Fréttablaðið - 26.11.2003, Síða 13

Fréttablaðið - 26.11.2003, Síða 13
13MIÐVIKUDAGUR 26. nóvember 2003 forystumenn Sinn Fein til fundar í breska forsætisráðuneytinu með- an hófsamir kaþólikkar voru víðs fjarri. Ekki er langt síðan þessu hefði verið þveröfugt farið. Nokkuð hefur verið um að menn hafi lýst áhyggjum af því að kjörsókn kunni að verða dræm í dag. Áhyggjur stjórnmálamanna eru þó misjafnlega miklar. Sam- kvæmt almannarómi hamlar slæmt veður stuðningsmönnum Sinn Fein og Lýðræðislega sam- bandssinnaflokksins lítt frá því að mæta á kjörstað. Forystumenn annarra flokka eru sagðir mega hafa meiri áhyggjur verði veður slæmt á Norður-Írlandi í dag. Fátíðar vetrarkosningar Kosningar að vetrarlagi eru undantekning á Írlandi og það þarf að fara aftur til ársins 1933 til að finna dæmi um kosningar sem voru síðar á árinu en kosning- arnar í dag. Þá kusu Norður-Írar fulltrúa sína til setu á þinginu í Stormont 30. nóvember og er það eina skiptið í sögu Norður-Írlands sem kosningar fara fram síðar á árinu en í dag. Kjörsókn hefur verið milli 60 og 70% undanfarin ár. Undantekn- ingin er þegar kosið var um frið- arsamkomulagið 1998, en þá greiddi 81% kjósenda atkvæði. Mánuði síðar héldu margir þeirra sig heima þegar 69% kusu full- trúa sína á norður-írska þingið. Hugh Orde, yfirlögregluþjónn í Belfast, varaði við því í gær að andstæðingar friðarsamkomu- lagsins frá 1998 úr röðum Írska lýðveldishersins kynnu að standa fyrir árásum til að trufla kosning- arnar. Þessi orð lét hann falla eft- ir að sprengja sprakk við breska herstöð. Hluti sprengjunnar sprakk ekki en Orde sagði að hefði hún öll sprungið hefðu tveir lögreglumenn sem voru í ná- grenninu slasast alvarlega og jafnvel látist. Til að verjast ólát- um og árásum hafa 2.000 lög- reglumenn verið kallaðir út á aukavakt í dag. Kínverjar verjast HABL: Prófa nýtt bóluefni PEKING, AP Kínverjar eru byrjaðir að leita að sjálfboðaliðum til að prófa nýtt bóluefni gegn bráða- lungnabólgu. Ætlunin er að hefja til- raunir í næsta mánuði. Matvæla- og lyfjaeftirlit kínverska ríkisins segir að ekki sé hægt að fullyrða að lyfið muni virka fyrir menn. Síðan HABL kom upp fyrir ári hafa vísindamenn um heim allan keppst um að verða fyrstir til að finna upp bóluefni gegn sjúkdómn- um. Þrátt fyrir yfirlýsingar Kín- verja segir Alþjóðaheilbrigðisstofn- unin að líklega muni líða að minnsta kosti tvö ár héðan í frá áður en not- hæft bóluefni kemur á markað. ■ Evrópskir ferðamenn í haldi kólumbískra uppreisnarmanna: Tveimur gíslum veitt frelsi KÓLUMBÍA, AP Kólumbískir upp- reisnarmenn hafa sleppt tveim- ur evrópskum gíslum sem tekn- ir voru haldi 14. september síð- astliðinn. Gíslarnir voru fluttir með þyrlum til mannabyggða. Engar fregnir hafa borist af fimm öðrum ferðamönnum sem einnig eru í haldi uppreisnar- manna. Að sögn yfirvalda voru Þjóð- verjinn Reinhilt Weigel og Asier Huegen Echeverria frá Spáni vel á sig komin eftir að hafa ver- ið í haldi Þjóðfrelsishersins, ELN, í 74 daga. Embættismenn kaþólsku kirkjunnar, sem tekið hafa þátt í samningaviðræðum við uppreisnarmennina, segjast binda vonir við að hinum gíslun- um verði sleppt fyrir jól. Skæruliðar ELN sögðust hafa rænt ferðamönnunum til að vekja athygli á harðneskjulegri meðferð kólumbíska hersins á indíánum í fjallahéruðum Sierra Nevada. Weigel og Echeverria var veitt frelsi eftir að orðið hafði verið við óskum mannræn- ingjanna um að sendifulltrúar Sameinuðu þjóðanna, mannrétt- indasamtök og embættismenn kaþólsku kirkjunnar heimsæktu fátæk þorp í Sierra Nevada. ■ HRINGT HEIM Reinhilt Weigel og Asier Huegen Echeverria fengu tækifæri til að hringja í sína nánustu um leið og þau lentu á flugvellinum í bænum Valledupar. BROSMILDUR FRAMBJÓÐANDI David Trimble, leiðtogi Sambandssinna í Ulster og fyrrum fyrsti ráðherra heima- stjórnarinnar, var brosmildur þegar hann ávarpaði fréttamenn á blaðamannafundi í suðurhluta Belfast.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.