Tíminn - 22.09.1971, Síða 9

Tíminn - 22.09.1971, Síða 9
mrai'IKUDAGUR 22. september 1971 TIMINN 9 Útgefandh FRAMSÓKNARFLOKKUR5NN Framlrpæmdastjórl: Kristján Benediktsson Ritstjórar- Þórarlnn Þórarinsson (áb), Jón Helgason. tndriBi G Þorsteinsson og Tómas Karlssíon Auglýsingastjóri: Steingrímur Gislason Rit stjómarskrifstofur 1 Edduhúsinn. simar 18300 — 18306 Skrif- stofur Bamkastræti 7 — Afgreiðslusimi 12323 Auglýsmgasimi: 19523. AOrar skrifstofur sixni 18300. Askriftargjald kr 195.00 i mánuði lnnanlands. 1 lausasölu kr. 12,00 elnt — Prentsm Edda hf. Vinnufriður í ræðu, sem Einar Ágústsson, utanríkisráðherra flutti á samkomu Framsóknarmanna í Reykjavík í fyrri viku, ræddi hann m.a. um kjarasamninga þá, sem nú eru hafn- ir. Gerði hann grein fyrir stefnu ríkisstjórnarinnar í kjaramálum og greindi frá þeim leiðréttingum á kjara- samningum, sem ríkisstjórnin hefði beitt sér fyrir strax og hún hefði komið til valda. Auk þess myndi ríkis- stjórnin beita sér fyrir því að launþegum hlotnist raun- hæfar kjarabætur á næstu 2 árum og beita til þess ýmiss konar ráðstöfunum, sem eru á undirbúningsstigi. Þá ræddi utanríkisráðherra um málflutning stjórnar- andstæðinga. Þeim þætti allt umstang ríkisstjórnarinnar óskaplega dýrt. Þeir töluðu um óráðsíu og fyrirhyggju- leysi, þegar laun þeirra lægst settu væru lagfærð. Ráð- herrarnir væru kallaðir milljónaerfingjarnir og fleira fyndið mætti finna á síðum stjórnarandstöðublaðanna, þótt orðheppni hefði engan veginn verið þeirra sterkasta hlið. ' Síðan spurði utanríkisráðherra: Hefur það ekki verið þjóðinni dýrt á undanförnum árum að vinna hefur verið lögð niður langtímum saman á hverju einasta ári, meðan deilur hafa staðið um kaup og kjör? Hann spurði ennfremur hvort það hefði ekki kostað þjóðina neitt að binda skipin við bryggjurnar vegna ágreinings um skiptingu þeirra verðmæta, sem .báí&URU , afla. Hann fullyrti síðan að bæði einstaklingar og fyrir- tæki hafi verið lengi að ná sér eftir þá árlegu viðureign, og fyrir þjóðina væri tjónið óbætanlegt. Utanríkisráðherra sagði, að þeim milljónnm, sem ríkissjóður hefði nú verið látinn greiða, hefði verið vel varið, ef sú von rættist, að stiórninNhafi með ráðstöfunum sínum komið í veg fyrir slíkt tjón. Launþegar myndu finna að raunhæfar kjarabætur án verkfalla, gefa meira í aðra hönd en stór stökk í krónu- tölu, sem jafnan væru tekin aftur með óðaverðbólgu og gengisfellingum. Utanríkisráðherrann kvaðst vona, að atvinnurekend- ur kæmust að þeirri niðurstöðu, að fyrirtæki þeirra gætu ekkert síður greitt nokkrum krónum meira í laun en að standa straum af bullandi tapi vegna þess að hluti af mannskapnum væri í verkfalli, en fastakostnað fyrirtækj- anna yrði að greiða engu að síður. Ráðherrann kvaðst að lokum vilja treysta því, að mikill meirihluti þjóðarinnar vildi taka vel þeirri tilraun, sem ríkisstjórnin væri nú að gera, en léti ekki pólitískan æsing öfgamanna villa sér sýn. Samherjar Brezkir fiskimenn sækja enn mikinn og góðan afla á grunnmið við Bretlandseyjar. Þeir hafa notið þess við þessar veiðar, að Bretar færðu fiskveiðilandhelgi sína : 12 mílur eftir tapaða herskipabaráttu gegn útfærslu fiskveiðilögsögurmar við ísland. Þessir fiskimenn færa bézta ferska fiskinn nú á borð brezkra neytenda. Þeir mótmæla nú eindregið, að erlendum fiskimönnum verði veittur sami réttur og þeim innan brezkrar landhelgi, með inngöngu Breta í EBE. Þeir krefjast einkaréttar á nýtingu fiskimiða innan eigin landhelgi. Þessir fiskimenn fóru í mótmælasiglingu á bátum sínum upn Thamesá og lögðu að þinghúsinu í Lundúnum og fluttu Edvmrd Heath mótmæli í Downingsstræti 10. Með vissum hætti eru þessir fiskimenn bandamenn íslendinga í landhelgismál- um. Þeir telja að þeir hafi meiri rétt en aðrir til að nýta fiskimiðin við strenuur heimalands síns. — TK tíwnesa^micísu^. ■saag ERLENT YFIRLIT Knýr Nixon Evrópuríkin ti! að hækka gjaldmiðil sinn? Annars getur hafizt viðskiptastríð milli Bandaríkjanna og EBE í VIKUNNI sem leið, héldu 10 auðugustu ríkin, sem aðild