Tíminn - 20.06.1971, Qupperneq 7
ÍUNNUDAGUR 30. júm' 1971
TÍMINN
7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
framkvaemdastjórl: ftrlstjáii Benediktsson. Ritstjórar: Þórarlno
Þórarinsson (áb). Jón Helgason, IndriBJ G. Þorsteinsson og
Tómas Karlsson Auglýsingastjóri: Steingrímur Gislason. Rlt-
Etjórnarskrifstofur 1 Edduhúsinu, simar 18300 — 18306. Skrif-
stotnr Bankastræti 7. — Afgreiðslusími 12323. Auglýsingasíml:
19523. Aðrar skrifstofur simi 18300. Askriftargjald kr 195,00
á mánubl tnnanlands. t lausasölu kr. 12,00 elnt. — Prentsm
Edda hf.
Láglaunastéttirnar
Meðal þýðingarmestu verkefna, sem bíða úrlausnar
á komandi mánuðum, er að bæta kjör þeirra láglauna*
stétta, sem hafa auðsjáanlega dregizt aftur úr 1 kjara-
kapphlaupinu á undanfömum árum. Þetta gildir alveg
sérstaklega um bændur, sjómenn og verkamenn, og tals-
verðan hluta skrifstofu- og verzlunarfólks.
Eins og áður hefur verið greint frá hér í blaðinu,
liggja fyrir um það útreikningar, sem gerðir hafa verið
á vegum kjararannsóknarnefndar, að kaupmáttur dag-
tímakaups verkamanna hafi verið mun minni árið 1970
en 1959. Fullvíst er, að kjörum bænda hefur hrakað enn
meira. Af sjómannastéttinni er það skemmst að segja,
að illa gengur orðið að manna fiskiflotann, því að kjörin
þykja lakari þar en í landi. Lögin, sem Eggert Þorsteins-
son setti um skerðingu á sjómannahlutnum, eiga vitan-
lega stóran þátt í þessu.
Að því verður að vinna að bæta hlut láglaunastétt-
anna. Það verður að gera með kauphækkunum eftir því,
sem unnt er. En fleiri leiðir eru til kjarabóta en kaup-
hækkanir og margar þeirra eru raunhæfari, því að þær
þurfa ekki að leiða til verðhækkana. Þar er um ráðstaf-
anir að ræða eins og aukinn persónufrádrátt við skatta-
álagningu, afnám söluskatts á helztu nauðsynjum og end-
urbætur á húsnæðislánalöggjöfinni. Síðastnefnda málið
er ekki sízt mikilvægt. Hin opinberu húsnæðismálalán
eru ekki aðeins of lág, heldur mjög óhagstæð. Það stafar
ekki aðeins af vísitölubindingunni, heldur einnig því, að
lánin eru til of stutts tíma. Húsnæðiskostnaður margra
er nú miklu meiri en venjulegur launamaður geti risið
tmdir honum. Því þarf að gera allt, sem mögulegt er, til
að draga úr honum.
Mál sjómanna og bænda verður svo að athuga sér-
staklega með tilliti til sérstöðu þessara miMlvægu fram-
leiðslustétta.
Fall ríMsstjórnarinnar og þó sérstaMega ósigur Al-
þýðuflokksins stafaði ekki sízt af því, að mál láglauna-
stéttanna höfðu verið vanrækt. Það er sérstök skylda
þeirra, sem urðu sigurvegarar í kosningunum, að stuðla
að leiðréttingu í þessum efnum og láta ekM óeðlileg sér-
sjónarmið varðandi önnur efni, koma í veg fyrir, að
þessi mál sitji í fyrirrúmi.
Lágmarkslaun aldraöa
Meðal þeirra mála, sem næsta Alþingi hlýtur að fjalla
um, er hækkun lágmarkslauna til aldraðra og öryrkja.
