Fréttablaðið - 15.12.2003, Síða 40
37ÁNUDAGUR 15. desember 2003
eitt vinsælasta spil í heimi stækkar
15 milljónir
spilara
í Evrópu
Á hverju ári er haldið heimsmeistaramót í Catan og í haust kepptu Gunnar Jóhannsson og Baldur Már Jónsson fyrir Íslands hönd.
Þeir stóðu sig með mikilli prýði og komst Gunnar í 16 manna úrslit. Fljótlega eftir áramót verður haldið Íslandsmót í Catan og fara
sigurvegarar þess á heimsmeistaramótið haustið 2004. Keppir þú fyrir Íslands hönd á HM í Catan á næsta ári?
Ert þú efni í heimsmeistara?
Catan - Landnemarnir er eitthvert vinsælasta spil í heimi og hefur
m.a. verið valið „Spil ársins“ í Þýskalandi og Bandaríkjunum.
Auðvelt er að læra spilið en það krefst útsjónarsemi og dirfsku
(Strategy). Spilið er fyrir alla aldurshópa.
Catan - Landnemarnir kom út í fyrsta sinn á
íslensku í fyrra. Nú er hægt að fá stækkun við
spilið, sem og framhalds-spilið Sæfararnir.
Klaus Teuber, höfundur spilsins, hefur
nýlega greint frá því að landnám Íslands
sé uppspretta Catan.
Catan er spil sem brúar kynslóðabil og þig langar að spila
aftur og aftur.
www.spil.is
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
BOLTI Arsenal komst á topp
ku úrvalsdeildarinnar í gær
r að hafa lagt Blackburn að
li, 1-0, á heimavelli sínum,
ghbury. Það var Hollendingur-
Dennis Bergkamp sem skor-
sigurmarkið á elleftu mínútu
r frábæran undirbúning hjá
o Toure. Leikmenn Arsenal
u hálfmáttlitlir í leiknum, ef-
st þreyttir eftir Evrópuleik
gn Lokomotiv í vikunni, en
tt fyrir mikla pressu að marki
senal á lokakaflanum tókst
kmönnum Blackburn ekki að
koma boltanum framhjá Jens
Lehman. Arsene Wenger, knatt-
spyrnustjóri Arsenal, var sæll og
glaður eftir leikinn og sagði vik-
una hafa verið frábæra. „Þetta er
búin að vera frábær vika. Við
komumst áfram í næstu umferð í
Meistaradeildinni á miðvikudag-
inn og fórum á toppinn í ensku úr-
valsdeildinni í dag. Það gæti ekki
verið mikið betra og ég er mjög
stoltur af mínum mönnum fyrir
að hafa klárað leikinn. Þetta var
ekki allra besti leikur liðsins enda
voru menn þreyttir eftir leikinn á
miðvikudaginn,“ sagði Wenger.
Vandræði Wolves jukust enn
þegar liðið tapaði fyrir Aston
Villa, 3-2, í grannaslag í Birming-
ham. Kólumbíumaðurinn Juan
Pablo Angel skoraði tvívegis fyrir
Aston Villa á þriggja mínútna
kafla um miðbik fyrri hálfleiks en
Alex Rae náði að minnka muninn
fyrir Wolves áður en flautað var
til hálfleiks. Gareth Barry kom
Aston Villa í 3-1 og það skipti litlu
þótt Mark Kennedy næði að laga
stöðuna fyrir Wolves, sem er í
neðsta sæti úrvalsdeildarinnar,
fjórum stigum á eftir næsta liði. ■
FÓTBOLTI Það vart hart barist í ná-
grannaslagnum í Barcelona um
helgina þegar Español tók á móti
Barcelona. Á endanum höfðu sex
leikmenn liðanna, þrír frá hvoru
liði, þurft að yfirgefa leikvöllinn
með rautt spjald á bakinu og því
enduðu bæði lið með aðeins átta
leikmenn inni á vellinum. Aldrei
áður hafa fleiri leikmenn verið
reknir út af í spænsku deildinni.
Fyrra metið var fimm rauð spjöld
í leik Español og Real Mallorca
árið 1987. Dómarinn, Alfonso Pino
Zamorano, lyfti þessum sex rauðu
spjöldum fyrir óskyld atvik á að-
eins 46 mínútna kafla í leiknum en
þegar upp var staðið voru það
gestirnir frá Barcelona sem tóku
með sér öll þrjú stigin með sér til
baka. Þess má geta að Zamorano
dæmdi alls 36 aukaspyrnur í
leiknum og lyfti 18 spjöldum, 12
gulum og sex rauðum.
