Fréttablaðið - 15.12.2003, Side 39

Fréttablaðið - 15.12.2003, Side 39
HAFÐU ÞETTA „Böðullinn“ Bernard Hopkins fór illa með William Joppy um helgina. Hér hittir Hopkins beint í mark eins og svo oft í bardaganum. 36 15. desember 2003 MÁNUDAG SIGURGANGA Á ENDA Steve Nash og félagar í Dallas stöðvuðu 10 leikja sigurgöngu Lakers og urðu fyrstir til að vinna í Staples Center í 28 leikjum. Körfubolti Heimsmeistaramót kvenna í handknattleik: Frakkar heimsmeistarar í fyrsta sinn HANDBOLTI Frakkar tryggðu sér í gærkvöld heimsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna í fyrsta sinn þegar liðið lagði Ungverja- land að velli, 32-29, í úrslitaleik í Zagreb í Króatíu. Leikurinn, sem var framlengdur, var frábær skemmtun en staðan að loknum venjulegum leiktíma var 28-28. Ungversku stúlkurnar höfðu á tímabili sjö marka forystu en þeim frönsku tókst með seiglu að jafna metin og tryggja sér síðan sigur í framlengingunni. Melinda Jaques var markahæst hjá franska liðinu með fimm mörk og þær Leila Lejeune, Pecqueux Rol- land, Myriam Korfanty og Rapha- elle Tervel skoruðu fjögur mörk hver. Bojana Radulovics var yfir- burðamanneskja í ungverska lið- inu og skoraði þrettán mörk og Anita Görbicz skoraði fjögur mörk. Dómarar leiksins voru Stefán Arnaldsson og Gunnar Viðarsson og voru þeir landi og þjóð til mikils sóma. Frönsku stúlkurnar unnu þær úkraínsku í undanúrslitum, 28-26, eftir framlengdan leik þar sem stað- an var jöfn, 25-25, eftir venjulegan leiktíma. Ungverjaland vann Kóreu, 40-38, í hinum undanúrslitaleiknum en staðan í hálfleik var 22-19. Í leiknum um þriðja sætið bar Kórea sigurorð af Úkraínu, 31-29. Lim Kyeong O var markahæst hjá Kóreu með sjö mörk, Oh Seong- Ok skoraði fimm mörk og Kim Cha-Youn skoraði fjögur mörk. Nataliya Lyapina var öflug í liði Úkraínu og skoraði tíu mörk úr jafnmörgum tilraunum, Olena Tsygitsa skoraði sex mörk og Maryna Verhelyuk skoraði fimm mörk. ■ Spinks stal senunni Cory Spinks kom á óvart í Atlantic City. Ruiz lagði Rahman og Bernard Hopkins fór létt með William Joppy. BOX Það var hart barist í Atlantic City aðfaranótt sunnudags þegar fimm bardagar um heimsmeist- aratignir fóru fram. Ekki fór allt eftir bólkinni og kom sigur Cory Spinks á Ricard Mayorga veru- lega á óvart, sem og hversu af- spyrnuleiðinlegur bardagi Hasim Rahman og John Ruiz var. Spinks fetaði með sigrinum í fótspor föður síns, Leon Spinks, sem lagði sjálfan Muhammad Ali fyrir 25 árum síðan. Spinks sigr- aði næsta örugglega á stigum enda var hann mjög hreyfanlegur og beitti stungum allan tímann sem Mayorga réð illa við. Þungavigtarstrákarnir Hasim Rahman og John Ruiz buðu upp á leiðinlega sýningu sem minnti einna helst á gömludansakvöld því þeir héngu utan í hvor öðrum í 12 lotur í stað þess að lemja hvor á öðrum. Ruiz var þó skömminni skárri og kom inn nokkrum högg- um enda dæmdu allir