Sú breyting var gerð á almannatryggingalögunum á síð-
asta þingi ,að tryggja öldruðu fólM og öryrkjum, sem
ekM hafa aðrar tekjur en bætur almannatrygginga, viss
lágmarkslaun. Sá galli fylgdi hins vegar gjöf Njarðar,
að þessi lágmarkslaun voru ákveðin of lág. Stjómarand-
stöðuflokkarnir stóðu sameiginlega að þeirri tillögu að
hækka þau verulega. Það er nú hlutverk þeirra að koma
því máli fram og tryggja jafnframt þá tekjuöflun,
sem til þess þarf. Önnur, annarleg sjónarmið mega ekM
koma í veg fyrir, að hlutur láglaunafólks, aldraðs fólks
og öryrkja, verði bættur.
En jafnhliða þessu þarf svo að hefja róttæka endur-
skoðun á öllu almannatryggingakerfinu, en þar er víða
þörf mikilla umbóta. Þá þarf að athuga vandlega hvemig
eðlilegast er að afla tekna til tryggingakerfisins. Þ.Þ.
ERLENT YFIRLIT
Joseph Luns - nýr framkvæmda-
stjóri Atlantshafsbandalagsins
Nýjar og breyttar aöstæður gera starf hans vandasamara en áður.
JOSEPH LUNS
ÞVÍ ER spáð um Joseph
Luns, sem verður framkvæmda
stjóri Nato 1. október næst-
komandi, að hann muni hafa
lífgandi áhrif á hið nýja um-
hverfi, en andrúmsloftið í aðal
stöðvum Nato þykir þungt og
vistin þar daufleg. Þessi álykt-
un er m.a. dregin af því, að
Luns hefur reynt að lífga
vinnubrögð hollenzka þingsins,
m.a. með því að flytja ræður
sínar í léttari tón en þar er al-
mennt siður. Luns hefur líka
átt það til að vera ekki allt of
formfastur og er sú saga sögð,
að hann hafi eitt sinn tekið af
sér skóna á flokksfundi og
gleymt að fara í þá og verið
kominn út í anddyrið, þegar
blaðaljósmyndarar veittu þess-
um óvenjulega fótabúnaði hans
athygli. Luns reyndi að bæta
úr þessu með því að dansa fyr-
ir ljósmyndarana! Fleiri slík-
ar sögur eru til um hann og
hafa þíer síður en svo dregið
ur vinsældum hans.
En þótt Lun^ takist að lífga
eitthvað andrúmsloftið hjá
Nato á þennan hátt, verður að
draga það í efa, „ð hann komi
þangað með nýjar hugmyndir.
Hann er búinn að vera lengur
utanríkisráðherra samfleytt en
nokkur Evrópumaður annar
eða síðan 1952. Fyrstu fjögur
árin gegndi hann stöðunni
með öðrum, en einn síðan
1956. 1 skoðunum þykir Luns
yfirleitt íhaldssamur og gildir
það ekki síður um utanríkismál
og innanríkismál.
Luns er allra manna mestur
vexti og er því veitt mikil at-
hygli hvar sem hann fer.
Hann er sagður eini maðurinn,
sem hafi rætt við de Gaulle og
verið nógu hár til að lfta nið-
ur á hann! Annað hefur þó ver
ið fært honum meira til ágætis
í sambandi við de Gaulle, en
það er, að hann hafi hiklaust
í viðræðum við hann, gagnrýnt
stefnu Frakka varðandi aðild
Breta að Efnahagsbandalaginu,
en Luns hefur jafnan verið
ákveðinn fylgismaður þess, að
Bretland fengi inngöngu f
bandalagið.
