Fréttablaðið - 09.08.2002, Side 22
22 9. ágúst 2002 FÖSTUDAGUR
VEÐUR
Veðurfræðingar geta verið við-kvæmir menn. Viðkvæmir,
opinberir starfsmenn. Veður-
fréttamenn eru harðari af sér.
Einn þeirra lét hafa það eftir sér
í vikunni að loðnar veðurspár
gætu verið verri en engar. Sér-
staklega ef veðurfæðingar þyrðu
ekki að spá vondu veðri fyrir úti-
hátíðar af ótta við að raska að-
sókn. Sjá hefði mátt hellirigning-
una um verslunarmannahelgina
fyrir strax á miðvikudegi. Rign-
ingin hefði ekki átt að koma nein-
um á óvart. En gerði það vegna
þess að spáin var loðin. Hún er
það líka stundum fyrir áramót.
Þá verður að vera hægt að selja
flugelda í friði fyrir sannspáum
veðurfræðingum sem á móti vilja
fá að vera í friði fyrir sárreiðum
flugeldasölum. Fyrir bragðið geta
veðurspárnar orðið eins og veðr-
ið: Óútreiknanlegt.
Annars er farið að kólna í lofti.
Haustið á næsta leiti. Fegursti
tími ársins. Engar veðurspár
breyta því.
Höskuldur Jónsson, forstjóriÁTVR, er 65 ára í dag. „Ég
verð að heiman eins og það heitir.
Hef ekki tök á því að standa í heim-
sóknum eða veisluhöldum,“ segir
hann og játar því aðspurður að
töluverður munur sé á því að vera
56 ára eða 65 ára:
„Það er nú lögmál lífsins að
maður verður stirðari með árun-
um. Ég hef yndi af því að rölta um
og finn að ég á ekki lengur samleið
með yngri og röskari mönnum,“
segi Höskuldur sem er þó enn í fínu
formi ef meintur stirðleiki er frá-
talinn. „Þá tek ég eftir því þegar ég
eldist hvað ég þekki miklu minna
af fólki en áður. Þó þekkti ég flesta,
ef ekki alla, framámenn í viðskipt-
um, atvinnulífi og stjórnmálum. Nú
orðið verð ég að vanda mig vel til
að dylja hve fáa ég þekki og kann
deili á. Svo er einnig hitt að í mörg-
um tilvikum talar maður ekki sama
mál og yngra fólk og þá á ég ekki
við orðin sjálf heldur hugsunina,“
segir Höskuldur sem vel gæti
hugsað sér að verða ungur á ný:
„Tvímælalaust vildi ég verða
ungur aftur. Ég sé eftir æskunni
með hverju árinu sem líður enda á
ég góðar minningar um unglings -
og æskuárin,“ segir afmælisbarn
dagsins.
Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, er
65 ára í dag. Hann hefur ýmislegt við
aldurinn að athuga.
Afmæli
Saknar æskunnar
Við slit Þjóðfundarins íReykjavík árið 1851 hrópuðu
þingmenn: „Vér mótmælum allir.
Einni öld síðar var afhjúpuð
minningartafla um fundinn í há-
tíðarsal Menntaskólans í Reykja-
vík þar sem fundurinn var hald-
inn.
Þúsund ára minningarhátíðGísla Súrssonar og Auðar
konu hans var haldin í Geir-
þjófsfirði árið 1930.
Menntamálaráðuneytið gaf úttilkynningu um friðun gam-
alla húsa á Bernhöftstorfu í mið-
bæ Reykjavíkur árið 1979.
165 létust í flóðum í Suður-Kóreu árið 1998. Meðal hinna
látnu voru þrír bandarískir her-
menn.
FÓLK Í FRÉTTUM
ÁGulu síðunum í símaskránnieru 27 kvensjúkdómalæknar
á skrá. Verra er að ekki er hægt
að fá tíma hjá nokkrum þeirra
fyrr en eftir marga mánuði. Ljóst
er að skortur er á kvensjúkdóma-
læknum ef eitthvað er að marka
annir þeirra. Ástandið er betra
hjá tannlæknum en þeir eru orðn-
ir svo margir í höfuðborginni að
þeir slást um viðskiptavinina og
eru tilbúnir til samninga um verð
utan við gjaldskrá.
Siv Friðleifsdóttir umhverfis-ráðherra birtir dagbók sína á
Netinu á hverjum degi og þar
getur almenningur fylgst með
öllum hennar
ferðum og fjöl-
skyldu hennar.
