Fréttablaðið - 12.08.2002, Page 14
14 12. ágúst 2002 MÁNUDAGUR
FRÉTTIR AF FÓLKI
Leikkonan Patricia Arquettetrúlofaði sig á dögunum sem
ekki þætti nægilegt fréttaefni til
þess að fylla
þetta pláss ef
ekki fylgdi
skemmtileg
saga. Þannig
var mál með
vexti að
Arquette var
stödd í bíó
ásamt kærasta
sínum að horfa
á þögla mynd. Henni brá skyndi-
lega þegar hún sá á skjánum rit-
að; „Patricia, viltu giftast mér?
þinn Thomas“ í stað þess texta
sem átti að fylgja myndinni. Vita-
skuld svaraði hún játandi. Leik-
konan var áður gift Nicolas Cage.
Nýjasta kvikmynd Nicole Kid-man, „The Hours“, mun ekki
verða tilbúin í tæka til fyrir Fen-
eyjarhátíðina
eins og fram-
leiðendur henn-
ar höfðu vonast
til. Í myndinni
leikur Kidman
Virginiu Woolf
en mótleikkon-
ur hennar í
myndinni eru
þær Meryl
Streep og Julianna Moore. Leik-
ararnir Jude Law og Paul Newm-
an fara einnig með stór hlutverk
í myndinni. Leikstjóri myndar-
innar er Stephen Daldry sem síð-
ast gerði hina mögnuðu „Billy
Elliot“ og spá margir því að
myndin verði í slagnum um Ósk-
arsverðlaunin á næsta ári.
Leikkonan Demi Moore hefurtekið að sér stórt hlutverk í
framhaldsmynd „Charlies Ang-
el’s“. Moore hefur ekki leikið í
kvikmynd síðan hún tók sér frí
árið 1997 eftir hina hræðilegu
mynd „G.I.
Jane“ til þess að
sinna fjölskyldu
sinni. Hún ætlar
að bregða sér í
hlutverk bófans
og leikur fyrr-
verandi „engil“
sem notar hæfi-
leika sína til ill-
verka. Aðal-
leikkonurnar þrjár úr fyrri
myndinni, Cameron Diaz, Lucy
Liu og Drew Barrymore, ætla all-
ar að leika í myndinni.
Natalie Portman hefur sam-þykkt að vera „kærasta“ Sat-
urday Night Live grínistans Jim-
my Fallon í heila viku. Örvæntið
ekki piltar mínir því allt er til
gamans gert, eða frekar í auglýs-
ingaskyni, fyrir MTV Video
Movie Awards sem Fallon verður
kynnir á. Að
eyða heilli viku
með leikkonunni
var víst eitt af
þeim skilyrðum
sem Fallon setti
sjónvarpsstöð-
inni fyrir því að
hann myndi taka
verkefnið að sér.
MIB 2 kl. 6, 8 og 10
ÁLFABAKKA 8, SÍMI 587 8900 www.samfilm.is
MURDER BY... kl. 8 og 10.20 VIT400
SCOOBY DOO kl. 2, 4 og 6 VIT398
FRÍÐA OG DÝRIÐ 2, 4 og 6 VIT418
BIG TROUBLE kl. 8 og 10.10 VIT406
MR. BONES kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 VIT415
PÉTUR PAN 2 m/ísl. tali kl. 2 VIT358
MONSTER INC. m/ísl. tali kl. 2 VIT338
VILLTI FOLINN m/ens. tali kl. 8 VIT407
VILLTI FOLINN m/ísl. tali 2, 4 og 6 VIT410
THE MOTHMAN... kl. 10.10 VIT408
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10 VIT 414
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
Kl. 5, 6, 8, 9 og 11
Sýnd kl. 4, 7 og 10
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10 VIT 417
kl. 6, 8 og 10.05ABOUT A BOY
kl. 10MÁVAHLÁTURkl. 8 og 9LEITIN AÐ RAJEEV
NOVOCAINE kl. 8 og 10
VILLTI FOLINN m/ísl. tali kl. 6CLOCKSTOPPERS kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 Sýnd kl. 6 m/ísl. tali
Leikarinn Jeremy Irons komgestum Shannon flugvallar á
Írlandi heldur betur á óvart á
dögunum er hann tók upp á því
að þrífa. Aðspurður sagðist
hann hafa verið orðinn leiður á
því að lesa og bíða þegar hann
tók eftir því hversu skítugt allt
saman var. Þess vegna hafi
hann ákveðið að drepa tímann
með því að skella sér í hlutverk
ræstingarmanns. Hann segist
hafa orðið glaðari fyrir bragðið
þar sem uppátæki hans hafi
komið af stað mörgum
skemmtilegum viðræðum við
ókunnugt fólk.
