Fréttablaðið - 09.08.2002, Side 1
bls. 10
PERSÓNAN
Skilur ekki
skápatal
bls. 22
FÖSTUDAGUR
bls. 6
144. tölublað – 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Föstudagurinn 9. ágúst 2002
Tónlist 16
Leikhús 16
Myndlist 16
Skemmtanir 16
Bíó 14
Íþróttir 12
Sjónvarp 20
Útvarp 21
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
SKÓLAR
Möguleikar
netsins
nýttir
ERLENT
Segir illa aðila
ógna þjóðum
múslima
Úrslit í stangastökki
FRJÁLSAR Þórey Edda keppir í úr-
slitum stangastökkskeppninnar á
Evrópumeistaramótinu í frjálsum
íþróttum sem fram fer í München í
Þýskalandi í dag klukkan 18.00 að
íslenskum tíma. Fimmtán stúlkur
eru í úrslitum. Þórey Edda stökk
yfir 4,30 metra á miðvikudag sem
nægði henni í úrslitin.
Keppt í luftgítar
SKEMMTANIR Fyrsta Íslandsmeist-
arakeppnin í luftgítar verður hald-
in á Sportkaffi í kvöld. Í keppninni
gilda einfaldar reglur, enginn gítar.
Húsið opnar kl. 9 og skrá keppend-
ur sig til þátttöku á staðnum. Sigur-
vegarinn hlýtur rafmagnsgítar í
verðlaun. Kynnir á Íslandsmeist-
aramótinu er að sjálfsögðu Sjón.
Þrír leikir í Síma-
deild kvenna
FÓTBOLTI Þrír leikir verða í kvöld í
tíundu umferð Símadeildar kvenna.
KR fær Breiðablik í heimsókn. Í
Vestmannaeyjum mætast ÍBV og
Valur og á Stjörnuvelli kemur ná-
grannaliðið FH í heimsókn. Allir
leikirnir hefjast klukkan 19.00.
WASHINGTON, AP Fulltrúar banda-
rískra stjórnvalda vonast til að við-
ræður þeirra við Palestínumenn
veki með þeim von um trú á um-
bætur og lýðræði á meðal Palest-
ínumanna. Palestínumenn vonast
til að Bandaríkjamenn veiti þeim
stuðning í samningum við Ísraela.
Palestínumenn vilja ísraelska her-
inn brott af sjálfstjórnarsvæðun-
um. Fyrr í vikunni virtist sem þjóð-
irnar væru að ná slíku samkomu-
lagi en það fór út um þúfur.
Fundur ráðherra Palestínu og
Bandaríkjanna er fyrsti fundur
fulltrúa þjóðanna síðan í júní þegar
George W. Bush, Bandaríkjafor-
seti, krafðist þess að Jasser Arafat,
leiðtogi Palestínumanna, léti af
embætti.
Condoleezza Rice, ráðgjafi
Bandaríkjaforseta í öryggismálum,
hitti þrjá ráðherra palestínsku
stjórnarinnar. Síðan tók við fundur
þeirra með Colins Powell, utanríks-
ráðherra Bandaríkjanna.
Leiðtogi palestínsku fulltrú-
anna, Saeb Erekat, sagði að banda-
rísk stjórnvöld ættu að aðstoða
Ísraela og Palestínumenn við að ná
samkomulagi. „Við þurfum þriðja
aðilann,“ sagði hann á blaðamanna-
fundi. „Við munum sjá um samn-
ingaþófið. En við þurfum þriðja að-
ilann til þess að meta það sem við
segjum.“ Erekat sagði Palestínu-
menn ekki sætta sig við neitt minna
en það að Ísraelar færu af Vestur-
bakkanum, Gaza-svæðinu og hluta
Jerúsalem.
Ráðherrarnir sem Powell hitti
voru allir skipaðir af Arafat í júní.
Powell hefur hrósað þeim fyrir að
vera umbótasinnaðir.
Aðspurður hvort til greina
kæmi að bola Arafat frá völdum
sagði Erekat svo ekki vera. Arafat
er réttkjörinn forseti palestínsku
þjóðarinnar og valkosturinn við
hann væri fullkominn óreiða. Hann
vísaði því á bug að vald Arafats
stæði völtum fótum.
