Fréttablaðið - 26.11.2003, Page 23

Fréttablaðið - 26.11.2003, Page 23
23MIÐVIKUDAGUR 26. nóvember 2003 Meistaradeild Evrópu: Tekst Chelsea að tryggja sér efsta sætið? FÓTBOLTI Átta leikir fara fram í meistaradeild Evrópu í kvöld. Fjölmörg lið geta tryggt sér sæti í næstu umferð og ber þar hæst lið Stuttgart og Manchester United í E-riðli, Chelsea í G-riðli og Evr- ópumeistarana AC Milan í H-riðli. Stuttgart og Rangers mætast á heimavelli fyrrnefnda liðsins. Rangers vann fyrri viðureign lið- anna í Glasgow en leikmenn Stutt- gart eru vissir um sigur eða eins og Silvio Meissner, miðjumaður liðsins, sagði: „Ég er viss um að við skorum í það minnsta tvö mörk, þeir ekki neitt og við tryggj- um okkur sæti í næstu umferð.“ Manchester United sækir Pan- athinaikos heim til Aþenu og mæt- ir án fyrirliða síns Roy Keane sem er lítillega meiddur. Leikurinn skiptir litlu máli fyrir Englands- meistarana, sem eru með hugann við leikinn gegn Chelsea um næstu helgi. Chelsea getur tryggt sér efsta sæti G-riðils með því að leggja Spörtu frá Prag að velli og vona ða Lazio vinni Besiktas í Róm. Ólík- legt er að Eiður Smári Guðjohnsen verði í byrjunarliðinu en hann byrjaði inn á í síðasta leik liðsins, gegn Southampton, um síðustu helgi. Ajax tekur á móti AC Milan í Amsterdam í toppslag H-riðils. Á sama tíma mætast Celta Vigo og Club Brugge á Spáni og hugsa þau lið sér gott til glóðarinnar ef ann- að hvort Ajax eða AC Milan mis- stíga sig. ■ E-RIÐILL Stuttgart - Rangers Panathinaikos - Man. United Stuttgart 4 3 0 1 8:4 9 Man. United 4 3 0 1 10:2 9 Rangers 4 1 1 2 3:6 4 Panathinaikos 4 0 1 3 2:11 1 F-RIÐILL Marseille - Real Madrid Porto - Partizan Belgrad Real Madrid 4 3 1 0 8:3 10 Porto 4 2 1 1 6:6 7 Marseille 4 1 0 3 7:8 3 Partizan Belgrad 4 0 2 2 1:5 2 G-RIÐILL Chelsea - Sparta Prag Lazio - Besiktas Chelsea 4 3 0 1 7:3 9 Besiktas 4 2 0 2 4:4 6 Sparta Prag 4 1 1 2 4:5 4 Lazio 4 1 1 2 5:8 4 H-RIÐILL Ajax - AC Milan Celta Vigo - Club Brugge AC Milan 4 2 1 1 2:1 7 Ajax 4 2 0 2 5:4 6 Celta Vigo 4 1 2 1 4:4 5 Club Brugge 4 1 1 2 2:4 4 CHELSEA Frank Lampard og Eiður Smári Guðjohn- sen skoruðu báðir í 4-0 sigri Chelsea á Lazio. A-RIÐILL Úrslit: Anderlecht-Lyon 1-0 Tihinen (71.) Celtic-B. München 0-0 Staðan: Celtic 5 2 1 2 6:4 7 Anderlecht 5 2 1 2 4:5 7 Lyon 5 2 1 2 4:5 7 B. München 5 1 3 1 5:5 6 Næstu leikir: B. München-Anderlecht Lyon-Celtic B-RIÐILL Úrslit: L. Moskva-D. Kiev 3-2 Buznikin (28.), Ignashevich, víti (45.), Parks (89.) - Belkevich (37.), Shatskikh (65.). I. Milan-Arsenal 1-5 Vieri (33.) - Henry (25., 85.), Ljungberg (49.), Edu (87.), Pires (89.) Staðan: L. Moskva 5 2 2 1 7:5 8 Arsenal 5 2 1 2 7:6 7 Inter Milan 5 2 1 2 7:10 7 D. Kiev 5 2 0 3 7:7 6 Næstu leikir: Arsenal-Lokomotiv Moskva Dynamo Kiev-Inter Milan C-RIÐILL Úrslit: Deportivo-AEK 3-0 Hector (21.), Valeron (51.), Luque (71.). Mónakó-PSV 1-1 Morientes (34.) - Vennegoor (84.) Staðan: Mónakó 5 3 1 1 15:6 10 Deportivo 5 3 1 1 10:9 10 PSV 5 2 1 2 5:5 7 AEK 5 0 1 4 1:11 1 Næstu leikir: AEK-Mónakó