Tíminn - 23.10.1971, Blaðsíða 5
eru hreinasta gersemi, svo sem
myndin frá konungskomunni og
fró kröfugöngunni 1942, sem var
éinna skemmtilegust myndanna.
Árni lét í ljósi þá ósk í þætt-
inum ,aÖ þeir er ættu í fórum sín
um gamlar -kvikmyndir, kæmu
þeim á framfæri við ÞjóSminja-
hafnið og er það tilhlökkunar-
efni, ef fleiri slíkir kvikmynda-
þættir verða í sjónvarpsdag-
skránni.
DANSLEIKUR
1 SJÓNVARPSSAL.
Það er ekki svo vitlaus liug-
mynd aö hafa dansleik í sjón-
varpssal eins og tilraun var gerð
með á sunnudag. Þessi fyrsti dans-
leikur í sjónvarpssal virtist þó
all misheppnaður. Ég trúi ekki
að fólk sé svona grafalvarlegt,
er það dansar gömlu dansana eins
og danspörin voru í sjónvarpssal á
sunnudagskvöld.
ÞÆTTIR UM
HANDRITIN.
Sjónvarpið er að hefja sýningu
á nokkrum þáttum um íslenzku
handritin. Fyrsti þátturinn fjallar
um hina miklu gersemi Konungs-
bók Eddukvæða, og verður í leið-
inni fjallað um íslenzk handrit
almennt. í þættinum koma fram
Jónas Kristjánsson, Jón Samson-
arson og Stefán Karlsson. Þáttur-
inn er á sunnudag kl. 20.25.
AÐRIR
DAGSKRÁRLIÐIR.
Af öðrum dagskrárliðum í næstu
viku, sem athyglisverðir kunna að
reynast, má nefna eftirfarandi:
★ Á sunnudaginn kl. 20.30 leik-
ur hljómsveitin Tilvera fyrir áheyr
endur í sjónvarpssal.
★ SíÖar sama kvöld, eða kl. 22.15,
er sjónvarpsþáttur frá BBC og
nefnist hann í skugga dauðans.
Þar er rætt við fólk, sem veit
daga sína eða sinna nánustu talda.
★ Á þriðjudaginn kl. 21.25 er
þátturinn Sjónarhorn, og verður
þar fjallað um læknaskortinn í
strjálbýlinu, sem m.a. hefur ver-
ið mjög fjallað um í Tímanum að
undanförnu. /
★ Á miðvikudaginn kl. 21.25
vei'öur sýnd hin fræga mynd Eis-
ensteins Herskipið Potekim. Þessa
mynd gerði rússneski snillingur-
inn árið 1925 og er hún byggð á
atburðum, sem áttu sér stað 1905
þegar uppreisn var gerð meðal
sjóliða í Svartahafsflotanum.
AKB.
Nú eða aldrel.