Fréttablaðið - 26.10.2002, Síða 16

Fréttablaðið - 26.10.2002, Síða 16
16 26. október 2002 LAUGARDAGURHVERJU MÆLIR ÞÚ MEÐ? BÆKUR Sigurður Hólm Gunnarsson. Blaðamaður. Ég sá kvikmyndina The Salton Sea um dag- inn. Hún er virkilega góð. Meistaraverk. LEIKHÚS Leikbrúðuland, undir stjórn Helgu Steffensen og Ernu Guðmarsdóttur, frumsýnir í dag klukkan 14 ævintýrin Fjöðrina sem varð að fimm hænum og Æv- intýrið um Stein Bollason. „Þetta eru tvö ofboðslega skemmtileg verk,“ segir Helga. „Annars vegar er saga byggð á ævintýrinu Það er alveg áreiðanlegt, eftir H.C. And- ersen, og hins vegar mið-evrópskt ævintýri frá 1903 um hjartagóð hjón sem eru svo sorgmædd af því þau eiga engin börn. Þau fá sjálfan Guð í heimsókn sem býður þeim þrjár óskir. Hjónin óska sér einskis annars en barna og fá hundrað.“ Helga, sem hefur verið með Leikbrúðuland í 30 ár og Brúðu- bílinn í 23 ár segir brúðurnar alltaf höfða jafn sterkt til krakk- anna. „Börn elska brúður og taka heilshugar þátt í sýningunum. Ævintýrin eru sígild og fræðandi í senn og í þessari sýningu erum við til dæmis með heilt brúðu- hænsnabú og risa sem þarf að berjast við dreka. Það er mikið fjör á sviðinu og ævintýrin höfða til barna á öllum aldri,“ segir Helga. Sýningar Leikbrúðulands í Gerðubergi verða 26. og 27. októ- ber og 2. og 3. nóvember. Að þeim sýningum loknum liggur leið Leikbrúðulands til Lúxemborgar og Belgíu, og í framhaldi af því út á landsbyggð- ina á Íslandi þar sem verður sýnt í skólum og samkomuhúsum.  LEIKBRÚÐULAND Gaggandi fjör, því hænur eru í aðal- hlutverki í öðru af tveimur ævintýrum sem Leikbrúðuland frumsýnir um helg- ina. Leikbrúðuland í Gerðubergi: Gaggandi hænur, risi og drekar Heimsendingar og sótt! O p n u n a r t í m i : 1 1 - 0 1 v i r k a d a g a o g 1 1 - 0 6 u m h e l g a r Grensásvegur 12 533 2200 r r Nýt t Ef þau kaupir og sækir pizzu hjá okkur 3svar sinnum færð þú fjórðu pizzuna og möguleika á því að vinna FRÍTT 1x 150.000 kr. ferðavinnig að eigin vali 2x 20.000 kr. gjafabréf hjá Sævari Karli 2x 20.000 kr. gjafabréf hjá Boss Kringlunni 1 2 3 Leikurinn stendur til 15. des. • Gildir aðeins ef sótt er. Sótt Sent 1. 12“ m/3 álegg. 990.- 2. 16“ m/3 álegg. og 1 l. gos 1390.- 3. 18“ m/3 álegg. og 1 l. gos 1590.- 4. 2 fyrir 1 Ef þú kaupir eina pizzu að eigin vali og ostabrauðstangir/hvít- lauksbrauð færðu aðra frítt Gildir EKKI með 3+1 afsláttarkorti 1. 12“ m/3 álegg. og 1 l. gos 1490.- 2. 16“ m/3 álegg. og ostabrauð- stöngum eða 2 l. gos 1900.- 3. m/3 álegg. og ostabrauð- stöngum eða 2 l. gos 2390.- Gildir með 3+1 afsláttarkorti Leikur 3+1 JPV útgáfa hefur gefið út bók-ina Samúel eftir Mikael Torfa- son. Samúel er auðnulaus öryrki, Íslendingur sem býr í Danmörku. Brenglaður hugur hans horfir á heiminn frá þröngum sjónar- hóli, hann er utan- garðsmaður í margs konar skilningi. Hann er haldinn of- sóknaræði og botnlausum rang- hugmyndum um samskipti fólks, ást og kynlíf. Vanmáttur hans á rætur í sjúku sambandi við móð- ur og fjölskyldu. Örvæntingarfull leit Samúels að sjálfum sér, sann- leikanum og guði hrekur hann út á ystu nöf. Mikael Torfason talar enga tæpitungu frekar en venju- lega og gálgahúmor og miskunn- arleysi einkenna þessa sögu sem tekur á þjóðernishyggju, kyn- þáttafordómum og sjálfsmynd út- lendingsins. STJÓRNMÁL Steingrímur J. Sigfús- son, formaður Vinstrihreyfingar- innar græns framboðs, segist hafa litlar áhyggjur af því í hvaða félagsskap hann lendir þegar dregið er um sæti. „Ég hef haft býsna marga sessunauta á öllum þessum þingum sem ég hef setið. Það er gaman að kynnast nýju fólki og með einni til tveimur und- antekningum hef ég alltaf verið í góðum félagsskap. Við skulum bara segja að sumir séu minna skemmtilegir en aðrir, án þess að nefna nein nöfn.“ Steingrímur situr nú á milli sjálfstæðiskonunnar Sigríðar Önnu Þórðardóttur (D) og Kol- brúnar Halldórsdóttur (V) og kann vel við sig. Í fyrra sátu hann og Ögmundur, félagi hans, Jóns- son saman á fremsta bekk. „Ein- hverjir andstæðinga okkar voru óhressir með að hafa okkur þarna við púltið og töldu það hafa áhrif á stemninguna á þingfundum.