Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.12.2003, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 15.12.2003, Qupperneq 6
6 15. desember 2003 MÁNUDAGUR ■ Írak Veistusvarið? 1Talnakönnun hefur reiknað út eftir-launaskuldbindingar ríkisins vegna frumvarps um hækkun lífeyrisréttinda æðstu embætta. Hversu há er upphæðin? 2Háhyrningurinn Keikó drapst á föstu-dag. Hvert var banameinið? 3Hvaða knattspyrnulið er nú í efstasæti ensku úrvalsdeildarinnar? Svörin eru á bls. 46 Margir arabar ósáttir við handtöku Saddams: Vonbrigði og sorg KAÍRÓ, AP Viðbrögð almennings og ráðamanna í Mið-Austurlöndum við handtöku Saddams Husseins voru blendin og endurspegluðu þau miklu ítök sem hann hafði á þessu svæði þegar hann sat í for- setastól í Írak. Margir áttu erfitt með að sætta sig við það að Saddam skyldi hafa endað feril sinn á þennan hátt. „Ég átti von á því að hann myndi veita mótspyrnu eða svipta sig lífi áður en hann félli í hendur Banda- ríkjamanna. Hann hefur valdið okkur miklum vonbrigðum,“ sagði ungur Jemeni. Stuðningsmenn Saddams á Vesturbakkanum og Gaza-strönd- inni brugðust hart við fregnum af handtökunni. Margir Palestínu- menn telja sig standa í þakkar- skuld við Saddam fyrir að hafa skotið eldflaugum á Ísrael í Persaflóastríðinu og stutt palest- ínskar andspyrnuhreyfingar með fjárframlögum. „Ég elska hann svo mikið að ég þoli ekki að horfa á hann í haldi Bandaríkjamanna,“ sagði ungur Palestínumaður þeg- ar myndir birtust af Saddam í sjónvarpinu. Nokkrar arabískar sjónvarps- stöðvar kusu að sýna ekki myndir af handtökunni. Yfirmaður Al-Jazeera gagnrýndi Bandaríkja- menn fyrir að birta myndir af Saddam þar sem þeir hefðu verið ósáttir við það þegar arabískar sjónvarpsstöðvar sýndu banda- ríska stríðsfanga. ■ Gleðistund hjá íröskum borgurum Handtöku Saddams Husseins var fagnað ákaft í borgum Íraks. Íraskir ráðamenn hétu því að forsetinn fyrrverandi yrði dreginn fyrir rétt svo þjóðin fengi að heyra um þá glæpi sem hann framdi. Ekki voru þó allir á eitt sáttir. BAGDAD Mikil fagnaðarlæti brut- ust út í Bagdad og fleiri borgum í Írak þegar fregnir bárust af því að Saddam Hussein, fyrrum for- seti, hefði verið handsamaður. „Loksins erum við laus við þennan glæpamann,“ sagði kúrdískur karlmaður í Kirkuk í Norður-Írak. Hundruð Kúrda þustu út á götur borgarinnar til að óska hver öðrum til hamingu. „Þetta er mesta gleðistund lífs míns,“ sagði einn íbúanna. Í Bagdad var skotið úr byssum upp í loftið, útvarpsstöðvar léku fjöruga tónlist og ökumenn þeyttu bílflautur. Kaupmenn lokuðu verslunum sínum af ótta við að óeirðir brytust út á götum borgar- innar. „Nú getum við byrjað upp á nýtt,“ sagði 35 ára gömul kona bú- sett í höfuðborginni. Meðlimir Íraska kommúnistaflokksins, sem var bannaður í stjórnartíð Sadd- ams Husseins, drógu rauða fána að húni við höfuðstöðvar flokks- ins í miðborg Bagdad. Ekki glöddust þó allir við tíðind- in af handtöku Saddams Husseins. „Við höfum glatað okkar einu von og nú sitjum við eftir með Banda- ríkjamenn,“ sagði öryggisvörður á Palestínu-hótelinu í Bagdad. „Við erum miður okkar,“ sagði ung kona í Adwar, bænum þar sem Saddam var handtekinn. „Þetta eru slæmar fréttir fyrir alla Íraka. Við viljum vera frjáls og óháð Bandaríkja- mönnum.“ Ráðamenn í Írak hafa farið fram á það að réttað verði yfir Saddam Hussein við nýstofnaðan stríðsglæpadómstól í Írak. „Saddam verður dreginn fyrir rétt svo að íraska þjóðin fái að heyra um þá glæpi sem hann framdi,“ sagði Ahmad Chalabi, sem er meðlimur framkvæmda- ráðsins í Írak. Skömmu áður en fregnirnar af handtöku Saddams bárust til eyrna almennings í Írak sprakk sprengja í bíl fyrir utan lögreglu- stöð í Bagdad með þeim afleiðing- um að að minnsta kosti sautján manns fórust og 33 særðust. Talið er að um sjálfsmorðsárás hafi verið að ræða. ■ SADDAM FÆR ÞAÐ ÓÞVEGIÐ Íbúar Bagdad börðu myndir af Saddam Hussein með skóm til að sýna andúð sína á forsetanum fyrrverandi. FORSETINN BRENNDUR Íraskur karlmaður kveikir í peninga- seðli með mynd af Saddam Hussein í miðborg Bagdad. SADDAM Í SKOÐUN Læknar tóku lífsýni úr Saddam Hussein strax eftir að hann var fluttur á öruggan stað. Lífsýnið var kannað á mjög skömm- um tíma. DNA-próf Saddams: Unnið á tólf tímum RANNSÓKNIR DNA-prófun eins og þá sem gerð hefur verið á Saddam Hussein til að staðfesta að hann sé sannanlega rétti maðurinn er hægt að gera á 12 klukkustundum, þannig að óyggjandi niðurstöður liggi fyrir, að sögn réttarsérfræð- ings. DNA-rannsóknarstofnun í New York hefur framkvæmt slíkar flýtirannsóknir í forgangsmálum. Ef fyrir liggur eitt einasta sýni og öll áhersla er lögð á að fá niður- stöðu með því að leggja alla aðra vinnu í rannsóknarstöðinni niður á meðan er hægt að ná henni inn- an ofangreindra tímamarka. Þetta er meðal annars gert þegar lög- reglan hefur handtekið grunaðan einstakling og getur aðeins haft hann í haldi tímabundið, nema DNA-rannsókn leiði í ljós tengsl hans við alvarlegan glæp. ■ SADDAM IÐRAST EINSKIS Háttsettur meðlimur stjórnmála- flokks shíta-múslíma segir að Saddam Hussein hafi ekki sýnt nein merki um iðrun eftir að hann var handsamaður af banda- ríska hernámsliðinu. Adel Abdel- Mahdi segir að Saddam hafi sýnt sér hroka og neitað að horfast í augu við það að íraska þjóðin hefði snúið við honum baki. SADDAM HYLLTUR Meðlimur í palestínskri ungliðahreyfingu heldur á mynd af Saddam Hussein í göngu í flóttamannabúðunum í Rafah á Gaza-ströndinni til stuðnings forsetanum fyrrverandi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.