Fréttablaðið - 30.10.2003, Page 23
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, ann-ar umsjónarmanna sjónvarps-
þáttarins At, segir að ef hún
mætti kaupa sér hlut á heimilið að
eigin vali yrðu Bang & Olufsen
hljómflutningstæki fyrir valinu.
„Ég leigi núna með strák sem á
svona græjur en næsta sumar flyt
ég til Danmerkur. Ég á eftir að
sakna þeirra en þær kosta alltof
mikið. Ég þyrfti að eiga slatta af
peningum til að splæsa í þær.“
Sigrún Ósk notar sem sagt græjur
meðleigjandans mikið og segir
það ekki bara vera gæðin sem
heilla hana: „Þær eru svo flottar.“
Sigrún Ósk segist mikið spá í
hluti til heimilisins og hún kíkir
reglulega í húsgagnabúðir. „En
ég á nú orðið allt. Ég var nefni-
lega svo mikið að drífa mig og
keypti 100 fermetra íbúð á Akra-
nesi þegar ég var nítján ára. Þá
keypti ég fullt af húsgögnum. Ég
flutti svo til Reykjavíkur, í pínu-
litla íbúð, og öll húsgögnin eru nú
í geymslu á Akranesi. Næsta
sumar fer ég svo á stúdentagarða
í Danmörku og sé þessi húsgögn
örugglega ekki aftur fyrr en ég
er orðin þrítug. Ég hefði kannski
betur farið hægar af stað,“ segir
Sigrún Ósk. ■
Heimilisblaðið
30. október 2003Sérblað um heimilið
▲
SÍÐA 6
Losnaði við kulda og
hávaða
Linda Vilhjálmsdóttir:
▲
SÍÐA 2
Uppþvottavél efst
á óskalistanum
Birkir Jón Jónsson:
▲
SÍÐA 4
Veggfóðrað um allan
bæinn
Beinteinn Ásgeirsson:
Einn hlutur á heimilið:
Bang & Olufsen
græjur
Drykkjablandarar eru gríðar-lega vinsælir þessa dagana en
þeir verða sífellt öflugri og skilin
milli blandara og
matvinnsluvéla
óskýrari. Karl
Trausti Einars-
son, sölumaður í
Raftækjaverslun
Íslands, segir að
enn felist þó
munurinn í því
að blandarar eru
fyrir vökva og
drykki en mat-
vinnsluvélar eru
meira alhliða og
nýtast betur í
eldhúsunum. Með þeim er hægt
að saxa niður grænmeti og hnoða
saman kjöti eða deigi. Þeim fylgir
einnig oft blandari.
Blandararnir eru mikið notaðir
til að blanda saman fæðubótarefni
og í dag eru skyrblöndur það vin-
sælasta. Karl Trausti segir að
blandarar séu
vissulega orðnir
kraftmiklir en
mikilvægt sé að
fólk láti ísmola
ekki í fyrr en
vökvi er kominn
ofan í til að hlífa
hnífunum. Safa-
pressur eru ein-
nig vinsælar en
þær gera safa úr
ávöxtum og
grænmeti og
skilja hratið frá.
Einnig eru til
sítrussafapressur en þær eru
veigaminni. ■
Blandarar, matvinnsluvélar og safapressur:
Sífellt kraftmeiri og
vandaðri tæki
BLANDARI
Hentar vel til að
búa til hollustu-
drykki.
SAFAPRESSUR
Skilja hratið frá safanum.
MATVINNSLUVÉL
Meiri alhliða not af
þeim í eldhúsinu.
SIGRÚN ÓSK KRISTJÁNSDÓTTIR
Væri til í að eiga Bang & Olufsen græjur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T