Fréttablaðið - 02.04.2003, Síða 12
12 2. mars 2004 ÞRIÐJUDAGUR
REYNT AÐ NÁ MYNDUM
Fjölmiðlamenn gengu hart fram í að ná
myndum og fréttum af réttarhöldunum í
gær. Einn kvikmyndatökumaður sjónvarps-
stöðvar fór niður á hnén og reyndi að ná
myndum undir girðingu af bílnum sem
flutti sakborningana í réttarsal.
Réttarhöld yfir Marc Dutroux og félögum hafin:
Átta ára bið á enda
BELGÍA, AP Réttarhöldin yfir Marc
Dutroux og þremur samverka-
mönnum hans hófust í gær. Fólk-
ið er ákært fyrir að ræna sex
stúlkum, misþyrma þeim og
beita þær kynferðislegu ofbeldi
auk þess að hafa valdið dauða
fjögurra stúlknanna.
Dutroux er kærður fyrir að
ræna og nauðga stúlkunum sex
og myrða fjórar þeirra. Hann er
líka kærður fyrir morðið á
fjórða samverkamanni sínum,
Bernard Weinstein. Fyrrverandi
eiginkona hans, Michelle Mart-
in, er kærð fyrir að taka þátt í
ránunum. Michel Lelievre er
ákærður fyrir nokkur mannrán
og nauðganir. Michel Nihoul er
kærður fyrir ránið á Laetitia
Delhez.
Í gær var valið í kviðdóm, úr
hópi 180 einstaklinga sem voru
kvaddir á staðinn. Í dag lesa sak-
sóknarar upp ákæruliðina gagn-
vart fjórmenningunum og búist
er við því að sakborningar lýsi
yfir sekt eða sakleysi á morgun.
Um 500 vitni koma fyrir rétt-
inn meðan á réttarhöldunum
stendur, þeirra á meðal Sabine
Dardenne sem var frelsuð eftir
tæpa þrjá mánuði í kjallara
Dutroux. Áætlað er að réttar-
höldunum ljúki ekki fyrr en 20.
maí. ■
Miskunnarlausir glæpamenn
og rannsókn sem klúðraðist
Ekkert sakamál hefur valdið jafn miklu uppnámi í Belgíu og rán og nauðganir á sex stúlkum og
morðin á tveimur þeirra. Misheppnuð lögreglurannsókn og grunsemdir um víðfeðmt samsæri
grófu undan trú almennings á löggæslu- og réttarkerfinu.
Klisjurnar eiga allar við. Rétt-arhöldin hafa verið nefnd
réttarhöld aldarinnar þó þau séu
nýbyrjuð. Helsti sakborningurinn
hefur verið kallaður skrímslið frá
Charleroi og óvinur þjóðarinnar.
Glæpirnir voru viðurstyggileg
grimmdarverk gegn börnum og
rannsókn lögreglu
á þeim meingölluð.
Þess utan hefur
stóran hluta bel-
gísku þjóðarinnar
alltaf grunað að
enn meira samsæri
væri á bak við
glæpina, samsæri
sem teygði sig alla
leið upp eftir
stjórnkerfinu.
Ekkert sakamál hefur valdið
meiri óróa í Belgíu en ránin á sex
stúlkum á aldrinum átta til nítján
ára, kynferðisleg misnotkunin á
þeim, morðin á tveimur þeirra og
andlát tveggja sem sultu í kjallar-
anum hjá Marc Dutroux eftir að
lögregla handtók hann vegna
rannsóknar á öðrum afbrotum
hans.
Á skilorði fyrir
fimm nauðganir
Atvinnulausi rafvirkinn Marc
Dutroux átti að baki langan af-
brotaferil þegar hann varð mið-
punkturinn í barnaníðingsmáli
sem skók belgísku þjóðina og
vakti óhug langt út fyrir landa-
mærin. Á níunda áratugnum var
hann dæmdur til fangelsisvistar
fyrir fimm nauðganir. Árið 1992,
þegar hann hafði afplánað hluta
refsingar sinnar, fékk hann
reynslulausn og hafði ekki lokið
henni þegar glæpirnir áttu sér
stað.
