Fréttablaðið - 01.11.2002, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 01.11.2002, Blaðsíða 4
4 1. nóvember 2002 FÖSTUDAGUR INNELNT LÖGREGLUFRÉTTIR JERÚSALEM, AP Ariel Sharon, forsæt- isráðherra Ísraels, ætlar ekki að boða til kosninga þrátt fyrir að Verkamannaflokkurinn hafi slitið stjórnarsamstarfi við Likud á mið- vikudaginn. Þess í stað ætlar Shar- on að reyna að mynda nýja stjórn með litlu flokkunum lengst til hægri á Ísraelsþingi. „Nú fær Sharon að komast að því hvernig helvíti samsteypu- stjórna lítur út, með öllum þeim kröfum, fjárkúgunum og hótunum sem fylgja þeim,“ sagði dálkahöf- undur í ísraelska dagblaðinu Yediot Ahronot. Án Verkamannaflokksins hefur Sharon einungis stuðning 55 þing- manna af 120. Til þess að ná meiri- hluta á þinginu þarf Sharon því að reiða sig á stuðning flokka þjóðern- issinna og strangtrúargyðinga. Þetta eru flokkar, sem eru alger- lega á móti öllum samningaviðræð- um við Palestínumenn og vilja inn- lima herteknu svæðin á Vestur- bakkanum og Gazaströnd. Stjórnin féll vegna þess að Verkamannaflokkurinn studdi ekki fjárlagafrumvarp Sharons, þar sem gert var ráð fyrir verulegri hækk- un fjárframlaga til ólöglegra land- nemabyggða á herteknu svæðun- um. Fjárlagafrumvarpið var engu að síður samþykkt með stuðningi annarra flokka.  Sharon reynir að mynda nýja stjórn: „Fær að kynnast helvíti“ ARIEL SHARON Á ÞINGI Forsætisráðherra Ísraels þarf nú að reiða sig á stuðning hægri flokkanna. Kanadabúar fæddir í Mið-Austurlöndum: Hvattir til að ferðast ekki til Banda- ríkjanna STRÍÐ GEGN HRYÐJUVERKUM Yfirvöld í Kanada hafa hvatt borgara sína til að hugsa sig tvisvar um áður en þeir ákveði að ferðast til Bandaríkjanna. Vegna hertrar ör- yggisgæslu við bandarísku landa- mærin eru allir þeir Kanadabúar sem fæddir eru í Mið-Austurlönd- um ljósmyndaðir auk þess sem tekin eru af þeim fingraför áður en þeim er hleypt inn í landið. Skiptir þá engu máli hvort þeir eru orðnir kanadískir ríkisborg- arar. Á kanadíska þinginu í fyrradag sökuðu þingmenn bandarísk yfir- völd um að leggja kanadíska araba í einelti. Einn þingmaður, sem fæddur er í Sýrlandi, sagði að reglur Bandaríkjamanna gerðu hann að annars flokks Kanadabúa. Samkvæmt nýju landamæra- reglunum, sem teknar voru í gildi í kjölfar hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin, eru allir þeir sem fæddir eru í Íran, Írak, Líbýu, Súdan eða Sýrlandi undir smásjá bandarískra landamæravarða.  BÍLVELTA Í KÓPAVOGI Bílvelta varð á Fífuhvammsvegi í gær- morgun. Lögregla segir að mikil hálka hafi verið. Ökumaður var fluttur á slysadeild en reyndist meiðsl hans lítilsháttar. Bíllinn er mikið skemmdur. SAGAÐI Í HÖNDINA Á SÉR Maður slasaðist talsvert þegar honum varð á að saga í höndina á sér. Slysið varð við nýbyggingu við Fellakot á Vatnsendahæð í gær- morgun. ÁRSFUNDUR „Húsnæðismál hjá stórum hópum í samfélaginu eru í sjálfheldu. Ákvörðun um að draga verulega úr niðurgreiðslu vaxta í félaglega kerfinu bitnar á