Fréttablaðið - 01.08.2002, Page 8
8 1. ágúst 2002 FIMMTUDAGURORÐRÉTT
LEIÐRÉTTING
SJÁVARÚTVEGUR
SÆLKERINN
„Ég þakka Guði fyrir rúgbrauð
með osti.“
(Siggi Hall um uppáhaldsmatinn sinn í
útvarpsviðtali.)
FLÓKINN TEDDI
„...háspekilega
grundvallandi um
hvernig efni sest að í
rýminu, hrifsar það
til sín og gerir sig að
stabílum granna í til-
vistarpúslinu.“
(Umsögn í Morgunblaðinu um listsýn-
ingu Tedda í Perlunni.)
HVERS VEGNA HURÐIN?
„Seint á laugardagskvöldið hring-
di konan í mikilli geðshræringu
vegna manna sem væru að ham-
ast á útihurðinni hjá henni.“
(Úr lögreglufréttum helgarinnar í Morg-
unblaðinu.)
BANDARÍKIN Þingmaðurinn James
Traficant, sem rekinn var af
Bandaríkjaþingi á dögunum, hef-
ur verið dæmdur í átta ára fang-
elsi.
Traficant, sem er 61 árs, var
dæmdur í lengra fangelsi en sækj-
endur höfðu krafist. Sagði dómar-
inn að Traficant bæri enga virð-
ingu fyrir stjórnvöldum í landinu.
Traficant, sem varði sig sjálfur
fyrir réttinum, sagði að brottvikn-
ingin úr þinginu hafi verið nægi-
leg refsing fyrir sig. Dómarinn
sagði brottvikninguna aftur á móti
hafa verið af pólitískum toga og
tengdist ekki refsingu fyrir glæpi
hans. „Þú hefur gert marga góða
hluti á þinginu... en það afsakar
ekki glæpi þína,“ sagði dómarinn.
Traficant, sem fyrst var kosinn
á Bandaríkjaþing árið 1984, var
þann 11. apríl dæmdur fyrir að
reka þingskrifstofu sína eins og
fjárglæfrafyrirtæki. Var hann
meðal annars sakaður um að hafa
þegið greiðslur undir borðið frá
skjólstæðingum sínum og eigin
starfsfólki, tekið við mútum og
svindlað á skattinum.
Traficant ætlar að áfrýja
dómnum. Sagðist hann við réttar-
höldin ætla að bjóða sig fram
sjálfstætt til síns tíunda kjörtíma-
bils í næstu þingkosningum sem
fram fara í nóvember, jafnvel þótt
hann þurfi að gera það úr fangels-
inu.
BIN LADEN
Ekkert hefur spurst til Osama bin Laden í
langan tíma. Margir telja að hann hafi lát-
ist í loftárásum Bandaríkjamanna á
Afganistan.
Lífverðir bin Ladens
handteknir:
Bin Laden
líklega látinn
STRÍÐ GEGN HRYÐJUVERKUM Nokkrir
lífverðir Osama bin Ladens hafa
verið handsamaðir og hnepptir í
varðhald í fangelsi hryðjuverka-
manna í Guantanamo á Kúbu. Lík-
ur eru taldar á því að bin Laden sé
látinn vegna þess að lífverðirnir
voru hvergi nálægt honum er þeir
voru teknir höndum. Að því er
kom fram á fréttavef CNN hafa
mennirnir verið í varðhaldi síðan í
febrúar. Lengi hafa verið uppi
getgátur um hvort bin Laden hafi
látið lífið í loftárásum Banda-
ríkjamanna á Afganistan.
Hjá Síldarvinnslunni í Nes-kaupsstað hafa menn ráðist í
að hreinsa gömul tæki og tól úr
grunni gömlu mjölverksmiðjunn-
ar. Þau verða flutt í endurvinnslu
og grunnurinn fylltur af efni og
breytt í snyrtilegt svæði. Þetta er
hluti af umhverfisátaki fyrirtæk-
isins.
Undanfarna daga hefur dregiðverulega úr veiði á loðnu og
kolmunna. Nú hefur þriðjungur
loðnukvótans verið veiddur, 132
þúsund tonn af 410.000 tonnum.
Að auki hafa erlend skip landað
76 þúsund tonnum af loðnu hér-
lendis. 157 þúsund tonn af kol-
munna hafa borist á land, um
60% heildarkvótans.
