Fréttablaðið - 15.12.2003, Síða 35
32 15. desember 2003 MÁNUDAG
ÓLÍK VIÐBRÖGÐ
Gordon Strachan fagnar marki sinna
manna í Southampton en Gerard Houllier
stjóri Liverpool er ekki eins kátur.
Fótbolti
hvað?hvar?hvenær?
11 12 13 14 15 16 17
MARS
Föstudagur
Haukar eiga góða möguleika á að komast áfram í Evrópukeppni bikarhafa:
Tveggja marka tap í Frakklandi
HANDBOLTI Haukar eru í ágætri
stöðu fyrir síðari leikinn gegn
franska félaginu Créteil í 16 liða
úrslitum Evrópukeppni bikar-
hafa eftir að þeir töpuðu aðeins
með tveim mörkum í Frakk-
landi, 30-28.
Jafnræði var með liðunum
nánast allan leikinn og munur-
inn aldrei meiri en fjögur mörk.
Hálfleikstölur voru 13-12
Créteil í vil. Viggó Sigurðsson,
þjálfari Hauka, var sáttur er
Fréttablaðið ræddi við hann eft-
ir leikinn enda hafði hann fyrir
fram talið viðunandi að tapa
með fjórum mörkum.
„Við erum sáttir við úrslitin
þar sem við vorum ekki að spila
sérstaklega vel og lykilmenn
voru ekki allir upp á sitt besta.
Við héngum samt í þeim og
leiddum um tíma. Munurinn
hefði hæglega aðeins getað ver-
ið eitt mark þar sem við
klúðruðum vítakasti rétt fyrir
leikslok. Ekki bætti heldur úr
skák að dómararnir voru af-
spyrnuslakir og við vorum
sífellt í kælingu. Ég held við
höfum verið út af í 16 mínútur,“
sagði Viggó en hann er bjart-
sýnn fyrir síðari leikinn. „Þetta
lið er svipað og við áttum von á
og það er núna algjörlega í okk-
ar höndum hvort við förum
áfram eða ekki. Við erum alls
ekki með síðra lið og með góðum
leik klárum við þetta dæmi og
förum áfram.“
Mörk Hauka: Andri Stefan 5,
Þorkell Magnússon 5, Dalius
Rasikevicius 4, Robertas Pauzu-
olis 3, Aliaksandr Shamkuts 3,
Halldór Ingólfsson 3, Ásgeir
Örn Hallgrímsson 2, Þórir
Ólafsson 2 og Jón Karl Björns-
son eitt. Birkir Ívar Guðmunds-
son varði 13 skot í markinu. ■
Jakob náði ekki
að komast í úrslit
SUND Jakob Jóhann Sveinsson
komst ekki í úrslit í 200 metra
bringusundi eins og menn höfðu
vonast til á Evrópumótinu í stuttri
laug sem fram fór í Dublin og lauk í
gær. Jakob hafnaði í 14. sæti á
2:11,34 mínútum en Íslandsmet
hans frá Antwerpen á sama móti
fyrir tveimur árum er 2:10,47 mín-
útur. Þá komst Jakob Jóhann í úr-
slitin en til þess að endurtaka leik-
inn nú hefði hann þurft að synda
nánast á Íslandsmetstíma, sem
tókst ekki.
Jakob var aðeins með 25. besta
tímann fyrir mótið og syntu því 24
keppendur á eftir honum í gær.
Þannig var strákurinn í 2. sæti þeg-
ar hann kom í mark en 12 af þessum
24 komust síðan upp fyrir hann
seinna um daginn. Jakob Jóhann
varð þar með í 14. sæti í bæði 100 og
200 metra bringusundi á þessu
móti. í 50 metra bringusundi háðu
þeir Jakob Jóhann og Jón Oddur
Sigurðsson einvígi og hafði Jón
Oddur þar betur. Jón Oddur synti á
28,83 sekúndum sem dugði honum í
29. sætið en Jakob synti á 29,93 sek-
úndum og hafnaði í 31. sæti af 39
keppndum.
Jakob Jóhann hefur æft mjög vel
en það vantaði nokkuð upp á hrað-
ann að mati Guðmundar Harðarson-
ar, sundspekings sem skrifaði um
mótið á heimasíðu SSÍ. ■
SUND Örn Arnarson vann sín átt-
undu verðlaun á Evrópumóti í
stuttri laug í gær þegar hann kom
annar í mark í 100 metra baksundi
á nýju Íslands- og Norðurlanda-
mótsmeti. Örn synti á 51,74 sek-
úndum en gamla metið setti hann í
sama móti í Riesa í Þýskalandi í
fyrra er hann synti á 51,91 sekúnd-
um. Sigurvegari í sundinu í gær
var heimsmethafinn Thomas
Rupprath frá Þýskalandi, fékk tím-
ann 50,72 sekúndur, en landi hans
Steffen Driesen varð þriðji á 51,92
sekúndum. Rupprath vann einnig
50 metra baksundið með miklum
yfirburðum.
