Tíminn - 29.04.1972, Qupperneq 2

Tíminn - 29.04.1972, Qupperneq 2
2 TÍMlNN Laugardagur 29. apríl 1972' lÍllÍlll Í ■ 11 Orsakir vandans Enn heldur Mbl. áfram aö kenna núverandi rlkisstjórn um allar orsakir þeirra verö- hækkana, sem oröiö hafa aö undanförnu. Auövitaö hafa þeir kjarasaniningar, sem geröir voru I desember, áhrif á þær veröhækkanir og sums staöar beinar verkanir, eins og t.d. þegar um er aö ræöa út- selda vinnu eöa þjónustu, sem grundvallast á mannakaupi. Þaö, sem þyngst vegur, eru hins vegar þær kostnaöar- hækkanir, sem hlóöust upp hjá atvinnurekstrinum og hann fékk I engu bættar meö hækk- un verölags meöan verö- stöövunin stóö yfir, eöa hátt á annaö ár, er margvlslegar kostnaöarhækkanir féllu á at- vinnureksturinn. Þessum vanda var slegiö á frest fram yfir kosningar af viöreisnar- fiokkunum. Þaö er viö þann vanda, sem rikisstjórnin glim- ir fyrst og fremst nú. Hann bætist viö þá staöreynd, aö óhugsandi var aö semja um minni kauphækkanir til handa láglaunafólki en gert var I des. — þannig haföi fyrrverandi rikisstjórn ieikiö launþega, þrátt fyrir hiö mikla góöæri á árinu 1970. Viðreisnarsiglingin En þessum herrum ferst aö taka sér i munn stór orö um efnahagsstjórnina þaö sem af er þessu kjörtlmabili, eöa hitt þó heldur. Viö skulum aöeins iita á frammistööu þeirra og efnahagsstjórn á sföasta kjör- timabili. Sú saga er i stuttu máii þessi: Júli 1967. Kosningar af- staönar. Fyrir kosningar var allt sagt I bezta lagi. Nú segir Gylfi: Miklir erfiöleikar, en gengislækkun ekki rétta leiö- in. Nóv. 1967. Gengi krónunnar lækkaö. Talin rétta leiöin, og talin sérstaklega ,,vel undir- búin”. Des. 1967. Fjárlagaaf- greiösla. Gefiö fyrirheit um 250 millj. kr. lækkun tolla. Jan. 1968. Sett upp uppbóta- kerfi upp á 320 millj. kr. i kjöl- far hinnar ,,vel undirbúnu” gengislækkunar. Feb. 1968. Tollalækkunin, 250 milljónir, varö aöeins 150 millj. Marz 1968. Hækkaö verö á áfengi og tóbaki vegna rlkis- sjóös. Sparnaöarfyrirheit. M.a. átti aö spara 200 þús. i risnu hjá rlkisstjórninni. Þeg- ar reikningurinn kom reyndist risna aldrei hærri en þetta ár. Frestaö aö greiöa framlög rikissjóös til mestu nauö- synjaframkvæmda. Aprll 1968. Skattar hækkaöir um 190 milijónir til vegasjóös. Mal og júni 1968. Slldveiöi- flotinn stopp. Gefinn út óút- fylltur vixill á rikissjóö til aö koma flotanum i gang. Júli og ágúst 1968. Frysti- húsin aö stöövast. Rikissjóöur hefur greiöslu styrkja til hús- anna. September 1968. 20% inn- flutningstollur settur á — 600 milljónir kr. Nóv. 1968. Ný gengislækkun, hin fjóröa I rööinni, aöeins 11 mánuöir frá hinni fyrri. Kosn- ingavixiarnir frá 1967 voru fallnir. Viö tóku gengis- lækkanir, álögur, krepputlma- bil og atvinnuleysi. Þannig var upphaf siöasta kjörtlmabils stjórnar þeirra, sem þykjast þess umkomnir aö deila á efnahagsstjórn nú- verandi rikisstjórnar, sem þeir kalla „aöför rikis- stjórnarinnar aö Reykvlking- um”!! — TK Við