Tíminn - 22.09.1971, Blaðsíða 3

Tíminn - 22.09.1971, Blaðsíða 3
I MEÐVTKUDAGUR 22. september 1971 • ... — ■" 1 TÍMIN N Þarna er verið að reka safnið inn f almenninginn i Hafravatnsrétt, og fólkið bíður þess að byrja að draga, Vísindaráðstefnan: Æskilegt að samræma vís- indastarfsemi á íslandi FÉ AF FJALLI KJ—Reykjavík, þriðjudag. Það voru ekki allir háir í loftinu, sem voru við drátt í réttinni, og hér er ein af þeim yngri. Hafravatnsrétt er orðin hálf- gerð Reykjavíkurrétt, því þangað leggja að jafnaði margir Reyk- víkingar leið sína, með ungviðið úr borginni. Aftur á móti eiga Reykvikingar ekki margt fé í Hafravatnsrétt, en alltaf þó kind og kind. Reykjavíkurféð er aðal- lega réttað fyrir ofan Lækjar- botna og voru þær réttir á sunnu- daginn. Hafravatnsrétt er fyrst og fremst fyrir Mosfellssveitina, og enn er töluvert fé þar í sveit, þótt því fari líklega fækkandi, eftir því sem þéttbýlið sækir þar á. í morgun þegar réttað var í Hafravatnsrétt viðraði vel fyrir fjáreigendur að draga í sundur fé sitt, og fyrir borgarbúann að sýna borgarbömunum jarmandi fjárhópa. Dráttur gekk ágætlega, og mun að mestu hafa verið lok ið um hádegisbilið. Fyrir þá bændur í Mosfellssveit, sem láta fé í sláturhús, lengist sláturhúsferðin nokkuð, þvi fara verður með féð austur á Selfoss í Sláturfélagshúsið þar. Hún vildi greinilega út úr aðhaldinu vlS Hafravatnsrétt [ gærmorgun þessl flekkótta gimbur, en girSingin hélt, og vonandi hefur gimbrin komizt til eiganda síns í gær. (Tímamyndir Róbert) Lokið er fundi, seip haldinn var í Reykjavík á vegum Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu, þar sem fjallað var um stefnumótun vísindastarfs á íslandi. Stofnunio hefur beitt sér fyrir athugunum á vísindastarfi hinna ýmsu aðild- arríkja, m.a. á íslandi. Voru nið- urstöður þeirra athugana og til- lögur sérfræðinga stofnunarinnar ræddar á fundinum. Auk erlendu sérfræðinganna tóku um 40 fs- lendingar þátt í fundinum. Steingrímur Hermannsson, fram kvæmdastjóri Rannsóknarráðs rík- isins, sagði að gildi ráðstefnu sem þessarar fyrir fslendinga væri margþætt, en ef til vill fyrst og fremst það, að neyða okkur til að koma saman og horfast í augu við ýmiss konar atriði á sviði vís- inda, sem þarfnast endursköpun- ar. Helztu athugasemdir og tillög- ur sem sérfræðingar Efnahags- og framfarastofnunarinnar gerðu voru fyrst og fremst að efla ís- lenzk vísindi, veita meira fjár- magni til þeirra, en þeir telja of litlu fé varið í þessu skyni. Bentu þeir á að lágum hundraðshluta af þjóðarframleiðslunni væri varið til vísinda. Þeir bentu á að end- urskoða þyrfti skipulag Rannsókn arráðs. Fækka í því og athuga verksvið þess. Þeir lögðu ríka áherzlu á að rannsóknarstofnanirn ar yrðu í betri tengslum við við- komandi atvinnuvegi. Lagt yar til að Rannsóknarráð heyri undir for sætisráðuneytið, sem þýðir ríkis- stjórnina alla, en viðkomandi ráðu neyti verði eftir sem áður yfir hinum einstöku