eiga að Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum, sérstakan fund í London, til að ræða um ný- skipan alþjóðlegra fjármála, og þó einkum gjaldmiðla í til- efni af þeirri ákvörðun Bandaríkjastjórnar 15. ágúst s.l., að leggja á 10% innflutn- ingstoll og veita jafnhliða út- flutningsfyrirtækjum sérstök skatthlunnindi. Á fundinum voru mættir fjármálaráðherrar og þjóðbankastjórar þessarra landa. Slíkir fundir hafa verið haldnir öðru hverju um 10 ára skeið, en upphaf þeirra var það, að þessi ríki stofnuðu 1962 sérstakan varasjóð til stuðnings alþjóðlega gjaldeyris sjóðnum. Þau voru þá talin rík- ustu aðildarríki sjóðsins og eru það enn. Þessi ríki eru Bandaríkin, Bretland, Frakk- land, V-Þýzkal., Japan, Belgía, Holland, Ítalía, Kanada og Sví- þjóð. Sviss hefur jafnan haft áheyrnarfulltrúa á áðurnefnd- um fundum. Sviss lagði fé í áðurnefndan varasjóð, án þess þó áð vera aðili að alþjóða- gj aldeyriss j óðnum. FRAM að þessu hefur fund- um „hinna tíu ríku“ verið lítil athygli veitt, enda þeir nánast sagt verið formsatriði. Þessi fundur var því mjög frábrugð- inn hinum fyrri. Hann fékk til meðferðar vandamál, sem reyndist stærra en svo, að nokkur árangur næðist á fund- inum. Fram til þessa árs hefur doil arinn verið helzti alþjóðlegi gjaldmiðillinn, samhliða gull- inu. Gullverðið hefur verið miðað við dollara, þannig að únsan hefur kostað 35 dollara. Óhagstæður greiðslujöfnuður Bandaríkjanna síðustu árin hefur raskað stöðu dollarans. í sumar var svo komið, að Bandaríkjastjórn varð að gera annað hvort, að fella dollarann í verði eða að leggja á inn- flutningstoll og veita útflutn- ingsfyrirtækjum skattfríðindi. Síðari leiðin var valin og kom öllum að óvörum. Hún hefur að sjálfsögðu vakið mikla óá- nægju þeirra. sem við hann þurfa að búa. Bandaríkjamenn sýna hins vegar fram á með gildum rökum, að þeir þurfi að bæta gjaldeyrisjöfnuð sinn um 13 billjónir dollara á ári, ef þeir eigi að geta staðið við * skuldbindingar sínar og annazt j svipaða aðstoð við aðrar þjóðir | og áður. Þeir telja sig eiga rétt á, að tekið sé tillit til þessarar örðugu aðstöðu þeirra sem m.a. stafi af því, að þeir hafi veitt öðrum þjóðum mikla aðstoð til viðrejsnar eftir styr.i- öldina, t.d. Japönum og Vestur- Þjóðverjum. Yfirleitt eru þess- ir örðugleikar þeirra viður- kepndir og sérfræðingar OECD hafa t.d. reiknað út, að Banda- - rmammtmm >***>*»**+> John Connally spllar djarft. ríkin þurfi að bæta greiðslu- jöfnuð sinn um 10 billjónir dollara. ÞAÐ hefur verið tillaga Bandaríkjanna, að hin tiu .ríki í hópi hinna auðugustu, jöfn- uðu þennan mun með þvi að hækka gjaldeyri sinn í verði. Sagt er, að sérfræðingar al- þjóðagjaldeyrissjóðsins hafi reiknað út, að til þess að ná því marki, þurfi gjaldmiðill Japana að hækka um 10—15%, þýzka markið um 12—14%, belgíski og hollenzki gjaldmið- illinn um 8%, kanadíski og ítalski gjaldmiðillinn um 6%, franski frankinn um 4% og sterlingspundið um 3%. Banda- ríkjastjórn hefur lofað að fella niður innflutningstollinn, ef umræddar hækkanir ættu sér stað. Umrædd ríki hafa hins vegar neitað að fallast á þetta. Þau hafa flest svarað með því að láta skrá gjaldmiðil sinn í samræmi við eftirspurn og hefur hann þannig hækkað nokkuð í verði, miðað við doll- ara, en þó miklu minna en Bandaríkjastjórn telur full- nægjandi. Hún heldur því fast við innflutningstollinn. Á ÁÐURNEFNDUM fundi í London hélt fjármálaráðherra Bandaríkjanna. John Connally, fast við þá kröfu, að hin ríkin hækkuðu gjaldeyri sinn miðað við dollar, en hin ríkin gerðu hins vegar þá kröfu, að Banda- ríkin lækkuðu dollarann. Á það vill Bandaríkjastjórn ekki fallast, því að hún telur það meginmáli skipta fyrir tiltrú til dollars, að hann lækki ekki miðað við gull, þannig, að gull- únsan verði áfram skráð á 35 dollára. Að öðrum kosti muni dollarinn geta misst stöðu sina sem helzti alþjóðlegi gjaldmið- illinn, eins og hann hefur verið eftir síðari heimsstyrjöldina. Fratnhald á bls. 14. a»

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.