Stúlkunum sex var rænt á um
það bil eins árs tímabili, þeim
fyrstu sumarið 1995, þeirri síð-
ustu í ágúst 1996. Í millitíðinni
hafði lögregla gert húsleit á heim-
ili Dutroux, eftir ábendingu frá
móður hans. Þá töldu lögreglu-
menn sig heyra hljóð í stúlku eða
stúlkum en fundu ekkert. Stúlkun-
um hélt Dutroux í vel földum
kjallara. Það var ekki fyrr en fá-
einum dögum eftir að síðustu
stúlkunni var rænt sem Dutroux
var handtekinn og vísaði lögreglu
á kjallarann. Þar voru tvær stúlk-
ur á lífi, önnur sem hafði verið í
haldi og sætt kynferðislegu of-
beldi í 80 daga. Hinar fjórar voru
látnar, tveimur voru gefin inn lyf
og þær grafnar lifandi að talið er
og tvær sultu í hel meðan Dutroux
afplánaði dóm fyrir bílaþjófnað.
Lögregla klúðrar
rannsókninni
Glæpirnar, sem Dutroux og
samverkafólk hans, eiginkona
hans Michelle Martin, Michel
Lelievre og lögmaðurinn Michel
Nihoul, frömdu, vöktu óhug. Það
gerði einnig mislukkuð rannsókn
lögreglunnar sem þykir hafa
brugðist í málinu. Þingnefnd, sem
rannsakaði þátt lögreglunnar,
komst að því að samkeppni og
ósætti á milli lögregludeilda hefði
hamlað rannsókninni. Þær hefðu
ekki skipst á upplýsingum sem
hefðu getað leitt til þess að komist
hefði upp um sakborninga fyrr en
raun bar vitni.
Almenningur krafðist umbóta.
Fjölmargar kröfugöngur voru farn-
ar og er talið að um 300.000 manns
hafi tekið þátt í þeirri fjölmennustu.
Ríkisstjórn Belgíu var við það að
falla og Albert konungur óskaði eft-
ir því á opinberum vettvangi að lög-
gæslu- og réttarkerfið yrði bætt.
Skipulagi lögreglunnar var gjör-
breytt í kjölfar málsins.
Slapp úr varðhaldi
Þrátt fyrir að Dutroux og fé-
lagar hafi verið handteknir fyrir
átta árum var málinu engan veg-
inn lokið. Í apríl 1998 var Dutroux
fluttur fyrir dómara í Neu-
fchateau. Þar hrifsaði hann byssu
af einum fangavarða sinna og
lagði á flótta. Stal bíl og hélt í átt
að landamærunum að Lúxem-
borg. Þar fannst hann og var
handtekinn.
Belgíska stjórnin riðaði næst-
um til falls vegna flótta þessa
hataðasta glæpamanns Belgíu.
Dómsmálaráðherrann og innan-
ríkisráðherrann sögðu báðir af
sér og það gerði yfirmaður lög-
reglunnar líka. Afsagnar forsæt-
isráðherrans var krafist en henni
hafnað. Dagar ríkisstjórnarinnar
voru þó taldir og hún rúin trausti.
Ný stjórn tók síðan við völdum
eftir kosningar næsta ár. ■
Nær þriggja mánaða martröð rifjuð upp:
Sagðist vera
góði maðurinn
ÞÉTTSETINN RÉTTARSALUR
Lögreglumenn gæta sakborninga sem sitja fyrir aftan skotheldar rúður. Fjöldi lögmanna
kemur að málinu, verjendur sakborninga, saksóknarar og lögmenn fórnarlambanna og
aðstandenda þeirra.
TVEIR SAKBORNINGA
Michel Nihoul til vinstri og Michel Leli-
evre var vel gætt í dómsalnum.
Marc Dutroux:
NIHOUL VAR
HÖFUÐPAURINN
BELGÍA, AP Marc Dutroux sagði í bréfi
til VTM sjónvarpsstöðvarinnar í fyrrakvöld
að hann væri hluti af glæpasamtökum
sem breiddu anga sína inn í belgísku
lögregluna. Hann sagði Michel Nihoul,
lögmann frá Brussel og einn sakborn-
inga, vera höfuðpaurinn í samtökunum.
Ummæli hans eru vatn á myllu þeirra
sem telja að málið sé mun umfangs-
meira en þó hefur komið í ljós; þeirra
sem telja að samsæri, sem teygði sig inn
í stjórnkerfi og lagakerfi Belgíu, hafa
valdið því að fjórmenningarnir fengu að
ganga lausir jafn lengi og reyndin varð.
Lögregla segir þessar samsæriskenningar
hafa valdið því að rannsóknin tæki svo
langan tíma. Þurft hafi að rannsaka ásak-
anir og fylgja grunsemdum sem síðan
hafi ekki reynst fótur fyrir. ■
FORELDRAR AN MARCHAL
Móðir einnar stúlkunnar sem var
myrt grét í réttarsalnum. Hjónin hafa
gagnrýnt harkalega hversu lengi
málsóknin hefur tafist.
