Fréttablaðið - 26.11.2003, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 26.11.2003, Blaðsíða 14
Flauelsbyltingin í Georgíu minnirokkur á að valdhafar sitja alltaf í umboði þjóðar sinnar. Valdhafar geta brotið gegn vilja þjóðarinnar – en á endanum aðeins ef þjóðin fellst á það. Valdhafar geta vissulega staðið af sér smærri hópa andófs- manna – en ef andófið verður víð- tækt er þeim ómögulegt að standast það. Þegar vilji stærsta hluta þjóð- arinnar nær að vinna saman hrynja jafnvel járnbendustu kúgunarkerfi. Og það getur gerst í snögghendingu – jafnvel að því er virðist á einni nóttu. Með þessum hætti hrundi sovét- kerfi Rússlands og Austur-Evrópu. Eftir að hafa leyft ráðamönnum að kúga sig áratugum saman fannst þessum þjóðum komið nóg og vildu ekki meir. Þær vissu kannski ekki hvað þær vildu – eins og kom í ljós eftir hrun sovétkerfsins – en það var ljóst að þær vildu að viðvarandi kúgun linnti. Sums staðar voru fyrr- um kúgarar hraktir frá völdum eða útlegð. Sums staðar voru þeir skotn- ir. Þeir sem áður höfðu borið með sér ógn og skelfing voru nú orðnir eins og hver önnur óværa. Stjórnmál á Vesturlöndum eru sjaldnast svona dramatísk. Eðli þeirra er hins vegar það sama. Eng- in ríkisstjórn getur til lengdar brot- ið gegn vilja þjóðarinnar – nema þjóðin vilji það. Og það er ekkert síður algengt hér vesturfrá að þjóð- ir sætti sig við það en í austrinu. Það er meira að segja algeng afstaða meðal Vesturlandabúa að þannig eigi það að vera; að stjórnvöld brjóti gegn vilja almennings og eigi að komast upp með það. Þótt vestrænt lýðræði sé byggt á stórmannlegum hugmyndum um þátttöku borgar- anna í mótun samfélagsins þá er það ekki almenn tilfinning borgara þessara landa að þeir ráði miklu um stefnu stjórnvalda. Flestir upplifa sig sem þolendur aðgerða ríkis- valdsins fremur en virka þátttak- endur í mótun þess. Að sumu leyti má án efa rekja þessar hugmyndir aftur fyrir daga lýðræðisins. Það tekur langan tíma að breyta hugmyndum fólks um vald og án efa nokkrar kynslóðir að átta sig á að valdið í samfélaginu liggi í raun hjá þjóðinni en ekki þeim sem sitja í valdastólum. Og þótt gera megi ráð fyrir að tilfinn- ing fólks fyrir valdi sínu ætti að vaxa eftir því sem lýðræðiskerfið verður eldra er það alls ekki svo. Valdastofnanir lýðræðiskerfisins sækja fyrirmyndir sínar aftur fyrir lýðræðið og þær móta mjög afstöðu þeirra og framgöngu gagnvart al- menningi. Það má því vel vera að við séum allt eins á öfugri leið frá virku lýðræði og á beinni braut í átt til þess. Hvora leiðina við veljum velt- ur að mestu á tilfinningu þjóðar- innar fyrir valdi sínu. Flauels- byltingin í Georgíu er því ágæt áminning fyrir okkur sem búum í flauelsklæddu lýðræði Vestur- landa um að ef okkur finnst valdastofnanir í samfélaginu þjóna okkur illa getum við alltaf breytt þeim. ■ Síðastliðinn sunnudag sagðiEdúard Shevardnadze af sér sem forseti Georgíu. Hann fæddist árið 1927 í Georgíu og var ungur að árum þegar hann gekk til liðs við Kommúnista- flokkinn þar sem hann öðlaðist skjótan frama. Hann varð for- maður Kommúnustaflokks Ge- orgíu á árunum 1972-1985. Árið 1985 varð hann utanríkisráð- herra og var á þeim tíma náinn samverkamaður Mikhail Gor- batsjevs. Saman mótuðu þeir utanríkisstefnuna sem batt endi á kalda stríðið. Í ráðherra- tíð sinni vann Shevardnadze öt- ullega að því að færa landið frá kommúnisma og að kapítalísk- um lífsháttum. Hann átti mikla og góða samvinnu við Banda- ríkin í ýmsum málum, meðal annars í geimferðaáætlun sem bar afrakstur í byggingu sam- eiginlegrar geimstöðvar á tí- unda áratugnum. Lifað hátt við glaum og glys Eftir fimm ár sem utanríkis- ráðherra sagði Shevardnadze af sér embætti og sagði hægrimenn ógna öryggi landsins. Stjórn- málaferill hans var þó ekki á enda og hann var kjörinn forseti Georgíu eftir að landið öðlaðist sjálfstæði. Hann naut vinsælda í upphafi, hafði unnið kosningar með 90 prósent atkvæða, en þeg- ar fátækt fór vaxandi meðal landsmanna tók að draga úr vin- sældunum. Ekki bætti úr skák