Fréttablaðið - 04.11.2002, Page 24

Fréttablaðið - 04.11.2002, Page 24
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 af allri innimálningu frá Jötun. 20-40% afsláttur ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H U S 19 16 9 1 0/ 20 02 Málningardagar Jotaproff 10 ltr Lita, mála, lakka... aðeins 4.190 kr. Um sérfræði- þjónustu Bakþankar Þráins Bertelssonar FR JÁ LS IF JÁ R FE ST IN GA RBANKINN 1982–2002 ára Frjálsi fjárfestingarbankinn, Sóltúni 26, sími 540 5000, www.frjalsi.is Frjálsi fjárfestingarbankinn hefur á annað ár boðið hagstæðustu bílalánin. Í tilefni af 20 ára afmæli bankans gerum við nú enn betur og bjóðum bílalán án lántökugjalds, fram að næstu áramótum. Algengasta lántökugjaldið er 3% af lánsupphæð. Miðað við milljón króna lán eru það því 30.000 kr. sem þú losnar við að greiða í aukakostnað. A B X / S ÍA Hagstæðasta bílalánið og ekkert lántökugjald til áramóta Það er mikill lúxus að getaskroppið beint til geðlæknis á kostnað ríkisins ef maður á bágt með svefn og þurfa ekki að vera að bögga heimilislækninn með ein- hverju væli. Geðlæknirinn spyr hvort maður hafi átt ólukkulega æsku og lent í miklu einelti. Og auð- vitað harðneitar maður í fyrstunni að viðurkenna fyrir bláókunnugum manni að maður hafi verið mesti nördinn í bekknum svo að aumingja maðurinn sér að þarna er komið mjög snúið tilfelli og ráðleggur manni að koma í heils árs viðtals- meðferð tvisvar í viku. SVO spjallar maður um heima og geima við geðlækninn í sex mánuði eða svo og segir honum frá því þeg- ar maður rak fiskifluguna í gegn með títuprjóni og síðan þá hafi mann oftlega dreymt að herskarar af hefnigjörnum fiskiflugum á stærð við folöld sæki að manni í svefni. „Já, í svefni, vel að merkja,“ segir geðlæknirinn. „Er farið að ganga betur með svefninn. Hmm?“ OG þá segir maður að maður hafi sofið vært eins og barn síðustu þrjá mánuði og læknirinn verður glaður í bragði og segir: „Já, ég sagði þér að þessi viðtalsmeðferð mundi svín- virka jafnvel þótt þú sért óvenjulega komplexeraður. Nú þurfum við bara að halda áfram að hittast í sex mán- uði í viðbót til að tryggja varanlegan bata. En segðu mér,“ segir hann. „Hvenær nákvæmlega fórstu að geta sofið betur?“ OG maður reynir að rifja það upp. „Ég held að það hafi verið eftir að við töluðum um fyrstu kynlífsreynsl- una og áður en við fórum að kafa verulega djúpt ofan í samband mitt við kanarífuglinn sem fékk krabba- mein og dó úr óbeinum reykingum á heimilinu.“ „Jahá,“ segir hann og punktar eitthvað niður á blað hjá sér. „Trúlega öfugur transferens.“ „Já,“ segir maður samvinnuþýður að vanda. „Ég man ekki alveg upp á hár hvað við höfðum verið að tala um en allavega fór ég aftur að geta sofið um leið og vinnufélagi minn var bú- inn að benda mér á að fara í fót- snyrtingu. Það er alveg ótrúlegt hvað inngróin tánögl getur haldið fyrir manni vöku. En það er verst hvað þetta kostar. Það er mun ódýr- ara að tala við sprenglærðan geð- lækni um sálarlífið heldur en láta raspa á sér hófana.“ 

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.