David Bowie hefur tekið aðsér að sjá um og semja tón-
list fyrir Broadway söngleik.
Hann segist vera kominn á þann
aldur að það eina sem honum
virkilega langi til þess að gera
sé að „tjá lög sín“ eins og hann
orðar það. Hann nenni ekki
lengur að fara á ferðalög til
þess að leika á tónleikum á
hverjum degi. Hvort hann ætli
að semja ný lög fyrir söngleik-
inn eða styðjast við eldra efni
er ekki vitað.
TÓNLIST Þegar íslenskar hljóm-
sveitir leika á Hróaskelduhátíð-
inni í Danmörku fyllast tónlist-
arunnendur klakans að stolti og
fjarskyldustu frænkur liðs-
manna gorta sig í saumaklúbb-
um. Liðsmenn hljómsveitarinnar
Clickhaze frá Færeyjum hljóta
því að hafa fengið konunglegar
móttökur er þau snéru aftur til
síns heima eftir tónleikahaldið á
hátíðinni.
„Tónleikaferðin gekk rosa-
lega vel og við fengum mjög
góða dóma,“ segir Jón Tyril gít-
arleikari en hann var staddur
hér á landi í síðustu viku í leit að
dreifingasamning fyrir
þröngskífuna „E.P.“. „Við spil-
uðum líka á fleiri hátíðum og
platan okkar kemur vonandi út í
Danmörku í næstu viku.“
Þröngskífan hefur fengið
góða dóma og setningar á borð
við „Björk farðu heim“ og
„Besta hljómsveit Skandinavíu í
dag“ fengið að fljóta.
Á einum fimm árum hefur
tónlistarlíf í Færeyjum stökk-
breyst frá því að vera steindautt
í það að vera iðandi af lífi. Ís-
lendingar hafa fengið smjörþef-
inn af því sem er að gerast.
Pönksveitin 200% hefur selst vel
í Hljómalind, Týr áttu eitt vin-
sælasta lag síðasta vors á Rás 2
og söngkonan Eivör Pálsdóttir
hefur heillað eyru. Fyrsta sóló-
plata hennar hefur selst eins og
kjúklingur á tilboði í Færeyjum
síðasta árið og það ætti því ekki
að minnka áhugann á Clickhaze
að Eivör skuli vera söngkona
sveitarinnar. En hver er ástæðan
fyrir þessum aukna tónlistar-
metnaði í Færeyjum? Sólarn Sól-
munde umboðsmaður Clickhaze
er með kenningu;
„Hljómsveitir á síðasta ára-
tug voru frekar slæmar,“ segir
hann umbúðarlaust. „Svo hækk-
aði tíðni atvinnulausra og marg-
ir stofnuðu hljómsveitir og leit-
uðu í bílskúranna sína.“
„Núna eru hljómsveitirnar
orðnar mjög góðar,“ bætir Jón
við. „Fólk er byrjað að opna aug-
un fyrir menningararfi eyjanna.“
Einnig hefur hljómsveitar-
keppnin Grand Prix, sem Click-
haze vann árið 2001, glætt tónlist-
arlíf eyjanna til muna.