dómararnir honum sigur. Fyrir vikið á hann rétt á nýjum bardaga gegn Roy Jones Jr. sem reyndar hefur ekki áhuga á að berjast aftur við Ruiz. Hann vill frekar berjast við Miek Tyson. Bernard Hopkins lenti í litlum vandræðum með William Joppy og sigraði með miklum yfirburð- um. Hann náði þó ekki að r Joppy eins og hann hafði stefnt og þótti með hreinum ólíkind að Joppy skyldi takast að stan loturnar 12. Þeir félagarnir v með lítið veðmál fyrir bardaga Hopkins sagði að hann myndi r Joppy, sem var ekki á sama m Joppy vann veðmálið, sem v upp á 50.000 dollara, en Hopk bardagann. Zab Judah hafði það náðugt rotaði Jamie Rangel á rúmri m útu og Travis Simms er enn ósi aður eftir góðan sigur á Alejan Garcia. Simms rotaði Garcia m glæsilegum vinstri krók í 5. lotu FÓTBOLTI Argentínska liðið Boca Juniors varð heimsmeistari fé- lagsliða í gær þegar liðið vann ítalska liðið AC Milan, 3-1, í víta- keppni eftir að liðin höfðu gert 1-1 jafntefli. Þetta er í þriðja sinn sem Boca Juniors vinnur þennan úrslitaleik í heimsmeistarakeppni félagsliða en þar spila sigurvegar- ar Meistaradeildar Evrópu og Suður-Ameríkubikarsins og fer leikurinn fram í Japan. Evrópa hefur aðeins tapað þessum titli fjórum sinnum á síðustu 11 árum og í þrjú af þeim skiptum hefur AC Milan mistekist að verja heið- ur Evrópu en Real Madrid tapaði líka fyrir Boca 2000. Íslenski Daninn Jon Dahl Tomasson kom ítalska liðinu yfir á 24. mínútu leiksins en Matias Donnet jafnaði að- eins fimm mínútum síðar. Það var miðju- maðurinn Raul Cascini sem varð fjórði maðurinn til að klikka á víti eftir að Andrea Pirlo, Clarence Seedorf og Alessandro Costacurta höfðu a misnotað víti. AC Milan réð lög og lofum í leiknum en mistókst verða fyrsta félagið til að vin þennan titil í fjórða sinn. AC M an vann úrslitaleikinn 1969, 1 og 1990 en hefur nú tapað í þ síðustu skipti; 1993, 1994 og 2003. ■ BOCA MEISTARI Argentínska liðið Boca Juniors varð hei meistari félagsliða í gær. SÍÐUSTU 11 ÚRSLITALEIKIR Í HEIMSMEISTARAKEPPNI FÉLAGSLIÐA: 2003 Boca Juniors (Arg.) - AC Milan (Íta.) 1-1 (3-1 vk.) 2002 Real Madrid (Sp.)- Olimpia (Par.) 2-0 2001 Bayern Munich (Þýsk.) - Boca Juniors (Arg.) 1-0 2000 Boca Juniors (Arg.) - Real Madrid (Sp.) 2-1 1999 Manchester United (Eng.) - Palmeiras (Bra.) 1-0 1998 Real Madrid (Spa.) - Vasco da Gama (Bra.) 2-1 1997 Borussia Dortmund (Þýsk.) - Cruzeiro (Bra.) 2-0 1996 Juventus (Íta.) - River Plate (Arg.) 1-0 1995 Ajax Amsterdam (Hol.) - Gremio (Bra.) 0-0 (4-3 vk.) 1994 Velez Sarsfield (Arg.) - AC Milan (Íta.) 2-0 1993 Sao Paulo (Bra.) - AC Milan (Íta.) 3-2 Sigrar 1993-2003: Evrópa 7, Suður-Ameríka 4. Heimsmeistarakeppni félagsliða: Enn og aftur klikkar AC Milan BROTIST Í GEGN Melinda Jaques, markahæsti leikmað- ur Frakka í úrslitaleiknum, reynir hér að brjótast í gegnum vörn Ungverja.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.