Fréttablaðið - 26.11.2003, Blaðsíða 13
13MIÐVIKUDAGUR 26. nóvember 2003
forystumenn Sinn Fein til fundar í
breska forsætisráðuneytinu með-
an hófsamir kaþólikkar voru víðs
fjarri. Ekki er langt síðan þessu
hefði verið þveröfugt farið.
Nokkuð hefur verið um að
menn hafi lýst áhyggjum af því að
kjörsókn kunni að verða dræm í
dag. Áhyggjur stjórnmálamanna
eru þó misjafnlega miklar. Sam-
kvæmt almannarómi hamlar
slæmt veður stuðningsmönnum
Sinn Fein og Lýðræðislega sam-
bandssinnaflokksins lítt frá því að
mæta á kjörstað. Forystumenn
annarra flokka eru sagðir mega
hafa meiri áhyggjur verði veður
slæmt á Norður-Írlandi í dag.
Fátíðar vetrarkosningar
Kosningar að vetrarlagi eru
undantekning á Írlandi og það
þarf að fara aftur til ársins 1933
til að finna dæmi um kosningar
sem voru síðar á árinu en kosning-
arnar í dag. Þá kusu Norður-Írar
fulltrúa sína til setu á þinginu í
Stormont 30. nóvember og er það
eina skiptið í sögu Norður-Írlands
sem kosningar fara fram síðar á
árinu en í dag.
Kjörsókn hefur verið milli 60
og 70% undanfarin ár. Undantekn-
ingin er þegar kosið var um frið-
arsamkomulagið 1998, en þá
greiddi 81% kjósenda atkvæði.
Mánuði síðar héldu margir þeirra
sig heima þegar 69% kusu full-
trúa sína á norður-írska þingið.
Hugh Orde, yfirlögregluþjónn
í Belfast, varaði við því í gær að
andstæðingar friðarsamkomu-
lagsins frá 1998 úr röðum Írska
lýðveldishersins kynnu að standa
fyrir árásum til að trufla kosning-
arnar. Þessi orð lét hann falla eft-
ir að sprengja sprakk við breska
herstöð. Hluti sprengjunnar
sprakk ekki en Orde sagði að
hefði hún öll sprungið hefðu tveir
lögreglumenn sem voru í ná-
grenninu slasast alvarlega og
jafnvel látist. Til að verjast ólát-
um og árásum hafa 2.000 lög-
reglumenn verið kallaðir út á
aukavakt í dag.
Kínverjar verjast HABL:
Prófa nýtt
bóluefni
PEKING, AP Kínverjar eru byrjaðir
að leita að sjálfboðaliðum til að
prófa nýtt bóluefni gegn bráða-
lungnabólgu. Ætlunin er að hefja til-
raunir í næsta mánuði. Matvæla- og
lyfjaeftirlit kínverska ríkisins segir
að ekki sé hægt að fullyrða að lyfið
muni virka fyrir menn.
Síðan HABL kom upp fyrir ári
hafa vísindamenn um heim allan
keppst um að verða fyrstir til að
finna upp bóluefni gegn sjúkdómn-
um. Þrátt fyrir yfirlýsingar Kín-
verja segir Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unin að líklega muni líða að minnsta
kosti tvö ár héðan í frá áður en not-
hæft bóluefni kemur á markað. ■
Evrópskir ferðamenn í haldi kólumbískra uppreisnarmanna:
Tveimur gíslum veitt frelsi
KÓLUMBÍA, AP Kólumbískir upp-
reisnarmenn hafa sleppt tveim-
ur evrópskum gíslum sem tekn-
ir voru haldi 14. september síð-
astliðinn. Gíslarnir voru fluttir
með þyrlum til mannabyggða.
Engar fregnir hafa borist af
fimm öðrum ferðamönnum sem
einnig eru í haldi uppreisnar-
manna.
Að sögn yfirvalda voru Þjóð-
verjinn Reinhilt Weigel og Asier
Huegen Echeverria frá Spáni
vel á sig komin eftir að hafa ver-
ið í haldi Þjóðfrelsishersins,
ELN, í 74 daga. Embættismenn
kaþólsku kirkjunnar, sem tekið
hafa þátt í samningaviðræðum
við uppreisnarmennina, segjast
binda vonir við að hinum gíslun-
um verði sleppt fyrir jól.
Skæruliðar ELN sögðust hafa
rænt ferðamönnunum til að
vekja athygli á harðneskjulegri
meðferð kólumbíska hersins á
indíánum í fjallahéruðum Sierra
Nevada. Weigel og Echeverria
var veitt frelsi eftir að orðið
hafði verið við óskum mannræn-
ingjanna um að sendifulltrúar
Sameinuðu þjóðanna, mannrétt-
indasamtök og embættismenn
kaþólsku kirkjunnar heimsæktu
fátæk þorp í Sierra Nevada. ■
HRINGT HEIM
Reinhilt Weigel og Asier Huegen Echeverria fengu tækifæri til að hringja í sína nánustu
um leið og þau lentu á flugvellinum í bænum Valledupar.
BROSMILDUR FRAMBJÓÐANDI
David Trimble, leiðtogi Sambandssinna í
Ulster og fyrrum fyrsti ráðherra heima-
stjórnarinnar, var brosmildur þegar hann
ávarpaði fréttamenn á blaðamannafundi í
suðurhluta Belfast.