Tíminn - 22.09.1971, Page 13

Tíminn - 22.09.1971, Page 13
1ÍIÐVIKUDAGUR 22. september 1971 ÍÞRÓTTIR TÍMINN ■•‘■'W V-ií,- 13 KNATTSPYRNA HÐA HANDKNATTLEIKUR? — Þar sem senn fer a3 líSa að því, að knattspyrnumenn leggi skóna sína til hvíldar yfir veturinn, og handknattleiksmenn taki sína fram — því vertíð þeirra hefst i kvöld _ þóttl okkur tilvalið að birta þessa mynd, sem er úr landsleik milli Englend- Inga og Vestur-Þjóðverja í knattspyrnu. Myndin gæti eins verið úr hörðum leik í handbolta, en á henni eru þeir Alan Ball og Bobby Charlton að sækja að marki VesturÞýzkalands, og mætti halda, að Charlton væri rétt búinn að kasta knettinum í átt að marki. Reykj avíkurmót- ið hefst í kvöld klp-Reykjavík. í kvöld hefst vertíð handknatt- leiksmanna, en þá verða fyrstu leik irnir í meistaraflokki karla í Rvík- urmótinu leiknir. Á morgun fer svo fram í íþróttahúsinu í Hafnarfirði leikur milli FH og Vals, liðanna, sem harðast börðust um íslands- meistaratitilinn sl. vetur. Leikirnir í kvöld hefjast kl. 20.15. Fyrsti leikurinn verður á rnilli Fram og Ármanns, en strax að honum loknum leika iR og Þróttur. Síðasti leikurinn í kvöld verður svo á milli KR og Víkings, og ætti það að geta orðið jafnasti og skemmtilegasti leikurinn. Þó er aldrei að vita, því leiktíminn er að- eins 2x20 mín. og á svo skömmum tíma getur allt gerzt, eins og oft hefur sýnt sig. Valur og Fram í úr- slitum í Gróttumótinu * ' ■■■'v.v- > •' Um helgina fór fram hið árlega Gróttumót í handknattleik kvenna. Að vísu lauk mótinu ekki, því að úrslitaleikurinn er eftir, en hann mun fara fram annað fimmtu- dagskvöld í íÞróttahúsinu á Sel- tjarnarnesi. Þá leika til úrslita Valur og Fram, og þá fer einnig fram leikur milli einhverja úr- valsliða á vegum HSÍ. Á sunouciag'fór einnig fram leik- ur í karlafiokki/ Þar sigruðu Vík- ingar, sém. nýkömnir eru úr,.æf- ingabúðum í Svíþjóð, Gróttu með 38 mörkum gegn 17. í Víkingslið- inu báru þeir af öðrum, þeir Einar Magnússon og Guðjón Magnússon. —sos— Sérsamböndunum falið að setja sínar eigin reglor fyrir næsta samb.ráðsfund ÍSÍ, sem tekur þær til athogunar. úr gildi Klp-Reykjavík. Um síðustu helgi fór fram fundur sambandsráðs íþrótta- sambands fslands. Var fundur- inn vel sóttur en í sambands ráðinu eiga sæti framkvæmda- stjórn ÍSÍ, formenn sérsam- bandanna og fulltrúar kjör- dæmanna. Á fundinum voru rædd mörg mál og margar sam þykktir gerðar. Sú sem mesta athygli vekur er eftirfarandi ályktun: „Sambandsráðsfundur ÍSÍ haldinn 18. september 1971, samþykkir að fella niður hin- ar sameiginlegu áhugamanna- reglur ÍSf (samþ. 4. maí 1961 og 2. apríl 1966 af sambands- ráði ÍSÍ), sem fram til þessa hafa gilt fyrir alla aðila ÍSÍ. í stað þeirra skal hvert sér- samband ÍSÍ setja sér áhuga- mannareglur, sem takmarkist af áhugamannareglum viðkom andi alþjóðasérsambands og hafa hliðsjón af því, að íslenzk ir iþróttamenn séu ávallt hlut gengir á Olympíuleika. Skulu sérsamböndin ganga frá þessum áhugamannareglum sínum á ársþingum 1971 og 1972, en þar til hinar nýju áhugamannareglur hvers ein- staks sérsambands taka gildi, skulu áhugamannareglur ÍSÍ gilda. Sambandsráð skal staðfesta áhugamannareglur sérsamband anna“. Má þar t. d. nefna auglýsing ar á búninga, en t. d. í Dan- mörku hafa félögin haft miklar tekjur með því að hafa auglýs ingar á búningum leikmanna sinna og einnig fría búninga á allt liðið. Margar aðrar hug- myndir hafa komið fram og verður þeim vonandi vel tekið þegar sérsamböndin leggja þau fyrir sambandsráðið. Eins og sjá má er þarna gerð róttæk breyting, sem margir meðal yngri manna innan íþróttahreyfingarinnar hafa barizt fyrir undanfarin ár. Hafa þeir löngum talað fyrir daufum eyrum, en nú hafa þeir fengið sitt í gegn. Áhugamannareglur okkar hafa verið svo úreltar, að þær hafa staðið íþróttunum1 fyr ir þrifum í mörgum tilfellum. Meðal nágrannaþjóða okkar hefur verið brosað að þessari afturhaldssemi okkar, en þar hafa reglur, sem enn era hér í gildi — a.m.k. fram að næsta sambandsráðsfundi — vecið af- numdar fyrir