ÍFréttablaðinu í gær kom framað Ólafur F. Magnússon, odd-
viti borgarstjórnarflokks Frjáls-
lynda flokksins, væri með um 200
þúsund krónur í grunnlaun.
Byggði það á þeim upplýsingum
að hann ætti ekki sæti í neinni
nefnd. Sem oddviti F-listans á
hann hins vegar sæti í borgarráði
og skipulags- og byggingarnefnd,
sem áheyrnarfulltrúi. Hann fær
því greitt fyrir setu sína í þeim
nefndum og er með sambærileg
laun og aðrir borgarfulltrúar,
sem sitja í nefndunum. Hann fær
því 276 þúsund á mánuði auk sér-
staks álags fyrir setu í nefndun-
um tveimur.
VERSLUNARMANNAHELGIN Lögreglu-
menn í sveitarfélögum víða um
land verða með aukinn viðbúnað í
tilefni verslunarmannahelgarinn-
ar. Fréttablaðið hafði samband við
lögregluna í Vestmannaeyjum, á
Selfossi, á Akureyri og á Blöndu-
ósi. Á öllum þessum stöðum verð-
ur aukið eftirlit og á Blönduósi og
í Vestmannaeyjum verður lög-
reglumönnum fjölgað um meira
en helming.
Jóhannes Ólafsson, yfirlög-
regluþjónn í Vestmannaeyjum,
segir um eitt hundrað manns verða
við gæslu í Eyjum. Þar af séu tutt-
ugu lögreglumenn auk björgunar-
sveitarmanna. Njóta þeir aðstoðar
fíkniefnadeildar lögreglunnar í
Reykjavík sem verður með tvo
sérþjálfaða fíkniefnahunda sér til
aðstoðar. Þá verður leitað á flug-
völlunum í Reykjavík, á Bakka og í
Þorlákshöfn. Aðspurður hvort
menn ættu von á mikilli fíkniefna-
neyslu segir hann að ef marka
megi reynslu síðustu ára verði tíu
til tuttugu manns handsamaðir
vegna fíkniefnabrota.
Á Selfossi verður löggæsla með
svipuðu sniði og verið hefur. Að
sögn talsmanns lögreglunnar
verður brugðist við eftir aðstæð-
um. Gæsla verður svipuð og um
helgar.
Hermann Ívarsson, varðstjóri
hjá lögreglunni á Blönduósi, segir
mjög ákveðið eftirlit verða á móts-
svæði Kántrýhátíðarinnar og á
svæðinu í kring. Hundar verði not-
aðir við fíkniefnaeftirlit og öflugt
umferðareftirlit verði í gangi.
Hann segir að undir venjulegum
kringumstæðum séu sex lögreglu-
menn á vöktum en þeim fjölgi í
átján um verslunarmannahelgina.
Komi viðbótarliðið frá lögreglunni
í Reykjavík.
Á Akureyri verður löggæsla
með svipuðu sniði og um helgar.
Daníel Guðjónsson, aðalvarð-
stjóri, segist ekki búast við nein-
um látum. Búist sé við friðsælu
fjölskyldufólki sem komi til að
njóta þess besta sem bærinn bjóði
upp á.
Sameiginlegt umferðareftirlit
verður hjá lögregluliðum Vest-
fjarða og Dalasýslu þ.e. Bolungar-
víkur, Hólmavíkur, Ísafjarðar, Pat-
reksfjarðar og Búðardals. Alls
verða átta lögreglubifreiðar með
áhöfnum í eftirliti alla helgina.
Sérstakt eftirlit verður haft með
umferðinni svo og þeim svæðum
þar sem fólk safnast saman.
kolbrun@frettabladid.is
STJÓRNMÁL „Það hafa margir komið
að máli við mig og hvatt til fram-
boðs. Eins og staðan er í dag er ég
ákveðnari frekar en hitt í að láta
slag standa,“ segir Katrín Júlíus-
dóttir, fyrrum formaður Ungra
jafnaðarmanna, sem að öllum lík-
indum bætist í hóp þeirra sem
þátt ætla að taka í prófkjöri Sam-
fylkingarinnar í nýju Suðvestur-
kjördæmi. „Ég er aðeins 27 ára og
íhuga þessi mál því af varfærni.