skulum i dag byrja á þvi að birta stutt bréf, sem Landfara barst austan af Vopnafirði: „Sæll, Landfari, og gleðilegt sumar. Við tslendingar eigum liklega heimsmet i þvi, hvað við höfum marga fri- og helgidaga á ári, og svo er alltaf verið að stytta vinnu- timann hina dagana, vinnuvik- una, og lengja sumarleyfin. Fridagar og helgidagar, tveir eða þrir i hverri viku og fjórir þegar bezt lætur. Ég óttast, aö við íslendingar höfum ekki efni á þessu, og sennilega höfum við ekki gott af þvi heldur. Viö eigum svo margt ógert, en vonandi tekst núverandi rikis- stjórn að sigrast á þeim örðug- leikum, sem fram undan eru, en þvi miður eru þeir margir, ekki sizt efnalega. Þingmenn okkar, sextiu aö tölu, hafa sinar 54 þús. kr. á mánuði, sennilega heföi mátt fækka þingmönnum um tuttugu. Við tslendingar erum svo fáir. Ég er ofurlitið hissa á þvi, að borgarstjórinn i Reykjavik skuli geta annað hvoru tveggja, borgarstjórninni og þingmennsk- unni. Hvilikt þrek, sem sá maður hlýtur að hafa. Jæja, ég kveð þig landfari, og kannski fer þetta i rusla körfuna. Einar Runólfsson”. Góð áminning Og hér er annaö bréfkorn um mál, sem rætt var hér i þættinum fyrir skömmu: „Landfari góður. Föstudaginn 14. april var i þætti þinum birt varnaöarorö frá Sauöfjárverndinni. Ekki veit ég, hvaöa stofnun þaö er, nema ef vera skyldi deild úr Dýravernd- inni. Þetta var þörf áminning og orð i tima töluö. Þó vildi ég bæta eilitlu við, til þess að vekja athygli á þvi, hve margir bændur eiga i vök að verjast gagnvart hinum skotglööu sportmönnum, sem ekki hika við að koma jafnvel inn á tún okkar, bænda og skjóta þar fugla innan um lambféð i algeru leyfisleysi. Þetta er þvi margfalt afbrot. Eins mætti það heyra undir sauðfjárvernd að banna hinum skotóðu mönnum að flæmast um haga og afréttarlönd siðsumars, myrðandi fugla og styggjandi sauðfél. Ég held, að slik styggð af manna völdum á heiðum uppi hin siðari ár eigi verulegan þátt i þvi, hve sauðfé rennur snemma niður á haustin frá góðum afrétta- gróðri. Þetta hefur aukizt mjög. siðan menn fóru að fara um heið- ?r og afrétt á bilum. Banna ætti allt fugladráp og skothrið á af- rétti, að minnsta kosti þangað til fjallferðum er lokið á haustin. G.Ó. Ljóð frá ungu skáldi Og loks er hér bréf frá ungri skólastúlku, sem er aö þreyta þá miklu raun, sem landspróf kall- ast, á þessu vori. Landfari vonar, að henni gangi vel, og rökstyður bréfiö likur til þess”. „Kæri Landfgri. Ég vildi byrja á þvi að þakka ykkur fyrir allt gott á liðnum ár- um. Timinn hefur verið keyptur heima hjá mér siðan ég maneftir mér (ég er 16 ára). Ég þakka þó sérstaklega fyrir spegil Timans, hann er sérstaklega góður, og ekki hefur blaðið versnað siðan það fór að koma út offsetprentað. Jæja þá er bezt að snúa sér strax að efninu. Ég les alltaf ljóðin, sem þið birtið i Sunnudagsblaöinu, og langar mig að senda ykkur hérna eitt ljóð, sem skólabróðir minp,að nafni Gunnar Bóasson, samdi