Tíminn - 20.06.1971, Síða 9

Tíminn - 20.06.1971, Síða 9
SUNNUDAGUR 20. júní 1971 TIMINN 9 Hið tvöfalda fréttamat Þeir, sem fylgjast meS íþrótta fréttum dagblaðanna', hafa veitt athygli hinu tvöfalda frétta- mati, sem jafnan á sér stað, þegar ísland leikur landsleiki í knattspyrnu erlendis. Þannig skýrir franska fréttastofan AFP frá því, að landsleikur Frakk- lands og íslands hafi verið lé- legur — jafnt hjá Frökkum sem íslendingum — en Frakkar hafi þó verið skárri aðilinn. Aftur á móti>er það haft eftir formanni Knattspyrnusambands íslands, að landsleikurinn í París s.l. miðvikudagskvöld hafi verið einn bezti landsleikur íslands fyrr og síðar, þrátt fyrir 1:0 tap. Að sjálfsögðu eiga lesendur blaðanna erfitt með að átta sig á, hvor aðilinn segir satt, því að engir íslenzkir blaðamenn voru viðstaddir leikinn. Hins vegar er vitað, að formaður Knattspymusambandsins er ó- spar á hástemmd lýsingarorð, þegar íslenzka landsliðið er annars vegar, sbr. þegar hann taldi jafnteflisleik íslendinga og Frakka, á Laugardalsvellin- um í síðasta mánuði, góðan, enda þótt flestir aðrir væru ann arrar skoðunar og teldu leik- inn leiðinlegan og einhvern verst leikna af islands hálfu um árabil. Sá, sem þessar línur skrifar, astlar ekki að leggja neinn dóm á það, hvort frásögn frönsku EFLUM OKKAR HEIMABYGGÐ ★ SKIPTUM VIÐ SPARISJÖÐINN SAMBANO ÍSL. SPARISJÓÐA Jón Grétar SigurSsson HéraSsdómslögmaSur SkólavörSustig 12 Simi 18783. 90 MALLORCA Beint þotuflug til Mallorca. Marglr brottfarardagar. Sunna getur boðið yður eftirsóttustu hótelln og nýtfzku íbúðir, vegna mikilla. viðskipta og 14 ára starfs á Mallorca. íERflASKRIFSTOFAN SUNNA SÍIVIflR 1640012070 26505 (f ...... Tf& fréttastofunnar AFP sé trúverð ugari en frásögn formanns Knattspyrnusambandsins um leikinn — og ekki heldur, hvort áhorfendur hafi verið 1151 (samkvæmt frásögn AFP) eða 5 þúsund, eins og skilja mátti á viðtali við formann Knattspymui sambandsins. En þegar svona mikið ber á milli, eiga lesénd- ur blaðanna heimtingu á að vita sannleikann, því að þetta tvö- falda fréttamat er orðið að ó- frávíkjanlegri reglu. íslenzkir fréttamiðlar, sér- staklega dagblöðin, eru ekki það fjársterkir, að þeir hafi efni á að senda íþróttafréttamenn sína erlendis til að fylgjast með landsleikjuni, en til greina kæmi, að þeir sameinuðust um að senda menn utan til skiptis. Fréttamaður Mbl. færi t.d. til Noregs og gæfi öðrum fjölmiðl- um upplýsingar. í næsta skipti færi blaðamaður frá Þjóðvilj- anum og svo koll af kolli. Þann- ig væri tryggt, að jafnan væri einn ísl. blaðamaður á leikjum íslenzka landsliðsins erlendis, og mætti þá treysta því. að lesendur blaðanna fengju ör- uggar fréttir af leikjunuin. Er það verkefni fyrir Samtök íþróttafréttamanna að taka þessa tillögu til athugunar. Að lokum skal þess getið, að víða erlendis, t.d. á Norður- löndum hefur verið rætt um það, að setja sérstakar reglur um fréttaþjónustu frá íþrótta- mótum, sem haldin eru utan heimalands og leggja blátt bann við því, að fararstjórar annist fréttaþjónustu af því tagi, sem getið hefur verið um hér að framan og þarf ekki að taka fram hver ástæðan er. — alf. Leiðrétting Mishermt var í frétt um för Jóhannesar Eðvaldssonar til S- Afríku á íþróttasíðú Tímans í gær, að hann hefði' kbmízt til Höfðaborgar. Þetta er ekki rétt, þar eð Jóþjmnes kfþnst aðeins til Jóhannesborgar og vantaði stimp il frá brezkum aðilum til að fá að halda för sinni áfram til Höfða- borgar, þar sem forráðamenn liðs þess, er bauð honum til sín, biðu árangurslaust eftir honum. Ef Jó- hannes hefði hins vegar komizt beint til Höfðaborgar, hefði hann ekki þurft að snúa við. fm /M m il il W if m W vly m Æ Télía HEYTÆTLUR Vegna einkar hagstæðra samninga sem við gerðum við FELLA verksmiðjurnar, getum við nú boðið 4ra stjörnu heytætlurnar á aðeins kr. 51.^86,00, og hefur verðið aldrei verið betra. FELLA heytætlurnar hafa í hundraðatali verið í notkun hér á landijí áraraðir og þessi langa reynsla hefur sannað ágæti vélanna. í FELL-A vélunum eru engir opnir hjöruliðir. Stjörnuásarnir leika í olíubaði og vinnur vélin því sem næst hljóðlaust. — Vinnslubreidd 3,30 metrar. FELLA heytætlurnar eru fyrirliggjandi. Hagstæðir greiðsluskilmálar. 1 LÁ6MÚLI 5, S1MI815SS NÚ FÁLJM VIÐ LÚÐU, LAX OG SILUNG Góðfiski getum við kallað allan ís- lenzkan fisk, sé hann veiddur á réttum tíma, vel verkaður og fersk- ur, eða rétt geymdur. Vissar fisktegundir þykja þó flest- um öðrum betri. Með þeim viljum við smjör, því þegar reynir á bragð- gæðin, er það smjörið sem gildir. i Draumurinn um soðinn lax með bræddu smjöri ögrar pyngju okkar á hverju sumri, því hvað er annað eins lostæti og nýr lax með íslenzku smjöri? Matgleðin nýtur sín einnig þegar soðinn eða steiktur silungur er á borðum. Og enn er það smjörið sem gildir. Til að steikja silung dugar heldur ekkert nema íslenzkt smjör og séu silungur eða raúð- spretta grilluð, er fiskurinn fyrst smurður vel með íslenzku smjöri og síðan grillaður heill í örfáar mínútur á hvora hlið. Soðin lúða er herramannsmatur. Sjálfsagt er að sjóða fiskinn í eins litlu vatni og hægt er, ef ekki er löguð súpa. Svolítið hvítvín útí vatnið, eða í stað vatns, spillir ekki. Sumir örlátir matmenn segja að fiskar hafi synt nógu lengi í vatni og séu þeir settir í pott, eigi að vera vín í honum, en ekki vatn. En ís- lenzkt smjör má ekki gleyma að bera með, það væri synd. Gott er líka að steikja þy’kkan lúðubita í ofni. Við smyrjum bitann vel með smjöri og pökkum inn i álpappír, en setjum ekkert vatn við. k . fynta flokhidern^ííwjot' ( jop gromn Nú er lúðu-, lax- og silungstíminn og smjörið er á góðu verði. Notfærum okkur gæði Iands og sjávar. Annar eins herramannsmat- ur og þessi býðst ekki víða annars staðar. 1 * » .f / . , v M > I 1 '-—7:-.»

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.