En ég býst frekar við að fara,“
segir hún.
Í svipuðum sporum og Katrín
eru þeir Jakob Frímann Magnús-
son tónlistarmaður og Ásgeir
Friðgeirsson framkvæmdastjóri
Strik.is. Í nýju Suðvesturkjör-
dæmi sitja fyrir þrír þingmenn
Samfylkingarinnar sem ætla að
verja sæti sín; Guðmundur Árni
Stefánsson, Rannveig Guðmunds-
dóttir og Þórunn Sveinbjarnar-
dóttir. Miðað við fylgi Samfylk-
ingarinnar í síðustu kosningum
ætti að vera rúm fyrir fjóra þing-
menn flokksins í nýju kjördæmi.
„Þetta getur orðið spennandi
slagur. Hlutirnir eiga eftir að ger-
ast hratt þegar valferlið hefur
verið ákveðið,“ segir Katrín sem
starfar hjá margmiðlunarfyrir-
tækinu Innn á Laugavegi í
Reykjavík. Hún á sæti í Fram-
kvæmdastjórn Samfylkingarinn-
ar.
TRAFICANT
James Traficant eftir að dómurinn hafði verið kveðinn upp. Hann hefur verið dæmdur í
átta ára fangelsi.
Þingmaðurinn James Traficant:
Dæmdur í átta
ára fangelsi
AP
/M
YN
D
AP/M
YN
D
KATRÍN
JÚLÍUSDÓTTIR
Gæti orðið
spennandi.
Prófkjör Samfylkingarinnar:
Katrín í slaginn
Öflug löggæsla
um allt land
Lögregla í sveitarfélögum víða um land bregst við verslunarmannahelg-
inni með auknum mannskap eða vinna í sameiningu að öflugri lög-
gæslu. Hundar til fíkniefnaleitar eru notaðir í æ ríkari mæli.
HERT EFTIRLIT UM VERSLUNARMANNAHELGINA
Lögregla um land allt fjölgar lögreglumönnum á vakt um helgina til að fylgjast með ungum sem öldnum á ferð um landið.
Námskeið í klassískum
ballet
Borgarleikhúsinu 12.-23. ágúst
Kennarar: Auður Bjarnadóttir, Katrín Hall,
Lauren Hauser og María Gísladóttir.
Píanisti: Olga Bragina.
UPPLÝSINGAR Í SÍMA 5529212 OG 5621746.
Sprengjuárás í ísraelskum
háskóla:
Sjö létu lífið
og 70 særðust
JERÚSALEM, AP Að minnsta kosti sjö
manns fórust og meira en 70
særðust, margir hverjir alvar-
lega, þegar sprengja sprakk í
kaffiteríu Hebrew háskólans í Ísr-
ael í gær. Engin hefðbundin
kennsla fer
fram í skóla-
stofum háskól-
ans á þessum
tíma ársins.
Fjöldi nemenda
hefur aftur á
móti þreytt þar
próf auk þess
sem sumarnám-
skeið hafa verið
í fullum gangi.
Voru fjölmargir
nemendur í há-
degismat í kaffi-
teríunni þegar sprengingin varð.
Fyrst var talið að um sjálfs-
morðsárás hafi verið að ræða, en
síðar voru líkur leiddar að því að
sprengju hafi verið komið fyrir á
staðnum.
Háskólinn er staðsettur
skammt frá landamærum austur-
hluta Jerúsalem, þar sem meiri-
hluti íbúa eru arabar, og vestur-
hluta Jerúsalem. Flestir nemend-
ur skólans eru gyðingar, þó svo að
fjöldi araba sæki einnig skólann
auk erlendra nemenda. Talið er að
arabískir stúdentar hafi verið á
meðal þeirra sem létust í árásinni.
Byggingin þar sem árásin var
gerð er nefnd eftir bandaríska
söngvaranum Frank Sinatra, sem
heimsótti hana árið 1978.
Hamas-skæruliðahreyfingin
lýsti ábyrgð á árásinni á hendur
sér, að sögn arabísku sjónvarps-
stöðvarinnar al-Jazeera.
GRÁTUR
Nemandi við há-
skólann hágrætur
skammt frá staðn-
um þar sem
sprengjan sprakk.