og hefur hann samið mörg fleiri ásamt öðrum skólabræörum min- um. Hér kemur ljóðið: VIETNAM Djöfull leikur drápshlutverk og dansar á rauðum glóöum. Bandi er brugðiö fyrir kverk, og barnið kyrkt með hljóðum. Um morðin enginn maður veit, og enginn hefur kjaftað enn. En hermenn komu meö hryðju- sveit, svo hundruðum saman féllu menn. Hvers vegna haga menn sér svona, að hengja, drepa og pina menn. En viö skulum bara biða og vona, að breytist hugsun manna senn. Ég vel þetta kvæði úr hópi margra annarra, og vona ég að ykkur liki það. Virðingarfyllst Asdis Sigurðardóttir 3. bekk Landsprófs. Túngötu 5, Húsavik. Og þar meö lýkur Landfari bréfabirtingu i dag. MINNINGARSJÓÐUR VIGDÍSAR KETILSDÓTTUR 0G ÓLAFS ÁSBJARNARSONAR Ákveðið hefur verið, að sjóðurinn veiti styrk 2 læknum til framhaldsnáms, kr. 500.000.00 hvorum, sem greiðist á næstu 4 árum kr. 125.000.00 árlega. Umsóknir ásamt upplýsingum um hvaða sérgrein væri að ræða og aðrar upplýs- ingar sendist formanni sjóðsins, Ásbirni Ólafssyni, Borgartúni 33 fyrir lok júni- mánaðar 1972. MEINATÆKNAR Staða meinatæknis við Sjúkrahúsið á Selfossi er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1. júli n.k. Upplýsingar um starfið gefur ráðsmaður sjúkrahússins i sima 99-1299, heimasimi 99-1545. Sjúkrahússtjórn. Starfsmenn sumarbúða Ungmennafélag íslands efnir til nám- skeiðs fyrir starfsmenn sumarbúða og sumarbúðastjóra. Námskeiðið fer fram að Leirárskóla i Borgarfirði dagana 26. 27. og 28. mai, ef næg þátttaka fæst. Umsóknum þarf að skila á skrifstofu UMFÍ að Klapparstig 16, simi 12546, fyrir 15. mai. Ungmennafélag íslands. SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Aukatónleikar i Háskólabiói fimmtudaginn 4.mai kl. 21. Stjórnandi Ragnar Björnsson. Flutt verður: Stabat Mater eftir Dvorak. Flytjendur: Guðrún Á. Simonar, Svala Nielsen, Magnús Jónsson, Jón Sigur- björnsson, óratóriukórinn og Karlakór Reykjavikur. Aðgöngumiðar seldir i Bókabúð Lárusar Blöndal, Skólavörðustig 2 og i Bóka- verzlun Sigfúsar Eymundssonar, Austur- stræti 18. AUGLÝSING Með auglýsingu hinn 28. marz s.l. tilkynnti fjármálaráðuneytið nýtt skipulag á starfsháttum og viðtalstimum starfs- manna fjármálaráðuneytisins. í framhaldi af henni vill ráðuneytið minna á, að þess er óskað, að aðilar, sem erindi eiga á skrifstofur ráðuneytisins ákveði simleiðis viðtalstima og beini simtölum á sérstakan simaviðtalstima þannig: Viðtalstimar mánudaga-föstudaga kl. 8.45—11.00 f.h. miðvikudaga kl. 17.00—19.00 e.h. Simaviðtalstimar mánudaga-föstudaga kl. 11.00—12.00 f.h., miðvikudaga kl. 16.00—17.00 e.h. Utan simaviðtalstima mun simamiðstöð sjá um að koma simaboðum til starfs- manna og þeir þá hringja aftur til hlutað- eigandi, þegar færi gefst og um brýn erindi er að ræða. Simamiðstöð mun enn- fremur aðstoða við að skipa viðtölum starfsmanna á viðtalstima. Fjármálaráðuneytið, 27. april 1972.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.