PSV-Deportivo D-RIÐILL Úrslit: Olympiakos-R. Sociedad 2-2 Soltidis (59.), Castillo (71.) - Gabilondo (31.), Schürrer (74.). Galatasaray-Juventus frestað Staðan: Juventus 4 3 1 0 8:4 10 R. Sociedad 5 2 2 1 7:7 8 Olympiakos 5 1 1 3 6:6 4 Galatasaray 4 1 0 3 3:7 3 Næstu leikir: Galatasaray-Juventus Juventus-Olympiakos R. Sociedad-Galatasaray Sýning hjá Henry Þegar Arsenal rúllaði yfir Inter Milan, 5-1, á San Siro í Meistaradeildinni í gærkvöld. FÓTBOLTI Franski snillingurinn Thi- erry Henry fór í sparifötin í tísku- borginni Mílanó þegar Arsenal heimsótti Inter í Meistaradeildinni. Hann sýndi allar sínar bestu hliðar og Inter átti ekkert svar við stórleik hans. Þegar upp var staðið hafði Henry skoraði tvö mörk og lagt upp tvö þegar Arsenal niðurlægði Inter, 5-1. Fyrri hálfleikur fór frekar ró- lega af stað en fjörið byrjaði á 25. mínútu þegar Henry kom Arsenal yfir með góðu skoti fyrir utan teig. Gleði Lundúnabúanna var þó skammvinn þvi markahrókurinn Christian Vieri jafnaði leikinn 8 mínútum síðar fyrir heimamenn. Nokkur heppnisstimpill var á marki Ítalans því skot hans hafði viðkomu í Sol Campbell og sveif síðan yfir Jens Lehmann, markvörð Arsenal. Þannig stóðu leikar í hálfleik en Arsenal byrjaði síðari hálfleikinn með látum og sænski landsliðsmað- urinn Freddie Ljungberg kom Arsenal aftur yfir á 49. mínútu. Sjálfstraust Arsenal-manna virt- ist aukast um helming við markið. Þeir þéttu vörnina og gáfu engin færi á sér. Ítalirnir reyndu hvað þeir gátu að opna Arsenal-vörnina en hugmyndasnauðar sóknir þeirra skiluðu engu. Fimm síðustu mínút- ur leiksins renna stuðningsmönnum Arsenal seint úr minni. Henry kom Skyttunum í 3-1 þeg- ar fimm mínútur voru eftir með ótrúlegu marki þar sem hann sólaði argentínska landsliðsmanninn Javier Zanetti út á bílastæði. Tveim mínútum síðar átti hann svo frá- bæra sendingu í teiginn sem Brasil- íumaðurinn Edu skilaði í netið, 4-1. Henry fór síðan af velli og það var varamaður hans, Jeremie Ali- adiere, sem lagði upp fimmta mark Arsenal sem landi hans, Robert Pires, skoraði. Lokatölur 5-1 og Arsenal með betri innbyrðis árangur gegn Inter. Liðið er því óvænt komið í fína stöðu fyrir lokaumferðina, sem er ótrúlegt ef litið er á stöðu þess fyrir aðeins nokkrum vikum síðan. ■ Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600 Selfossi: 482 1666 www.urvalutsyn.is Úrval-Úts‡n sta›greitt á mann í tvíb‡li á Hotel Woodland í 12 nætur. 144.630 kr.* Ver› frá: * Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting me› morgunver›i, akstur til og frá flugvelli erlendis og íslensk farastjórn. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 2 29 35 11 /2 00 3 Thailand er fjölbreytileiki, náttúrufegur›, flægilegt loftslag, lífsgle›i og lystisemdir. Fararstjóri: Kjartan L. Pálsson. Gríptu tækifæri› og upplif›u ljúfa sumardaga í vetur! THIERRY HENRY Thierry Henry skoraði tvö mörk og lagði upp önnur tvö fyrir Arsenal í meistaradeildinni gegn Inter í gærkvöld.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.