Tíminn - 08.06.1971, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 8. júní 1971
TIMINN
15
Svar frá Ellert B. Schram til
Jóakims Arasonar og Tímans
í Tímanum 5. júní sl. er birt
opið bréf til mín frá Jóakim
nokkrum Arasyni um „frelsi og
yfirgang". I bréfi þessu er rifj-
að upp rúmlegá þriggja ára
gamalt mál, sem snertir starf
mitt hjá Reykjavíkurborg.
Dylgjur og skætingur í minn
garð er með þeim hætti, að
ekki er hægt að láta slíku
ósvarað.
Jóakim Ai'ason er eigandi
landspildu sunnan við Rauða-
vatn, Sclásbletts 12A og þar
hefur hann reist, án leyfis bygg
ingaryfirvalda, skúrbyggingar
til hænsna- og sauðfjárhalds.
Um sumarið 1967 voru veruleg
brögð að því, að landeigendur
á þessu svæði héldu áfram, án
leyfis byggingaryfirvalda, að
setja niður eða reisa skúrbygg-
ingar, þar á m> ðal Jóakim Ara-
son.
Eftirlitsmenn borgarinnar
fóru þess á leit við þessa aðila,
að byggingaframkvæmdir og
skúrflutningar yrðu stöðvaðir,
meðan heimildir lægju ekki
fyrir, en þegar þeim tilmælum
var ekki sinnt, kom það í minn
hlut, sem starfsmanns borgar-
verkfræðings, að fylgja málinu
eftir. Samkvæmt erindisbréfi
er það m. a. mitt hlutverk að
sjá til þess að óleyfilegar bygg-
ingar utan skipulags og án sam-
þykktar, séu ekki reistar í borg
arlandinu.
Vakti ég þá m. a. athygli Jóa-
kims Arasonar á því, að borgin
neyddist til að rífa skúra hans,
ef hann sinnti ekki tilmælum
eftlrlitsmanna.
Aðvaranir mínar voru marg-
ítrekaðar, bæði munnlega og
skriflega, en án árangurs. Næst-
um ári síðar, eða með ,bréfi
dags. 29. 4. ’68, var hreinsunar-
deild borgarverkfræðings falið
að annast niðurrif fjölmargra
skúra á umræddu svæði.
Sá skúr, sem rifinn var hjá
Jóakim Arasyni, var óinnrétt-
að hænsnahús, 30 m2 að stærð.
Ég hef nú starfað í tæp fimm
ár sem skrifstofustjóri hjá
borgarverkfræðingi, og óhjá-
kvæmilega kemur fyrir, að tekn
ar eru í mínu nafni ákvarðanir
og aðgerðir, sem valda óþæg-
indum eða erfiðleikum hjá við-
komandi. Hvort það sé til áfell-
is að sinna skyldustörfum sam-
kvæmt fyrirmælum og beztu
samvizku, verður hver og einn
að dæma fyrir sig.
Eg segi hins vegar í fullri
hreinskilni, að það veldur mér
vonbrigðum, að dagblaðið Tím-
inn skuli grípa til þeirra ráða
í þessari kosningabaráttu, að
birta óhróður vegna þriggja
ára gamalla afskipta minna í
skyldustarfi. Það er ekki drengi
legt að vega að pólitískum and-
stæðingum sínum með ómak-
AFL
n ÖRYGGI
VIÐ VEITUM YÐUR
UPPLÝSINGAR
5 ^Yimnai Sfyzeimm kf.
ÚTBOÐ
Kópavogskaupstaður óskar tilboða í frágang á leik
vallasvæði við Fögrubrekku. Útboðsgögn verða af-
hent á skrifstofu minni, Melgerði 10, gegn 2 þús.
kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 15. júní kl. 11
árdegis.
Kópavogi 7. júní 1971
BæjarverkfræSingur.
legum, persónulegum ávirðing-
um. Slíkum baráttuaðferðum
mun ég ekki beita, og ég leyfi
mér að fullyrða, að þær verði
Framsóknarflokknum ekki til
framdráttar.
