Tíminn - 22.09.1971, Side 2

Tíminn - 22.09.1971, Side 2
TIMINN MIÐVIKUDAGUR 22. september 1971 Hallgrímskirlcju berast gjafir: 50 MANNA MATAR- OG KAFFI- STELL OG 70 TONN AF SANDI SB—Revkjavík, þriðjudag. Gjafir frá Noregi til Skálholts- skóla og Hallgrímskirkju voru af- hentar í dag við athöfn í Ilallgríms- kirkju. Eru þetta 50 manna matar- og kaffistell, svo og sængurfatnað- ur fyrir jafnmarga, handa heima- vist Skálholtsskóla, og sperruefni og þakklæðning á Hallgrímskirkju. Ennfremur 70 tonn af granítsandi, til að múrhúða kirkjuna mcð. Ambassador Noregs á íslandi, August C. Mohr, afhenti gjafirnar fyrir hönd gefenda, en þær eru til- komnar vegna söfnunar í Noregi, sem íslandsvinurinn sr. Harald Hope gekkst fyrir þar. Biskup ís- lands, hr. Sigurbjörn Einarsson, tók við gjöfinni fyrir hönd Skál- holtsskólans, en Hermann Þorsteins son, formaður söfnunarnefndar Hallgrímskirkju, tók við fyrir hönd August C. MoVirj aiiiiiássadoi- Noregs, afhendir biskupi íslands, hr. Sigur. blrni Einarssyni, gjafirnar frá Noregi, .(.Tímainynd GE) kirkjunnar. Biskupinn þakkaði síðan gjafirn ar með ræðu og sagði meðal annars: „Þessar gjafir eru til komnar vegna þess, að í barmi erlends manns býr sá hugur til íslands. sem trauðlega verður ann ar fundinn slíkur. Við hefðum kosið, að sá maður, sr. Harald Hope, hefði verið sér sjálfur, en það eitt skortir á það að persónu legt afrek yrði fullkomnað, að sr. Harald getur ekki rétt okkur gjaíirnar eigin höndum. íslenzk saga er honum helg. Og þess vegna ann hann Skálholti flestum mönnum meir. Og þess vegna skil ur hann og metur gildi Hallgríms og minningu hans.“ Ræðu sína endaði biskupinn á þessum orðum: „Guð blessi Nor- eg, norska frændur, vini og vel- unnara“. Að athöfninni lokinni sagði Hermann Þorsteinsson frétta- mönnum, að nú væri verið að sandblása turn kirkjunnar og und irbúa hann undir múrhúðun með norska granítsamdinum. Sandur þessi, sem er úr námum í Sogni, er nægur til að múrhúða alla kirkjuna með. Timbrið, sem eru 6 standardar, sperruefni, sem not að verður með steyptum sperr- um og þakklæðning, verður einnig nóg í þak kirkjunnar. Síðan fer eftir veðri og öðrum aðstæðum, hvernig verkinu miðar, en eins og kunnugt er. er takmarkið að Ha]l grímskirkja standi fullbúin á 1100 ára afmæli íslandsbyggðar, árið 1974. Frá Iðnþingi íslands Uppbyggingu iönfræðslu ólokið eftir 20 ár, með sama hraða ÞÓ—Reykjavík, mánudag. 33. Iðnþingi íslands var slitið 8.1. laugardag, en fyrr um dag inn voru afgreidd álit nefnda um ýmis mál, og bar þar hæst mál eins og um iðnminjasafn, undan- þágur frá iðnnámi, brot á iðn- löggjöfinni og fleira. Þá var og *®Jin nefnd til þess að koma á fát hag- og kjaradeiíd innan Lands sanibands iðnaðarmanna. A þinginu voru samþykktar fjöl ihamar ályktanir, svo sem um launamál iðnaðarins, en í þeirri ályktun segir að 33. Iðnþing ís- lendinga fagni yfirlýsingu iðnaðar ráðherra þess efnís, að vaxtakjör og lánstími, sem atvinnufyrirtæki búa við verði endurskoðuð og bætt. Jafnframt ítrekar þingið fyrri samþykktir, um að rekstrar- lánafyrirgreiðsla til iðnfyrirtækja verði aukin, þar sem vaxandi fram leiðsla og fyrirsjáanlega hækkandi framleiðslukostnaður hefur leítt til aukinnar rekstrarfjárþarfar. Þá fagnar þingið stofnun veð- deildar við Iðnaðarbankann og Geysikg úrkoma á Austurlandi Slydda á láglendi, — snjókoma til fjalla ÞÓ—Reykjavík, þriðjudag. Jón Kristjánsson, fréttaritari Tím ans á Egilsstöðum, tjáði blaðinu í aag, að geysileg úrkoma hefði ver- ið þar eystra í nótt og í morgun. Slydda var á láglendi, en snjókoma til fjalla. Var Möðrudalsfjallgarð- ur orðinn ófær litlum bílum, og ef ekki rofar til alveg á næstunni. má búast 'ið að hann verði ófær öll- um bílum. Þá voru Oddsskarð og Fjarðarheiði orðin ófær, en á Fagra dal var slydda og versta veður. Jökuldælingar höfðu hugsað sér að fara í göngur í morgun, en þeir urðu að fresta því vegna veðurs. Þá eru Fljótsdælingar í göngum inni á heiði og má búast, við að þcir hafi fengið hið versta veður. hvetur um leið iðnaðarmannafé- lögin að stuðla