þeim sem síst skyldi. Þeim breytingum sem gerðar hafa verið á síðustu árum hefur ekki fylgt nauðsynleg fjölgun félagslegra leiguíbúða og það sem skiptir ekki minna máli, að gera lágtekjufólki kleyft að búa í slíku húsnæði,“ sagði Grétar Þorsteinsson forseti Alþýðusam- bands Íslands við setningu annars ársfundar ASÍ í gær. Grétar gerði húsaleigu að um- talsefni og duldist engum að hann beindi orðum sínum til borgaryf- irvalda, sem nýlega samþykktu að hækka leigu á félagslegum íbúð- um um 12%. „Ef menn vilja af alvöru takast á við þetta vandamál, þá verður leigan að vera viðráðanleg fyrir þetta fólk. Húsaleigubætur duga þar ekki til, nema þær verði hækkaðar verulega,“ sagði Grétar Þorsteinsson.  Forseti ASÍ: Húsnæðismál hjá stór- um hópum í sjálfheldu GRÉTAR ÞORSTEINSSON Sagði húsnæðismál í ólestri og leigu í fé- lagslega kerfinu óviðráðanlega fyrir lág- tekjufólk. LÖGREGLAN Nýtt ákvæði í hegningarlögunum veitir vit- num aukna vernd. Ofbeldi tengt fíkniefna- viðskiptum: Lögregla hvetur fólk til að kæra FÍKNIEFNI Lögreglan hvetur fólk til að kæra sæti það ofbeldi. Þetta á ekki síst við um mál sem tengjast fíkninefnanotkun. Rætt hefur verið um líkamlegt ofbeldi og hótanir um ofbeldi. Lögreglan hefur fylgst með um- ræðunni og ítrekar að þeir ein- staklingar sem verði fyrir árásum og hótunum leiti til lögreglu og leggi fram kæru. Árið 2000 var nýtt ákvæði sett inn í hegningarlögin sem m.a. sé ætlað að veita vitnum aukna vernd. Heimild er fyrir því að dæma einstaklinga í allt að sex mánaða fangelsi eða sekt beiti þeir annan mann eða nánum vandamanni hans líkamlegu of- beldi eða hótar ofbeldi vegna skýrslugjafar hjá lögreglu eða fyrir dómi.  HEPPUSKÓLI Of lítið sund. Sundkennsla á Höfn: Kynskipti brýn SUNDKENNSLA Nemendur í áttunda bekk í Heppuskóla á Höfn í Hornafirði fá ekki þá sund- kennslu sem þeim ber samkvæmt reglugerð um sundnám í grunn- skólum. Þetta kom fram á fundi hjá skólanefnd Hornafjarðar sem haldin var á dögunum. Í máli skólastjóra Heppuskóla á fundin- um kom fram að skólinn fengi ein- faldlega ekki nægan tíma í sund- lauginni á Höfn. Margir skólar nýta sundlaugina fyrir nemendur sína og er laugin fyrir bragðið of- setin. Á fundi skólanefndar var einnig rætt um mikilvægi þess að kynskipta í sundtímum grunn- skólabarnanna en það er með öllu ógerlegt miðað við núverandi að- stæður. Skólanefndin hyggst leita lausnar á málinu.  FLÓTTAMAÐUR Hungurverkfall Rúmenans Pál Sándor hefur nú staðið yfir í þrjátíu og einn dag. Læknisskoðun í fyrradag leiddi í ljós að hann væri kominn með hættuleg einkenni og vilja læknar að hann verði lagður inn á sjúkrahús. Þórir Guðmunds- son, hjá Rauða krossi Íslands, seg- ist hafa verulegar áhyggjur af líðan hans. Sándor neiti að láta leggja sig inn og vilji ekki þiggja læknisaðstoð. Umræður eru hafnar við dómsmálaráðu- neytið um hvað gera skuli neiti Sándor að nærast. Einn möguleiki er að neyða hann til sjúkra- hússvistar. Pál Sándor kom til Íslands 23. ágúst og leitaði hælis sem flótta- maður. Fréttablaðið hitti Sándor í fyrradag og var mjög dregið af honum. Hreyfingar voru hægar og hann var fölur. Sándor er 36 ára en lítur út fyrir að vera mun eldri. Í máli hans kom fram að hann er tilbúinn að deyja. Hann segir Ísland vera síðasta við- komustaðinn sinn. „Tólf ár sem landflóttamaður er hverjum manni nóg.