að mikið spillingarorð tók að fara af honum og öðrum ráðamönnum landsins sem voru sagðir lifa hátt við glaum og glys meðan ríkið var í raun gjaldþrota. Það sem fyllti mælinn voru þing- kosningar í byrjun þessa mánað- ar þar sem ljóst er að stuðnings- menn hans stunduðu umfangs- mikið kosningasvindl. Í kjölfarið hófust gríðarleg mótmæli gegn Shevardnadze og almenningur krafðist afsagnar hans. Yfir- menn hersins lýstu síðan yfir stuðningi við stjórnarandstöð- una. Ljóst var að valdatími Shevardnadze var liðinn. Hann áttaði sig sjálfur á vonlausri stöðu sinni og sagði af sér og kom þar líklega í veg fyrir upp- gjör sem hefði getað orðið blóð- ugt. Boðið athvarf í Þýskalandi Þýska ríkisstjórnin bauð Shevardnadze athvarf í Þýska- landi eftir afsögn hans en hann hefur hafnað því boði og segist ætla að verða um kyrrt í Georg- íu. ■ Mín skoðun GUNNAR SMÁRI EGILSSON ■ skrifar um flauelsbyltingar. Maðurinn EDÚARD SHEVARDNADZE ■ sagði nýlega af sér sem forseti Georgíu. 14 26. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Rafpóstur auglýsingadeildar: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands- byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Ósköp þykir mér leitt að sjáhvernig því sjónarspili, sem leikið er á stjórnmálasviðinu, vindur fram. Fyrir kosningar léku þeir sem boða skattalækkan- ir aðalhlutverk. Nú horfa þeir í kristalkúlu þar sem grillir í skattalækkanir árið 2007. Með góðum vilja má víst líka greina þar línuívilnun, stórlán til hús- næðiskaupa og menningarhús. Stjórnarandstöðunni verður auð- vitað tíðrætt um svikin loforð. En má í alvöru telja það til framfara að freista unga fólksins með 90% lánum til húsnæðiskaupa? Hvernig líf eiga þeir framundan sem falla fyrir slíku í landi hæstu vaxta og verð- tryggingar að auki? Er brýnna að reisa ný menning- arhús en að halda sæmilegu lífi í leikfélögum sem berjast í bökkum? Ég legg til að stjórnarandstaðan hætti að stríða stjórnarherrunum og brigsla þeim um svikin loforð. Við þurfum hlé í hanaslag og sjón- arspili. Við þurfum raunsæi og samstarf um lagabreytingar sem draga úr sérhagsmunagæslu af því tagi sem vikið er að í fram- haldinu. Upphaf kjörtímabils á að nota til þess. Stórleikarar sjónar- spilsins geta svo komið aftur á svið þegar líður á kjörtímabilið. Að viðurkenna staðreyndir Stjórnmálamenn, sem vilja teljast raunsæir og tilbúnir að leiðrétta mistök, ættu að hætta öllum heilaspuna um skatta- lækkanir. Við blasir að þeirra milljarða, sem þar var hampað framan í kjósendur, er þörf í knýjandi verkefni sem varða al- mannahag. Mikla fjármuni vant- ar nú þegar í verkefni sem njóta almenns stuðnings og því vara- samt fyrir stjórnmálaöfl í leit að fjöldafylgi að víkjast undan. Hér á ég við milljarðana sem vantar í heilbrigðiskerfið, fram- haldsskóla, háskóla, Landhelgis- gæslu, fæðingarorlof, Sunda- braut og einnig almennan fjár- skort sveitarfélaga. Ástandið verður líka sífellt aumara hjá menningarstofnunum sem mörgum þykir vænt um: Ríkis- útvarpi, leikhúsum, sinfóníu- hljómsveit og biðin eftir alvöru Þjóðminjasafni, náttúrugripa- safni og tónlistarhúsi í höfuð- borginni lengist auðvitað ef skattalækkanaflokkarnir ná ekki samstöðu um það með Vinstri grænum að hverfa frá hugmyndum um að lækka skat- ta. Ef að er gáð getur samstaða um slíka kúvendingu komið öll- um flokkum til góða. Hún auð- veldar þeim sem hafa völdin að leysa vandamálin sem blasa við. Og hún hjálpar þeim sem taka við á næsta kjörtímabili að framkvæma sína stefnu. Og ekki nóg með það – hún vekur virðingu meðal kjósenda al- mennt vegna þess að í hjarta sínu er flestum áreiðanlega meira annt um velferð og menn- ingu þjóðarinnar en eigin buddu, smávegis skattalækkun. Meirihluti þeirra er að athuguðu máli varla sérlega hrifinn af kosningaáróðri sem skírskotar til eiginhagsmuna fremur en al- mannahags. Ný hugsun á þeim nótum sem hér eru slegnar get- ur aukið virðingu og fylgi stjórnmálaafla sem tileinka sér hana. Að breyta stjórnarháttum Við búum sem kunnugt er við þá kuldalegu