Dagbókin er, eins
og slíkar bækur
eiga að vera,
opinská heimild
um það sem helst
drífur á daga höf-
undar. Um daginn
kom móðir hennar í heimsókn
með sveppi sem þær hreinsuðu,
steiktu og frystu. Athyglisvert
framlag ráðherra við að treysta
böndin við kjósendur.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar erþegar orðin allt of lítil til að
anna umferð farþega á háanna-
tímanum. Um miðjan dag í gær
var svo troðið við innskriftarborð
í brottfararsal að farþegar gátu
vart snúið sér við. Biðraðir
hlykkjuðust um allt og runnu
saman í eitt. Eldri borgarar áttu
erfitt með að ná andanum. Þá
voru sjö flugvélar að fara í loftið
á sama tíma. Að sögn starfs-
manna er ástandið svona á hverj-
um degi yfir sumartímann.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram að
vegna aldurs keyrir Bjössi á
mjólkurbílnum aðeins út G - mjólk.
Leiðrétting
KJARNORKUÁRÁSAR MINNST Í dag eru liðin 57 ár frá kjarnorkuárásinni á Nagasaki. Minnst var árásarinnar og árásarinnar á
Hírósíma, sem gerð var þremur dögum fyrr, með kertafleytingu á Reykjavíkurtjörn þriðjudaginn 6. ágúst.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/B
ILLI
HÖSKULDUR JÓNSSON
Er orðinn stirðari til göngu - en frískur samt.
Þessir Hinsegin dagar skiptamig engu máli og ég ætla
ekki að taka þátt í þeim. Ég verð
upptekinn við annað og þýðing-
armeira,“ segir Guðlaugur
Jónsson, hárgreiðslumeistari í
Kirkjuhvoli; betur þekktur sem
Laugi. „Ég hef aldrei tekið þátt í
hópstarfi samkynhneigðra en
ég skil vel að slíkt geti hjálpað
sumum. Þetta fólk má mín
vegna fara í hópgöngu niður
Laugaveginn en ég fer mínar
eigin leiðir og hef alltaf gert,“
segir Laugi og það eru orð að
sönnu. Aldrei verið virkur í hóp-
starfi samkynhneigðra né tekið
þátt í réttindabaráttu þeirra:
„Ég hef aldrei skilið þetta
skápatal. Aldrei hef ég þurft að
koma út úr skápnum, ég er bara
fæddur svona. Aðrir geta falið
sig í skápum og skúffum að vild
og ég skipti mér ekki af því,“
segir hann.
Laugi er þó á því að homma -
og lesbíuhátíð eins og sú sem
haldin verður í Reykjavík um
helgina hefði tæpast verið
möguleg fyrir 20 árum: „Það
hefði ef til vill mátt reyna en ég
er viss um að enginn hefði
mætt. Hér áður fyrr voru sam-
kynhneigðir síst færri en í dag
en þeir voru allir í felum. Ég
faldi mig aldrei. Þar liggur
styrkur minn,“ segir Laugi sem
margir kalla fyrsta hommann í
Reykjavík. En það er þjóðsaga
og fjarri öllu sanni. Sjálfur vill
Laugi ekki kalla sig homma:
„Hef aldrei verið hrifinn af
þessu orði. Vil heldur vera gay.
Ég er svo international,“ segir
hann.
GUÐLAUGUR JÓNSSON
Þurfti aldrei að fela sig í skáp. Þar liggur styrkur hans.
JARÐARFARIR
14.00 Gunnar Guðbjörn Sverrisson,
Straumi, Dalabyggð, verður jarð-
sunginn frá Breiðabólstaðarkirkju
á Skógarströnd.
14.00 Hallgrímur Matthíasson, Heiðar-
gerði 7, Akranesi, verður jarðsung-
inn frá Akraneskirkju.
AFMÆLI
Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, er 65
ára.
ANDLÁT
Steingrímur Gíslason, Lyngmóum 2,
Garðabæ, lést 7. ágúst.
Sigríður Brynjólfsdóttir, Heiðarbrún 1,
Keflavík, lést 7. ágúst.
John Aikman, Selvogsgrunni 18, Reykja-
vík, lést 3. ágúst.
Kristín Eiríksína Ólafsdóttir, Aðalstræti
32, Akureyri, lést 3. ágúst.
Guðmundur Ingvar Guðmundsson lést
5. ágúst.
SAGA DAGSINS
9. ÁGÚST
Tvær vinkonur komu akandieftir þjóðvegi 1 á vel yfir 120
km. hraða. Sú dökkhærða, sem
var undir stýri bað vinkonu sína,
ljóshærða, að gá hvort nokkur
lögreglubíll væri í augsýn. Ljósk-
an leit við og sagðist vissulega
sjá lögreglubíl.
„Bölvuð vandræði,“ sagði sú
dökkhærða. „Eru blikkljósin
nokkuð á?“
Ljóskan leit þá aftur um öxl og
sagði svo: „Já..., nei..., já..., nei...,
já....“
Ekki hommi
heldur gay
Guðlaugur Jónsson hárgreiðslumeistari í Kirkjuhvoli ætlar ekki að
taka átt í Hinsegin dögum. Hann fer sínar eigin leiðir.
TÍMAMÓT
PERSÓNAN
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T