“ Ög- mundur hefur verið fluttur um set en það væsir ekki um Steingrím þar sem flokksystir þeirra fyllir skarðið. „Það er ósköp notalegt að sitja við hliðina á samherja. Þá getur fólk stungið saman nefjum og ráðið ráðum sínum.“ Ásta Möller (D) á sæti á milli Samfylkingarkvennanna Sigríðar Jóhannesdóttur og Jóhönnu Sig- urðardóttur. Hún kann afskaplega vel við sig í þessum félagsskap og telur sig heppna að fá að vera á aftasta bekk annað árið í röð. „Sætin eru auðvitað misgóð, ekki síst með tilliti til sjónarhorna sjónvarpsmyndavéla og yfirsýnar yfir salinn, sem er til dæmis mjög góð þar sem ég sit.“ Ásta og Jó- hanna eru ágætis vinkonur og hún ber Sigríði einnig vel söguna. „Svo er Ögmundur fyrir framan mig. Við erum miklir vinir og vor- um samherjar í kjarabaráttunni. Þó við séum algerlega sitt á hvor- um pólnum í pólitíkinni gengur okkur mjög vel að vinna saman persónulega.“ Því hefur oft verið haldið fram að í stjórnmálum eignist menn oft betri vini í röðum andstæðing- anna heldur en í eigin flokki. Það skal þó ósagt látið hvort það ráði einhverju um hversu vel Vil- hjálmi Egilssyni (D) líður á milli, Rannveigar Guðmundsdóttur og Kristjáns L. Möller, andstæðinga sinna úr Samfylkingunni. „Þetta eru ágætis vinir mínir og við höf- um það fínt“, segir Vilhjálmur sem hafði litlar áhyggjur af því hvar hann myndi bera niður í þingsalnum áður en drátturinn fór fram. thorarinn@frettabladid.is PÉTUR OTTESEN Sagan segir að hann hafi alltaf strunsað í sitt gamla sæti og ekki farið eftir sæta- drættinum. Enginn abbaðist upp á hann fyrir það. Fleiri dæmi um þetta þekkjast ekki en rétt er að hafa í huga að reglum um sætaskipan var ekki fylgt út í hörgul á árum áður. Þverpólitísk sætaskipan Ólíkt skólabörnum fá alþingismenn ekki að velja sér sessunauta þegar þeir koma úr sumar- fríi. Örlögin ráða því hverjir sitja saman og ætla má að oft sitji ósáttir þröngt saman enda má ekki skiptast á sætum. ÁSTA MÖLLER OG JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR Ásta segist mjög ánægð með sessunautinn. „Það fer vel á með okkur og við erum ljóm- andi góðar vinkonur. Við höfum verið mikið saman í erlendu samstarfi og farið víða sam- an. Jóhanna er sterk persóna og það er mjög gaman að hafa kynnst henni.“ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI LEIKHÚS 14.00 Jón Oddur og Jón Bjarni eru sýndir á Stóra sviði Þjóðleikhúss- ins. 14.00 Karíus og Baktus eru sýndir á Litla sviði Þjóðleikhússins. 14.00 Benedikt Búálfur er sýndur í Loftkastalanum. Laus sæti. 14.00 Heiðarsnældan er sýn í Mögu- leikhúsinu. 14.00 Kardemommubærinn er sýndur hjá Leikfélagi Hveragerðis. 14.00 Hunk! Ljóti andarunginn er sýndur á stóra sviði Borgarleik- hússins. 20.00 Veislan er sýnd á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. 20.00 Sölumaður deyr er sýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins. 20.00 And Björk of course er sýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins. 20.00 Sellófon er sýnt í Hafnarfjarðar- leikhúsinu. Uppselt. 21.00 Beyglur með öllu sýna í Iðnó. Uppselt. 21.00 Kvetch er sýnt hjá Leikhópnum Á senunni í Vesturporti. SÝNINGAR Kakklamyndir hughrif úr íslenskri nátt- úru nefnist sýning sem Bjarni Sigurðs- son heldur í Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14-16. Sýningin stendur til 4. nóvember. Marisa Navarro Arason sýnir ljósmynd- ir í Ljósfold, Gallerí Fold, Rauðarárstíg. Sýninguna nefnir hún Quo Vadis? Sýn- ingunni lýkur 4. nóvember. Listmálarinn Steinn Sigurðsson sýnir á Kaffi Sólon. Sýningin er opin á opnun- artíma Sólon og stendur til 8. nóvember. Jóhanna Ólafsdóttir og Spiros Misokil- is sýna ljósmyndir sínar á Kaffi Mokka. Sýningin heitir „Orbital Reflections“. Allir eru velkomnir. Sýning á verkum fjögurra eistneskra listamanna stendur í Hafnarborg, menn- ingar- og listastofnun Hafnarfjarðar. Þeir eru Jüri Ojaver, Paul Rodgers, Jaan Toomik og Jaan Paavle. SUNNUDAGURINN 27. OKTÓBER

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.