Fréttablaðið - 01.10.2003, Page 12
12 1. október 2003 MIÐVIKUDAGUR
RÁÐHERRA MEÐAL
MUNAÐARLEYSINGJA
Nicole Ameline, jafnréttisráðherra Frakk-
lands, hélt í tveggja daga ferðalag til
Afganistan. Hún hvatti til aukinnar áherslu
á menntun stúlkna og fundaði með
nokkrum samtökum kvenna.
Met sett í fjáröflun fyrir bandarísku forsetakosningarnar:
Sex milljarðar í sjóðina
Átök um lífshlaup
Halldórs Laxness
BÓKMENNTIR Spenna ríkir á milli
fjölskyldu Nóbelsskáldsins Hall-
dórs Laxness og forsætisráðu-
neytisins eftir að spurðist út að
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
prófessor væri að rita ævisögu
skáldsins. Hannes Hólmsteinn
hafði látið spyrjast út að sögu
hans væri ætlað að sýna skáldið í
réttu ljósi og að ekkert yrði dreg-
ið undan í þeim efnum. Auði Lax-
ness, ekkju Halldórs, og börnum
hans mun hafa runnið kalt vatn
milli skinns og hörunds þegar
Hannes Hólmsteinn hófst handa
við verkið og talið af fyrri reynslu
að ætlan prófessorsins væri frem-
ur að sverta minningu Laxness en
að varpa raunverulegu ljósi á
þann mann sem hafði hvað mest
áhrif á íslenska þjóðarsál á síð-
ustu öld. Vitað er að Hannes
Hólmsteinn hefur stjórnmála-
skoðanir sem eru lengst til hægri
og hann hefur lengi haft áhuga á
þeim hluta fortíðar Halldórs Lax-
ness þegar skáldið var sannfærð-
ur kommúnisti og í samskiptum
við Sovétríkin sálugu. Þá hefur
spurst út að Hannes Hólmsteinn
vilji gera kvennamálum skáldsins
skil og hann er sagður hafa sögur
í handraðanum í þeim efnum.
Í munkaklaustur
Hannes Hólmsteinn hefur tek-
ið rannsóknir sínar á þjóðskáldinu
alvarlega og leitast við að feta í
fótspor hans. Meðal annars hefur
hann heimsótt klaustrið í
Clervaux þar sem Halldór dvaldi
á meðal munka. Hannes Hólm-
steinn dvaldi nú síðsumars í sama
klaustri og svaf þar í sama her-
bergi og Laxness forðum. Áður en
hann lagði upp í för sína til dvalar
hjá munkunum í Clervaux hringdi
Hannes Hólmsteinn í Auði Lax-
ness, ekkju Halldórs, til að óska
eftir samstarfi við hana um ritun
bókarinnar. Auður sagði Hannesi í
því samtali að hún teldi nægjan-
legt að einn ævisagnaritari, Hall-
dór Guðmundsson, fyrrum út-
gáfustjóri Eddu útgáfu, ynni að
skráningu á sögu eiginmanns síns.
„Þetta leggst ekkert vel í mig því
mér finnst hann vera dálítill
flumbrari stundum. Maður veit
ekkert hvað kemur frá honum og
hann er strax farinn að tala um að
hann sé ekki eins góður og allir
halda, hvað sem það þýðir,“ sagði
Auður við Fréttablaðið í endaðan
ágúst. Hún taldi að yfirlýsingar
Hannesar Hólmsteins um að bók
hans um Halldór innihaldi ein-
hverjar sprengjur boði ekki gott.
Þarna sé Hannes Hólmsteinn að
búa til söluvöru úr lífshlaupi Hall-
dórs.
