Fréttablaðið - 01.10.2003, Blaðsíða 15
15MIÐVIKUDAGUR 1. október 2003
Enn á ný halda þjóðir heimsinsupp á 1. október sem dag
byggingarlistar-
innar, til að minna á
mikilvægi hennar í
daglegu lífi. Hefur
svo verið gert frá
árinu 1988.
Ánægjulegt er að
geta bent á að um-
ræða um bygging-
arlist og skipulags-
mál eflist með ári
hverju hér á landi
og þátttaka al-
mennings í þeirri umræðu eykst
sífellt. Vitundarvakning fólks um
umhverfi sitt er mjög svo af hinu
góða og markviss umræða mun án
efa skila okkur bættu umhverfi.
Hvata til umræðu um bygging-
arlist og skipulagsmál höfum við
umhverfis okkur alla daga, allt
árið um kring, hið manngerða um-
hverfi sem við lifum og hrærumst
í. Aftur á móti finnst okkur yfir-
leitt þetta daglega umhverfi svo
sjálfsagt að flest okkar taka
naumast eftir því. Það er ekki fyrr
en það breytist eða hlutar þess
hverfa að við gefum því gaum,
stundum þá um seinan. Því er vit-
undarvakning um umhverfið mik-
ilvæg, hún getur spornað við fæti
eða óskað breytinga, bent á mis-
fellur, stuðlað að betrumbót og
lagfæringum.
Vitundarvakning um um-
hverfið
Fjórar sýningar um umhverfis-
og skipulagsmál hafa verið haldn-
ar í miðborg Reykjavíkur í sumar
og haust, sem mjög hafa aukið um-
ræðu um þessi málefni. Má þar
fyrst nefna hina stórmerku sýn-
ingu á Austurvelli, „Jörðin séð frá
himni“, sem staðið hefur allt sum-
arið og mikla athygli vakið. Sýn-
ingin hefur um allan heim hvatt til
umhugsunar um ástand jarðar og
mikilvægi sjálfbærrar þróunar
fyrir alla jarðarbúa. Arkitektafé-
lag Íslands stóð á menningarnótt
fyrir samnorrænni sýningu á
Skólavörðustíg, sem stóð út ágúst-
mánuð og bar heitið „Auðlegð í
norrænni byggingarlist“. Megin-
þema þeirrar sýningar voru vist-
vænar byggingar og sjálfbært
skipulag og voru verkefni frá öll-
um Norðurlöndum. Aflvaki í sam-
vinnu við hverfisráð miðborgar-
innar hefur í Bankastræti sýnt
„uppbyggingu í miðborginni –
stefnu og framtíðarsýn“, bæði full-
unnin og samþykkt skipulagsverk-
efni en einnig mjög svo frjóar hug-
myndir og tillögur að byggingum
sem enn eru á hugmyndastigi.
Byggingarlistardeild Listasafns
Reykjavíkur heldur nú upp á tíu
ára afmæli sitt í Hafnarhúsi og
gefur þar að líta mörg stórmerk
sýnishorn af þeim verkum sem
safnið hefur eignast á þessu tíma-
bili. Albína Thordarson arkitekt
heldur fyrirlestur á alþjóðlegum
byggingarlistardegi um föður
sinn, Sigvalda Thordarson arki-
tekt, í tengslum við sýninguna.
Sjaldan eða aldrei hefur mátt
sjá jafn mikla umfjöllun í Reykja-
vík um þennan málaflokk í einu á
sýningum og skilar það sér aug-
ljóslega í miklum áhuga og um-
ræðum. Vonast er til að framhald
verði hér á. Þessi málaflokkur hef-
ur verið allt of lítið í umræðunni
hingað til. Íslenskur jarðvegur er
frjór á þessu sviði og getur orðið
góð uppspretta djarfra hugmynda
framtíðinni til heilla. ■
Ferðafélagið og Útivist eru félögáhugafólks um útivist og
gönguferðir. Þessi félög hafa byggt
marga og velútbúna skála víða á
hálendinu í grennd
við náttúruperlur.
Síðan hafa skapast
vinsælar gönguleið-
ir milli skálanna. Ég
hef verið í Útivist í
allnokkur ár og hef
m.a. farið fjölmarg-
ar ferðir í frítímum
mínum og á eigin
kostnaði upp á há-
lendi ásamt konu,
börnum og hópi fólks. Meðferðist
hafa verið kerrur fullar af margs
konar byggingarefni í þeim til-
gangi að reisa nýja skála. Þá hafa
verið farnar ferðir til þess að dytta
að skálum, endurnýja gas, olíu-
birgðir og hreinsa m.a. salerni eins
og t.d. í skálanum á Fimmvörðu-
hálsi þar sem ekki er við komið
venjubundnum aðferðum.