„Færeyjar voru mun einangr-
aðri en Ísland. Það voru engin
hljóðfæri á eyjunum fyrr en á 19.
öld. Ekki eitt orgel í kirkju. Tón-
listarhefðin sem mótaðist var því
ekki í sama 12 nótna skala og í
Evrópu. Tónlistin hljómar oft
meira eins og afrísk eða ind-
versk.“
biggi@frettabladid.is
„Björk, farðu heim!“
Hljómsveitin Clickhaze er ein sú vinsælasta í Færeyjum um þessar
mundir og lék m. a. á Hróaskelduhátíðinni í ár. Þröngskífan „E.P.“
hefur verið kölluð „besta norræna útgáfa síðan „Ágætis Byrjun“
Sigur Rósar kom út“.
CLICKHAZE
Liðsmenn sveitarinnar segja tónlistina rokktónlist undir áhrifum frá trip-hop og færeyskri þjóðlagatónlist. „Það voru engin hljóðfæri í
Færeyjum fyrr en á 19. öld,“ segir Sólarn. „Tónlistarhefðin var því ekki í sama 12 nótna skala og í Evrópu. Tónlistin hljómar oft meira
eins og afrísk eða indversk.“ Spennandi, ekki satt? Mynd: Jens K. Vang.
COURTNEY LOVE
Leikur flagð undir fögru skinni í næstu
mynd sinni. Kannski ekki svo
fjarri raunveruleikanum?
Courtney Love:
Leikur Lafði
Macbeth
FÓLK Söng- og leikkonan Courtney
Love og ekkja rokkarans Kurt
Cobains hefur hneykslað marga á
ferli sínum. Fátt kemur þó jafn
mikið á óvart en sú ákvörðun
hennar að taka að sér hlutverk
Lafði Macbeth í væntanlegri kvik-
myndaútgáfu af Shakespeare
leikritinu.
Courtney tekur leiklistina afar
alvarlega og hefur ráðið til sín
einkaleiklistarkennara í von um
að tækla hlutverkið sem best. Fyr-
ir þá sem ekki vita er Lafði
Macbeth ekki beint besta skinn í
leikritinu. Dave Grohl, fyrrum
trommuleikari Nirvana og núver-
andi söngvari Foo Fighters, ætti
því að vera fullviss um að hún
ráði við hlutverkið. Enda hefur
hann kallað hana öllum illum
nöfnum þar sem þau eiga í laga-
deilum um höfundarréttindi Nir-
vana-laganna.
Leikstjóri myndarinnar verður
Vincent Reagan. Framleiðandi
myndarinnar er Luc Besson.
Kate Moss og Sadie
Frost:
Ætla að skella
sér á súluna
FÓLK Vinkonurnar Sadie Frost, leik-
konan sem gift er leikaranum Jude
Law, og fyrirsætan Kate Moss ætla
sér að gera kvikmynd um súludans.
Þær eru búnar að skrifa handritið
og ætla sér sjálfar að fara með að-
alhlutverkin í mynd-
inni.
Vinkonurnar hafa
víst eytt miklum
tíma síðustu mánuð-
ina í rannsóknar-
vinnu. Hún fólst aðal-
lega í því að skella
sér á nektardansstaði
í London til þess að
kynna sér súlutækn-
ina. Sadie Frost heill-
aðist víst það mikið
af „listgreininni“ að
hún lét setja upp súlu á heimili sínu.
Stúlkurnar bíða víst spenntar að
hefja tökur en neyðast til þess að
bíða í rúmt ár. Þeir eiga nefnilega
báðar von á barni.
Myndin verður gerð af fram-
leiðslufyrirtækinu Natural Nylon
sem er í eigu leikaranna Jude Law,
Ewan McGregor og Johnny Lee
Miller.
KATE MOSS
Segir súludans
vera eina bestu
líkamsrækt
sem völ er á.