Tíminn - 22.09.1971, Síða 16
Þannig var umhorfs fyrir framan fiskiðjuver Bæjarúfgerðarinnar í Hafnarfirði í dag. Stórlr pollar voru um allt og fiskikassar, sem verið var að flytja
milli húsa, höfðu dottið í svaðið, sjálfsagt til að bragðbæta fiskinn. (Tímamynd GE)
Sóðaskapur óviðunandi framan
við Bæjarútgerð Hafnarfjarðar
— segir Sigurður Kristjánsson, fisk matsmaður í Hafnarfirði.
^liÉÍMÉ
Miðvikudagur 22. sept. 1971.
SVARFAÐAR-
DALSA KOL-
MÚRAUÐ AF
JÖKULHLAUPI
SB-Reykjavík, þriðjudag.
Hlaup varð í Teigardalsjökli
inn af Svarfaðardal snemma í
sumar, en þrátt fyrir marga
jökla við Eyjaf j. eru jökulhlaup
á þeim slóðum sjaldgæft fyrir
brigði. Þótt nú séu fjórir mán-
uðir tæpir liðnir frá hlaupinu,
er Svarfaðardalsáin enn kol-
mórauð og ber fram mikla
leðju og telja fróðir menn, að
hún muni gera það lengi enn,
jafnvel næstu misserin.
Teigardalur gengur inn úr
suðurhlíð Svarfaðardals innan-
verðs og liggur jökullinn fyr-
ir botni Teigardals. Um mán-
aðamótin maí—júní tók fólk
á næstu bæjum eftir því, að
Teigaráin var orðin rauðlituð
og óvenju vatnsmikil, og þegar
farið var að grennslast fyrir um
þetta, kom í ljós. að jökulhlaup
hafði orðið. Rauði liturinn á
ánni kom til) af þvf, að mikið
er af rauðleitu gjalli í Teig-
ardal.
Helgi Hallgrímsson, náttúru
fræðingur á Akureyri, telur, að
hlaup þetta hafi orðið snöggt,
ja.fnvel gerzt á fáeinum mín-
útum. Jökullinn er mjög
sprunginn og tættur og héfur
lengst og hækkað framantil
en lækkað aftantil. Ekki fylgdi
verulegt vatnsflóð sjálfu hlaup
inu, en glögglega sést á Svarf-
aðardalsánni, að eitthvað hef-
ur gerzt, því hún er kolmórauð
og ber mikið fram.
Hjörtur Þórarinsson, hrepp-
stjóri á Tjörn, sagði Tímanum,
að fólk hefði í sumar gengið
sér til skemmtunar upp að
jöklinum til ao skoða fyrir-
bærið. Skruðningar heyrast,
dunur og dynkir og alls kyns
undarleg hljóð. Þá má sjá jök-
ulinn hreyfast á stundum.
Ekki getur um jökulhlaup
við Eyjafjörð síðan 1912, en
þá hljóp Búrfellsjökull, í næsta
dal vestan við Teigardalsjökul.
Umferð
á „nýju"
Lækjargöt-
una um
mánaðamót
OÓ—Reykjavík, þriðjudag.
Mikið hefur verið rætt um
breikkun Lækjargötunnar og
þá sérstaklega þar sem hún
sneiðir stóran hluta af túninu
við Stjómarráðshúsið. En það
er ekki eingöngu þar sem gat-
an breikkar, heldur verður T' lk
ofnsvegur breikkaður verulega,
Framhald á bls. i*.
ÞÖ—Reylcjavik, þriðjudag.
Alltaf býður fólki við, þegar óþrifa
legt er í kringum þá staði, sem ann-
ast matvælaframleiðslu, og í dag
rákumst vlð á einn slíkan, en það
var fiskiðjuver Bæjarútgerðarinnar í
Hafnarfirði. Þar gat að líta stóra og
drulluga polla fyrir neðan frystihús-
ið. Á meðan við stöldruðum þarna
við, var verið að flytja frosinn fisk
á milli húsa. Fiskurinn var fluttur á
lyfturum milli húsanna og í eitt skipt
ið þegar lyftarinn var á leiðinni,
þurfti hann að beygja aðeins, og ekki
þurfti meira til, fiskurinn hrundi all-
ur í svaðið fyrir framan húsið. Þrifn-
aður þaðl
Sigurður Kristjánsson, fiskmats-
maður í Hafnarfirði, sagði okkur,
að þetta væri alveg óviðunandi
OÓ—Reykjavík, þriðjudag.