rannsóknarstofn- unum. Sérfræðingarnir lögðu ríka áherzlu á að efla í’annsóknarstarf semi Háskólans og gera Háskól- anum þannig kleift að útskrifa vísindamenn og verkfræðinga, bet- ur en nú er, og í því skyni vilja þeir tengja nánar rannsóknarstarf semi í þágu atvinnuveganna og Háskólans. Framhald á bls. 14. ftVíÐfl WH Er þeim sjálfrátt? Alþýðublaðið skýrir frá því í gær, að þingflokkur Alþýðu- flokksins hafi komið saman til fundar í fyrradag og samþykkt þar að leggja til að alþýðulýð- vehlið Kína fái inngöngu í Sam einuðu þjóðirnar og taki sæti Kína í Öryggisráðinu. Hins vegar telji þingflokkur AlþýðH flokksins ástæðulaust að víkja Taiwan úr samtökunum og leggur til að ísland greiði at- kvæði gegn slíkum tillögum. Ennfremur segir í ályktuninni: „Þingflokkurinn bendir á, að samskipti alþýðulýðveldisins Kína við umheiminn hafi farið batnandi undanfarið. Verði framhald á þeirri þróun, telur þingflokkurinn rétt, að ísland taki upp stjórnmálasamband við stjórnina í Peking, og at- hugaðir vcrði möguleikar á framtíðarviðskiptum milli þjóð anna.“ Þessari ályktun er svo fylgt eftir í Alþýðublaðinu með við- tali við Benedikt Gröndal, for- mann þingflokks Alþýðuflokks- ins. f því viötali segir Bene- dikt Gröndal mcðal annars, að Formósa eða Taiwan sé ,,sjálf- stætt ríki með tæplega 15 mili- jónum íbúa, sem hefur verið i Sameinuðu þjóðunum allt frá stofnun þeirra samtaka“. Hvað sem Sjang segir .... Hér er Bcncdikt og þing- flokkur Alþýðuflokksins á allt öðru máli en stjórn sú, sem situr á Formósu. Sjang-Kai- sjekk hefur lýst því yfir að hann líti alls ekki á Formósu sem sjálfstætt ríki, heldur sem hluta Kína og ríkisstjórnin, sem hafi nú aðsetur á Formósu sé ríkisstjórn alls Kína. Þessi stjórn liefur farið með umboð Kína hjá Samcinuðu þjóðun- um frá upphafi. Málið væri ein falt, ef Sjang-Kai-sjekk viðlir- kenndi raunveruleikann og féil ist á að lýsa yfir stofnun sjálf- stæðs og fullvalda ríkis á For- mósu, ríkis, sem væri óháð Kína og sækti síðan um aðiid að Sameinuðu þjóðunum, eftir að Peking-stjórnin, hin eina rétta ríkisstjórn i Kína, hefðl tekið við umboði Kína hjá Sam cinuðu þjóðunum. En þessu er ekki að heilsa, því að þessu ncitar Sjang-R»i-sjekk alger- lega. Hann vili ekki og hefur aldrei viljað gcra Formósu að sjálfstæðu ríki. En uppi á ís* landi munar ekkl mann eins og Benedikt Gröndal um að halda því fram, sennilega eingöngu til að þjóna aftuihaldsöflunum í Bandaríkjunum (hverjum öðr- um?), að Formósa sé sjálfstætt ríki, sem hafi verið í Samein- uðu þjóðunum frá upphafi. Þegar búið er að samþykkja að Peking-stjórnin taki við um- boði Kína hjá Samcinuðu þjóð- unum, fara fulltrúar Sjang- Kai-sjekks og þjóðernissinna- stjórnar hans, sem farið hafa með umboð Kína hjá Samein- uðu þjóðunum frá upphafi, sjálfkrafa út úr samtökunum. Að samþykkja að Peking-stjórn in taki við umboði Kína er hið Fratnhald á bls. 14.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.