Tíminn - 03.11.1971, Síða 1
** * *.*-*******#«•
Viðræður
í London
og Bonn
KJ-Reykjavík, þriðjudag.
Á morgun hefjast í London
viðræður um landhelgismálið
milli fulltrúa íslands og Bret-
lands, og á mánudaginn fara
fram viðræður við fulltrúa
vestur-þýzku stjórnarinnar, um
sama efni.
Tímanum barst í dag frétta-
tilkynning frá utanríkisráðu-
neytinu, um hverjir skipuðu
viðræðunefndina af íslands
hálfu í Vestur-Þýzkalandi, og
eru það sömu menn og eiga við
ræður við Breta á morgun,
nema hvað Niels P. Sigurðsson
sendiherra tekur þátt í við-
ræðunum í London.
Fréttatilkynningin er svo-
hljóðandi:
„Viðræður milli fulltrúa rík-
isstjórna íslands og Vestur-
Þýzkalands hefjast síðdegis
mánudaginn 8. nóvember. ís-
lenzka sendinefndin yer^pr
þannig skipuð:
Hans G. Andersen, sendi-
herra, formaður; Árni Tryggva
son, sendiherra; Jón L. Arn-
alds, ráðuneytisstjóri; Jónas
Árnason, alþingismaður; Már
Elísson, fiskimálastjóri; Þórar
inn Þórarinsson, alþingismað-
ur.“
1.^-——----------——-------—-.i
Verða keyptir
Halldór E. Sigurðsson fjármálaráðherra um samningaviðræður flugfélaganna:
Bjartsýnn á að samein-
ing flugfélaganna takist
/
TK—Reykjavík, þriðjudag. I og IJannibal Valdimarsson, flug I um samvinnu og helzt sameiningu
Tíminn átti tal við Halldór E. málaráðherra, hafa átt við full- íslenzku flugfélaganna. Halldór
Sigurðsson, fjármálaráðherra, um trúa flugfélaganna, Loftleiða og sagði, að á þeim fundi, sem hald
þær samningaviðræður, sem hann | Flugfélags íslands, að undanförnu I inn hefði verið á mánudagsmorg
Flugfreyjubúningar Flugfélags íslands og Loftleiða eru ærið ólíkir, og það verður sjálfsagt eitt af því,
sem semja þarf um, hvort búningarnir eigi að vera eins éða mcð tvennu móti. Flugfreyjan til
vinstri er hjá Flugfélaginu, en sú til liægri hjá Loftleiðum. Kannski eiga þær eftir að fljúga sam-
an í eins búningi.
un, hefði það komið í ljós, að
flugfélögin hafa frá því fyrri fund
urinn var haldinn með ráðherrum
um málið yrir rúmum hálfum mán
!uði, unnið skipulega að málunum
og greinilega af fyllstu einlægni
og heillyndi. Ekkert hefði komið
fram á fundinum í gær, sem vald
ið hefði vonbrigðum og hefðu þeir
Hannibal fyllstu ástæðu til að
trúa því a& af sameiningu flug
félaganna gæti orðið. — Við telj-
um það mikið gæfuspor, ef bað
gæti tekizt og ótvírætt til mikils
þjóðarhags, sagði fjármálaráð-
herra. Þessum viðræðum verður
nú haldið áfram af fullum krafti.
Halldór E. Sigurðsson, fjármála
ráðherra, sagði að ásamt þeim
Hannibal Valdimarssyni, flugmála
ráðherra, hefðu mætt fulltrúar
frá báðum flugfélögunum í gær-
morgun og hefði fundurinn hafizt
kl. 10. Meðal fulltrúa Loftleiða var
Kristján Guðlaugsson, stjórnarfor
maður félagsins, og af Flugfélags
ins hálfu mætti meðal annarra
Örn Johnson, forstjóri félagsins.
Áður höfðu beir Hannibal haft
fund með fulltr. félaganna fyrir
rúmum hálfum mánuði. Hefði þá
verið ákveðið að flugfélögin hæfu
strax skipulegar viðræður um
samvinnu og sameiningu. Á fund
inum í gær, sagði Halldór, hefði
komið greinilega í ljós, að félögin
hafa unnið af fyllstu einlægni og
heillyndi að þessum viðræðum og
Framhald á bls. 14
6 skuttogarar
til Austfjarða?
ÞÓ-Reykjavík, þriðjudag.