f jölda ára Fróðlegt verður að vita hvern ig sérsamböndin koma til með að vinna að þessu máli, en þeim er flestum stjómað af ungum mönnum sem hafa á takteinum margar hugmynd- ir um tekjuöflun og annað, en ekki komið þeim í framkvæmd vegna áhugamannareglanna. FLÓÐLJÓSIN VÍGÐ Á FÖSTUDAGSKVÖLD? Meistarar í 2. deild Víkingur sigraði Ármánn 1:0 í 2. deildarkeppninni í knattspyrnu á laugard., en Víkingur var fyrir Icikinn búinn að sigra í deildinni. Þessi mynd er frá verðlaunaafhend ingunni, en það er formaður KSÍ, Albert Guðmundsson, sem þarna afhendir Gunnari Gunnarssyni bik- arinn, en með lionum lét hann falla nokkur „hugljúf" orð í garð Vík- inga. (Tímamynd Róbert) klp-Reykjavík. Eftir því sem íþróttasíðan hef ur fregnað er ráðgert að vígja flóðljósin á Melavellinum n. k. föstudagskvöld með leik milli Reykjavíkurúrvals og hinna ný bökuðu íslandsmeistara frá Keflavík. Þessa dagana er unnið að því að ganga frá uppsétnin|u og tengja ljósin, en þau setja mikinn svip á völlinn og um- hverfi hans. Mót þetta er með útsláttarfyrir- g komulagi og urðu úrslit leikjanna _ á laugardag þessi: Fram sigraði Ármann 16:14 eftir skemmtilegan ® leik, sem varð að framlengja, því ® að í leikslok var jafnt 14:14. ■ Víkingur sigraði Njarðvík 8:7. gj Voru miklar sveiflur í þessum leik. Víkingur komst í 5:3, Njarðvík jafnaði og komst yfir 7:5, en 3 8 síðustu mörkin voru Víkings. KR ■ sigraði hið unga lið FH í jöfnum @ leik 11:10, og Valur sigraði Breiða- B blik, sem vantaði nær allt sitt lið að fá lánað úr öðrum liðum) H ?6=:.2. ■ A sunnudag var haldið áfram. ■ Þá sigraði Fram Víking mcð yfir- ■ burðum 10:3, og Valur sigraði KR 14:10. Komust Valsstúlkurnar í 9:4, en þá skoraði ung og efnileg stúlka úr KR, Emilía Sigurðardóttir, 6 ® mörk í röð, en Valsstúlkurnar ■ höfðu sigurinn í sínum höndum ■ þratt fyrir það. B kæra“ — segir formaöur IBV, Stefán Runólfsson. — Teljum okkur vera í fullum rétti, segir formað- ur ÍBK, Háfsteinn Guðmundsson. „Við höfum ekkert talað um að klp—Reykjavík. Um fátt var meira rætt í gær en þá frétt, sem knm frá Vest- mannaeyjum, um aö Vestmanna- eyingar ætli að ka-va leikinn gegn Keflavík, scm fram fór sl. sunnudag, vegna þess, að Birg- ir Einarsson, sem skoraði tvö af mörkum Kcflvíkinga, og var einn bczti maður liðsins, hafi verið ólöglegur í þeim leik. — Hann fékk 2ja leikja keppnis- bann hjá Aganefnd KSÍ, fyrir gróft brot í leik ÍBK og Vals, og töldu Vestmannaeyingar, að hann væri enn ekki búinn að taka út þann dóm. Kcflvíkingar segja svo vera. Hann hafi ekki leikið með ÍBK í Bikarkeppni 1. flokks og ekki leikið með ÍBK gegn Totten- ham. En það er síðarnefndi leik- urinn, sem Eyjamenn hengja hatt sinn á. Birgir tók ekki þátt í þeim leik og var ekki skráður á leik- skýrslur. Og þar sem ÍBK var annar aðilinn í leiknum telja flestir það rétt, að Birgir hafi tekið annan leikinn út þar. í lögum Aganefndar er hvergi getið um hvar leikmaðurinn eigi að taka út dóminn, og þess vegna geta félögin, sem eiga unga leikmenn, látið þá taka út leiki í 2. flokki, 1. fl. og M.fl., og er þarna snúður á lögunum, sem þarf að laga. í reglum Evrópusambandsins segir, að tilkynna skuli til þess, ef leikmaður er dæmdur í keppnisbann fyrir leik í E/vrópu keppni. Það segjast Keflvíking- ar hafa gert. I viðtali við íþróttasíðuna í gær sagði Hafsteinn Guðmunds- son, formaður ÍBK, sem er mann kunnastur öllu, er varðar lög og reglur í knattspyrnu, að þetta ákvæði sé til þess, að Evr- ópusambandið geti fylgzt með því, hvort leikmaður, sem er í keppnisbanni, sé á leikskýrslu þeirri, sem dómari leiksins send ir til þess að leik loknum. Oa’ sé þess vegna af og frá að tala um að kæra leikinn á þessum forsendum. Stefán Runólfsson, formaður ÍBV, sagði í viðtali við íþrótta- síðuna í gærkvöldi, að það væri rangt, sem sagt hafi verið í út- varpinu, að Vestmannaeyingar ætluðu að kæra leikinn. Þeir væru aðeins að kynna sér alla málavexti, og ekkert hefði ver- ið um það rætt að kæra einn eða neinn.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.