I starfi mínu hjá Reykjavík-
urborg hef ég haft skipti við
þúsundir Reykvíkinga, og ég á
ekki von á því, að þeir beri nfír
þá sögu, að ég hafi „kúgað“,
„sparkað", „hyglað“ eða „mis-
munað“ mönnum. Ef kosning-
arnar ráðast af dómi þess fólks,
sem við mig hefur átt erindi
eða samskipti, þá hræðist ég
ekki úrslit þessara kosninga.
eykjavík, 6. júní,
Ri
Ellert B. Schram
Ath. ritstj.
Ritstjórn Tímans vill vinsam-
lega benda Ellert Schram á það,
að Jóakim Arason skrifaði um-
rædda grein í Tímann og ber
á henni ábyrgð. Ef hann vill
birta fleiri greinar í blaðinn,
mun ritstjórnin tryggja það, að
blaðið geti orðið vettvangur
skoðanaskipta þeirra Ellcrts og
hans um þessi mál.
Smekkvísi
Morgunbl. 26. maí segir frétt
ir af fundi ,sem frambjóðend-
ur Sjálfstæðisfl. í Reykjavík
héldu með kjósendum laugar-
daginn næstan áður. Fátt er
athyglisvert við þá frásögn ann
að en niðurlagið. Það væri þá
helzt eftirfarandi málsgrein,
sem verður til að rifja upp spá
dóm Ólafs prófessors Björns-
sonar um að upp mundi verða
tekið og ástundað hið „léttara
hjal“ fram að kosningum, —
en Ólafur þekkir sitt heima-
fólk :
„Ingibjörg Ingimundardóttir
spurðist fyrir um stöðu gjald
eyrisvarasjóðsins. Jóhann Haf-
stein sagði, að ekki væri hætta
á því að hann eyddist og allt
benti til, að staða okkar á
þessu ári væri mjög örugg."
Fallega mælt.
En svo var það niðurlagið.
Morgunbl. segir með stolti,
að forsætisráðherrann hafi í
fundarlok heimfært upp á sjálf
an sig og Sjálfstæðisflokkinn
síðasta vísuorðið í 5. erindi
hins gullfallega sálms Matthí-
asar: Fyrst boðar Guð sitt
blessað náðarorðið. En þar
leggur skáldið Guði föður í
munn þessi orð: „í mínu húsi
rúmast allir — allir". Erindið
er svona:
Hann býður enn þft, „Farið,
laðið, leitið,
og ieitið, kallið, biðjið,
þrýstið, néyðið,
mitt kærleiks djúp á himins
víðar hallir,
í húsi mínu rúmast allir
— allir".
MorgUnbl. fræðir lesendur á
að síðasta vísuorðið sé „gamall
málsháttur". Og blaðinu finnst
það vel við hæfi, eins og for-
sætisráðherranum, að snúa hin
um fagra sálmi Matthíasar upp
á Sjálfstæðisflokkinn og hafa
þenna „gamla málshátt“ (!),
sem það kallar svo, að yfir-
skrift og einkur.narorðum.
Þeim fatast ekki smekkvisin
á bænum þeim.
/ Gísli Magnússon.
YTfY
■ ■ ' I Um
W*5
0<5
POLYTEX plaslmólningu má þynna me3
vatni, hún þekur vel, þornar á aðeins\30
mínútum, er áferðarmjúk og endingargóð,
— og auk þess rennur hún svo vel saman
á vegg, að hvergi sér för eftir pensil eða
rúllu. Polytex er auðvelt að þvo, — það
kemur öllum saman um, sem reynt hafa.
Polytex fæst í glæsilegu litaúrvali. Skoðið
Polytex-litabókina í næstu málningarverzl-
un, — og kynnizt verðinu. Það er hvergi
lægra.
EFNAVERKSMIÐJANSJOFN•AKUREYRl