Fréttablaðið - 26.11.2003, Blaðsíða 23
23MIÐVIKUDAGUR 26. nóvember 2003
Meistaradeild Evrópu:
Tekst Chelsea að tryggja sér efsta sætið?
FÓTBOLTI Átta leikir fara fram í
meistaradeild Evrópu í kvöld.
Fjölmörg lið geta tryggt sér sæti í
næstu umferð og ber þar hæst lið
Stuttgart og Manchester United í
E-riðli, Chelsea í G-riðli og Evr-
ópumeistarana AC Milan í H-riðli.
Stuttgart og Rangers mætast á
heimavelli fyrrnefnda liðsins.
Rangers vann fyrri viðureign lið-
anna í Glasgow en leikmenn Stutt-
gart eru vissir um sigur eða eins
og Silvio Meissner, miðjumaður
liðsins, sagði: „Ég er viss um að
við skorum í það minnsta tvö
mörk, þeir ekki neitt og við tryggj-
um okkur sæti í næstu umferð.“
Manchester United sækir Pan-
athinaikos heim til Aþenu og mæt-
ir án fyrirliða síns Roy Keane sem
er lítillega meiddur. Leikurinn
skiptir litlu máli fyrir Englands-
meistarana, sem eru með hugann
við leikinn gegn Chelsea um
næstu helgi.
Chelsea getur tryggt sér efsta
sæti G-riðils með því að leggja
Spörtu frá Prag að velli og vona ða
Lazio vinni Besiktas í Róm. Ólík-
legt er að Eiður Smári Guðjohnsen
verði í byrjunarliðinu en hann
byrjaði inn á í síðasta leik liðsins,
gegn Southampton, um síðustu
helgi. Ajax tekur á móti AC Milan
í Amsterdam í toppslag H-riðils. Á
sama tíma mætast Celta Vigo og
Club Brugge á Spáni og hugsa þau
lið sér gott til glóðarinnar ef ann-
að hvort Ajax eða AC Milan mis-
stíga sig. ■
E-RIÐILL
Stuttgart - Rangers
Panathinaikos - Man. United
Stuttgart 4 3 0 1 8:4 9
Man. United 4 3 0 1 10:2 9
Rangers 4 1 1 2 3:6 4
Panathinaikos 4 0 1 3 2:11 1
F-RIÐILL
Marseille - Real Madrid
Porto - Partizan Belgrad
Real Madrid 4 3 1 0 8:3 10
Porto 4 2 1 1 6:6 7
Marseille 4 1 0 3 7:8 3
Partizan Belgrad 4 0 2 2 1:5 2
G-RIÐILL
Chelsea - Sparta Prag
Lazio - Besiktas
Chelsea 4 3 0 1 7:3 9
Besiktas 4 2 0 2 4:4 6
Sparta Prag 4 1 1 2 4:5 4
Lazio 4 1 1 2 5:8 4
H-RIÐILL
Ajax - AC Milan
Celta Vigo - Club Brugge
AC Milan 4 2 1 1 2:1 7
Ajax 4 2 0 2 5:4 6
Celta Vigo 4 1 2 1 4:4 5
Club Brugge 4 1 1 2 2:4 4
CHELSEA
Frank Lampard og Eiður Smári Guðjohn-
sen skoruðu báðir í 4-0 sigri Chelsea á
Lazio.
A-RIÐILL
Úrslit:
Anderlecht-Lyon 1-0
Tihinen (71.)
Celtic-B. München 0-0
Staðan:
Celtic 5 2 1 2 6:4 7
Anderlecht 5 2 1 2 4:5 7
Lyon 5 2 1 2 4:5 7
B. München 5 1 3 1 5:5 6
Næstu leikir:
B. München-Anderlecht
Lyon-Celtic
B-RIÐILL
Úrslit:
L. Moskva-D. Kiev 3-2
Buznikin (28.), Ignashevich, víti (45.),
Parks (89.) - Belkevich (37.), Shatskikh
(65.).
I. Milan-Arsenal 1-5
Vieri (33.) - Henry (25., 85.), Ljungberg
(49.), Edu (87.), Pires (89.)
Staðan:
L. Moskva 5 2 2 1 7:5 8
Arsenal 5 2 1 2 7:6 7
Inter Milan 5 2 1 2 7:10 7
D. Kiev 5 2 0 3 7:7 6
Næstu leikir:
Arsenal-Lokomotiv Moskva
Dynamo Kiev-Inter Milan
C-RIÐILL
Úrslit:
Deportivo-AEK 3-0
Hector (21.), Valeron (51.), Luque (71.).