Gljúfrasteinn seldur
Auður Laxness seldi ríkinu
Gljúfrastein í apríl 2002 fyrir 35
milljónir króna. Samninga um
kaupin undirritaði Davíð Oddsson
forsætisráðherra. Ákveðið var að í
húsinu yrði safn til minningar um
Nóbelsskáldið og allt innbú húss-
ins og bókasafn fylgdi með í kaup-
unum. Í upphafi var samstarf fjöl-
skyldu Halldórs og forsætisráðu-
neytisins friðsælt. Sett var stjórn
yfir væntanlegt safn. Þórarinn
Eldjárn var skipaður formaður og
Halldór Þorgeirsson, kvikmynda-
framleiðandi og tengdasonur
skáldsins, var skipaður í stjórn
Minningarsafns um Halldór Lax-
ness, fyrir hönd fjölskyldunnar. Þá
var Guðný, dóttir Halldórs Lax-
ness, ráðin til þess að gæta
Gljúfrasteins á launum frá ráðu-
neytinu. Ráðningarsamningur
hennar var til eins árs og átti að
renna út þann 1. september sl.
Framan af var allt tíðindalítið á
Gljúfrasteini og það var ekki fyrr
en síðasta sumar að ólgan hófst.
Halldór Árnason, skrifstofustjóri
forsætisráðuneytisins, kom einn
góðan veðurdag með Hannes
Hólmstein Gissurarson í heimsókn
og sýndi honum heimili skáldsins.
Fjölskyldan frétti af þessu og var
ekki skemmt. Um sama leyti réði
forsætisráðuneytið Völu Káradótt-
ur íslenskunema, án auglýsingar,
til þess að flokka bækur og skrá
þær og tengja gagnagrunni.
Ákvörðunin var tilkynnt stjórn
Minningarsafnsins. Fjölskyldan
hefur gagnrýnt að Vala Káradóttir
tengist Hannesi Hólmsteini Giss-
urarsyni, einkavini forsætisráð-
herra, vinaböndum og hafi aðstoð-
að hann í einhverjum tilvikum og
ráðning hennar til þessara starfa
líti í því ljósi illa út. Vala hefur
ekki menntun á sviði bókasafns-
fræða auk þess að starf hennar var
ekki auglýst á sínum tíma heldur
var hún ráðin beint af ráðuneytinu.
Sjónarmið fjölskyldunnar eru þau
að ráða hefði átt forstöðumann við
safnið strax í vor í stað þess að for-
sætisráðuneytið héldi forræðinu
og skipaði sínu fólki til verka. Í
þeim efnum er bent á að venjan sé
sú varðandi söfn að þau séu undir
forræði menntamálaráðuneytisins
en þetta virðist vera ein af undan-
tekningunum.
Ljósritunarsveit
Þrátt fyrir að titrings gætti
vegna bókarskrifa Hannesar
Hólmsteins dró ekki til tíðinda
fyrr en fjölskylda Halldórs komst
að því að Hannes Hólmsteinn var
með vaska sveit í handritadeild
Þjóðarbókhlöðunnar að ljósrita
bréf úr safni Halldórs sem Auður
Laxness hafði gefið safninu til
varðveislu. Fjölskyldan fór fram á
það við útgefanda skáldsins að
ljósritun Hannesar Hómsteins yrði
stöðvuð og þann 18. september
greip hún til þess ráðs að banna
óviðkomandi aðgang að bréfasafn-
inu. Undanskilin voru Halldór
Guðmundsson og Helga Kress auk
þess sem fyrrverandi ritari skálds-
ins hafði aðgang. Engum duldist að
Grænfriðungar
snúa brátt aftur:
Vilja svör frá
stjórnvöldum
HVALVEIÐAR „Á þessari stundu
stefnum við að því að koma aftur
eftir tvær til þrjár vikur,“ sagði
Frode Pleym, talsmaður Grænfrið-
unga, en þá hyggjast þeir hitta
Árna M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra og fá svör við tilboði sam-
takanna til íslensku þjóðarinnar.
Frode sagðist ekki hafa stað-
festar nýjustu tölur yfir þá með-
limi Grænfriðunga sem hefðu lýst
áhuga sínum á að heimsækja land-
ið ef hvalveiðum verður hætt.
„Gróf ágiskun er að fjöldinn sé
nálægt tíu þúsund manns.“ ■
BETRI TÍÐ
Tekjur kúabænda jukust á milli
áranna 2001 og 2002.