BARNEIGNIR „Ég hef tekið eftir því
að konur sem eru að eiga sitt
fyrsta barn eru að eldast. En eng-
in hefur komið jafngömul og frú
Blair í þau 20 ár sem ég hef starf-
að hér,“ segir Guðrún Guðmunds-
dóttir, ljósmóðir á sængurkvenna-
gangi kvennadeildar Landspítal-
ans, en fósturlát Cherie Blair, eig-
inkonu forsætisráðherra Breta,
hefur vakið heimsathygli og þá
ekki síst fyrir þá sök að frú Blair
er 47 ára gömul. „Eldri mæðurnar
sem eru að eiga sitt fyrsta barn
hér eru svona 35 ára og eru þá
búnar að mennta sig og telja sig
þá fyrst tilbúnar til að standa
í barneiginum. Þetta er þró-
un,“ segir Guðrún og undir
orð hennar tekur hjúkrunar-
fræðingur á skurðdeild
kvennadeildarinnar sem ein-
mitt var að horfa á sjónvarps-
þátt um þetta efni hjá Opruh
Winfrey á dögunum: „Þar
kom það fram og var degin-
um ljósara að konur láta
starfsframann ganga fyrir
barneignum þótt ungu mæð-
urnar haldi að sjálfsögðu
áfram að koma eins og alltaf,“
segir hún.
Ekki tókst að fá
upplýsingar um ald-
ur elstu konu sem ól
barn á fæðingar-
deildinni á síðasta
ári. Þó er ljóst að
hún var yngri en
forsætisráðherra-
frú Breta.
Sængurkonur á Landspítala að eldast:
Ekki jafn gamlar og frú Blair
FJÖLDABRÚÐKAUP Í BAGDAD 362 brúðhjón gengu í það heilaga í Bagdad, höfuðborg Íraks, í gær. Írakar fögnuðu því að fjórtán ár
eru liðin síðan stríði þeirra og Írana lauk. Saddam Hussein, forseti Íraks, sagði í sjónvarpsávarpi í tilefni dagsins að hann óttaðist ekki hót-
anir Bandaríkjamanna. Nánar bls. 10.
Bandaríkjamenn funda
með Palestínumönnum
Fyrsti fundur fulltrúa þjóðanna svo mánuðum skiptir. Bandaríkjamenn
vonast eftir umbótum. Palestínumenn segja Arafat óskoraðan leiðtoga.
REYKJAVÍK Norðvestlæg, 3-5
m/s. Skýjað með köflum og
smáskúrir. Hiti 9 til 14 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 3-5 Skýjað 10
Akureyri 3-8 Hálfskýjað 14
Egilsstaðir 3-8 Hálfskýjað 14
Vestmannaeyjar 3-5 Skúrir 11
+
+
+
+
VEÐRIÐ Í DAG
➜
➜
➜
➜
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 25 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,7% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í MARS 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 39
ára á föstudögum
samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
mars 2002
27,2%
D
V
70.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð lesa 25 til 39 ára
íbúar á höfuð-
borgarsvæð-
inu á föstu-
dögum?
58,4%
66,3%
Stærstu
útsölu-
lokin
EFTIR BRUNANN
Slökkvistarf í Fákafeni tók sólarhring.
Bruninn í Fákafeni 9:
Listaverk
Ásmundar
eru óbrunnin
BRUNI Listaverkin í kjallara
Fákafens 9 eru mörg hver óskem-
md. Eiríkur Þorláksson, forstöðu-
maður Listasafns Reykjavíkur,
skoðaði aðstæður í gær.
„Ástandið var mun betra en ég
hafði þorað að vona fyrirfram,“
sagði Eiríkur. „Það hafði aðeins lít-
ill eldur komist í gegnum gat á
vegg og skemmdirnar voru fyrst
og fremst vegna sóts og vatns. Ég
sá ekki betur en allar myndir Ás-
mundar Sveinssonar væru óbrunn-
ar og lítið skemmdar. Erfiðara er
að segja um önnur listaverk, en við
gerum ráð fyrir að þau verk sem
voru úr pappír séu ónýt og
bókalagerinn okkar er ónýtur.“
Samkvæmt stefnu borgarinnar
voru listaverkin ekki tryggð. Ei-
ríkur sagðist efast um að sú stefna
yrði endurskoðuð enda gríðarlega
dýrt að tryggja verk sem væru
metin á 3 milljarða króna. Iðgjöld-
in myndu væntanlega nema tugum
milljóna á ári. Hann sagði að verk-
in væru hins vegar alltaf tryggð
þegar þau væru lánuð til annarra
safna.
nánar bls. 4
SAEB EREKAT
Hefur verið náinn ráðgjafi Jassers Arafats
um langa hríð.
CHERIE OG
TONY BLAIR
Á flugvellinum í Toulou-
se í Frakklandi í gær þar
sem þau ætla að eyða
sumarleyfi sínu.