“ Hann segist ekki geta sofið og sé bæði þunglyndur og áhyggjufullur. Útlendingaeftirlitið segir að tekin verði skýrsla af Sándor í dag. Að sögn Georgs Lárussonar forstjóra Útlendingaeftirlitsins verður tekin ákvörðun hvort mál- ið teljist hæft til úrskurðar eða hvort þörf sé á frekari upplýs- ingaöflun og rannsókn. Georg segir hungurverkfall Sándor ótímabært þar sem engin niður- staða sé fyrirliggjandi. Þegar Sándor kom hingað hafði hann ekki meðferðis vegabréf. Hann segir rúmensk yfirvöld hafa tekið þau af sér á sínum tíma til að koma í veg fyrir að hann færi frá landi. Ný lög kveði á um að hver sem fari úr landi ólöglega eigi yfir höfði sér fangelsisvist. Hann seg- ist ekki geta farið til baka. „Ég hef upplifað hvernig er að láta koma fram við mig sem manneskju. Ég er að deyja en mér er orðið sama. Ég er búinn að gefast upp,“ segir Sándor. kolbrun@frettabladid.is Ég er að deyja en mér er sama Rúmeninn Pál Sándor hefur verið í hungurverkfalli í þrjátíu og einn dag. Læknisskoðun hefur leitt í ljós að hann er komin með hættuleg einkenni. Sándor neitar að leggjast inn á sjúkrahús og segist tilbúinn að deyja. PÁL SÁNDOR Sándor segist hafa orðið fyrir miklum ofsóknum í heimalandi sínu. Þá hafi hann þurft að sæta pyndingum eftir að hafa reynt að flýja land. Tólf sinnum reyndi hann að flýja en mis- tókst. Hann segist alsettur örum eftir barsmíðar. Árið 1990 fór hann fyrir fullt og allt og skildi við sig eiginkonu og tvö börn. Georg segir hungurverkfall Sándor ótíma- bært þar sem engin niður- staða sé fyrir- liggjandi. BENSÍN LÆKKAR Olíufélagið hef- ur ákveðið að lækka lítrann af bensíni í dag um 50 aura, en verð á öðrum olítegundum breytist ekki. Í ljósi þróunar á heimsmark- aðsverði sl. daga eru væntingar um lækkun á heimsmarkaðsverði á gas- og svartolíu og þess vegna hefur Olíufélagið ákveðið að brey- ta ekki verði á þeim tegundum, þó ástæða væri til, segir í fréttatil- kynningu. RJÚPNAVEIÐI ÓHEIMIL? Nokkur óvissa virðist ríkja um það hvort rjúpnaveiði eða önnur skotveiði er heimil á jörðum í eigu Ísa- fjarðarbæjar. Bærinn hefur ekki auglýst bann við skotveiðum á þessum jörðum en hefur heldur ekki lagt þær til afrétta. bb.is KJÖRKASSINN Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is Hefurðu áhyggjur af því að stétt heimilislækna þurrkist út? Spurning dagsins í dag: Á að herða eftirlit með fasteignasölum? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 66% 34%Já ENGAR ÁHYGGJUR Næstum 70% gesta á frett.is hafa engar áhyggjur af því að stétt heimilis- lækna þurrkist út. Nei FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.