Steindór Gunnarsson landsliðs-
þjálfari var í skýjunum eftir afrek
Arnar í gær. „Örn er á réttri leið.
Hann er að bæta sig verulega í
stuttu vegalengdunum enda höfðum
við unnið í þeim að undanförnu.
Vonbrigðin frá HM eru núna á bak
og burt og nú stefnum við af krafti
á Ólympíuleikana,“ sagði Steindór
en Örn hefur glímt við meiðsli og
formleysi undanfarið ár.
Örninn er því greinilega kominn
á flug á ný en hann setti alls þrjú Ís-
landsmet og þrjú Norðurlandamóts-
met í Dublin því hann tvíbætti Ís-
landsmetið í 50 metra baksundi á
föstudaginn og jafnaði og bætti
Norðurlandametið í sama sundi.
hefur Örn aðeins einu sinni á
synt á undir 1:54:00 mínútum í
metra baksundinu en hann end
þar í fimmta sæti eftir að hafa u
ið fjögur EM-gull í þeirri grein á
unum 1998 til 2002.
Örn á nú gildandi Norðurlan
met í stuttri laug í þrem
baksundsgreinum, í 50 baksun
100 metra baksundi og svo í
metra baksundi en það met s
hann á EM í Valencia 2000 og
það þá einnig Evrópumet. ■
!
"#$ %&
&'&( )
& *
19.30 ÍS og Hamar keppa í bikar-
keppni KKÍ og Lýsingar í kvenna-
flokki í íþróttahúsi Kennaraháskól-
ans.
19.30 Haukar og Keflavík (b)
keppa í bikarkeppni KKÍ og Lýs-
ingar í kvennaflokki á Ásvöllum.
15.00 Ensku mörkin á Stöð 2.
17.30 Ensku mörkin á Sýn.
18.25 Spænsku mörkin á Sýn.
19.20 NFL-tilþrif á Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn.
STERKUR
Dalius Rasikevicius átti fínan leik með
Haukum í Frakklandi í gær og skoraði fjög-
ur mörk.
Evrópumótið í 25 metra laug í Dublin á Írlandi:
Örn með silfur
VERÐLAUN ARNAR Á EVRÓPU-
MÓT Í 25 M LAUG
1998 Gull í 200 m baksundi 1:55,16
1999 Gull í 200 m baksundi 1:54,23
1999 Gull í 100 m baksundi 53,13
2000 Gull í 200 m baksundi 1:52,90
2000 Gull í 100 m baksundi 52,28
2002 Gull í 200 m baksundi 1:54,00
2002 Brons í 100 m baksundi 51,91
2003 Silfur í 100 m baksundi 51,74
GILDANDI NORÐURLANDAMET
ARNAR Í 25 M LAUG
200 m baksund 1:52,90 mín.
(Valencia 20
100 m baksund 51,74 sek.
(Dublin 20
50 m baksund 24,47 sek.
(Dublin 20
Anja Ríkey Jakobsdóttir stóð sig vel í Dublin:
Setti stúlknamet
SUND Anja Ríkey Jakobsdóttir úr
SH stóð sig vel á Evrópumótinu í
Dublin, setti stúlknamet í 50 m
baksundi á laugardaginn þegar
hún synti á 29,57 sekúndum og var
aðeins 0,37 sek. frá því að komast
í undanúrslit. Anja bætti sig síðan
um 2,1 sekúndu í 200 metra bak-
sundi í gær þegar hún synti á
2:17.60 mínútum og varð í 28.
sæti. Ragnheiður Ragnarsdóttir
hélt einnig áfram að bæta sig og
bæting hennar í 50 m skriðsundi
kvenna var upp á rúmlega 0,3 sek-
úndur, hún synti þar á 26,71 sek-
úndum.
Það gekk ekki eins vel hjá hin-
um. Heiðar Ingi Marinósson bætti
sig í 50 metra flugsundi um 15/100
úr sekúndu er hann synti á 25,95
sekúndum og varð í 44. sæti en
hann varð síðastur í 100 metra
baksundi. Hafdís Erla Hafsteins-
dóttir varð síðust bæði í 400 metra
fjórsundi og 100 metra flugsundi
og Íris Edda Heimisdóttir varð
síðust í 100 m bringsundi. Lou
Isaksen og Sigrún Benediktsd
ir urðu í tveimur síðustu sætun
í 400 m skriðsundi kvenna á la
ardaginn en stóðu sig betur í
metra skriðsundi í gær. Sigr
bætti sig þar um 1,2 sekún
synti á 2:06,98 mín. og hafnað
42. sæti. Louisa synti á 2:07
mín og hafnði í 43. sæti. ■
ANJA RÍKEY
Anja Ríkey Jakobsdóttir úr SH setti stúlk
met í 50 m baksundi á Evrópumótinu
Dublin.
ÖRN Á PALLI
Örn Arnarson stóð í
áttunda sinn á verð-
launapalli á EM í gær.