Tíminn - 20.06.1971, Page 4
£etií Cii AjcHúatp
DAUÐASYNDIRNAR SJÖ.
Síðasta leikritið í brezka sjón-
varpsmyndaflokknum Dauðasynd-
irnar sjö var sl. sunnudagskvöld
á dagskrá. Flest hafa leikrit þessi
verið áhugaverð og fjallað á
skemmtilegan liátt um mannlegan
breizkleika. Síðasta leikritið, sem
fjaliaði um girndina var bráð-
skemmtilegt og vel leikið.
SKEMMTILEG DANSKEPPNI.
Sjónvarpið hefur öðru hvoru
sýnt myndir frá erlendum dans-
keppnum og var ein slík á dag-
skrá sl. sunnudagskvöld. Það er
reglulega gaman að horfa á þess-
ar dansmyndir og spennandi að
fylgjast með keppni hinna snjöllu
dansara. Dansflokkarnir, er sýndu,
er lilé varð á keppninni, sýndu
líka sérlega skemmtilega dansa.
KOSNINGASJÓNVARP.
Sjónvarpinu tókst vel upp á
kosninganóttina, og tókst að gera
dagskrána vel úr garði. Beinar
sendingar af talningu, útreikning-
ar og spár, allt þetta tókst vel.
Og inn á milli voru viðtöl við
fólk úr öllum landshlutum, sum-
mjög skemmtileg.
Sjónvarpið lauk svo kosninga-
dagskrá sinni á mánudagskvöldið
með yfirliti um úrslitin og viðtali
við formenn flokkanna, og tókst
sá þáttur einnig vel. Getur sjón-
varpið verið ánægt með frammi-
stöðu sína.
FANGELSISMÁL í ÓLESTRI.
Bjarki Elíasson, yfirlögreglu-
þjónn, sat fyrir svörum 1 þætti,
er Eiður Guðnason stjórnaði á
þriðjudagskvöldið, og var spurð-
ur spjörunum úr. Bjarki svaraði
nokkuð misjafnlega, en áheyrend-
ur voru þó margs fróðari vegna
þess að spyrjendur komu víða við.
Ég býst við, að flestir bafi vit-
að, að fangelsismál okkar íslend-
inga eru í mesta ólestri, en þessl
þáttur minnti okkur enn frekar á
það. Það er ekki beinlínis til íyrir-
myndar að láta afbrotamenn bíða
mánuðum, jafnvel árum saman eft-
ir að fá að afplána sinn dóm vegna
þess, að ekki er til pláss -fyrir þá
í fangelsi. Á þetta jaínt við um
þá, er fremja smávægileg afbrot
og t-d. menn, er fremja kyn ferðis-
afbrot.
Eitt kom fram í þættinum, er
kom mjög á óvart. Ég hafði ailtaf
staðið í þeirri barnalegu trú, að
ef menn „misstu ökuleyfið ævi-
langt“, þá þýddi það það sama og
orðin segðu. En í þessum þætti
komu fram þær upplýsingar. að
þeir menn, er misst hefðu ökuleyfi
sitt ævilangt, gætu bara sótt um
ökuleyfi aftu reftir þrjú ár og
fengju það þá venjulega, ef þeir
Bfndaríski vísnasöngvarinn James Durst mun skemmta tjónvarpsáhorfendum á mánudagskvöid.