Niðurstöður
búreikninga birtar:
Framleiðsla
kúabúa
eykst
LANDBÚNAÐUR Framleiðsla kúabúa
jókst milli áranna 2001 og 2002 en
dróst saman hjá sauðfjárbúum á
sama tímabili. Þetta eru niður-
stöður búreikninga sem Hagþjón-
usta landbúnaðarins hefur tekið
saman.
Framleiðsla þeirra 82 kúabúa
sem komu til samanburðar bæði
árin jókst úr 137 þúsund lítrum í
149 þúsund lítra. Tekjur af mjólk
og öðrum nautgripaafurðum juk-
ust um tæp 13% og heildarfram-
legð um rúm 9%.
Á þeim 26 sauðfjárbúum sem
komu til uppgjörs á sama tímabili
dróst framleiðsla saman um 561
kg. Tekjur af sauðfé hækkuðu
hins vegar um 5,3% en framlegð
lækkaði um 3,2%. ■
Írösk stjórnarskrá:
Óraunhæf
tímamörk
BAGDAD, AP Ólíklegt er að ný
stjórnarskrá fyrir Írak verði til-
búin innan sex mánaða, segir tals-
maður framkvæmdaráðs lands-
ins. Colin Powell, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, hefur lagt
til að stjórnarskráin verði tilbúin
innan þess tíma og segir að
Bandaríkjastjórn láti völdin í Írak
ekki af hendi fyrr en lýðræðislega
kjörin stjórn er til staðar.
„Við viljum öll sjá nýja stjórn-
arskrá eins fljótt og auðið er,“
sagði Entifadh Qanbar, talsmaður
framkvæmdaráðsins, en sá tvö
vandamál í veginum. Fyrst þurfi
almenna umræðu um stjórnar-
skrána meðal írösku þjóðarinnar
og svo þurfi hún að fara í þjóðar-
atkvæðagreiðslu. ■
HALLDÓR LAXNESS
Fjölskylda Nóbelsskáldsins hafnar því að
prófessor Hannes Hólmsteinn Gissurarson
riti sögu skáldsins.
GUÐNÝ HALLDÓRSDÓTTIR
Lét loka bréfasafni föður síns
í Þjóðarbókhlöðunni.
Fréttaskýring
REYNIR TRAUSTASON
■ Fjallar um deilurnar um lífshlaup
Halldórs Kiljans Laxness.
Fjölskylda Halldórs Kiljans Laxness berst gegn ævisagnaritun Hannesar Hólmsteins.
Tortryggni gætir í garð forsætisráðuneytisins. Hannes heldur sínu striki, forsætisráðuneytið
réð starfsmann á Gljúfrastein án auglýsingar.
BANDARÍKIN Þó enn sé rúmt ár
þangað til Bandaríkjamenn
ganga að kjörborðum og velja sér
forseta til næstu fjögurra ára er
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti búinn að safna andvirði
rúmra sex milljarða króna í sjóði
til að heyja kosningabaráttu sína.
Það er meira en nokkur hefur
áður safnað svo snemma.
Bush hefur safnað mun meira
fé en aðrir frambjóðendur, að því
er fram kemur í Washington
Post. Howard Dean er öflugastur
í fjáröflun af þeim sem lýst hafa
yfir framboði fyrir demókrata og
hefur þegar sett met fyrir mest
fé safnað í einum ársfjórðungi.
Hann safnaði milljarði í síðasta
ársfjórðungi, sem er rúmum 200
milljónum meira en það mesta
sem Bill Clinton tókst að safna í
einum ársfjórðungi.
Dean er eini frambjóðandinn í
forvali Demókrataflokksins sem
vitað er til að hafi aflað meira
fjár á þriðja ársfjórðungi 2003,
sem lauk í gær, en öðrum árs-
fjórðungi. Að sögn Washington
Post geta John Edwards, Joseph
Lieberman og John Kerry lent í
vandræðum með fjármögnun
kosningabaráttu sinnar þegar
margar forvalskosningar fara
fram á skömmum tíma í byrjun
næsta árs. ■
GEORGE W. BUSH
Búinn að safna sex milljörðum króna í
kosningasjóði. Markmiðið er að safna
fimmtán milljörðum.