Tíminn - 28.11.1971, Page 5

Tíminn - 28.11.1971, Page 5
'í I. IUNNUDAGUR 28. nóvember 1971 TÍMINN 5 MEÐ MORGUN KAFFINU Svo var þa3 prólessorinn við utan sem sagði: — Díana, ég er óánægður með yður, og neyðist til að reka yður. — Láttu eklfi svona elskan mín. Við giítum okkur í síðusíu viku, svaraði Díana. Maður kom inn í skotfæra- verzlun. — Hvað get ég gert fyrir yður? spurði afgreiðslumaður- mn — Ég er að hugsa um að kasspa skammbyssu. — Eruð þér að hugsa um nokkra sérstaka? — Nú verður þú að fara að — Já, konuna mina. taka við. — Fyrir þremur árum fór maðurinn minn til Brasilíu og nú skrifar hann og biður mig að koma til sín með börnin okkar tvö. Og þau, sem eru orðin fimm! Maður nokkur var ákærður fyijir að hafa stolið hjóli, sem stóð upp við kirkjugarðsvegg inn. Maðurinn þrætti fyrir, að hafa framið - glæp, þar sem hann hafði talið víst, að eig- andi hjólsins væri dáinn. — Við skulum lifa núna, eins og þetta sé okkar síðasta kvöld, hvíslaði hann hásum rómi. — Já, hvíslaði hún. — En hvað svo, ef við lifum það af? I — Þjónn. Hafið þið villiönd í dag? — Því miður, en ég get látið yður Hafa tamda önd, sem þér getið æst upp. Gömul kona fór til læknisins vegna Nomarskots í bakinu. Læknirinn skrifaði lyfseðil, en óvart á hægðalyf. Skömmu síð ar hitti hann konuna á förn um vegi, og spurði, hvort Norn arskotið hefði batnað. — Ja, skotið hljóp af, en nomin er þarna ennþá, svaraði sú gamla. I DEMNI DÆMALAUSI Ég vil ekki, að þið lítið svo á, sem ég sé vanþakklátur, óþarflcga grunscmdafullur eða illviljaður en ef ég finn aftur frosk í skírnarfontinum þá ... Þið kannizt án efa við þetta brosmilda karlmannsandlit í hópi þriggja laglegra kvenna. Þetta er hann Tony Curtis í stuttu leyfi heima í Bandaríkj unum, eftir að hafa Jekið þátt í kvikmyndagerð í Evrópu. Með honum á myndinni eru tvær dætur hans, Kelly 15 ára og Jamie 12 ára, dætur fyrstu konunnar hans, Janet Leigh. Eiginkonan um þessar mundir er orðin mikil vinkona telpn- anna, og einmitt þess vegna þykir Tony jafn vænt um hana eins og raun ber vitni. - ★ — ★ — Blaðamenn ku sjaldnast þurfa að segja sérlega mikið, þegar þeir hitta fyrir hinn himsfræga boxara Cassius Clay, eða Muhammed Ali, eins og hann nefnir sig. Jafnvel ó- sigurinn fyrir Joe Frazier hef- ur ekki getað lokað munni meistárans fyrrverandi. Þeg- ar hann kom til Lima í Peru, sagði hann m.a.: — Það er ekki mikið varið í þá hvítu. Ég hata þá ekki, en ég vil bara 'ekki umgangast þá. Við hvað er ég hræddastur? Að minnsta kosti ekki Joe Frazier. Ég ótt- ast skattayfirvöldin meira en nokkuð annað. Og það mun ekki vera að ástæðulausu, því af þeim næstum 30 milljónum dollara, sem Cassius Clay hef- ur grætt í hnefaleikahringnum hefur hann orðið að greiða um 24 milljónir í skattá, og allt annað hefur verið dregið frá þessum 30 milljónum er hans hlutur ekki orðinn nema um 2.5 milljónir dollara pg af þeirri upphæð þurfti hann að greiða fyrrverandi eigin- konu töluvert. — ★ — ★ — Leikfangasmiðir þurfa stöð- ugt að vera að finna upp eitt hvað nýtt til þess að gera börn nútímans ánægð, sem hafa úr svo óendanlega miklu að velja. Það nýjasta nýja er kaf bátur fyrir tvo, sem fyrirtæki eitt í Bandaríkjunum hefur framleitt. Kafbáturinn er úr plasti, og framleiddur hjá Perry Submarine, Kafbáturinn getur flutt tvo menn niður á 50 metra dýpi og siglt þar um í tvo og hálfan tíma samfleytt með 6 km hraða á