Þeim ferðalöngum sem átt hafa
leið hjá hefur staðið til boða að
nýta sér skálana og þá aðstöðu og
skjól sem fyrir er. Í einfeldni okk-
ar settum við upp bauka þar sem
gestir voru beðnir að skilja eftir
nokkur hundruð krónur í þeim til-
gangi að standa undir kostnaði. Þá
stóðu vonir til að hægt væri að
safna til byggingar fleiri skála.
Vonuðumst við eftir að þurfa ekki
að greiða allan rekstrar- og bygg-
ingarkostnað úr eigin vasa. Allir
félagsmenn hafa með glöðu geði
greitt gistigjöld þegar gist er í
skálum sem þeir sjálfir hafa reist
fyrir eigin kostnað og í eigin frí-
tíma.
Skelfileg umgengni
Nú er komið babb í bátinn. Í
vaxandi mæli þeysa um hálendið
menn á snjósleðum og vel búnum
ofurjeppum sem kosta milljónir
króna. Í venjulegri helgarferð
eyða menn mörgum þúsundum
króna í eldsneyti og mat. Ekkert
er til sparað enda engin ástæða að
hafa það slæmt á fjöllum uppi. En
eftir standa leifarnar á borðum, í
ruslapokum, eða þá að drasli er
kastað út í snjóskafl sem síðan
blasir við okkur illa lyktandi þeg-
ar við komum í vorhreingerning-
arnar. Í þessum skemmtiferðum
er drukkinn bjór og áfengi. Slíkt
breytir oft athæfi manna og
stundum er tekið til við að breyta
innviðum skálanna í slagsmálum
eða öðru sem af ölæði hlýst. Þess-
ir „gestir“ okkar veigra sér ekki
við að skrifa skilaboð í gestabæk-
ur þar sem gerðar eru kröfur um
betri aðbúnað. Þrátt fyrir það
dettur þeim ekki í hug að skilja
eftir í bauknum nokkur hundruð
krónur áður en sest er á milljóna-
tækin og brunað í burtu. Í fyrra
höfðum við upp úr krafsinu nokk-
ur hundruð krónur þrátt fyrir að
eiga mikið notaða skála á mjög
vinsælum vetrarleiðum.
Lagt í ferð með skipulögð-
um hætti
Skálarnir okkar hafa stundum
bjargað mannslífum. Þá hefur
fólk farið á hálendið með þá vissu
í farteskinu að það ætti í öruggt
skjól að leita bregðist veðurguð-
irnir. Við höfum reynt okkar besta
undanfarin ár en ástandið er kom-
ið út fyrir allt velsæmi. Til viðbót-
ar við hrikalega umgengni þarf
göngufólk stundum að klöngrast
yfir milljónatækin til að komast
að. Þegar þeim áfanga er náð taka
við fullir gestir í öllum skúma-
skotum þrátt fyrir að gönguhóp-
urinn hafi verið búinn að bóka
skálann og greiða gistigjöld.
En nú er nóg komið. Í framtíð-
inni verða þeir sem hafa virt að
vettugi umgengnisreglur að skipu-
leggja ferðir sínar öðruvísi. Við
viljum ekki fá þá í heimsókn til
okkar. Það er næsta víst að sæk-
tum við heim þetta fólk og höguð-
um okkur í samræmi við þá um-
gengni sem hefur verið í skálun-
um, myndi það örugglega segja:
„Heyrðu, gerðu mér nú þann
greiða að koma ekki aftur í heim-
sókn.“ Ég verð að viðurkenna að ég
vorkenni þessum mönnum ekkert
þótt að þeir þurfi að panta gistingu
fyrir fram og greiða fyrir það
nokkuð hundruð krónur, sem nær
ekki einu sinni andvirði hálfrar
kippu af bjór. Og komi menn í
heimsókn förum við fram á að þeir
hagi sér eins og venjulegt fólk. ■
Umræðan
VALDÍS
BJARNADÓTTIR
ARKITEKT FAÍ
■
skrifar um alþjóð-
legan dag bygging-
arlistarinnar sem
haldin er 1. október.
Umræðan
GUÐMUNDUR
GUNNARSSON
■
skrifar um þá
ákvörðun að loka
skálum við svo-
nefndan Laugaveg í
vetur.
Alþjóðlegur dagur
byggingarlistarinnar
■
...vitundarvakn-
ing um um-
hverfið mikil-
væg, hún getur
spornað við
fæti eða óskað
breytinga, bent
á misfellur,
stuðlað að
betrumbót og
lagfæringum,
krafist aðgerða.
■
Í framtíðinni
verða þeir sem
ekki hafa virt
umgengnisregl-
ur að skipu-
leggja ferðir
sínar öðruvísi.
Við viljum ekki
fá þá í heim-
sókn til okkar.
Gerðu mér greiða –
ekki koma í heimsókn