Mónakó-PSV 1-1
Morientes (34.) - Vennegoor (84.)
Staðan:
Mónakó 5 3 1 1 15:6 10
Deportivo 5 3 1 1 10:9 10
PSV 5 2 1 2 5:5 7
AEK 5 0 1 4 1:11 1
Næstu leikir:
AEK-Mónakó
PSV-Deportivo
D-RIÐILL
Úrslit:
Olympiakos-R. Sociedad 2-2
Soltidis (59.), Castillo (71.) - Gabilondo
(31.), Schürrer (74.).
Galatasaray-Juventus frestað
Staðan:
Juventus 4 3 1 0 8:4 10
R. Sociedad 5 2 2 1 7:7 8
Olympiakos 5 1 1 3 6:6 4
Galatasaray 4 1 0 3 3:7 3
Næstu leikir:
Galatasaray-Juventus
Juventus-Olympiakos
R. Sociedad-Galatasaray
Sýning
hjá Henry
Þegar Arsenal rúllaði yfir Inter Milan, 5-1,
á San Siro í Meistaradeildinni í gærkvöld.
FÓTBOLTI Franski snillingurinn Thi-
erry Henry fór í sparifötin í tísku-
borginni Mílanó þegar Arsenal
heimsótti Inter í Meistaradeildinni.
Hann sýndi allar sínar bestu hliðar
og Inter átti ekkert svar við stórleik
hans. Þegar upp var staðið hafði
Henry skoraði tvö mörk og lagt upp
tvö þegar Arsenal niðurlægði Inter,
5-1.
Fyrri hálfleikur fór frekar ró-
lega af stað en fjörið byrjaði á 25.
mínútu þegar Henry kom Arsenal
yfir með góðu skoti fyrir utan teig.
Gleði Lundúnabúanna var þó
skammvinn þvi markahrókurinn
Christian Vieri jafnaði leikinn 8
mínútum síðar fyrir heimamenn.
Nokkur heppnisstimpill var á marki
Ítalans því skot hans hafði viðkomu
í Sol Campbell og sveif síðan yfir
Jens Lehmann, markvörð Arsenal.
Þannig stóðu leikar í hálfleik en
Arsenal byrjaði síðari hálfleikinn
með látum og sænski landsliðsmað-
urinn Freddie Ljungberg kom
Arsenal aftur yfir á 49. mínútu.
Sjálfstraust Arsenal-manna virt-
ist aukast um helming við markið.
Þeir þéttu vörnina og gáfu engin
færi á sér. Ítalirnir reyndu hvað
þeir gátu að opna Arsenal-vörnina
en hugmyndasnauðar sóknir þeirra
skiluðu engu. Fimm síðustu mínút-
ur leiksins renna stuðningsmönnum
Arsenal seint úr minni.
Henry kom Skyttunum í 3-1 þeg-
ar fimm mínútur voru eftir með
ótrúlegu marki þar sem hann sólaði
argentínska landsliðsmanninn
Javier Zanetti út á bílastæði. Tveim
mínútum síðar átti hann svo frá-
bæra sendingu í teiginn sem Brasil-
íumaðurinn Edu skilaði í netið, 4-1.
Henry fór síðan af velli og það
var varamaður hans, Jeremie Ali-
adiere, sem lagði upp fimmta mark
Arsenal sem landi hans, Robert
Pires, skoraði.
Lokatölur 5-1 og Arsenal með
betri innbyrðis árangur gegn Inter.
Liðið er því óvænt komið í fína
stöðu fyrir lokaumferðina, sem er
ótrúlegt ef litið er á stöðu þess fyrir
aðeins nokkrum vikum síðan. ■
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100
Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600
Selfossi: 482 1666 www.urvalutsyn.is
Úrval-Úts‡n
sta›greitt á mann í tvíb‡li á Hotel Woodland í 12 nætur.
144.630 kr.*
Ver› frá:
* Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting me› morgunver›i,
akstur til og frá flugvelli erlendis og íslensk farastjórn.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
29
35
11
/2
00
3
Thailand er fjölbreytileiki, náttúrufegur›,
flægilegt loftslag, lífsgle›i og lystisemdir.
Fararstjóri: Kjartan L. Pálsson.
Gríptu tækifæri› og upplif›u
ljúfa sumardaga í vetur!
THIERRY HENRY
Thierry Henry skoraði tvö mörk og lagði upp önnur tvö fyrir Arsenal í meistaradeildinni
gegn Inter í gærkvöld.