klukku- stund, en báturinn er knúinn áfram af 41/? hestafla vél. Þetla -tórkostlega leikfang hef ur verið sýnt við strendur Flór ída, og hefur hlotið nafnið Há- karlaveiðimaðurinn. í Paris hefur verið sett á laggirnar stofnun, þar sem menn geta komið og kvartað yfir hávaða, ólykt, hættulegum gangstéttum og öllu öðru, sem þeim finnst miður fara í stór- borginni. í stofnun þessari starfa níu svokallaðir „örygg- isverðir" og hafa þeir heimild til þess að kalla sér til aðstoð- ar lögreglu, borgarverkfræð- inga, efnafræðinga og aðra sér- fræðinga á launum hjá borgar yfirvöldum. Þessir öryggisverð ir hafa einnig leyfi til þess gripa inn í, öryggi borgaranna er að þeirra dómi á ein- hvern hátt stefnt í voða og það meira að segja inni á einkaheimilum. Til þess að að- stoða þessa menn hefur lög- reglan komið á fót innan sinna vébanda eftirlitsdeild sem m. a. rannsakar skorsteina, hitun artæki og öll þau tæki, sem gefa frá sér reyk, gas eða aðra eimyrju. Þessi deild heyr ir undir glæpadeildina, og hef ur yfir að ráða efnarannsóknar stofum og tilheyrandi tækjuim. Þar starfa tíu verkfræðingar, 12 tæknifræðingar og átta aðr ir starfsmenn, sem í framtíð inni munu rannsaka með jöfnu millibili iðnfyrirtæki og rekst ur þeirra í borginni og ná- gre'nni. Þá hafa verið settar strangari reglur um hávaða frá vélknúnum tækjum en hing- að til hafa gilt í borginni. Sér- hver ökumaður, sem ekur um á óþarflega hávaðasömu öku- tæki getur nú átt á hættu, að númerin veíði af því tekin, og í staðinn verði sett á tækið miði, sem heimilar eingöngu, að því verði komið til næsta viðgerðarverkstæðis, og aðeins að viðgerð lokinni fær hann númerið afhent að nýju. — ★ —★ — Karli Bretaprins hefur borizt ósk um að hann taki að sér heldur óvenjulegt starf. Spotswood marskálkur hefur farið þess á leit við prinsinn, að hann verði eins konar ráð- gjafi í giftingarmálum fyrir unga sjóliða, sem hafa átt í erfiðleikum með að taka ákvörð un um hver skuli verða þeirra útvalda. Það er skoðun Spots- woods marskálks, að Karl prins sé sérstaklega mikill mann- þekkjari, þrátt fyrir það að hann er ekki nema 23 ára, og því hafi hann mikla mögu leika á að geta orðið sjóliðun um að liði á þessu sviði. Sjálf ur hefur prinsinn ekki valið lífsförunaut sinn, svo vitað sé, en margt hefur vérið um þær líklegu sagt og skrifað. En tíminn er nógur enn, prinsinj' er ekki það gamall, að hann •★ — ★ — Menn hafa furðað sig á því, að Jackie On issis hefur látið fyrir berast á eyjunni Skorpi os í þrjá mánuði samfleytt. Engum hafði nefnilega dottið í hug, að hún hefði eirð í sér til þess að vera á sömu eyj unni svo lengi í einu, ekki sízt, þar sem fátt er um skemmtan ir á Skorpios. Svo kom í Ijós, hvað hafði verið Jackie til skemmtunar. Það var systir hennar Lee og maður hennar Stanislaus Radziwill. Þau hafa verið í heimsókn hjá Jackic, og þegar kveðjustundin nálgaðist var haldið partý fyrir þau, og í því tóku ekki aðrir þátt en systurnar tvær og menn þeirra. Það var byrjað cldsnemma um morgun og haldið áfram til dagrenningar næsta dag. Jack ie, sem reyndar var ljósmynd ari að atvinnu, endur fyrir löngu, hefur gert veizlu þessa ógleymanlega með myn'cfum, sem hún tók. Þessi mynd er af Ari Onassis, sem hefur stokk ið fram af altarinu á bústað þeirra, og liggur nú afvclta á jörðinni — heldur óskemmti- leg mynd. I

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.