hefð að meirihluti á Alþingi og í sveitarstjórnum ræður öllu og minnihlutinn engu. Áhugi á stjórnmálum og trú á lýðræðið mundi eflast ef við sýndum þann þroska að breyta þeim stjórnarháttum. Því ekki að nýta betur krafta og þekkingu minnihlutans og fjöl- mennra samtaka sem hafa lagt fram vandaðar tillögur um betri gæslu almannahagsmuna eins og ASÍ og Neytendasamtökin hafa gert? Ljóst má vera að aukna tillits- semi og hugarfarsbreytingu þarf til að unnt sé að leysa ýmis pólitísk verkefni sem eru í sjálf- heldu, verkefni sem almennur áhugi er á að leysa en ekki er hægt að taka á nema stjórnmála- öflin standi saman. Svokölluð viðkvæm mál. Í þann flokk falla verkefni eins og afnám tekju- tengingar fæðingarorlofs svo hæstu greiðslurnar renni ekki til tekjuhárra karla, hækkun með- lags til að losa einstæða foreldra úr fátækragildru, afnám sjó- mannafsláttar þar sem menn í eftirsóttum og vellaunuðum störfum þurfa ekki slík forrétt- indi, afnám greiðslna úr ríkis- sjóði til kúa- og sauðfjárbænda því engin ástæða er til að styrk- ja offramleiðslu á lambakjöti og mjólk. Sá styrkur nemur um sjö milljörðum króna árlega og er oftast rökstuddur sem framlag til byggðastefnu. Er ekki tíma- bært að viðurkenna að allt annað styrkir byggð í raun, þ. e. sívax- andi tekjur sveitanna af ferða- mennsku og frístundum sem þéttbýlisfólk eyðir í sumarbú- stöðum, við laxveiðiár og hesta- mennsku? Það kann að virðast óhugs- andi að stjórnmálaöflin í landinu geti sameinast um að ráðast í þessi verkefni; hugsanafarveg- urinn sé fastnegldur. En má ekki álykta sem svo að hvort sem vonirnar beinast að skattalækk- un eða öflugra velferðarkerfi sé það helsta forsenda þess að slík- ar vonir geti ræst? ■ Hluthafar ráði, ekki ríkisvaldið „Sú umræða að breyta þurfi regl- um um kaupréttarsamninga er á villigötum. Það er eðlilegt að stjórn fyrirtækis og hluthafar ráði hvernig launa eigi stjórnendur fyrirtækisins. Mönnum getur auð- vitað greint á um upphæðir eins og nú í tilviki stjórnenda Kaup- þings Búnaðarbanka en það eru til leiðir fyrir hluthafa og við- skiptavini að hafa áhrif á gang mála. Viðskiptavinir og hluthafar hafa einmitt nýtt sér þær leiðir með því að sýna hug sinni í verki og það skilaði þeim árangri að stjórnendur bankans hættu við að taka samningnum umdeildu. Hluthafar eiga að ráða því hvern- ig stjórnendum fyrirtækis skuli vera launað fyrir gott starf, ekki ríkisvaldið.“ - ATLI RAFN BJÖRNSSON Á FRELSI.IS Ekki beint flauelsbylting í Georgíu „Núna um helgina sagði Edvard Shevardnadze, réttkjörinn forseti Georgíu, af sér tveimur árum áður en kjörtímabili hans rennur út. Meginorsökin var þrýstingur risavelda í austri og vestri og fjöl- menn mótmæli sem skipulögð voru af næststærsta flokki stjórn- arandstöðunnar. Leiðtogi hans, Mikhail Saakashvili, kallaði þessa atburðarás „flauelsbylt- ingu“ og hafa vestrænir fjölmiðlar verið fljótir að taka upp þetta heiti jafnframt því sem Saak- ashvili hefur verið hylltur í vest- rænum fjölmiðlum sem komandi forseti Georgíu. Nafngiftin er hins vegar bæði ónákvæm og óviðeigandi. Verið er að draga hliðstæðu á milli af- sagnar Shevardnadzes annars vegar og hins vegar valdaskipta í Tékkóslóvakíu 1989 þegar ein- ræðisstjórn kommúnista afsalaði sér völdum til lýðræðisafla. Shevardnadze var hins vegar kjörinn forseti í lýðræðislegum kosningum og átti, eins og áður sagði, rétt til að sitja í embætti til 2005.“ - SVERRIR JAKOBSSON Á MURINN.IS Um daginnog veginn HÖRÐUR BERGMANN ■ kennari og rithöfundur hvetur til hugar- farsbreytingar í stjórnmálum. Endurnýjum hugmynda- grunn stjórnmálanna ■ Af Netinu EDÚARD SHEVARDNADZE Hóf feril sinn sem umbótamaður en varð spillingu að bráð. Flauelslýðræði ■ Við búum sem kunnugt er við þá kuldalegu hefð að meiri- hluti á Alþingi og í sveitar- stjórnum ræður öllu og minni- hlutinn engu. Áhugi á stjórn- málum og trú á lýðræðið mundi eflast ef við sýndum þann þroska að brey- ta þeim stjórn- arháttum. Umbótamaður sem spilltist

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.