Fréttablaðið - 12.08.2002, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 12.08.2002, Blaðsíða 2
2 12. ágúst 2002 MÁNUDAGURLÖGREGLUFRÉTTIR INNLENT Lögreglan í Borgarnesi segirumferð um helgina hafa gengið tíðindalaust fyrir sig. Mikill um- ferðarþungi hafi verið seinnipart- inn í gærdag í áttina til Reykjavík- ur en talsvert dregið úr henni þeg- ar líða tók á kvöldið. Aðspurður segir hann ökumenn hafa verið að keyra innan skynsamlegra marka. Lögreglan á Selfossi segir heldur draga úr umferð strax eftir versl- unarmannahelgi. Eitthvað hafi ver- ið um hraðakstur en umferð að öðru leyti gengið vel fyrir sig. Mikill erill var hjá lögreglunni íKeflavík um helgina. Tuttugu ökumenn voru kærðir fyrir um- ferðarlagabrot aðfaranótt laugar- dagsins. Um var að ræða hraðakst- ur, öryggisbeltanotkun og fleira. Þá voru þrjár líkamsárásir til- kynntar sem allar reyndust minni- háttar. SKIPULAGSMÁL Úrskurðar Skipu- lagsstofnunar vegna mats á um- hverfisáhrifum fyrirhugaðrar Norðlingaölduveitu er að vænta í dag, mánuði síðar en áætlað hafði verið. Landsvirkjun hefur lagt fram viðbótargögn í málinu um mótvægisaðgerðir til að draga úr setmyndun í lóninu. Nokkur eftir- vænting ríkir um það hvort viðbót- argögnin hafi áhrif á úrskurð Skipulagsstofnunar. Þær hugmyndir sem Lands- virkjun hefur útfært ganga út á að gera stíflu og setlón þar sem fyrir- hugað var að gera 6. áfanga Kvísl- arveitu. Með því telur Landsvirkj- un mögulegt að þrefalda líftíma Norðlingaöldulóns og þar með Norðlingaölduveitu. Án mótvægis- aðgerða myndi fyrirhugað Norð- lingaöldulón hins vegar hálffyllast af aur á tæplega 100 árum. Náttúruvernd ríkisins hefur öðru sinni hafnað framkvæmdinni og segir viðbótargögn Landsvirkj- unar engu breyta þar um. Þvert á móti styrki þau enn frekar það álit að umhverfisáhrif vegna Norð- lingaölduveitu verði umtalsverð. Með miklum mótvægisaðgerðum sem sjálfar valdi umtalsverðum umhverfisáhrifum, sé hægt að lengja líftíma lónsins en umhverfis- áhrifin verði að lokum enn meiri.  FYRIRHUGAÐ NORÐLINGAÖLDULÓN Setlónið og samspil ýmissa annarra mót- vægisaðgerða gætu þrefaldað líftíma Norðlingaöldulóns og þar með Norðlinga- ölduveitu. Án mótvægisaðgerða myndi fyr- irhugað Norðlingaöldulón hálffyllast af aur á tæplega 100 árum. Eftirvænting vegna úrskurðar Skipulagsstofnunar í dag: Norðlingaölduveita Sunnan Hofsjökuls Bílslysið við Hvítá: Árangurs- laus leit SLYS Árangurslaus leit fór fram síð- astliðinn laugardag að manninum sem saknað er eftir bílslysið við Hvítá um verslunarmannahelgina. Leit var hætt vegna veðurs í síð- ustu viku en reynt að nýju á laug- ardag. Sautján björgunarsveitar- menn Slysavarnarfélagsins Lands- bjargar frá Árborg, Eyrarbakka og Grímsnesi tóku þátt í leitinni ásamt þremur leitarhundum. Leitað var á svæðinu frá slys- stað niður til Kópsvatnseyra. Eng- in leit var gerð í gærdag og hefur ekki verið tekin ákvörðun um frek- ari aðgerðir.  