JOSEPH LUNS er fæddur I
Rotterdam 1911. Faðir hans
var listfræðingur og gegndi
prófessorsembætti í þeirri
fræðigrein. Hann skrifaði all-
margar bækur um listir fyrir
almenning. Luns hefur líka
mikinn áhuga á listum, en
er þó lítill aðdáandi nútíma-
málaralistar. Hann sagði einu
sinni um málverk, sem hann sá
á sýningu í Stokkhólmi, að
svona málverk væri hægt að
búa til á átta mfnútum. Hann
var tekinn á orðinu og lauk
verkinu á sjö mfnútum. Þetta
málverk hans hangir nú í
sænska sendiherrabústaðnum f
Róm.
Luns lauk prófi i lögum við
háskólann í Leyden, en stund-
aði sfðar framhaldsnám í Lon-
don (við London School of
Economics) og í Berlín. Hann
gekk í þjónustu utanríkisráðu-
neytisins 1938 og gegndi m.a.
störfum í Bem, Lissabon og
London. Árið 1949 varð hann
annar aðalfulltrúi Hollands hjá
Sameinuðu þjóðunum og
gegndi því starfi til 1952, er
hann tók við öðru utanríkis-
ráðherraembættinu, en starfi
utanríkisráðherrans var þá tvf-
skipt. Síðan 1956 hefur hann
svo gegnt embættinu einsam-
an.
LUNS hefur unnið sér al-
mennar persónulegar vinsældar
bæði heima og erlendis. Sam-
kvæmt sjónvarpskönnunum
hefur hann lengi verið vinsæl-
asti stjómmálamaður Hollands.
Skoðanir hans hafa þó verið
umdeildar, en hann fer ekki
dult með, að hann er íhalds-
samur á mörgum sviðum og
mikill aðdáandi hinna svo-
nefndu fomu dyggða. Hann er
rammkaþólskur. Róttækustu öfl
in hafa því haft horn í síðu
rans. Fyrir nokkru gaf vinstri-
sinnaður, kristilegur félags-
skapur út smárit um Luns. Það
bar titilinn: „Luns: Hversu
mikilvægur er hann?“ Að titil-
síðunni undanskildri, voru all-
ar síður ritsins auðar.
J Luns h.fur sfðan hann hóf
afskipti af stjórnmálum, verið
í kaþólska flokknum. Sá flokk-
ur beið verulegan ósigur í ný-
loknum þingkosningum og hef-
ur því ný flokkasamsteypa
komið til sögunnar. Hún hefði
ekki orðið sammála um Luns
sem utanríkisráðherra. Luns
hafði séð þetta fyrir og því
verið búinn að sækja fyrir
kosningaraar um framkvæmda
stjórastöðuna hjá Nato. Þar
stóðu honum allar dyr opnar
sökum persónulegra vinsælda,
sem hann hefur unnið sér á al-
þjóðavettvangi og meira er að
þakka alþýðlegri og óformlegri
framgöngu hans en skoðunum.
Á sviði alþjóðlegri mála, hefur
Luns verið fhaldssamur ekki
siður en heima fyrir. Hann hef-
ur t.d. alltaf stutt stefnu
Bandarfkjanna f Vietnam.
Hann hefur verið ófeiminn við
að þiggja orður af afturhalds-
sömum ríkisstjómum.
NATO stendur á mikflvæg-
um vegamótum, þegar Luns
tekur við framkvæmdastjúm-
inni. Viðhorfin eru mjBg að
breytast. Kalda stríðið er úr
sögunni í sinni gömlu mynd.
Þýðingarmiklir samningar
milli austurs og vesturs virðast
framundan. Vísir að einangrun
arstefnu er að myndast f
Bandaríkjunum. Kröfur um sér
stakt vamarbandalag Vestur-
Evró;: j, er ráði yfir kjamorku-
vopnum, hafa talsvert fylgi.
Þótt Luns sé fhaldssamur og
fastheldinn í eðli sínu, bendir
eigi að síður sitthvað til þess,
að hann geti lagað slg að
breyttum aðstæðum. Það mun
hann lfka þurfa að gera, ef hon
um á að takast vel f hinu nýja
starfi, sem nú bíður hans. Þ.Þ.