Mennirnir, sem misþyrmdu 16
ára pilti s. 1. sunnudagskvöld,
voru handteknir seint í gærkvöldi.
Voru þeir í herbergi sem annar
þeirra hefur á leigu. Reyndust
þeir á sama aldri og sá sem þeir
börðu. Þeir viðurkenndu strax
verknaðinn. Sögðust þeir hafa
haft piltinn grunaðan um að
hafa ljóstrað upp um innbrot sem
þeir frömdu í fyrra, en var upp
lýst fyrir sex vikum. Töldu piltarn
ir báðir að upplýsingar, sem leiddu
til handtöku þeirra, væru frá þeim
sem þeir börðu komnar. En það
skal tekið skýrt fram að piltur
inn sem misþyrmt var, átti eng
an þátt í innbrotinu.
Innbrotið sem um ræðir var
gert í Hljóðfærahús Reykjavíkur
Laugavegi 96. Var stolið þar hljóð
færum fyrir 30 til 40 þús. kr.
Töldu mennirnir að sá sem þeir
börðu væri sá eini, sem gæti hafa
vitað um að þeir stálu umræddum
hljóðfærum, en hvers vegna geta
þeir ekki upplýst. Hljóðfærin
seldu þeir ekki, en höfðu í fórum
sínum í nær ár, áður en upplýst
var hvar þau voru niðurkomin.Eru
þau að mestu ónýt eftir illa með
ferð. Þegar upp komst um þjófn
aðinn og hverjir stálu hljóðfærun
um greiddu aðstandendur þessara
ástand. Hann og fleiri væru marg-
búnir að kvarta yfir sóðaskapnum
fyrir framan fiskiðjuverið. — Það
væri alltaf verið að lofa bótum á
þessu, en aldrei væri neitt gert.
Sigurður sagði, að hann vildi taka
fram, að hér væri ekki við for-
stjóra frystihússins að sakast, hann
gerði allt, sem í hans valdi stæði
til að fá þetta lagfært. — Hér er
við bæjaryfirvöld að sakast, sagði
Sigurðua. — Við erum margbúnir
að biðja hafnarstjóra, bæjarstjóra
og bæjarverkfræðing að hlutast til
um að keyrt verði ofan í pollana
hérna. Jú, það stendur ekki á lof-
orðum af þeirra hálfu, en efndirn-
ar hafa engar verið.
Sigurður sagði, að sama væri
hvort bleyta væri eða ekki, því
þegar þurrt er þá er rykið alveg
pilta skaðann að fullu. Er það
ekki oft sem slíkt kemur fyrir,
þegar unglingar valda spjöllum á
eigum annarra.
En alla vega þurfti að hefna
sín á einhverjum fyrir meinta
uppljóstrun á misferlinu. Piltur
inn, sem barinn var, kom út úr
Tónabæ á sunnudagskvöldið og
átti sér einskis ills von. En þá
voru hljóðfæraþjófarnir þar fyrir
utan. Tóku þeir piltinn bak við
húsið og byrjuðu þar að berja
hann. Varð hann fljótlega blóðug
ur. Kölluðu þeir þá í kunningja
sinn, sem hafði umráð yfir bíl, og
settu piltinn inn í hann undir
því yfirskyni að þeir ætluðu að
aka honum heim til annars beirra
sem að barsmíðinni stóðu til að
þvo honum. Voru þeir stutia
stund þar inni og fóru síðan út
aftur og gengu upp á Rauðarár-
stíg, fóru þar með piltinn nauð-
ugan milli verksmiðjuhúsa. Þar
hófu þcir aftur að beærja hann.