Það má segja að liðin hafi boð-
ið upp á tvenns konar fótbolta.
Markaveisla var í fyrri hálfleik
þar sem öll mörkin fjögur voru
skoruð; Jordi Cruyff kom Español
yfir strax á 8. mínútu en þeir
Patrick Kluivert (2) og Ronald-
inho færðu Börsungum góða for-
ustu fyrir hlé. Fyrsta rauða
spjaldið kom síðan á 40. mínútu,
fimm mínútum eftir síðasta mark-
ið, og fimm rauð spjöld fóru síðan
á loft í seinni hálfleik. Þetta var
fyrsti sigur Barcelona í fimm
leikjum og kom liðinu upp í sjö-
unda sætið en nágrannarnir í
Español hafa aðeins náð í átta stig
út úr 16 leikjum og sitja í neðsta
sæti deildarinnar. ■
BOLTI Upprisa Leeds í ensku úr-
sdeildinni heldur áfram. Í gær
liðið sigurorð af Fulham, 3-2,
Fulham hefur spilað mjög vel í
ur og er í fjórða sæti deildar-
ar. Þrátt fyrir sigurinn er
eds enn í næstneðsta sæti deild-
nnar en staða liðsins er þó allt
ur en fyrir þremur vikum þeg-
liðið var grafið á botninum.
eds byrjaði betur og náði
ggja marka forystu. Fyrst
raði varnarmaðurinn Michael
berry með hnénu og strax í
jun síðari hálfleiks skoraði
rk Viduka annað mark liðsins.
kkinn Luis Saha, sem skorað
hefur tíu mörk á tímabilinu, jafn-
aði metin fyrir Fulham með
tveimur mörkum en fyrirliði
Leeds, Dominic Matteo, tryggði
sínum mönnum stigin þrjú þegar
tvær mínútur voru til leiksloka.
„Þetta var gífurlega mikilvægur
sigur fyrir okkur og staðfesting á
því að það býr mikill karakter í
liðinu. Menn eru að berjast hver
fyrir annan og það er á hreinu að
við ætlum okkur ekki að falla úr
úrvalsdeildinni í vor. Liðið er allt
of gott fyrir það,“ sagði hetja
Leeds, Dominic Matteo, eftir leik-
inn. ■
LEEDSARAR
FAGNA
MARKI
Leikmenn
Leeds fagna
hér marki Mark
Viduka í gær.
nska knattspyrnan í gær:
Upprisa
Leeds
SIGURMARK BERGKAMPS
Thierry Henry, Dennis Bergkamp og Kolo Toure fagna hér marki Bergkamps sem reyndist
vera sigurmarkið gegn Blackburn.
Arsenal
á toppinn
Bar sigurorð af Blackburn, 1-0, á Highbury.
SEX RAUÐ SPJÖLD Á LOFT:
Hjá Español:
Ivan de la Peña (40.)
Toni Soldevilla (39. og 60.*)
Albert Lopo, (14. og 87.*)
Hjá Barcelona:
Rafael Marquez (26. og 47.*)
Ricardo Quaresma (45. og 51.*)
Philip Cocu (65.)
* Reknir út af með tvö gul spjöld
Aðeins 16 eftir á vellinum í nágrannaslagnum
í Barcelona:
Sex rauð spjöld á loft
Spænska knattspyrnan:
Real enn á
toppnum
FÓTBOLTI Real Madrid er enn á
toppi spænsku 1. deildarinnar í
knattspyrnu eftir 2-1 sigur á
Deportivo La Coruña á
heimavelli sínum, Santiago
Bernabeu, í gærkvöld.
Brasilíumaðurinn Ronaldo
kom Real Madrid yfir rétt áður
en flautað var til hálfleiks en
Walter Pandiani, oft nefndur
„Riffillinn“, jafnaði metin fyrir
Deportivo á 63. mínútu. Það var
síðan gulldrengurinn Raúl sem
skoraði sigurmark Real Madrid
fimm mínútum fyrir leikslok og
tryggði liðinu stigin þrjú.
Real Madrid hefur nú 36 stig
á toppi deildarinnar, tveimur
stigum meira en Valencia sem
bar sigurorð af Real Betis á úti-
velli, 1-0. Deportivo La Coruña
er í þriða sæti deildarinnar með
30 stig. ■