16% milli ára. Álagningin skipt- ist því sem næst jafnt milli ríkis og sveitarfélaga. Álagðir tekju- skattar nema 57,6 milljörðum en álagt útsvar nemur 56 milljörð- um. Útsvar hækkar mun meira en tekjuskattur sem rennur í rík- issjóð. Þannig hækkar útsvar á hvern framteljanda um 15,8% milli ára en tekjuskattur hækkar einungis um 9,3%. Tekjuskatts- hækkunina má rekja til hærri tekna í þjóðfélaginu en umfram hækkun útsvars til þess að sveit- arfélög hafa hækkað útsvar og þar með aukið skattheimtu sína. Álagning jöfn milli ríkis og sveitarfélaga: Sveitarfélög taka meira til sín Vaxta- og barnabætur nema 9,2 milljörðum: Færri fá barnabætur en í fyrra SKATTUR Þeim sem fá barnabæt- ur greiddar um mánaðarmótin fækkar um 1.860 eða 3,5% frá síð- asta ári. Ávísanir með vaxtabót- um verða sendar 570 færri gjald- endum en í fyrra og jafngildir það 9,2% fækkun. Greiðslur vegna vaxta- og barnabóta nema alls 9,2 milljörðum króna, þar af koma 4,5 milljarðar til greiðslu nú um mán- aðamótin. Barnabætur nema 4,5 milljörðum króna og hækka um rúmlega 300 milljónir króna frá fyrra ári. Þessi hækkun endurspeglar meðal annars ákvörðun ríkis- stjórnarinnar um að hækka barnabætur í þremur áföngum um allt að 2 milljarða króna og kemur annar áfangi til fram- kvæmda á þessu ári.  Skattgreiðendum fækkar: Tekjuskattur lækkar SKATTUR Sérstakur tekjuskattur lækkar í ár um 9,8% eða úr 1,6 milljörðum í fyrra í 1,4 milljarða nú. Þessa lækkun má rekja til sér- stakrar hækkunar á frítekju- mörkum sem leiddi til þess að greiðendum fækkaði um 12% eða 1.800 manns. Fjármagnstekju- skattur nemur 4,1 milljarði króna, hækkar um 26% milli ára. Þeim sem greiða fjármagnstekjuskatt fækkar hins vegar úr 78.600 í fyrra í 76.100 í ár.  Skattaafsláttur vegna hlutabréfakaupa hefur lækkað: Færri nýta sér afsláttinn SKATTAR Frádráttur frá tekjuskatt- stofni vegna hlutabréfakaupa nam 823 milljónum króna í fyrra. Þetta er lækkun um tæplega helming frá árinu áður og er frá- drátturinn nú einungis þriðjungur þess sem var á árunum 1998-2000. Samkvæmt þessu má ætla að skattafsláttur vegna hlutabréfa- kaupa í fyrra hafi numið um 330 milljónum. 7.800 einstaklingar nýttu sér þennan afslátt árið 2001 samanborið við 15.100 árið 2000 og 20-21.000 árin 1998 og 1999.  HERFORINGINN OG RÁÐHERRANN Hvorki Ralston né Halldór töldu miklar breytingar á störfum varnarliðsins þó yfirstjórnin færðist til Evrópu. SUMARSKÓLINN Sumarskóla Námsflokkanna lauk í gær með pylsuveislu á lóð Austurbæjarskólans. Margt óljóst um framkvæmd nýrra laga um íslenskukennslu Aðsókn að íslenskunámi fyrir útlendinga hefur tífaldast á tíu árum. Samkvæmt nýjum lögum þurfa útlendingar að hafa sótt íslenskunámskeið til að öðlast búseturétt. 1.300 útlendingar sóttu námskeið í íslensku hjá Námsflokkum Reykjavíkur í vetur og hátt á fjórða hundrað í sumar. ÚTSVAR HÆKKAR MEIRA EN TEKJUSKATTUR Útsvar hækkar um 15,8% á hvern framteljanda en tekjuskattur um 9,3%. LÖGREGLUFRÉTT Fimm hundar, af Stóra Dan-kyni,sluppu út úr girðingu á eyðibýli í Höfnum í fyrrakvöld. Lögreglan og hundaeftirlitsmaður Heilbrigð- isstofnunar Suðurnesja náðu hund- unum og voru þeir vistaðir á hundahóteli í Sandgerði. Lögreglan hefur nokkrum sinnum áður þurft að hafa afskipti af hundunum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.