Þegar þcir voru búnir að mis-
byrma honum cins og þá lysti
drösluðu þe:r piltinum inn í gaml
an jcppa, sem þ”r stóð. Þar
skildu þeir við hann. Árásarmcnn
irnir segja að pilturinn hafi fljót
lega komið út úr jeppanum og
staulazt áleiðis að Hlemmtorgi.
Framhald á bls. 7.
kæfandi á þessum stað. Það hefur
komið fyrir, þegar verið er að
landa úr togurunum, að legið hef
ur við að hafi þurft að þvo upp
fjalirnar tvisvar, því svo rnikið
ryk hefur safnazt á þær, á meðan
þær hafa legið á dekkinu. Þá bera
vörubílarnir, sem keyra upp úr
ÞÓ—Reykjavík, þriðjudag.
Hekla, skip Skipaútgcrðarinnar,
hefur verið í slipp á Akureyri frá
pví um mánaðamót, og verður þar
a. m. k. fram að helgi. Það sem
veldur því, að skipið þarf að vera
svo lengi í slipp er, að reyna
á að koma í veg fyrir hinn mikla
hávaða og titring, sem er í skip-
inu, þegar vélar eru keyrðar.
Það sem nú er gert við Hekluna
er, að undirstöður undir ljósavél-
um verða styrktar, en þær hafa
reynzt illa styrktar. Þetta er ekki
á nokkurn hátt Slippstöðinni að
kenna, heldur munu þetta vera mis-
tök frá hendi erlendu framleiðend-
anna. Þá hefur komið fram mikill
titringur í Heklu og nú á að reyna
að komast fyrir hann, hvernig svo
sem það gengur.
Það hefur vakið athygli margra
hversu illa var gengið frá undir-
stöðum undir ljósavélarnar í
Heklu og að ekki skyldi vera geng-
ið frá öllu á svipaðan hátt og í
Esjunni, en hún hristist miklu
minna. Þá hefur það og vakið at-
hygli,' að ljósavélarnar eru fengnar
skipunum, óhreinindi með sér inn
á móttöku frystihússins, og ekki er
það til að gera fiskinn fallegri.
Oft tala menn um, hversu illa
sjómenn gangi um fiskinn, en
hætt er við að sumir þessara
manna ættu að líta í eigin barm
fyrst.
frá Skandinavian engineering, er
hafði keypt þær frá Paxmann í
Englandi, en sjálfir raflarnir
koma frá Kaick í Þýzkalandi.
Virðist augljóst, að þessir aðilar
hafa ekki staðið nægilega vel sam
an um útbúnað vélanna. Þá þurfti
Deutz verksmiðjan að hafa sving-
hjól á aðalvélinni miklu stærra en
upphaflega var ráð fyrir gert,
vegna kröfu frá framleiðanda
skiptiskrúfuútbúnaðarins. Er sving-
hjólið á Heklunni 11 lestir á þyngd
og er það tvisvar sinnum stærra
en upphaflega var ráð fyrir gert.
Þegar bygging Heklu og Esju
hófst á sínum tíma var talað um að
hagræðing ætti að vera í fyrirrúmi
um borð í þessum skipum, en ekki
hefur hún tekizt vel á öllum svið-
um. Nefna má að vinnuaðstaða mat-
reiðslufólks er á þrem hæðum, mat
vælageymslur eru undir þilfari, á
þilfarsdekki er svo matsalur far-
þega og undirmanna og á efra þil-
fari er matsalur yfirmanna. Getur
það talizt hagræðing fyrir kokk-
ana, að Þurfa að hlaupa í tíma og
ótíma milli hæða?
Blaðburðarbörn ðskast
á Laugaveg, SkeiÖarvog, Leifsgötu, Kjartans-
götu, Kleppsveg og Seltjarnarnes.
— Einnig vantar sendla. —
Upplýsingar í síma 12323.
Bankastræti 7.
Voru að hefna fyrir
meinta uppljóstrun
GERT VIÐ UNDIRSTÖDUR
LJÓSAVÉLA Í HEKLUNNI
Ekki sök Slippstöðvarinnar