Mikill áhugi er á skuttogara
kaupum á Austurlandi um þessar
mundir, og er vitað um aðila á
6 stöðum, sem unnið hafa að slík
um kaupum undanfarið. Það eru
aðilar á Vopnafirði, Seyðisfirði,
Neskaupstað, Eskifirði, Reyðar-
firði og Fáskrúðsfirði, sem unnið
hafa að þessum kaupum. Reyðfirð
ingar og Eskfirðingar hafa unnið
sameiginlega að þessu máli, og eru
Kaupfélag Héraðsbúa og Hrað-
frystihús Eskifjarðar þegar búin
Framhald á bls. 14
Einar Ágústsson utanríkisráðherra á fundi í gær:
Endanleg ákvörðun í varnar-
málunum verður tekin af Alþingi
TK—Reykjavík, þriðjudag.
Á mjög fjölmennum fundi Sam
taka um vestræna samvinnu og
Varðbergs á Hótel Sögu í kvöld
flutti Einar Ágústsson, utanríkis-
ráðherra, erindi um utanríkismál
og skýrði stefnu ríkisstjórnarinn
ar. Síðan svaraði ráðherrann mikl
um fjölda fyrirspurna fundar-
manna, er nær eingöngu snerust
um varnarmálin og þá endurskoð-
un á varnarsamningnuin við
Bandaríkin, sem fyrirhuguð er. í
því sambandi lagði utanríkisráð-
hcrra áherzlu á það, að engin
ákvörðun yrði tekin um brottflutn
Þingsáiyktunartillagan um menningarsáttmála Norðurlanda samþ. i gær á Alþingi:
Á AÐ EFLA MJÖG MENNINGAR-
SAMSTARF NORÐURLANDA
— sagSi Eysteinn Jónsson um sáttmálann
EB—Reykjavík, þriðjudag.
— Norrænt samstarf er orðið
æði víðtækt, en í ýmsum grein-
um þó nokkuð losaralegra en vera
setti og mismunandi öflugt eftir
því, um hvaða málefnasvið er að
ræða. Þessi nýi mcnningarsátt-
máli á að hæta úr í þessu efni á
sviði menningarmála, og á að efla
mjiig menningarsnmstarf þessara
landa frá því, sem það hefur ver
ið, sagði Eysteiim Jónsson á fundi
í Sameinuðu þingi í dag, er hann
skýrði frá áliti utanríkismála-
nefndar þess efnis, að nefndin
legði einróma til að þingsályktun
artillagan um samning milli I)an-
Framrald á bls. 14.
ing varnarliðsins frá Keflavíkur-
flugvelli fyrr en ítarleg könnun
hcfði farið fram á þessum málum
og hann hefði rætt við Bandaríkja
stjórn og stjórnir aðildarríkja
Atlanlshafsbandalagsins. Þá er nið
urstöður þeirrar könnunar lægju
fyrir, og fyrr ekki, myndi verða
tekin ákvörðun um það, hvort
varnarliðið skyldi hverfa úr landi
eða ekki, og málið yrði lagt fyrir
Alþingi og ckkert aðhafzt í því
án samráðs og samþykkis Alþing
is. Endanleg ákvörðun þessa máls
er í höndum Alþingis, sagði utan
ríkisráðherra.
Mjög margir fundarmanna
beindu fyrirspurnum til ráðherr-
ans og kenndi þar margra grasa.
Verða hér ekki raktar einstakar
spurningar né svör við þeim. Að-
spurður sagði ráðherrann m.a., '*
hann teldi mjög hugsanlegan mögu
leika á því, að íslendingar gætu
tekið við mörgum störfum, sem
heyrðu til þess eftirlits, sem f . -i
færi í Keflavíkurstöðinni. Það
hefði einu sinni verið talið óhugs-
andi, að islendingar gætu tekið að
sér flugumferðarstjórn á Keflavík
urflugvelli. Þeir gerðu það nú .og
stæðu sig vel. í annan stað hefði
verið sagt, að óhugsandi væri að
Íslendingar gætu staðið 'yrir fram
kvæmdum fyrir herinn á Kefla-
víkurflugvelli. Þeir hefðu nú sýnt
að þeir eru fullkomlega færir m
það og enginn kvartaði. Gæti ekki
eins verið um ýmislegt annað.
Hins vegar gæti hann ekki svarað
þessu fyrr en hann hefði lokið
ítarlegri könnun þessa máls og
myndi þá svara spurningum um
þessi atriði ítarlegar. Einar sagði,
að sú endurskoðun, sem nú ætti
að fara fram á varnarsamningnum,
væri byggð á þeirri trú, að hér
þyrfti ekki að vera her og það
væri hægt að uppfylla upphaf-
legar skuldbindingar íslendinga
gagnvart NATO án þess að hér
væri eriendur her.
Eiþar sagði, að hann liti á þá
tillögu, sem Sjólfstæðismenn hafa
flutt um skipun sérstakrar nefnd
Framhald á bls. 14