Tíminn - 22.09.1971, Blaðsíða 12
TIMINN
MIÐVIKUDAGUR 22. septembcr 1971
KÚPAV06SBÚAR
Stuðningsmenn séra Sigurjóns Einarssonar,
Kirkjubæjarklaustri, umsækjanda um Digranes-
prestakall í Kópavogi, hafa opnað skrifstofu að
Vogatungu 26, sími 43105.
Skrifstofan verður opin fyrst um sinn kl. 5—7
síðdegis alla daga. Stuðningsfólk séra Sigurjóns er
beðið að hafa samband við skrifstofuna.
r-------------------------------------
Barðstrendingafélagið
í Reykjavík > '
heldur almennan félagsfund að Freyjugötu 14,
fimmtudaginn 23. september kl. 21.
Stjórnin.
vantar smiði og l.ighenla menn til innivinnu nú
þegar Upplýsingar í sírna 32850.
AFGREIDSLUMAÐUR
Óskurn eftir að ráða afgreiðslumann á Olíustöðina,
Akranesi. Upplýsingar í síma 1394, Akranesi.
Olíufélagið h' f.
HAFNARFJORÐUR
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að taka á leigu eða
kaupa húsnæði, sem hentar vel fyrir rekstur dag-
heimilis. Tilboð sendist undirrituðum.
Bæjarstjóri.
Ritari óskast
Landsspítalinn vill ráða læknaritara strax í
hálfs dags vinnu (eftir hádegi). Góð vélritunar-
kunnátta nauðsynleg.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, mennt-
un og fyrri störf sendist Skrifstofu ríkisspítalanna, !
Eiríksgötu 5, strax og eigi síðar en 28. september
n. k.
Reykjavík, 21. sept. 1971
Skrifstofa rikisspítalanna.
Frá B.S.A.B.
Fyrirhuguð eru eigendaskipti á 4. herberja
íbúð 1 5. byggingaflokki félagsins. Þeir hðags-
menn sem vilja nota forkaupsrétt sinn, snúi sér
til skrifstofu félagsins, Síðumúla 34, III. hæð, sími
33509 og 33699 fyrir fimmtudaginn 30. septem-
ber n. k.
B.S.A.B.
Erlent yfirlit
Framhald af bls. 9.
Um þetta náðist ekkert sam-
komulag á fundinum í London.
Framhaldsfundur verður hald-
ii.n í Washington um næstu
helgi, en litlar líkur þykja til
þess, að. frekara samkomulag
náist þar.
ÞAÐ mun þó ýta á eftir að
samkomulag náist fyrr en síðar,
að meðal forustumanna Efna-
hagsbandalagsríkjanna ríkir
verulegur ótti við of mikinn
samdrátt og jafnvel hálfgild-
ings kreppu, ef bandaríski inn-
flutningstollurinn helzt til
langframa. Allir viðurkenna
einnig, að þörf sé á að endur-
skipuleggja alþjóðlegu gjald-
eyrismálin. Slíkt er hins vegar
hægara sagt en gert.
Bandaríska stórblaðið New
York Times sagði nýlega í for-
ustugrein, að það hafi reynzt
rétt hjá Nixon að grípa óvænt
til slíkrar stóraðgerðar og inn-
flutningstollurinn var, því að
það liafi vakið mcnn til meiri'
umhugsunar en ella. Hins veg-
ar væri það rangt, ef Nixon
gerði niðurfellingu tollsins að
skilyrði fyrir því, að fallizt
yrði á allar óskir Bandaríkj-
anna.
Af hálfu Bandí/íkjanna er
bent á, að þau hafi í seinni tíð
horfið meira frá innflutnings-
hömlum og toilum en t.d.
Japan og Efnahagsbandalag
Evrópu, en .bandalagið hefur
svonefndan ytri toll, sem m.a.
bitnar mjög á Bandaríkjunum.
Það væri því ekki óeðlilegt, að
Efnahagsbandalagið gerði hér
verulegar tilslakanir. Ef ekki
verður af hálfu þess gengið'.
myndarlega til móts við óskir
Bandaríkjanqa, er hætta á, aið,.
það geti leitt til viðskipta-
stríðs, sem yrði öllum til tjóns.
Slíkt myndi styrkja þau öfl í
Bandaríkjunum, sem vilja
vernda ýmsar iðngreinar með
hömlum og'tollum, enda hefur
innflutningstollurinn vafalaust
' styrkt pólitíska aðstöðu Nixons.
Hann mun því vafalítið ekki
fella lollinn niður fyrr en eftir
forsetakosningarnar næsta
haust, nema verulegar tilslak-
anir korni á móti. Þ.Þ.
Borðið
betri mat
Fullt husmatar
Spariösnúninga
Verzlió hagkvæmt
KAUPIÐ IGNISÁ
LAGA VERÐINU
borðtennisspaðar
STIGA
borðtennisnet
STIGA
STIGA
STIGA
peysur
STIGA
buxur
* cvör\xWT
Ingólfs Óskarssonar
Klapparstíg 44 — sími 11783
POSTSENDUM
AUGLYSING
frá menntamálaráðuneytinti
Kennara vantar að Hjúkrunarskóla íslands.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
'' Umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri. stþrf sendist menntamálaráðuneytinu fyrir
15. október n. k.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri Iljúkrunar-
skólans.
Menntamálaráðuneytið,
21. september 1971.
Laust starf
Starf yfirlögregluþjóns rannsóknarlögreglunn-
ar í Reykjavík er laust til umsóknar. Starfið veit-
ist frá 1. nóvember næstkomandi.
Umsóknir sendist til sakadóms Reykjavíkur að
Borgartúni 7 fyrir 8. október n. k.
Reykjavík, 21. september 1971
Yfirsakadómari.
f a- úui’ '
Laust starf
Starf skrifstofustúlku hjá sakadómi Reykjavíkur
er laust til umsóknar.
Umsóknir sendist skrifstofu sakadóms Reykja-
víkur að Borgartúni 7 fyrir 30. þ.m.
Reykjavík, 21. september 1971.
Yfirsakadómari.
VELJUM (SLENZKT <H> ÍSLENZKANIÐNAÐ