að sölu á skulda bréfum deildarinnar. Þingið álítur það nauðsynjamál, að unnið verði áfram að því að kanna möguleika á að koma á að- stoð við aldraða iðnaðarmenn, í líkingu við Dvalarheimili aldraðra sjómanna með því að reynt verði að finna tekjustofri til fram- kvæmda. Þá styður Iðnþingið þá hugmynd milliþinganefndar þess efnis að Landssamband iðnaðar- manna hlutist til um að allir iðn- aðarmenn í landinu sameinist um „Iðnaðarmannadag“ sem verði að sameiningartákni allra iðnaðar manna og jafnframt fjáröflunardag ur fyrir málefni aldraðra iðnaðar- manna. Þá vill Iðnþingið vekja athygli á, hve mjög uppbygging iðnfræðslu skóla hefir verið vanrækt og bend ir á að 1966 var gerð framkvæmda áætlun um byggingu iðnskóla fram til ársins 1975. Samkvæmt áætluninni var heildarkostnaður ríkissjóðs 135 milljónir kr., sem á verðlagi í dag er vart undir 260 milljónum. Veglegasta fjár yeiting til þessara mála var á síð asta ári og nam 12 milljónum kr. Verði áframhaldandi skilningsleysi ríkjandi á málum iðnfræðslunnar mun áætlaðri uppbyggingu ekki lokið fyrr en eftir 20 ár, og er öll þróun innan iðnfræðslunnar ólcyst. Framhald á bls. 14 Blaka við eina mynda sinna. (Tímamynd G-E) Fyrsta málverkasýning Blöku - Guðrúnar Jónsdóttur - á Mokka SB-Reykjavík, mánudag. Guðrún Jónsdóttir, öllu kunn ari undir nafninu Blaka, heldur nú sína fyrstu málverkasýn- ingu á Mokka. Guðrún starfaði á skrifstofu forseta íslands í 15 ár, en fór síðan að starfá í íslenzka sendiráðinu í Sovét- ríkjunum. Hún kom heim haust ið 1969 og hefur síðan hjúkr- að sj'/kri móður sinni. Blaða- maður Tímans hitti Guðrúnu að máli á Mokka í dag. — Hvað kom til áð þú fórst að mála, Guðrún? — Þetta, kom bara yfir mig. Ég hef mikið þurft að vaka á næturnar og fagrar nætur verka sterkt á mann, þegar maður er bundinn og kemst ekki út. Svo ég fékk mér vatns ,, }jti ,,Qg(,fór að mála. — Hefur. þú lært ,eit,thvað? — Nei, en ég hef lesið míkið um list- og fylgzt með öllum sýningum. Svo er þetta líklega í ættinni. Systir mín er dr. Selma Jónsdóttir, listfræðing- ur, og bróðir minn, Halldór, er arkitekt. — Þú málar eingöngu með vatnslitum? — Já, það er þægilegra, fer minna fyrir því en flestu öðru. — Hvenær byrjaðirðu á þessu? — Aðeins fyrir jólin, en allar þessar myndir eru málað- ar í vor og sumar. Svavar Guðnason, listriiálari, hjálpaði mér við uppsetningu sýningar- innar og myndavalið. Hann kallaði þetta „lyriskan express ionisma“ en þetta eru ein- göngu hugmyndir mínar, ég hafði engar fyrirmyndir, en mér er sagt að þarna gæti mik- ið áhrifa úr umhverfi Borgar- fjarðar, en það er mín heima- byggð, sagði Guðrún að end- ingu. . ......... Á sýnirigunni eru 21 vatns- litámynd. Allar eru þær til sölu og kosta 2.300 kr. stykk- ið. Sýningin verður opin næstu þrjár vikumar. I Ingvi Hrafn við einá relief-mynda sinna. (Tímamynd GE) Ingvi Hrafn sýnir relief-myndir SB-Reykjavík. Ingvi Hrafn Hauksson hefur opnað fjórðu einkasýningu sína í sýningarsalnum að Berg stáðastræti 4. Þar sýnir hann nú 20 relief-myndir, sem allar eru til sölu á 11 til 16 þúsund krónur stykkið. Ingvi Hrafn stundaði nárn í Myndlista- og hándíðaskólan- um í Reykjavík og síðan í Kaup mannahöfn. Hann fór í náms- ferð til Parísar 1969 og þar á hann relief-myndir og skúlp- túra í Biennalinn-safninu. — Þekktasta verk Ingva Hrafns, mun vera „Fallinn víxill", sem selt var á útihöggmyndasýning unni á Skólavörðuholti 1968. Sýningin að Bcrgstaðastrætl 4 verður opin í hálfan mánuð eða svo, frá kl. 2—22 alla daga. Erlendu veiðiskipin 95 talsins ÞÓ-Reykjavík, þriðjudag. Landhelgisgæzlan lét fara fram könnun á fjölda erlendra veiðiskipa hér við land dag- ana 14. og 15. sept. s.l. Alls reyndust erlendu veiðiskipin vera 95 talsins. Þar af voru 60 brezkir togarar á veiðum hér við land og héldu þeir sig mest út af Norðvesturlandi og djúpt út af Reyðarfirði. Þá voru á miðunum 30 v-býzkir togarar og voru þeir flestir úti af Reykjanesi. Skip af öðrum þjóðernum voru 4 belgískir togarar og eitt færeyskt skip.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.