SÓL Í REYKJAVÍK Áfram verður sól og kalt í Reykjavík. Veður næstu daga: Sólin heldur áfram að skína í höfuð- borginni VEÐUR Veðurstofan spáir áfram- haldandi norðanátt sunnan- og vestanlands næstu daga. Það þýð- ir að sólin heldur áfram að skína á höfuðborgarbúa, en kul er í lofti og greinilegt að haustið er á næsta leiti. Það er þó ekki þar með sagt að fólk þurfi að halda sig inni við, um að gera að njóta síðustu sólar- geisla sumarsins og klæða af sér norðanáttina. Tíðin sunnanlands hefur verið heldur rysjótt undan- farna daga meðan veðurguðirnir hafa leikið við hvurn sinn fingur fyrir norðan og austan. Nú er hins vegar útlit fyrir að íbúar þar þurfi að draga fram hlífðarfötin til að verjast rigningunni. Annars er um að gera að ergja sig ekki á veðrinu yfirleitt, nota það sem umræðuefni þegar allt annað þrýtur, en kæra sig að öðru leyti kollóttan.  Fiskidagur á Dalvík: Fjölmenni í bænum HÁTÍÐ Fiskidagurinn mikli var haldinn á Dalvík á laugardag. Er þetta í annað sinn sem hátíðin er haldin. Að sögn talsmanns lög- reglunnar á Dalvík er talið í kringum 10.000 manns hafi sótt hátíðina. Hlutirnir hafi gengið af- skaplega vel fyrir sig og engar til- kynningar borist um tjón né ann- að. Fólk hafi komið víða að og dag- skrá verið fjölbreytt. Lögreglan segir hafa fengið þær upplýsingar frá aðstandend- um hátíðarinnar að í kringum 40.000 skammtar af fiski hafi runnið ofan í gestina. Til að glögg- va sig betur á umfanginu hafi ver- ið keypt krydd fyrir um hálfa milljón króna og fimm kílómetrar af álpappír verið notaður. Það eru fiskverkendur úr Dal- víkurbyggð sem standa að hátíð- inni.  SPRON Fundur stofnfjáreigenda Sparisjóðs Reykjavíkur og ná- grennis verður í dag. Fundarins er beðið með nokkurri eftir- væntingu en þar verður meðal annars tekin til afgreiðslu til- laga um lagabreytingar vegna tilboðs Starfsmannasjóðs SPRON í meirihluta stofnfjár. Lög SPRON heimila ekki að óbreyttu að einn aðili eigi svo stóran hluta stofnfjár. Fimm- menningarnir, sem með fulltingi Búnaðarbankans reyndu að kaupa allt stofnfé SPRON, hafa lagt áform sín á hilluna í bili. Þeir segjast hins vegar munu endurvekja tilboð sitt, gangi til- boð Starfsmannasjóðsins ekki eftir. Þá hafa fimmmenningarnir dregið til baka vantrauststillögu sína á stjórn SPRON. Afstaða Fjármálaeftirlitsins til áforma Starfsmannasjóðsins mun ekki liggja fyrir áður en fundur stofnfjáreigenda hefst í dag.  SPARISJÓÐUR REYKJA- VÍKUR OG NÁGRENNIS Málefni sjóðsins hafa verið í brennidepli undanfarið. Fundur stofnfjáreigenda í dag: Beðið með eftirvæntingu GAY PRIDE Mikil mildi var að ekki varð stórslys á Ingólfstorgi síðast- liðinn laugardag þegar samkyn- hneigðir héldu þar hina árlegu Gay Pride-hátíð, Fjöldi áhorfenda klifraði upp á skyggni við torgið til að sjá skemmtiatriðin betur, með þeim afleiðingum að skyggnið hrundi og flytja þurfti yfir tuttugu manns á sjúkrahús. Vakthafandi læknir á bráðamóttöku sagði að um það bil 23 hefðu verið fluttir á deildina til aðhlynningar, en ekki hafi verið um alvarleg meiðsl að ræða. „Aðeins einn var lagður inn, aðrir fengu að fara heim að lokinni skoðun. Mest voru þetta skurðir á höfði, en engin beinbrot,“ segir hann. Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, segir að ábyrgðin sé þeirra sem príluðu upp á þakið. „Þetta svið er hluti af sviði Reykjavíkurborgar eða Hins hússins á torginu og við vorum ekkert að nota það,“ segir Heimir Már. „Mér skilst að þetta skyggni eigi ekki að vera úti nema þegar eitthvað er í gangi á svið- inu.“ Aðspurður hvort Ingólfstorg henti ekki lengur fyrir hátíðina, sem stækkar ár frá ári, sagði Heimir að það væri í höndum nýrr- ar samstarfsnefndar fyrir hátíðina á næsta ári að fjalla um það. „Það er spurning hvort Arnarhóll eða Miðbakkinn væru betri kostir,“ segir Heimir. „ Gísli Árni Eggertsson, aðstoð- arframkvæmdastjóri Hins húss- ins, segir skyggnið í eigu Reykja- víkurborgar eins og annar umbún- aður við torgið. Hitt húsið hafi hins vegar haft umsjón með útleigu á búnaðinum.“ Aðspurður um ábyrgð segir Gísli að allt hafi þetta gerst mjög hratt og ekki hægt að draga neinn til ábyrgðar. „Mér skilst að allt í einu hafi farið ein- hver flóðbylgja þarna upp á þakið og skyggnið hrunið niður um leið. „Það er náttúrlega ekki hægt að passa alla hluti. Það er þarna fjöldasamkoma í gangi og í tengsl- um við hana ákveðin gæsla sem beinist að sviðinu sem er í notkun. Svo gerist þetta án þess að nokkur fái við ráðið.“ Sigursteinn Steinþórsson varð- stjóri tekur í sama streng og segir ekki hægt að kalla einhvern til ábyrgðar. „Þetta krefst að sjálf- sögðu frekari rannsóknar, en ekk- ert liggur fyrir um ábyrgðina á þessu stigi.“ edda@frettabladid.is Ekki hægt að kalla neinn til ábyrgðar Fjöldi manns slasaðist þegar skyggni hrundi á Ingólfstorgi síðastliðinn laugardag. Þeir sem príluðu upp á skyggnið eru sjálfir ábyrgir, segir Heimir Már. Ekki hægt að passa upp á alla hluti, segir framkvæmdastjóri Hins hússins. Málið er í rannsókn. SLYS Á INGÓLFSTORGI Töf varð á dagskránni meðan sjúkraflutningamenn hlúðu að hinum slösuðu, en erfitt var að ná til þeirra vegna mannfjöldans. SKYGGNIÐ Hrundi með braki og brestum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Það voru ekki allir jafn ánægð-ir með komu rússnesku her- skipanna til Reykjavíkur. Íslensk- ir friðarsinnar tóku sér stöðu úti í Örfirisey til að mótmæla komu þeirra. Sendu þeir frá sér yfirlýs- ingu þar sem segir að tilgangur heimsóknar á borð við þessa sé fyrst og fremst að fegra og upp- hefja stríðstól og hernaðaranda og gera Ísland að virkari þátttak- anda í hernaðarbandalaginu NATO. Gagnrýna þeir að Reykja- víkurhöfn sé ítrekað notuð til slíkra heimsókna. Þá mótmæla Íslenskir friðarsinnar sérstak- lega þeirri ákvörðun forseta Ís- lands að lýsa stuðningi sínum við hernaðarhyggju og vopnaskak með því að heimsækja aðmírál og áhafnir rússneskra herskipa. Kostnaður vegna viðgerða álistaverkunum sem skemmd- ust í brunanum vð Fákafen mun skipta milljónum að sögn Eiríks Þorlákssonar, forstöðumanns Listasafns Íslands. Forverðir hafa skoðað listaverkin undan- farna daga og sum þeirra hafa verið flutt úr Fákafeninu meðan önnur hafa verið látin byrja að jafna sig á staðnum. Eiríkur segir ekki hægt að segja til um það enn hvort þurfi að fá aðstoð erlendra sérfræðinga, en íslenskir for- verðir hafi þekkingu til að gera við verk sem hafi skemmst í bruna. RÚV greindi frá.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.