ATBURÐARÁSIN
1992
Dutroux sleppt úr fangelsi eftir að
hafa afplánað þrjú ár af þrettán ára
dómi fyrir að nauðga fjórum ungum
konum og einni stúlku undir lögaldri.
Sumar 1995
Átta ára vinkonum, Julie Lejeune og
Melissa Russo, og An Marchal, sautján
ára, og Eefje Lambrecks, nítján ára, er
rænt. Mánaðarlöng leit ber engan ár-
angur.
Desember 1995
Lögregla gerir húsleit hjá Dutroux eftir
ábendingu móður hans. Heyra hljóð
en finna stúlkurnar ekki.
Maí 1996
Sabine Dardenne, tólf ára, hverfur.
Ágúst 1996
Laetitia Delhez, fjórtán ára, hverfur.
13. ágúst 1996
Dutroux handtekinn eftir ábendingu.
Sabine og Laetitia finnast á lífi í kjall-
ara hans tveimur dögum síðar. Lík
Julie, Melissu, An og Eefje finnast graf-
in í garði hans nokkru síðar.
20. október 1996
Hápunktur mótmæla almennings þeg-
ar 300.000 taka þátt í kröfugöngu um
bætta löggæslu.
23. apríl 1998
Dutroux sleppur úr varðhaldi í dóms-
húsi. Næst fjórum stundum síðar en
tveir ráðherrar og yfirmaður lögregl-
unnar segja af sér vegna þessa.
1. mars 2004
Réttarhöld hefjast í málinu.
■
Hinar fjórar
voru látnar,
tveimur voru
gefin inn lyf og
þær grafnar lif-
andi að talið er,
tvær sultu í hel
meðan Dutroux
afplánaði dóm
fyrir bílaþjófn-
að.
Fréttaskýring
BRYNJÓLFUR ÞÓR
GUÐMUNDSSON
■ skrifar um barnaníðingsmál sem olli
óhug meðal Belga og gróf undan tiltrú
þeirra á réttarkerfinu.
Sabine Dardenne var tólf áraþegar Marc Dutroux og
samverkamaður hans, Michel
Lelievre, rændu henni þar sem
hún var að hjóla í skólann í maí
1996. Þar með upphófst nærri
þriggja mánaða raun hennar
þar sem henni var haldið
læstri í kjallara, nauðgað og
misþyrmt sálarlega. Mörgum
árum síðar, þegar Dutroux
hafði enn ekki verið dreginn
fyrir dóm vegna málsins, rifj-
aði hún málið upp fyrir
belgíska fjölmiðla.
„Hann sagðist vera að bjarga
lífi mínu, hann væri góði mað-
urinn sem væri að vernda mig
gegn þeim sem vildu skaða mig
og hefðu krafið foreldra mína
um peninga,“ sagði Sabine um
Dutroux, eina manninn sem hún
sá í einangrun sinni, þar til önn-
ur stúlka bættist í hópinn síð-
ustu dagana.
Dutroux sagðist vera í sam-
bandi við foreldra hennar og
fékk hana til að skrifa bréf til
þeirra. Þau póstlagði hann
aldrei heldur las þau sjálfur
og notaði upplýsingar úr þeim
til að hafa stjórn á Sabine.
Í einveru sinni bjó Sabine
til dagatal. Hún setti hringi
utan um frídaga móður sinnar,
krossa við dagana þegar hún
hitti Dutroux og stjörnur fyrir
„önnur atvik“ sem lögmaður
hennar segir vera þá daga
þegar henni var nauðgað. ■
MARC DUTROUX
Þekktasti barnaníðingur heims fluttur á
milli staða í skotheldu vesti.
DUTROUX GRÚFIR SIG YFIR BORÐIÐ
Marc Dutroux lá löngum stundum fram á borðið með andlitið falið í höndum sér meðan
verið var að ræða við hugsanlega kviðdómendur. Dómarinn sá ástæðu til að vara einn
verjenda Dutroux við því að sakborningurinn kynni að sofna.
AP
/T
EI
KN
IN
G
FÓRNARLAMBA MINNST
Víða í Belgíu hafa verið sett upp vegg-
spjöld með myndum af þeim fjórum stúlk-
um sem létust í höndunum á barna-
níðingunum.